Vísir - 20.10.1935, Side 3
VÍSIR
leikur ekki nærri því eins og
liún syngur. Haraldur syngur
og ágætlega og er fríður maður,
hann er ekki leikvanur fyrir
því.
Það sem gladdi mig mest alt
kvöldið, var leikur Péturs Jóns-
sonar í Laurenzíusi. Undir eins
og liann kom inn, þá sást livað
maðurinn var vanur leiksvið-
inu og átti lieima á því. Hann
átti svo að segja alt leiksviðið,
hvenær sem liann kom inn. Það
var hinn ákaflyndi, djarfi sveit-
arliöfðingi, sem hugsar mest af
öllu um að lialda uppi friði og
lögum. Lárenzius hans er
stjórnsamur, réttlátur fursti.
Maður skilur að þessum
Laurenziusi batni tannverk-
ur, ef hann heyrir að mað-
ur liafi gefið öðrum utan undir,
því þá þarf liann strax af slað
að jafna þrætuna. Hann getur
sagt eins og hershöfðinginn í
þrælastríðinu: heimili mitt er á
hestbaki. Svo þegar hann syng-
ur herlivötina „Fram til regin
fjalla“ þá er það sungið með
svo miklu veldi, að óperusöngv-
arinn leynir sér ekki, og álieyr-
endumir heyra ekki daufleik-
ann og smekkleysuna „Sjáum
skina á skalla, skoðum sólar-
dyr.“ Kvæðin sem lárviðar-
skáldið setti í Skuggasvein, en
ekki voru í Útilegumönnunum,
eru, þegar söngur Margrétar er
undantekinn, ekki jafngóð hin-
um. Stefin sem Ögmundur tal-
aði áður og því miður syngur
nú, heyra þar undir.
Skuggasveinn sjálfur — þessi
einmana djöfull, sem alla liat-
ar, er leikinn i sömu stefnu og
þeir tóku upp Halldór Jónsson
í latínuskólanum, og Jens
Waage, þegar leikfélagið lék
Skuggasvein. Eg óska þeirri
stefnu sigurs.
Eg fór mikíu glaðari og hress-
ari af leiksýningunni en eg
kom þangað, og það eru ein-
mitt áhrifin sem hver leiksýn-
ing á að hafa.----Eg óska og
vona að aðsóknin að Skugga-
sveini verði liin besta, og að
þeir sem vilja sjá Skuggasvein,
komi sem fyrst. Eg vil vona, að
leikfélagið, sem á mjög þröngt i
búi, fái nú gullið alt í Rínar-
skóg i vetur.
Indr. Einarsson.
„Þap sem
vídsýnid
skínM.
Formaður skólanefndar Reykja-
víkur frú ASalbjörg SigurSardótt-
ir, ritar grein í tímaritiö Menta-
mál, apríl—ágúst heftið, og er þar
mjög hneyksluð á grein eftir frú
Guðrúnu Lárusdóttur, þar sem
talið var að uppeldi barna hér í
bæ væri mjög á villigötum, sem
stafaði fyrst og fremst af því, aS
í skólunum væri börnunum nú
kent hreint og beint viröingarleysi
fyrir trú og kristindómi. Þetta
finst frú ASalbjörgu Sigurðardótt-
ur nokkuð hart. þar sem hún hafi
verið formaður skólanefndar, og
manni skilst aö henni finnist að
það ætti öllum að vera næg trygg-
iíig fyrir að vakað væri yfir því að
kristindómskensla væri í góðu lagi.
— Þetta gæti þó tortryggnir menn
dregið nokkuð í efa eftir að hafa
lesið ritdóm frúarinnar um „Rauðu
hættuna“ hans Þórbergs, sem birt-
ist í síðasta tölublaði Sovétvinar-
ins. Þar segir frúin að hún hafi
ekki lengi lesið bók, sem hún hafi
orðið eins hrifin af. Sérstaklega er
írúin gagntekin af sannleikselsku
Þórbergs, endá telur hún þá elsku
citt einkenni hans. Og ekki er ann-
að að sjá, en að frúnni finnist alt
skipulagið þar eystra til fyrir-
Skák.
Tafl Nr. 4.
Teflt í síma í júní—ágúst '35. —
Drotningarpeðstafl. Hvítt: Bene-
dikt Jóhannsson. — Svart: Baldur
Möller: 1. d2—d4, RgS—fó; 2.
C2—04, ey—e6; 3. Rbi—C3, Bf8—
I14 (Nimzovitsch-leikur) ; 4. Bci—
g5> h7—hó; 5. Bg5—114, b7—b6;
6. Hai—ci, Bc8—117 ; 7. a2—a3,
Bb4-^e7; 8. Bh4—g3, d7—d6; 9.
Ddi—c2,-Rb8—d7. 10. e2—e4, Rf6
—h5; 11. Bfi—d3, íy—fs ! (Losar
um kóngsstöðuna og hótar f5—Í4,
hvitur má ekki drepa peðið vegna
Bxg2); 12. Rgi—e2, o—o! (hót-
ar aftur f5—f4) ; 13. e4xf5 (betra
Í2-*-f3 eða f4), Bbxg2; 14. Hhi—
gi, Bg2—h3; 15. f^xeó, Bxe6; 16.
d5, Be6—h3; 17. Bd3—g6, RI15X
Bg3! (Nú má hvítur ekki drepa
með hróknum, því þá 18. . . Be7—
114!!; 19. HxBh3, Hf8xf2! og tafl
livíts er gjörtapað) ; 18. h2xRg3,
Rd7—e5 ; 19. Re2—d4, Re5—Í3f;
20. Rd4xRf3, Hf8xRf3; 21. Rc3—
e2, Be7—g5 ; 22. Hci—di, Dd8—
e7; 23. Bg6—e4, HÍ3—f8; 24. Í2—
4, Bgs—f6; 25. Be4—f3, Ha8—
e8; 2Ó.BÍ3—h*5, De7—e3! og hvít-
ur gaf
ABCDEFGH
ef hvítur drepur hrókinn 27. (Bhsx
He8, Hf8xe8; þá verður hvítur að
forða hróknum á gi, en ef Hgi—
hi, þá De3xg3 og mátar í 2 leikj-
um.
myndar. — Lítum nú á bók Þór-
bergs, sem frúin er svona hrifin af.
Á blaðsíðu 129 er eftirfarandi
lclausa:
„Hafið þið enga kristindóms-
fræðslu?" (spyr höf.).
„Nei. En við höfum einstöku
sinnum fræðslu gegn (leturbreyt-
ing höf.) trúarbrögðunum. í sum-
um heimahúsum loðir enn þá sá ó-
siður við fjölskyldurnar frá keis-
aratímunum, að kenna börnunum
að trúa. Gegn slíkum hleypidóm-
um verða skólarnir að berjast.
Börnunum er sýnt fram á fjar-
stæðurnar í Biblíunni með visinda-
legum staðreyndum. Þeim er kent,
að enginn guð sé til, að kraftaverk
séu fjarstæða og að kirkjan hjálpi
auðmönnunum og geri heilann
þokukendan. Þannig vinnum vér
gegn öllum trúarbrögðum“,
Ekki hefir frúin neitt við þetta
að athuga. Henni finst það sjálf-
sagt ágætt. En ef sagt er frá því,
að hér sé alið á virðingarleysi fyr-
ir trúarbrögðunum í skólunum, þá
hneykslast hún. Mikil gersemi er
einlægnin! b.
Ráðherrafundur í Oslo.
Oslo 17. okt.
Ráðherrafundur var haldinn í
Oslo í gær. Að honum loknum
sagði Koht utanríkisráðherra í
viðtali við 'Norsk Telegrambyraa,
að engar ákvarðanir hafi verið
teknar um að kalla saman Stór-
þingið, en að öllum líkindum kæmi
utanríkismálanefnd saman bráð-
lega. (NRP-hFB).
Merkur Norðmaður látinn.
Oslo 18. okt. -
Jakob Schetelig prófessor í
jarðfræði og námufræði við há-
skólann í Oslo er látinn sextugur
að aldri. (NRP—FB).
Mösik Útvarpsifls.
Góður siður er það sem Útvarpið
hefir tekið upp, að láta dagskrána
enda á ættjarðarsöng. En ef það
er altaf sami söngurinn, viku eftir
viku', þá mun að litlum n'otuni
koma, því að margir munu loka.
Eg vil því leggja til, að skift sé
um, og sama lagið ekki haft nema
eina viku eða tvær um sinn, enda
af nógu að taka. Það má t. d.
minna á hið ágæta lag Árna Thor-
steinssons „ísland vort land“, eða
lag Sveinbjörnssons við hið óvið-
jafnanlega ættjarðarkvæði Jónas-
ar Hallgrímssonar, „Fífilbrekka
gróin grund“, eða lag Sigfúsar
Einarssonar við Fánakvæði Einars
Benediktssonar. — Annars er það
aðalgalli á músík útvarpsins, að
vér fáum of oft að heyra það sem
ekki er gott, en ekki nógu oft það
sem gott er, eins og t. d. liinn ágæt-
lega norræna þjóðsöng Norð-
manna (Festpolonaise) eftir Jo-
han Svendsen, eða ýms snildarverk
eftir Tsjaikofski, sem; miklu frem-
ur virðast norræn í eðli en slaf-
nesk, þó að þau séu eftir Rússa.
Eitt af leiðinlegustu lögum Schu-
berts (der Tod und das Mádchen
eða verk þar sem það lag er not-
að) fengu hlustendur tvisvar á
skömmum tíma, en hinn undur-
samlega þríleik op. 99 (minnir mig
talan sé), höfum vér ekki fengið
að heyra svo mánuðum skiftir.
Músik, sem oss þykir gott að
heyra, gerir oss glaðara í geði og
styrkir oss til góðra hugsana og
fyrirætlana, en það sem oss leið-
ist að heyra, er oss til einskis
gagns. Þó verður þess að gæta, að
jafnvel hið besta, ketnur oss ekki
að fullum notum fyr en vér höfum
heyrt það nógu oft.
17. okt.
Helgi Pjeturss.
CJtan af landL
Akureyri 17. okt. FÚ.
Sauðfjárslátrun
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akur-
eyri lauk 10. þ. m. og hafði hún
þá staðið yfir síðan 17. f. 111. —
Slátrað var á þessum stöðum:
Akureyri, Svalbarðseyri, Dalvik,
Grenivik og Ólhfs|irði, samtals
26.626 kindum. Sauðfé reyndist
heldur vænna en í fyrra. Nálega
alt kjötið var fryst.
Eldsvoði.
Siglufirði 18. okt. FÚ.
Eldur kviknaði um tvöleytið í
nótt í Alþýðuhúsinu á Siglufirði,
nýju steinhúsi við Þórmóðsgötu,
öðru stærsta samkomuhúsi bæjar-
ins. — Vesturhluti hússins, tvílyft-
ur með tveim litlum fundarsölum,
eldhúsi og fatageymslu, anddyri
og snyrtistofu, eyddist að mestu
og samkvæmissalur og leiksvið í
austurhlið hússins stórskemdist af
eldi, vatni og reyk. Eldsupptök eru
ókunn.. Húsið var vátrygt hjá
Brunabótafélaginu fyrir 30.000 kr.
en innanstokksmunir: eldhús,
stólar, borð, bekkir og leiktjöld
voru óvátrygð.
B.v. Kópur
liggur á Siglufirði til þess að
kaupa ísfisk, en bátum gefur ekki
á sjó.
Síldveiðarnar.
Hafnarfirði. FÚ.
Um 1000 tunnur af sild komu
til Hafnarfjarðar í dag og kveld.
Síldin veiddist i Miðnessjó en
grynnra en áður. Veður var sæmi-
legt í nótt, að sögn sjómanna, en
um birtingu tók að hvessa.
1.0 0 F, 3 = 11710218 =
87. III
Veðurhorfur í gærkvöldi.
Suðvesturland, Faxaflói: Mink-
andi norðanátt. Hægviðri á morg-
un. Bjartviðri. Breiðafj., Vestfirð-
ir : Hægviðri. Úrkomulaust. Norð-
urland, norðausturland, Austfirð-
ir: Minkandi jiorðanátt. Dálítill
éljagangur. Suðausturland: Norð-
ankaldi. Úrkomulaust.
Háskólafyrirlestur á ensku.
Fyrsti fyrirlesturinn verður
fluttur í Háskólanum á mánudag-
inn kl. 8,15 stundvíslega. Efni:
Nokkur ensk Jijóðareinkenni.
E. s. Dettifoss
fer héðan í dag áleiðis til Hull
og Hamborgar. Meðal farþega
eru: Benjamín Einarsson, Her-
mann Þórarinsson, Friðþjófur
Thorsteinsson, Þorvaldur Stephen-
sen, Kristján Einarsson, frú Þóra
Einarsdóttir. með 3 börn, Kjartan
Gíslason,Gísli Halldórsson, Hörð-
ur Bjarnason, Hörður Jónsson,
Regína Methúsalemsdóttir, Laufey
Bjarnadóttir, Katla Pálsdóttir,
Kjartan Sigairðsson, Miss Etty
Tijmsta, Kjartan Sigurðsson, Sig-
valdi Þórðarson, Sveinn Þórðar-
son, Gunnar Böðvarsson, Haraldur
Hannesson, Björn Þórarinsson,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Snæ-
björn Kaldalóns, Karl Lúðvígsson,
Skúli Gíslason, Matthias Hreiðars-
son, Ragnar Ólafsson, Baldur Ei-
riksson, G. Cole, E. Green, Miss
Lorenz og Holger Christensen.
E. s. Gullfoss
fór héðan í gærkveldi áleiðis
vestur og norður. Meðal farþega
voru Hreinn Pálsson og frú, Guð-
rún Þorbjarnardóttir, Einar Guð-
johnsen, Hafliði Halldórsson, Ein-
ar Þorvaldsson, frú Sigurðsson,
Alfons Jónsson, Jón Arnesen, Jó-
hann Karlsson, Jón Kristjánsson,
Kristján Ó. Skagfjörð heildsali o.fl.
Kappleikur í dag.
Þar eð ekki varð úr knatt-
spyrnukappleiknum á dögunum
'milli „Vals“ og Þýskalandsfar-
anna, keppa Valur og Frani í dag
kl. 2. íþ.
Hlutavelta í Hafnarfirði.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnar-
firöi efnir til mikillar hlutaveltu í
dag í bæjarþingssalnum (gamla
barnaskólanum) og hefst hún kl.
4 síðdegis. Þar verða fjölda marg-
ir ágætir munir á boðstólum, mat-
vörur o. m. fl. Verður vafalaust
fjölmenni á hlutaveltu þessari, því
að þar geta menn eignast hina
þarflegustu muni með litlum til-
Vatnsskortur háir ítölum í
Abessiniu.
London, 19. okt. FÚ.
Fregn frá Addis Abeba segir,
að eitt af erfiðustu viðfangsefn-
um ítala í Abessiniu, sé að út-
vega sér drykkjarvatn. Þeir
grafa brunna, bvarvetna á leið
sinni, en víðast livar er vatnið
svo saltmikið, að það er óliæft
til neyslu. Öll skip, sem nú sigla
frá Ítalíu til Austur-Afríku
flytja eins mikið af drykkjar-
vatni, og við verður komið. í
tveimur herskipum, sem liggja
við Assab í Eritreu, er nóg að
gera við að búa til ísvatn lianda
sjúkum hermönnum. Geymsla
matvæla veldur ítölum einnig
nokkuri-a vandræða. Abessiniu-
menn aftur á móti þurfa litla
næringu, og minna drykkjar-
vatn en ítalir. Þeir bera í vös-
um sínum ber og jurtir, sem
geta nægt þeim um lengri tíma.
kostnaði, ef heppnin er með, en
auk þess styrkja menn góð málefni
með þvi að koma á hhitaveltuna.
Góð unglingabók.
Nýlega er iit komin á kostnað
I safoldarprentsmiðju ágæt ung-
lingabók, er nefnist „Sesselj.a síð-
stakkur og fleiri sögur“. Höfund-
urinn, Hans Aanrud, er i flokki
þeirra norskra rithöfunda, sem
njóta einna mestra vinsælda í
heimalandi sínu nú sem stendur.
Freysteinn Gunnarsson liefir ís-
lenskað sögurnar. Þær eru þessar:
„Sesselja síðstakkur“ — „Veiði-
ferðin“ — „Litla Marta“ — „Þeg-
ar Óli litli seldi kvöldbænina" —
„Rebbi“ og ,Biskupsmessa“. —
Sögurnar eru vel sagöar og sumar
mjög skemtilegar. — Og ekki virð-
ist nokkur vafi geta á því leikið,
að þær hljóti vinsældir meðal ung-
linga. — Fullorðiö fólk mun og
hafa ánægju af að lesa þær.
Næturlæknir
er í nótt Páll Sigurðsson, Garða-
stræti 9. Sími 4959.-----Nætur-
vörður í Reykjavíkur apóteki og
Lyfjabúðinni Iðunni.
Sólargeislinn
hefir fund, kl. 4 í dag í Betaniu.
Félagsstúlkur eru beðnar að mæta
stundvíslega.
Betanía
Laufásveg 13. Samkoma í kveld
kl. 8/2. Síra Friðrik Hallgrímsson
talar. Allir velkomnir.
K. F. U. M. í Hafnarfirði.
Fundur verður í Y. D, kl. 4 í
dag. U. D. kl. 5/2. Almenn sam-
koma kl. &/2 í kvöld. Þangað eru
allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn.
Samkomur i dag: Kl. 11 f. h.
helgunarsamkoma, kl. 2 e. h.
sunnudagaskólinn, kl 4 e. h. úti-
samkoma vakningarvikunnar. Zí-
onskórið syngur. Allir velkomnir.
Heimatrúboð leikmanna,
Hverfisgötu 50. Samkomur í
dag: Bænasamkoma kl. 10 f. h.
Almenn samkoma kl. 8 e. h. í
Hafnarfirði, Linnetsstíg 2, Sam-
koma í dag kl. 4 e. h. Allir vel-
komnir.
Bókasafn „Anglia“
í breska konsúlatinu er opið á
mánudögum og miðvikudögum kl.
9—10 e. h. Margar nýjar bækur
eni komnar, og allir enskulesandi
menn eru velkomnir.
Til heilsulausa mannsins
(sbr. hjálparbeiðni í Vísi 19. þ.
m.), afhent Vísi: 10 kr. frá G. P.
Áheit
á Hallgrímskirkju i Saurbæ, af-
hent Vísi: 15 kr. frá hjónum.
Áheit
á Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins, afhent Visi: 10 kr. frá sjúk-
lingi.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Visi: 5 kr. gamalt áheit
frá ónefndri, 5 kr. gamalt áheit frá
ónefndum, 2 kr. frá G., 2 kr. frá
S. G.
Khöfn í gær. Einkaskeyti til FÚ.
Frá Stefáni Guðmundssyni.
íslenski tenórsöngvarinn Stefán
Guðmundsson hefir verið ráðinn
aðstoðarmaður við hljómleika
norska Philharmoniska félagsins, á
mánudaginn kemur.
Viðtal við Svein Björnsson.
Dagblaðið Börsen birtir í dag
viðtal við Svein Björnsson sendi-
herra Islendinga í Kaupmannahöfn,
um Sogsvirkjunina, upphitun með
hveravatni á íslandi, og leiðslu
hveravatna um lengri veg. í þessu
viðtali er einnig rætt um þróun og
aukningu vegakerfisins íslenska.
STRÍÐIÐ.
fmsar fréttir.
De Bono afnemux þrælahald.
Oslo. 20 okt. (FÚ).
De Bono, hershöfðingi ítala,
befir lýst því yfir, að hann hafi af-
numið þrælahald í þeim héruðum,
sem ítálir ráði nú yfir.
Abessiniumenn hafa 350.000
manna her á norðurvígstöðvunum.
Oslo 19. okt. (FÚ)
Talið er að her Abessiniumanna
á norðurvígstöðvunum nemi nú
350 þúsundum manna.
Rauðakross félög um heim allan
hjálpa Abessiniu.
Alþjóða-Rauðakrossnefndin í
Genf hefir sent hinum ýmsu
Rauða-krossfélögum beiðni um
styrk til handa Rauöa-Krossi A-
bessiniu. Rauði-Kross Danmerkur
hefir þegar gefið 5 þúsund krónur
og þar að auki hafið fjársöfnun
um alt land. Verður því fé ef til
vill varið til þess að senda lijúkr-
unarkonur og lækna til Abessiniu,
að dæmi Svíþjóðar og fleiri ríkja.
Þá hefir Rauði-Kross Noregs
hafið\ fjársöfnun til handa Rauða-
Krossi Abessiniu. Er sagt, að i
Abessiniu sé tilfinnanlegur skortur
á öllum hjúkrunartækjum, og að-
staða öll mjög slæm, einkum vegna
vatnsskorts. Læknar og hjúkrun-
arkonur, á því mentunarstigi, sem
annarsstaðar gerist, eru varla til í
landinu, og skortur á sáraumbúð-
um, meðulum og lækningatækjum
tilfinnanlegur. Rauða-Kross félög
ýmissa landa hlaupa nú undir
bagga með hinu unga Rauða-
j Krossfélagi Abessiniu,, til þess að
það geti veitt þá líkn, sem aðeins
er á valdi Rauða-Krossins að veita,
í styrjöldum.
ítalir þokast áfram í áttina til
Makale.
Lonodn 19. okt. (FÚ)
Af vígstöðvunum berast ekki
aðrar fregnir í dag, en þær, að
framverðir ítala þoki sér nú í átt-
ina til Makale, en verkamenn og
fangar eru látnir vinna af kappi að
vegabyggingu á þessum slóðum,
og vantar nú ekki nema 20 enskar
mílur á, að þeir séu komnir með
veginn til Makale.
Stjómin i Abessiniu endurtekur #
þá yfirlýsingu í dag, að hún ætli
Úð leyfa ítölum að halda inn í
landið, án þess að veita verulegt
viðnám, þangað til ítalir eru
komnir að Amba Alagi fjalli, sem
er 40 enskar mílur suður af Mak-
ale, en það er hæsta f jallið á þessu
svæði, og við þetta fjall gjöreyddu
hersveitir Abessiniumanna itölsk-
um her fyrir 40 árum.
Berlín, 19. okt. FÚ.
Öeirðir í Neapel?
Tyrknesk útvarpsstöð skýrði
frá því 14. okt. að uppreisn og
blóðugar óeirðir hefðu orðið í
Neapel í sambandi við burtför
skips eins, sem var að fara til
Austur-Afríku. Tyrkneska stöð-
in bar þýska útvarpsstöð fyrir
þessari frétt, en Berlínarútvarp-
ið ber það nú til baka, að þessi
fregn sé komin frá Þýskalandi,
og heldur því fram, að Tyrk-
nesk blöð muni hafa fengið
fregnina frá einliverjum út-
varpsstöðvum norðan Svarta-
hafsins.
London 18. okt. FÚ.
ítalskir flugmenn
sem halda uppi loftárásum á norð-
urvígstöðvunum viðurkenna, að
Abesiniumenn séu orðnir meistar-
ar i að dyljast. Þeir bera ryk og
tnold á klæði sín, og liggja graf-
kyrrir á jörðinni, svo að ómögu-
legt er að greina þá úr lofti, eða
þrýsta sér upp að trjábolum. Enn
hafi þeim þó ekki tekist að fela
herbúðir sínar og tjöld.