Vísir - 15.07.1936, Side 3
V 18 I R
Símar Vísis:
4600 Ritstjóri, heima.
4578 Ritstjórn (10—2) og aug-
lýsingastjóri (9—12).
3400 Afgreiðsla og bókhald
(9—7).
2834L Auglýsiiigíistjóri (1—7) og
sunnudagsblað Vísis fyrst
um sinn.
togara fyrir ólöglegar veiðar í
landhelgi, eða með öðrum orð-
um ca. 1 togara á viku.
Það eru staðreyndir, að dönsk
varðskip, undir stjórn annara
skipherra, hafa tekið fjölda
togara fyrir ólöglegar veiðar, m.
a., kom „Fylla“ í fyrstu ferð
sinni hingað til lands, inn með
8 togara í einu. Ummæli hr. G.
B. verða því, vægast sagt, að
stimplast sem ósannindi.
Það væri mjög leitt ef slik
ummæli, sem hr. G. B., i sínu
blindra hatri lil alls sem danskt
er, lætur frá sér fara, skyldi
verða til að liafa áhrif á liina
góðu sambúð þessara tvegg'ja
landa. Hann veit ekki að í Dan-
mörku lætur enginn skynsam-
ur maður sér koma til hugar að
blanda sér í íslensk innanlands
stjórnmál, og fyrir oss Dani,
sem hér búum á íslandi, og elsk-
um þetta vort nýja föðurland,
er það mjög sárt að verða fyrir
slíkum óréttmætum, ástæðu-
lausum og óréttlátum árásum,
sem hr. G. B. lætur sér sæma.
C. A. Broberg.
Skálhoitsstaðnr
oo
Hallgrímskirkja.
Dr. Björn Þórðarson Iögmað-
ur hefir ritað grein, er birtist í
Morgunblaðinu 10. þ. m. um
endurreisn Skálholtsstaðar.
Greinarhöfundur vill, að Skál-
holtsstaður verði helgaður
minningu Hallgríms Pétursson-
ar, og bendir á, að þar eigi Hall-
grímskirkja að standa. — Það
er nú að sjálfsögðu brýn nauð-
syn, að þjóðin leggi fylstu rækt
við þá staði, er voru merkustu
liöfuðból landsins á sinni tíð.
Og þar á meðal er hið forna
biskupssetur, Skálholt, sem nú
er orðið ríkiseign. Kirkja sú, og
aðrar byggingar, sem nú eru í
Skálholti, eru alls ekki sam-
boðnar söguhelgi þess staðar. -
Hvað viðvíkur Hallgrims-
minningu í sambandi við Skál-
holtsstað, virðist nægja að
minnast þess, að áliifarík vin-
átta var með þeim, Hallgrími
og einum hinna merkustu og
mikilhæfustu Skálholtsbiskupa,
Brynjólfi biskupi Sveinssyni.
Mun biskup hafa verið sannur
velunnari og velgerðarmaður H.
P. Enda reyndist Hallgrímur
sem göfugasti vinur og liuggari
biskupsfjölskyldunnar þegar
í raunir rak. — En þrátt fyrir
þetta er að mínu áliti flest sem
mælir gegn þeirri uppástungu,
að Hallgrimskirkja verði reist í
Skálholti. Það er kunnugt, að
Hallgrimur Pétursson vann hina
mikilvægustu þætti æfistarfs
sins á þeim árum sem hann var
sóknarprestur til Saurbæjar á
Hvalfjarðarströnd. Það eru
glöggar heimildir til fyrir þvi,
að þar orti liann sín fögru, sí-
gildu ljóð, sem sé Passíusálm-
ana, og útfararsálminn fræga:
Alt eins og blómstrið eina. í
Saurbæ starfaði hann mestallan
tíma prestskapar síns. Líkindi
eru til, að honum hafi þótt sá
staður yndislegur, og þar hafi
hann unað best hag sínum með-
an hann hélt lieilsu. Og þó að
hann, á síðari árum æfi sinnar,
er lioldsveiki tók að þjá hann,
„gæfi upp staðinn“, og dveldi
síðast í nágrenni við Saurbæ á
tveim bæjum — Kaíástöðum og
Ferstiklu, og létist á hinum síð-
arnefnda, þá má þó telja víst, að
hugur skáldsins hafi jafnan
livarflað að kirkjustaðnum, þar
sem hann, trúarhetjan, „er svo
vel söng, að sólin skein í gegn
um dauðans göng“ — hafði oft-
ast staðið og þjónað fyrir drott-
ins altari. — Enn er þó ótalin
sú meginástæða, er vissulega
mun, að flestra dómi styðja ein-
dregið þá skoðun, að Hallgríms
minningarkirkja verði reist í
Saurbæ, og hún er sú, að á þeim
stað var lík þessa mikla skálds
lagt í jörðu. — Þar er gröf hans.
— Það geta þvi naumast orðið
mjög skiftar skoðanir manna
um það, að hin fyrirhugaða
Hallgrímskirkja ■—■ sem þegar
hefir safnast nokkurt fé til —
eigi að rísa við leiði Hallgríms
— og hvergi annarstaðar. —
Reykjavík, 28. júní 1938.
P. P.
Jarðarför
Eggerts Briem liæstaréttar-
dómara fór fram í gær að við-
stöddu fjölmenni. Sira Þor-
steinn Briem flutti húskveðju,
en síra Bjarni Jónsson ræðu í
kirkjunni. Vinir og frændur
hins framliðna merkismanns
báru kistuna í kirkju og kirkju'-
garð, en lögfræðingar (dómar-
ar og málaflutningsmenn) úr
kirkju. —
Veðrið í morgun.
I Reykjavík 11 stig, Bolung-
arvik 8, Akureyri 10, Skálanesi
11, Vestmannaeyjum 10, Kvíg-
indisdal 9, Ilesteyri 8, Gjögri 6,
Blönduósi 9, Siglunesi 6, Gríms-
ey 8, Raufarhöfn 8, Skálum 8,
Fagradal 8, Papey 11, Hólum í
Hornafirði 12, Fagurliólsmýri
10 Reykjanesi 11. Mestur liiti
hér í gær 17, minstur 8. Sólskin
i gær 11,5 st. — Yfirlit: Víðáttu-
mikil lægð yfir Bretlandseyjum
og Noregi. Hæð ýfir Grænlandi.
Horfur: Suðvesturland: Breyti-
Jeg átt og hægviðri. Sumstaðar
skúrir. Faxaflói, Breiðafjörður,
Vestfirðir: Norðaustan kaldi.
Urkomulaust. Norðurland,
norðausturland, Austfirðir:
Norðaustan kaldi. Dálítil rign-
ing eða súld. Suðausturland:
Norðaustan kaldi. Sumstaðar
skúrir.
Síldarsöltun
hófst aðfaranótt þriðjudags
í Djúpavík. Voru þá saltaðar
þar 400 tn. og er það fyrsta
síldin, sem á yfirstandandi síld-
arvertíð er söltuð til útflutnings.
Kveldúlfstogararnir
hafa aflað sem hér segir:
Skallagrímur 6700 mál, Þór-
ólfur 4/00, Egill Skallagríms-
son 5000, Snorri goði 5900 (að
meðt. karfa), Arinbjörn hersir
3200 og Gulltoppur 7400 (að
meðt. karfa). Skallagrímur,
Gulltoppur og Egill Skalla-
grímsson voru inni í gær til
þess að taka kol. Höfðu þeir
200—1000 mál livor. Skipstjór-
arnir segja veður hamla veið-
um. Er stöðug þokusúld og
bræla.
Sáíímálasjóður.
Athygli skal vakin á því, að
umsóknir um styrk úr Sátt-
málasjóði (danska lilutanum)
eiga að vera komnar til stjórnar
sjóðsins í síðasta lagi 31. ágúst
næstkomandi. Úthlutað verður
20.000 kr. Utanáskrift: Be-
styrelsen for Dansk-islandsk
Forbundsfond, Kristiansgade
12, Köbenhavn K.
Kveðjuhljómleikar
Einars Ivristjánssonar óperu-
söngvara verða í Gamla Bíó i
kveld. Hefjast kl. 7.15 stundvís-
lega, —
Bæjarstjórnarfundur
verður lialdinn á morgun á
venjulegum stað og tíma. Mörg
mál á dagskrá. Kosinn verður
maður í Barnaverndarnefnd í
stað Sigurðar heitins Jónssonar
skólastjóra. Ákvarðanir munu
og verða teknar um ráðning á
starfsfólki við Sundhöllina.
Skipafregnir.
Brúarfoss er í Kaupmanna-
höfn. Dettifoss fór frá ísafirði
í morgun á leið til Patreksfjarð-
ar. Lagarfoss var á Kópaskeri
í gær. Selfoss er á leið frá
Grimsby til Antwerpen. Gull-
foss fór áleiðis vestur og norð-
ur í gær. Goðafoss fór frá Hull
i gær áleiðis lil Vestmannaeyja.
Primula kom i morgun með um
60 farþega. M.s. Dronning Alex-
andrine fór frá Færevjum kl.
1114 í gærkveldi áleiðis til Vest-
mannaeyja.
Frá Djúpavík.
Togararnir, sem leggja upp
síldarafla sinn í Djúpavík liöfðu
i gær aflað sem hér segir:
Tryggvi gamli um 8000 mál,
Surprise um 8200, Ólafur um
7100, Garðar um 8000, Kári um
5000 og Iiannes ráðherra um
3300 mál. Stormar liafa verið
að undanförnu og þvi minni
afli borist á land. Tryggvi
gamli og Garðar voru inni i gær
Tryggvi gamli með 800 mál,
Garðar með 452 og Kári með
400. Er þessi afli talinn með i
y f irlitsupptalningunni hér að
ofan.
Arrandora Star,
breska skemtiferðaskipið,
kom í morgun, með um 380 far-
þega. Fóru á annað hundrað
þeirra til Geysis og Gullfoss, en
aðrir til Þingvalla og um ná-
grenni Reykjavíkur. Helgi
Zoega & Sons annast móttökur
ferðamannanna.
Ferðafélag íslands.
Þórsmerkurför. Ferðinni er
beitið austur undir Eyjafjöll og
eftir endilangri Þórsmörk. Lagt
af stað úr Reykjavík kl. 10
f. h. á laugardag og ekið austur
yfir Markarfljótsbrú að Gljúfra-
búa og Seljalandsfossi, siðan
austur með Eyjafjöílum alla
leið að Skógafossi. Þar verður
snúið við og ekið að Markar-
fljótsbrúnni og farið upp að
Stóru-Mörk og gist þar. Á
sunnudagsmorgun verður farið
ríðandi inn í Þorsmörk. F ai ið
yfir Steinholtsá og Krossá,
Stakkholtsgjáin skoðuð, en hún
er ein stórkostlegasta gjáin hér
á Suðurlandi. Þá verður farið
inn í Stórenda um endilanga
„Mörkina“, um Langadal og
vestur í Húsadal, en þar var
síðast bygð í Þórsmörk. Þórs-
mörk er einn af dásamlegustu
blettum landsins, bæði hvað
snertir tilbreytni og fegurð og
þaðan er undrafalleg fjalla og
jöklasýn. Þá verður riðið vestur
yfir vötnin að Múlakoti, en ek-
ið þaðan til Reykjavíkur á
sunnudagskveld. — Farmiðar
seldir í bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar til kl. 4 á föstu-
dag. — NB. Bílferðin 19. þ. m.
að Ileiðarbæ, um Nesjavelli,
Grafning, niður með Sogi um
Hellisheiði til Reykjavíkur,
verður ekki farin.
ískmd í hollenskum blöðum.
Að tilhlutun dr. Alexanders
Jóhannessonar liefir komist á
samvinna um það milli Hol-
lendinga og íslendinga, að
fræðandi greinir um ísland
verði birtar í hollenskum blöð-
um og greinir um Holland í ís-
lenskum blöðum. — Annast
F erðaskrifstof a ríkisins um
birtingu greinanna. í hollensk-
um blöðum hafa nýlega fyrstu
greinarnar af greinaflokkinum
um Island og er liöfundur
þeirra Ragnar E. Kvaran. —
Önnur greinin nefnist „Eiland
van Contrasten“ og birtist í
„De Arnhemmer“, „Aners-
foorthsch Dagblad“ og a. m. k.
einu hollensku blaði til.. Hin
greinin mun og hafa birst í all-
mörgum hollenskum blöðum.
Fyrri myndinni fylgir mynd af
Geysi. — Þá hafa liollensk
blöð getið allitarlega íslensku
sýningarinnar í Utrecht, í sam-
bandi við minningarhátíð há-
skólans þar, er Iiáskóli Islands
gaf Utrecht-háskóla myndar-
legt safn nýíslenskra bók-
menta. Yeröur þessara greina
getið síðar. (FB.).
Kkemíiför Guðspekifélagsins.
Guðspekingar fara í skemti-
för, ef veður leyfir, næstkom-
andi laugardag suður á Álfta-
nes. Lagt verður af stað frá
Guðspekifélagshúsinu kl. 6 siðd.
Fél. tilkynni þátttöku í ferða-
laginu til Sigurðar Ólafssonar
rakara, Eimskipafélagshúsinu.
Félagar mega bjóða með sér
gestum.
Gengið í dag.
Sterlingspund ......Kr. 22.15
Dollar .............— 4.41%
100 ríkismörk .... — 177.99
— franskir fraukar — 29.32
— belgur ...........— 74.76
— svissn. frankar . — 144.57
— finsk mörk .... — 9.93
— pesetar ..........— 61.32
— gyllini ..........— 301.05
— tékkósl. krónur — 18.63
— sænskar krónur — 114.36
— norskar krónur — 111.44
— danskar krónur — 100.0
Gullverð
ísl. krónu er nú 49.86.
Næturlæknir
er i nótt Jón Norland, Skóla-
vörðustíg 6 B. Simi 4348. Næt-
urvörður í Reykjavíkur apóteki
og Lyfjabúðinni Iðunni.
Útvarpið 1 kveld.
19,10 Veðurfr. 19,20 Hljóm-
plötur: Létt Iög. 19,45 Fréttir.
20,15 Erindi: Fræðslulöggjöfin
(Ásgeir Ásgeirsson, fræðslu-
málastjóri). 20,40 Hljómplötur:
a) Lög eftir Brahms; b) Nú-
tímatónlist (til kl. 22,00).
Mesta vanda-
mál Japana.
New Yorlc. — FB.
Samkvæmt skýrslum, sem
birtar liafa verið af Kvrrahafs-
félaginu, sem hefir með
höndum að vinna að bættri
sambúð þeirra þjóða, sem eiga
lönd að Kyrrahafi, nemur árleg
x iðbót þeirra, sem Japanir
verða að sjá fyrir atvinnu,
500.000 í næstu 20 ár, og enda
þótt þeim takist þetta, er ekki
hægt að taka dýpra í árinni en
svo, að þá má segja, að þeir
hafi lagt grundvöll að því, að
ráða fram úr hinu mikla vanda-
máli þeirra, að sjá hinum mikla
fjölda, sem í rauninni er ekki
Skemtisamkoma.
U. M. F. Baula heldur sína árlegu skemtisamkomu að HreSavatni
n.k. sunnudag (19. júli).
Danspallur hefir verið gerður í fögrum skógarlundi og spilar
þar hljómsveit fyrir dansinum.
Ágæt ferð er að fara með Laxfossi á Iaugardaginn (kl. 5.30)
og tjalda i einhverjum af hinum fögru og indælu stöðum á Hreða-
vatni um nóttina og fara svo til Reykjavíkur með Laxfossi á sunnu-
dagskvöld.
Andúd gegn
1 Rúmeníu
hefir brotist út oft að undanförnu og er uitt
kent undirróðri þeirra, sem vilja samvinnu
við Þjóðverja. Titulescu hótaði að segja af
sér út af þessum málum, en bráðabirgðasam-
komulag hefir náðst, þar sem kröfur hans
hafa verið teknar til greina. Titulescu vill
samvinnu við Frakka áfram.
London í morgun.
Fregnir frá Bukarest herma,
að mikil andúð hafi að undan-
förnu oft og víða verið látin í
ljós gegn Frökkum á ýmsum
stöðum í Rúmeníu. En Rúmen-
ar hafa sem kunnugt er haft
hina nánustu samvinnu við
E rakka, hernaðarlega og stjórn-
málalega, og Frakkar hafa gert
alt, sem í þeirra valdi stendur
til þess að efla vinfengi milli
sín og Rúmena og annara Litla
bandalagsríkjanna, svo og Pól-
verja. En þjóðverjar reyna nú
sem mest þeir geta að efla sín
áhrif í þessum löndum.
Atburðir þeir, sem að fram-
an er vikið, uin andúð i ljós
látna gegn Frökkum, eiga rætur
sínar að rekja til undirróðurs
gegn þeim, er vilja halda við
samvinnunni við þá. Hefir leg-
ið við, að stjórnarskifti yrði eða
minsta kosti breyting á skipun
stjórnarinnar af þessum sökum,
og hótaði Titulescu utanríkis-
málaráðherra Rúmeníu því, að
segja af sér, ef ekki yrði gerð-
ar nægilegar ráðstafanir til þess
að koma i veg fyrir að menn
léti í ljós andúð gegn Frökkum
og þeim, er fylgja þeim að mál-
um. Hélt Titulescu þvi fram, að
ef slíkt framferði og að fram-
an getur, væri þolað, mundi það
baka sér svo mikla erfiðleika út
a við, að hann treysti sér ekld
til að gegna embætti sínu á-
fram.
Samkomulag hefir nú náðst
milli Tatarescu og Titulescu.
Segir Titulescu ekki af sér að
svo stöddu, en Tatarescu mun
leita$t við að framfylgja kröf-
um hans. (United Press—FB).
rúm fyrir heima í Japan, fyrir
atvinnu. Árið 1950 verða þeir,
sem eiga fyrir fjölskyldum að
sjá, 10 miljónum fleiri en 1930
og aukin iðnaðarframleiðsla er
helsta von Japana. Sjálfum er
Japönum að verða ljóst, að
þetta mál verður ekki leyst með
því einu, að slcapa nýja mark-
aði fyrir japanskar vörur á
meginlandi Asíu og viðar, lield-
ur verði Japanir sjálfir að nota
sína eigin framleiðslu langtum
meira en þeir geri. Útgjöldin,
sem af vígbúnaði leiðir og
þeirri stefnu, að ná yfirráðum
yfir nýlendum eða skattlönduin
á meginlandi Asíu, eru orðin
svo mikil, að fé er ekki fyrir
hendi til nauðsynlegra fram-
kvæmda. Og þvi meiri sem á-
gengnin er þvi meiri tregða er
hjá ýmsum þjóðum, að kaupa
japanskar vörur. Hinsvegar er
sú skoðun almenn í Japan, að
mikil nauðsyn sé á því, að þeir
ráði sjálfir yfir nauðsynlegum
liráefnalindum. — Tilraunir
stjórnarinnar til þess að fá Jap-
ani til þess að setjast að erlend-
is hafa borið lítinn árangur.
Flestir voru útflytjendurnir
1933 eða 27.000 (en 14.400
komu lieim á sama tímabili).
1926—1930 nam raunveruleg-
ur útflutningur aðeins 28.000,
en á sama tima jókst íbúatala
landsins um 4.700.000. — Alls
eru ekki búsettir nema 250.000
Japanir í Mansjúríu. (United
Press—FB).
Furduleg
lækninga-
aögerö.
Oslo, 14. júli.
I Gjövik sjúkrahúsi hefir
læknir að nafni Rö framkvæmt
lækningaaðgerð, sem engin
dæmi eru til i Noregi. Verka-
inaður frá Torpa hafði lent ineð
annan handlegginn i sögunar-
vél og misti við það framhand-
legginn. Hann var fluttur í Gjö-
vik sjúkrahús og voru liðnar
þrjár stundir frá þvi slysið vildi
til, er hann var lagður á upp-
skurðarborðið. Framhandlegg-
urinn, seiri maðurinn liafði
mist, virtist þá líflaus, en lækn-
irinn gerði tilraun til þess að
græða hann við liandlegginn, án
þess þó að gera sér nok.kura von
um, að þessi lækningaraðgerð
mundi heppnast, en i dag er til-
kjmt frá sjúkrahúsinu, að líkur
séu til, að hún hepnist vel, þvi
að maðurinn geti nú þegar
lireyft handlegginn lítils háttar
og fingurna næsíum eins og
vanalega. (NRP. — FB.).
Kaupmannahöfn, 14. júlí.
Eánkaskeyti. FÚ.
Tilraunaflug með viðkomu á
Islandi byrja að sumri. f
I tilefni af skeytum sem bor-
ist hafa frá Wasliington undan-
farið um það, að flugfélögin;
Pan-American Airways og
Imperial Airways væru uú
gengin í samband um það, að;
opna sameiginlega flugleið ytu
sunnanvert Atlantshaf, og bvrja
þá starfsemi innan sex vikna,
hefir fréttaritari útvarpsins i
Kaupmannahöfn snúið sér til
umboðsmanns Pan-Ameriran
Airways í Kaupmannahöfn, og
spurt liann um þetta mál. Um-
boðsmaður félagsins er Botved
flugkapteinn. Hann segist ekk-
ert hafa heyrt ennþá um stofn-
un þessa nýja flugsambands, en
hann verði að líta svo á, að not-
kun suðurleiðarinnar útiloki
það ekki, að einnig verði komið
upp flugferðum á norðurleið-
inni með viðkomu á Islandi.
Hann fullyrðir, að Pan-Ame-
ríkan Airways hafi i hyggju, a
hefja tilraunaflug ^meS vi -
komu á íslandi, á ánnu 1937.