Alþýðublaðið - 10.05.1920, Side 4

Alþýðublaðið - 10.05.1920, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Xoli konHngnr. -/ Eftir Upton Sinclair. Önnur bók: Þrœlar Kola konungs. (Frh.). „Þar skjátlast þér, Mary. Það, sem eg sagði þér var satt", sagði hann íijótt. „Einmitt það, þú ferð frá henni og segir henni ekki, hvar þú heldur þig; það er þó undarlegt, ef þið eruð hvort öðru svo ná- komin. Þess vegna hélt eg, að þér þætti kannske ekki eins vætít um hana og þú getur, og þættir svo dálítið vænt um mig líka —■“ Hún þagnaði og leit á hann, og hún átti bágt með að horfa í augu honum. „Eg veit það, Joe, að þú ert alt of góður handa mér. Þú ert á annari og betri hillu í lífinu og átt rétt á að krefjast sneira af konu —“ „Það er ekki það, Mary!“ En hún greip fram í fyrir hon- um hvatlega. „Þetta segir þú bara, til þess að særa mig ekki. Eg er dóttir drykkjuræfils — nei, gríptu ekki fram í fyrir mér. Eg krefst þess, að þú vitir, hvað eg hugsa um sjálfa mig og líf mitt. Það er ekki hið versta, að maður þarf alt af að þræla og þjarka, og veit þó ekki, hvort nóg verður til hnífs og skeiðar, veit ekki hvað maður á að hafa til næsta máls. Nei, hið versta er, að svo margir dá- samlegir hlutir eru til í heiminum, sem maður ekki þarf að hugsa til að ná í, þeir nást aldrei. Það er eins og maður sæi þá gegnum rúðu í búðarglugga. ímyndaðu þér bara, að einu sinni á æfi minni hefi eg heyrt konu syngja svo yndislega í kirkju — geturðu iátið þér detta í hug, hvaða þýð- ingu það hafði fyrir mig“. „Já, það get eg, Mary“. „Eg hafði lagt þetta alt niður íyrir mér fyrir mörgum árum síð- an. Eg vissi hvað mínir líkar urðu að borga fyrir slíka hluti og eg ákvað að hugsa ekki um þá. Hversu mjög hefi eg hatað þenn- an stað, og hvað eg hefi þráð að komast héðanl En leiðin var að eins ein — að verða lagskona einhvers! Því varð eg kyr Eg hefi verið kyr, eins og mér bar, Joe. Það mátt þú vera viss um“. Báðningastofan óskar eftir: Mönnum til róðra vestur á Vestfirði og norður í Hrísey. % Mönnum á þilskip á Vesturlandi. Manni til að fara með mótorbát á Þingvallavatni. Manni í kaupavinnu nálægt Reykjavík og öðrum norður í Hrísey. Stúlkum í kaupavinnu og til þvotta og hreingerninga. Fjósamanni. Dreng til að hirða um fé. Ráðskonu á skólabú. ^ísiai 703. Sími 703. === K. ]R. EIZ- gamla Landsbankanum selur ódýrast saltkjöt. Spyrjið um verðið áður en þér kaupið annarstaðar. Sími 703. ^íiuti 703. „Áuðvitað, Mary“. „Nei, það hefir alls ekki verið „auðvitað", Það hefir þá þýðingu að maður verður að eilífu að berjast. Það þýðir. að maður verð- ur að neita sér um því nær alla hluti. Og eg hefi farið á mis við alt — og eg hélt, að það myndi ætíð verða svo. En nú er það fengið, sem hefir meiri þýðingu, en alt annað fyrir kvenmann — það er sá karlmaður, sem hún elskar“. Hún sat þegjandi eitt andartak. „Fólk segir reyndar, að maður eigi að elska sinnar stéttar mann. En setjum svo, að það tækist ekki! Setjum svo, að manni ditti í hug hverjar afleiðingar það hef- ir! Að hvert barnjð fæðist eftir annað, þangað til maður er út- taugaður orðinn og örmagnast fyrir tíman^ móðir margra barna. Setjum, að maður hafi tilhnegingu til góðra siða, þegar þeir sjást, og til annara hluta, þegar maður heyrði á þá minst! En vita svo á hinn bóginn, að maður hafði ekki leyfi til að elska slíkan mann, að þetta þýðir að eins, að hjarta manns verður að bresta! “ Alþbl. kostar S kr. á mánuði. Gjöldum til félagsins er veitt móttaka á afgr. Álþbl. (í Alþýða- húsinu við Ingólfstræti). — Fyrri gjalddagi er 14. maí. — Lög fél. eru einnig afhent þar. Gjaldkerinn. Fermingarkort, Áfmæliskort, Nýjar teikningar. Heillaöskabréf við öli tækifæri. Laugaveg 43 B. Friðfinnur L. Guðjónsson. Alþbl. er blað allrar alþýðui Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.