Vísir - 30.10.1935, Blaðsíða 4
VÍSIR
Heimdallup.
Vöpöup.
sjálfstæðismanna verður haldinn laugardaginn 2. nóv., kl. !)
e. h., að Hótel Borg.
Skexntiatriði: Ræðuhöld, upplestur, einsöngur kvartett og
dans. —
liefir feröast síöustu 6—7
urnar, og dvelur heima a'Seins
nokkra daga. Á laugardagskveld-
iS, 2. nóv. kl. 8y2, ætlar Pétur
SigurSsson aS endurtaka erindi,
,sem hann ílutti í Reykjavík í haust
rétt áSur en hann fór austur, og
fékk þá strax áskorun um aS end-
urtaka erindiS. Fyrirlesturinn var
um: LýSræSi og einræSi, og þaS,
hvers vegna þjóSirnar hafa hneigst
aftur aS einveldi; hvers vegna þær
hafa horfiS svo mjög frá trúar-
brögSum sínum, og hvers vegna
menn nú leggja aSal áhersluna á
félagslegar umbætur. — ErindiS
verSur endurtekiS í VarSarhúsinu.
Músikklúbburiml
heldur 9. hljómleika sína kl. 9
í kveld á Hótel ísland. BorS má
panta i síma 1450. Sjá augl. í
blaSinu í dag.
Útvarpið í dag.
19,10 VeSurfregnir. 19,20 Þing-
fréttir. 19,45 Fréttir. 20,15 Erindi:
Ásetningurinn í vetur (Steingrim-
ur Steinþórsson búnaSarmálastj.)
20,40 Hljómplötur: Tónverk eftir
Beethoven. 21.05 Erindi: Vanda-
mál fjölskyldna á Sturlungaöld, II
(Björn Sigfússon magister). 21,30
Hljómsveit útvarpsins (dr. Mixa):
Pianó-konsert nr. 2 í G-dúr, eftir
I. Ph. Rarneau (Einleikari: Páll
ísólfsson). 21,55 Hljómplötur:
Mozart: a) Forleikur í ítölskum
stíl; b) Kvintett í Es-dúr.
Fiskimála**
nefná
Nopðmanna
ræðir sölu og útflutning á
lifandi þorski.
Oslo 29. okt.
Fiskimálanefndin stóra er kom-
in saman á nýjan fund í Oslo til
þess að ræöa út um tillögur viö-
Víkjandi skipulagningarmálum
fiskimanna, sölu á lifandi þorski o.
fl. Nefnd þessi haföi áður til meö-
feröar síldarmálin og saltfiskmálin
og lagöi fram tillögur þeim viö-
víkjandi. (NRP—FB).
Óvanaleg kensluaðferÖ.
Pólverjar eru á leiöinni aö verða
siglingaþjóð sem kunnugt er. Þeir
liafa eignast nokkur skip, m. a.
stórt farþegaskip, nxeö öllum nú-
tímaþægindum, „Pilsudski“, sem
áður var sagt frá hér í blaðinu, og
et það í förum milli Gdynia,
hafnarborgar Póllands, og New
York. Eigendum pólsku skipanna
er það ljóst, aö það muni hæna
ameríska ferðamenn að pólsku
skipununx, ef skipsmennirnir séu
góðir í ensku, og þess vegna hafa
þeir tekiö það ráö aö hafa ensku-
kennara á skipunum, sem veitir
skipunum, ef skipsmennirnir eru
á sjónum. Fá jteir alt að því 3
klst. æfingu á dag. Auk venju-
legra kenslubóka eru notuð tímarit
og blöS til stuðnings við kensl-
una, auk þess sem kennararnir tala
sem mest ensku viö sjómennina.
Hefir þetta borið ágætan árangur.
Iíinn kennarinn, Stowski prófessor
var búinn að 'fara ellefu sinnum
milli Gdynia og New York í sum-
ar, sem kennari á skipunum Pul-
aski og Kosciuszko.
AUGLÝSINGAR FYRIR
lAFNARFJCRI).
Nýr, reyktur og hakkaður
fiskur daglega. Reykjavíkur-
vegi 5, Simi 9125. (1297
_ ____JÍBNfíPffl
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
i kveld á venjulegum stað og
tímá. Kosning; embættis-
manna. Mikilsvarðandi mál
liggja fyrir fundinum. Nauð-
synlegt að félagar fjölmenni.
Æ. T. (1383
Reykjavíkur elsta kemiska
fatahreinsunar- og viðgerðar-
verkstæði breytir öllum föturn.
Gúmmíkápur límdar. tíuxur
pressaðar fyrir eina krónu. Föt
pressuð fyrir 3 kr. Föt kemiskt
hreinsuð og pressuð á 8 kr.
Pj-essunarvélar eru ekki notað-
ar. Komið til fagmannsins Ry-
delsborg klæðskera. Laufásvegi
25. Sími 3510. (1298
Sonur Péturs Jónssonar úr
Álftafirði vestra óskast til viðtals
í Þingholtsstr. 27, í dag eða,næstu
daga, síðdegis, eftir kl. 4. (1375
SKRITLUR.
Pétur var lasinn og bað Jón
frænda sinn að sækja kaupið sitt
um mánaðamótin. Jón var lengi í
þessum útréttingum og kom ekki
fyrri en urn seinan háttatíma.
Hann settist á rúmstokkinn hjá
Pétri og mælti:
— Þetta gekk fjandalega.
Eg tapaöi kaupinu þínu, Pétur!
Pétur: Tapaðir kaupinu mínu?
Jón: Já, þv.í er nú ver og miður.
Og ef ég hefði ekki haft vit á að
hætta að spila, þá hefði ég sjálf
sagt tapaö mínu kaupi lika!
Drengur: Nú ætlunx viö strák-
arnir að leika fílana í dýragarðin-
um og þú átt að hjálpa okkur,
mamma.
Mamma: Hvernig á ég að fara
að því ?
Drengur: Þú átt aö vera góöa
k.onan, senx gefur fílunum hnetur
og sykur.
Kvinna'
Stúlka óskast í vist. Grettis-
götu 71. Sérherbergi, Iauga-
vatnshiti. (1342
Stúlka óskast í vist um
óákveðinn tíma í veikindafor-
föllum annarar. Kristin Páls-
dóttir, Sjafnargötu 11. (1339
AÐALSKILTASTOFAN,
Kárastíg 9. Öll skilti og glugga-
auglýsingar verða bestar þaðan.
Aðeins vönduð vinna. Verð við
allra hæfi. (1214
Stúlka óskast í vist, 2 í heimili
og öll þægindi, uppl. á Kárastíg
13- (1366
Stúlka óskast nú þegar á Sóleyj-
argötu 5. (1365
Stúlka óskast í vist hálfan eða
allan daginn til Sig. Gröndals
Framnesveg 38. (1362
Röskur drengur, 10—12 ára,
óskast til sendiferða fyrri part
dags. Þarf að hafa hjól. Uppl.
Laufásvegi 2, kl. 6—7. (1381
Slúlka óskast hálfan daginn
um tveggja mánaða tíma. Uppl.
Laufásveg 2, kl. 6—7. (1380
Nýlenduvöruverslun til sölu.
Tilboð sendist Vísi fyrir 1. xtóv.
merkt: „Vinna“. (1361
(TAPAt rUNFIf)]
Gléraugu liafa fundist fyrir
rúmum mánuði. Uppl. á afgr.
Vísis. (1346
Tapast hefir sjálfblekungur,
„Swan“. Finnandi vinsamlega
beðinn að skila honum til Silla
& Valda, Vesturgötu 48. (1354
Wonder-sjálfblekungur (merkt-
ur) hefir tapast. Skilist í verslun
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.,
Austurstræti 1. (i379
FÆf)l
GOTT FÆÐI
fyrir sanngjarnt verð, er selt á
Spítalastíg 6 (uppi). Sérstakur
afsláttur gefinn gegn fyrirfram-
greiðslu til lengri tíma. (942
Borðið í. Ingólfsstræti 16. (852
KtlClSNÆElJ
1 herbergi með húsgögnum
óskast sem fyrst. A. v. á. (1349
Gott forstofuherbergi til leigu
á Hverfisgötu 82. (1350
‘2 liérbergi óslcast. — Uppl. í
síma 2534. (1352
Skólastúlka óskar eftir góðri
sambýlisstúlku í herbergi með
sér. Uppl. í síma 4729, kl. 6—8
síðdegis. (1355
Herbergi til leigu. Miðstræti
4, uppi á lofti. (1356
Rúmgott herbergi óskast
slrax. — Uppl. í síma 3064. —
(1357
1—2 herbergi og eldhús ósk-
ast. Uppl. í síma 2964. (1358
Herbergi til leigu. Uppl. milli
8 og 10 í kveld hjá Gísla Guð-
mundssyni, Laugavegi 67, uppi.
(1359
Hei’bergi og rúm, best og
ódýrust á Hverfisgötu 32. (181
Kvenmaður óskar eftir herbergi,
til mála gæti komið hjálp við hús-
verk. Uppl. Njálsgötu 51. (1378
Skólapiltur óskar eftir herbergi
í austurbænum. — Uppl. í síma
4885. (1377
1 herbergi til leigu Bragagötu
29. (1376
Sólrikt herbergi til leigu á Berg-
þórugötu 21. Uppl. á staðnum,
efri hæð. (i37o
Herbergi, með sérinngangi, til
leigu. Uppl. í síma 1208. (1369
Loftherbergi til leigu á Hverf-
isgötu 114. Uppl. eftir kl. 7. (1368
Til leigu herbergi með ljósi og
hita á Skólavörðustíg 16. Aðeins
fyrir karlmann eða kvenmann í
fastri stöðu. (1367
Reglusamur piltur óskar eft-
ir herbergi með þægindum. —
Helst í miðbænum. — Fyidr-
framgreiðsla mánaðarlega. —
Uppl. í síma 4780. (1385
Eitt ódýrt lierbergi til leigu á
Laugaveg 51B. Aðgangur að
eldhúsi gæti komið til mtála. —
Uppl. eftir 7. r (1384
ITAIPSFARIJRI
Ódýr húsgögn til sölu. Notuð
tekin í skiftum. Hverfisgötu 50.
Húsgagnaviðgerðarstofan. (543
Merki rúmfatnað, borðdúka,
serviettur o. fl. Sími 3525. (1268
Trúlofunarhringar í mestu
úrvali hjá — Sigurþór. — Hafn-
arstræti 4. (665
Kaupi gamalt gull og silfur til
bræðslu. Jón Sigmundsson gull-
smiður, Laugavegi 8. (1148
2 hólfuð gaspanna, lítið notuð,
er til sölu á Sólvallagötu 7a niðri.
(1374
Búðarlampar og ljósaskilti til
sölu ódýrt. Uppl. í síma 4089.
(1372
Lítill kolaofn til sölu. Hverfis-
götu 88B. Ö386
Fuglabúr óskast. Sími 3635.
(1371
Eins manns rúm til sölu. Einnig
sundurdregið bamarúm. Mjög ó-
dýrt. Laugavegi 93, niðri (1364
Frakki til sölu á fermingar-
dreng með tækifærisverði, Þing-
holtsstræti 13. (1363
ELDAVÉL helst fremur lítil, ósk-
ast keypt, má vera notuð. Uppl.
í síma 4704 og 47x4. (1373
Gott orgel, mjög ódýrt, til
sölu. A. v. á. (1353
Svartur pels til sölu með tæki-
færisverði. Sími 4218. (1382
Gömul vigt, 100—200 kg.,
óskast. Uppl. í sima 4555 (1360
Lítill ofn til sölu. — Uppl.
Njálsgötu 14., (1343
Vil kaupa 5 manna bifreið í
góðu staudi. Tilboð með aldri,
tegund, verði og bvað mikið
hún er keyrð, sendist Vísi,
merkt: „Góður“. (1344
2 körfustólar og náttborð til
sölu með tækifærisverði. Sími
3421. (134?
Til sölu: Sláturpottur, steik-
arapottur o. fl. pottar, oliuvél,
kaffitæki, balar, færslufata,
rafmagnsplata og lampar, Oliu-
brúsar, kaktus o. fl. Þórsgötu 2.
, (1348
Notað þakjárn (bárujám)
óskast til kaups. Uppl. í síma
4259 eftir kl. 7. (1351
If
mesta úrvalið og lægsta
verðið á
Vatnsstíg 3.
Húsgagnaverslun
Reykjavíkur.
Kaupum þessa viku ávaxta-
sulluglös með lokum á 15 og 20
aura glasið. SANITAS. (1311
EDINA snyrtivörur bestar.
Divanar
35 krónur
BEDDAR
2 tegundir.
Hnsgagna'
verzlnnin
við
Dómkirkjuna
er altaf
ódýrust.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN.
Wodehouse: DRASLARI. 9
mólstöðumanna, að í ástamálum yarð hann að
eins að treysta á andlegt gildi sitt, og góða frain-
komu og viðmót. Hann var hnefaeikamaður af
gamla skólanum og hann var liká þess legur.
— Nútíma hnefaleikarar líta út ein$ og kvik-
myndahetjur, en hann var vitanlega alt öðru
vísi. Hann Vár þrekvaxinn maður. Augu hans
voru lítil, en nefið alt bæklað og skemt af högg-
um. — Ennið var lágt, og að cins lítill bekkur
niður að augnabrúnunum. — Éyrun voru rif-
in og táin, því að þau höfðu oft skemst illilega
í bardögum við hnefaleikamenn. Þau voru
einna líkust laufblöðum á bausti, sem frostin
liafa bitið og eru að falla. Samt var hann nýt-
ur maður og góður borgari, og Ann hafði geðj-
ast vel að honum, þegar er þau hitlust fyrst.
Hvað Jerry viðvék, þá dáði hann Ann og liefði
gert hvað sem vera skyldi fyrir hana. Altaf
síðan er hann varð þess áskynja, að Ann væri
fús til að lilusta á hann, varð bann barnslega
glaður. Ann hafði og samúð með harmtölum
hans á ástamálunum, og hann hefði fúslega
viljað vera þræll hennar.
HAnn kom fram eins og bjargvættur, ákveðin
og sköruleg að vanda.
— Farðu út, Ogden! mælti hún.
Ogden reyndi að horfast í augu við liana
þrjóskulega, en mistókst. Hann hafði aldrei
getað skilið hversvegna liann væri hræddur við
Ann, en það var staðreynd, að hún var eina
manneskjan á heimilinu, sem liann óttaðist og
virti. Hún var greind stúlka og hið rólega og
skipandi augnaráð liennar hélt lionum altaf í
skefjum.
Hversvegna á eg að fara? tautaði hann.
Þú hefir ckkert yfir mér að segja.
— Flýttu þér nú, Ogden! (
— Hvað á þetta eiginlega að þýða — að’vera
að skipa manni .,.,
;— Og lokaðu hurðinni liægt á eftir þér, mælti
hún. Hún snéri sér að Jei*ry þegar skipuninni
hafði verið hlýtt. Var hann eitthvað að hrella
þig, Jerry? ,
Jerry Milchell þurkaði svitann af cnni sér.
— Ef þessi strákur hættir ekki að koma inn
þegar eg er hérna i leikfimi. — — — Haijn
þagnaði, en bætti svo við: Þér heyrðuð hvað
hann sagði um Maggie, ungfrú Ann?
Skírnarnafn Gelestine var Maggie O’Toole,
en frú Pelt gat ómögulega sætt sig við, að nein
af stúlkum hennar liéti þvílíku nafni.
— Þér ættið að leiða strákflónið hjá yður,
Jerry? Þér ættið að geta skilið, að þetta var alt-
saman tilbúningur hjá honum. Hann gerir ekki
annað allan daginn, eii að rápa um húsið og
reyna að finna einhvern, sem hann getur sært
eða hrelt — og finni hann einhvern, þá er hon-
um skemt. Maggie dytti aldrei í liug að fara í
skemtiakstur með Biggs.
Jerry varp öndinni og var nú léttara.
— Það cr svei mér gott að eiga þvílíkan hauk
í horni sem yður, mælli hann.
Ann gekk til dyra og opnaði. Hún leit niður
eftir ganginum, en sneri aftur, þegar hún sá,
að þar var enginn maður. — Mér hefir komið
i*áð í hug. Eg þarf að biðja yður að gera dálit-
ið fyrir mig.
— Já, ungfrú Ann. — Hvað er það?
— Það þarf að taka eitthvað lil bragðs með
hann Ogdexí. Hann hefir enn einu sinni verið
að kyelja hann Peter frænda, og það ætla eg
ekki að þola lengur.-----Eg benti honum á
það einusinni, að ef hann héldi uppteknum
lxætti, þá myndi hann fá sig fullsaddan á afleið-
ingunum. Eg lield að hann hafi ekki trúað mér.
Jerrv, hverskonar maður er þessi hr. Smet-
hurst, viiiur yðar?
—- Er það ekki Smithers, sem þér eigið við,
ungfrúAnn?
— Flg vissi að það var annaðhvort Smithers
eða Smethurst. Það er mannhundurinn eða
hundamaðurinn, sem eg á við. Er hann maður,
sem óhætt er að treysta?
— Eg þyrði að trúa lionum fyrir mínum síð-
asta eyri. Við höfum þekst frá blautu barns-
beini.
— Eg á ekki við það, livort honum sé treyst-
andi í f jármálum. Eg ætla að senda Ogden til
hans lil „Iækninga“. Og eg þarf að vita hvort eg'
muni geta treyst honum til að hjálpa mér.
— Þetla er nú rjáö sem segir sex!
Jerry Milchell var fyrst sem þrumu lostinn,
en síðan fyltist hann aðdáun á stúlkunni. Hann
hafði löngum vitað, að liugmyndaflug liennar
var meira en gengur og gerist, en þetta fanst
honum vera hrein snilli-hugsun. Augnablik stóð
liann alveg gagntekinn yfir þessari dásamlegu
hugmynd.
— Þér ætlið þá blátt áfram að ræna honum?
— Já, það er að segja — þér eigið að gera
það -— ef eg get þá fengið yður til þess.
—- Á eg þá að komá honurri undan með leynd
og senda hann í hundaspitalann hans Bud
Smithers?
-— Til lækninga -— já. Mér geðjast vel að að-
ferðum Bud Smithers. Eg held að þær séu það
eina í heiminum, serii gæti orðið Ogden að
gagni? ,
Jerry var himinlifandi.
— Já, Bud myndi gera mann úr stráknum.
—- En — eftir á að hyggja — er þetla ekki nokk-
uð áhættusamt? Mannrán eru hegningarverð.
— Þetta er ekki þessháttar mannrán.
— Jæja, það likist því nú samt fjandi mikið.
— Ekki held eg að þér þurfið að óttast að
lenda í hegningarliúsinu. Eg skil ekki að Nesta
frænka færi í mál við okkur, þegar sakarefnið
væri það, að við hefðum sent Ogden á liunda-
spitala. Hún hefir ekkert á móti þvi, að hennar
sé getið í blöðunum, en það verður að vera i
sambandi við eitthvað, sem henni þykir merki-
legt. Nei, við leggjum okkur að vísu í liættu, en
ekki af þessari ;ástæðu. Þér eigið á hættu að
missa stöðu yðar, og eg yrði áreiðanlega send
í útlegð lil hennar ömmu minnar um óákveðinn
tíma. Þér hafið víst aldrei séð hana ömmu mína,