Vísir - 19.02.1937, Blaðsíða 2
VÍSIR
llrslilaonslunir til Mritil birrjalar, atii MMi
Verða flotar Rússa og
Portúgals látnir gæta
Spánarstranda ?
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Miklar orustur stóðu yfir í gær á Madrid-vígstöðvun-
um og var sóknin af hálfu stjórnarsinna, sem sóttu tals-
vert fram. Fullnaðarúrslit bardagai]ina eru enn ekki
kunn.
Miaja hershöfðingi, yfirhershöfðinginn á Madridvíg-
stöðvunum, sagði í viðtali við blaðamenn , gær, að bar-
dagar þeir, sem nú væri að byrja, væri úrslitaorust-
urnar um Madrid, en einnig væri mikið undir þeim or-
ustum komið, sem háður væri við Parales í Tajuna-
dalnum. — Hermenn vorir munu færa oss sigurinn,
sagði Miaja.
Sérfræðingar þeir, sem slarfað hafa með hlutleysisnefndinni,
komu saman á fund með utanríkisráðuneytinu í gærkveldi og
lögðu til, að rússneska flotanum yrði falið að hafa strandgæslu-
eftirlit við Biskaya-flóa, þar sem Franco ræður yfir strand-
lengjunni, en portugalski flotinn meðfram ströndum, þar sem
Caballero-stjórnin ræður yfir. (United Press.)
Að því er United Press hefir fregnað, hefir náðst samkomu-
lag um eftirlit með flutningum til Spánar um Portugal og er það
á þá leið, að sextíu breskir fulltrúar verði starfandi í sex aðal-
höfnúm Poriugal, til þess að rannsaka farm skipa og gefa
skýrslur um farþegaflutning til Portugal, og yfirleitt hafa eft-
irlit með því, að Porugalsmenn uppfylli skyldur sínar í sam-
ræmi við samkomulagið í hlutleysisnefndinni. (United Press).
London í morgun.
Frá Salamanca kemur símfregn um það, að Alfons fyrv.
Spánarkonungur hafi sent Franco hershöfðingja heillaóska-
skeyti í tilefni af því, að her hans*hefir tekið Malaga. (FÚ.)
, A
Spánarkort (strykuðu svæðin eru liéruðin sem uppreistarmenn
ráða yfir).
Virkjun GoOatoss.
Aætlanip Árna Fálssonap.
í nýútkomnu hefti Tímarits Verkfræðingafélags íslands (4„
hefti 21. árg.) birtist ítarlegt yfirlit um virkjun Goðafoss, eftir'
Arna Pálsson verkfræðing. Segir þar, að á síðastliðnu ári og í
byrjun yfirstandandi árs hafi að tilhlutun ríkisstjórnarinnar og
bæjarstjórnar Akureyrar verið gerðar áætlanir um virkjun
fyrir Akureyrarbæ. Hliðstæðar áætlanir hafa verið gerðar um:
virkjun Goðafoss og Barnafoss, er leiddu í ljós, að Goðafoss eir
betur til virkjunar fallinn. Áætlanir eru einnig gerðar um
virkjun Laxár hjá Grenjaðarstað, svo ganga megi úr skugga
um, hvort Goðafoss sé betri til virkjunar eða Laxá. — Greinar-
gerðin um virkjun Goðafoss er mjög ítarleg og verður hennar
hér getið að nokkuru. Hliðstæð greinargerð um virkjun
Laxár verður síðar birt í Tímariti V. F. í.
VfSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VlSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa 1 . . , ,.
„ > Austurstræti 12.
og afgr. |
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Kauphækkun
Full ástæða virðist til að bú-
ast við því, að sterkasta verka-
mannafélag landsins, „Dags-
brún“ muni ætla að beita sér
bráðlega fyrir almennri kaup-
hæklíun verkamanna. — Á
sú krafa að byggjast á
því, að lífsnauðsynjar hafi
hækkað i verði svo mjög, að nú-
verandi kaup sé með öllu óvið-
unandi. Fúslega skal það viður-
kent, að fátækir verkamenn,
sem hér stunda stopula atvinnu,
væri sist oflialdnir þótt þeir
fengi hærra tímakaup en þeir
hafa nú. Dagar þeirra eru sífeld
barátta fyrir þvi að fá bætt úr
brýnustu þörfunum. En það er
ekki liækkun tímakaupsins, sem
þessum mönnum er mest nauð-
syn að fá, heldur stöðugri og
vissari vinna. Enginn verka-
maður fær hið minsta bætt úr
þörfum sinum þótt tímakaupið
yrði tifaldað með félagssam-
þykt einni, ef engin er vinnan.
Og enginn verkamaður lifir til
lengdar á vinnu sem liann fær
örsjaldan, liversu hátt sem
kaupið er sett fyrir hverja
kíukkustund er hann vinnur.
Hann þarf stöðuga vinnu, sem
getur. veitt honum eitthvert ör-
yggi fyrir þvi að hafa það sem
hann þarf til að bíta og brenna
fyrir sig og sina. Þetta er það
sem hver maður sækist eftir.
Hann vill heldur liafa trygga
vinnu með lágu tímakaupi en
stopula ígripavinnu með háu
kaupi fyrir þær fáu stundir, sem
'hann vinnur.
Það er blekking sem verka-
mannaforingjar i öllum lönd-
um nota til þess að halda við
lýðhylli sinni, að fá tímakaupið
liækkað án þess um leið að sjá
um vinnuna. Svo benda þeir á
það sem árangur af glæsilegri
barátlu fyrir réttindum verka-
lýðsins. En kauptaxtinn er ekki
sama og brauð. Að benda verka-
mönnum á liinn háa kaup-
gjaldstaxta, ón þess að vinna
fylgi, er að gefa þeim steina
f}'rir brauð. En foringjarnir
segja: Það er okkar að gæta
þess að kaupið sé nógu hátt, en
vinnuna eigum við ekki að sjá
um.
Þetta mál hefir tvær hliðar
eins og flest önnur. Þótt æski-
legt sé og sjálfsagt að verka-
fólkinu væri greitt sem best fyr-
ir vinnu þess, eru takmörk fyrir
því, hvaða kaupgjald atvinnveg-
irnir geta borið. Ef þeir rísa
ékki undir kaupgjaldinu verður
árangurinn sá að framkvæmd-
irnar stansa og vinnan minkar.
Það er líkt og þegar skattarnir
eru orðnir of þungir fyrir skatt-
stofnana að bera, þá minkar af-
raksturinn, en vex aftur ef létt
er á þeim. Þess vegna eru hags-
munir verkamannanna og fram-
leiðslunnar svo niátengdir að
þar verður ekki á milli skiiið.
Víðtæk og lifvænleg framleiðsla
er besta trygging verkamanns-
ins fyrir sæmilegri afkomu.
Það er fjöldi vinnudagaima en
ekki fjárhæð timakaupsins scm
lionum er mest virði. Hann þarf
vinnu en enga blekking. En
vinnan fylgir heilbrigðum at-
vinnuvegum.
Þelta sjá ekki sesíalistar, eða
vilja ekki sjá. Atvinnuleysi er
vatn á þeirra mylnu þvi að það
gefur þeim gott tækifæri til
þess að níða sína pólilísku and-
stæðinga sem vinnu veita og í
eldinum standa, fyrir að verka-
mennirnir hafa ekkert- að
starfa. Og þó liafa sósíalistar á
ýmsan hátt með sköttum, of-
sóknum og óviturlegum sljórn-
arráðstöfunum, gert framleiðsl-
unni örðugt. að starfa. Ætla
mætti að bandamenn þeirra,
Framsóknarmenn, liti lieilbrigð-
ari augum á þetta mál i heild.
Og það mun mega fullyrða, að
þeir fallist aldrei á almenna
kauphækkun, eins og högum
framleiðslunnar er nú háttað, ef
þeir væru spurðir ráða.
ERLEND VÍÐSJÁ.
Vígbúnaður
Frakka.
Manchester Guardian gerði ný-
lega að umtalsefni hinn aukna víg-
búnað þjóðanna, en vígbúnaðar-
kapphlaupið er nú komið á það stig,
að því er þetta kunna vikurit ætl-
ar, að ekkert muni fá stöövaö það.
Það er vikið að ræðu frakkneska
ráðherrans Daladier, um aukinn
vígbúnað Frakka, en í ræðu sinni
tilkynti hann m. a., að Frakkar
mundu lengja hinar ramlegu vig-
girðingar — ný vigi yrði bygt alt
frá landamærum Svisslands til sjáv-
ar, bætt yrði við tveimur herfylkj-
um, sem hefðu vélknúin farartæki,
og árásarflugvélaflotinn yrði mjög
aukinn. Um þetta segir Manchester
Guardian, að Frakkar sé aðeins að
gera það, sem allir aðrir geri. M.
Daladier spurði, segir blaðið, hvort
Frakkar gæti hætt á, að auka ekki
vígbúnað sinn, þegar Þjóðverjar
hefði fært herskyldutímann upp í
2 ár, þegar Rússar hefði friðar-
tímaher, sem í væri 1.300.000 menn,
mikinn flugher og f jölda skriðdreka,
þegar Bretland væri að auka sinn
vígbúnað á öllum sviðum, svo og
Pólverjar, Tékkóslóvakar, Júgósla-
var og Svisslendingar. Enginn þor-
ir að hafast ekkert að um að auka
vígbúnað, segir M. G. og minnir á
það um leið, að fyrir tveimur ár-
um hafi því verið haldið ‘fram, að
réttur tími til þess að ræða afvopn-
un væri, þegar öll stórveldin stæði
jafnt að vígi vígbúnaðarlega séð.
Nú sé greinilegt, að allar stórþjóð-
ir álfunnar -— og margar hinar
smærri líka — sé að vígbúast, án
þess að nokkrar hömlur sé. lagðar
á nokkra þeirra, og nú sé ekki einu
sinni „hvíslað" um afvopnun, hvað
þá talað hátt um hana, eins og fyr-
ir noldirum árum.
Sjálfstæðisfélag kvenna.
Framhaldsstofnfundur Sjálf-
stæðisfélags kvenna verður í Odd-
fellowhúsinu niðri í kvöld kl. Sl/2.
Allar konur, sem hafa innritað sig,
eru beðnar að' mæta stundvíslega.
fást hjá
Lárusi.
Jafnaðarmenn
sigra í auka-
kosningu í
Bretlandi.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Frá Manchester er símað,
að frámbjóðandi jafnaðar-
manna hafi sigrað í aukakosn-
ingunni, sem fram fór i Porton-
kjördæmi, vegna andláts Jo-
sephs Comptons. — Frambjóð-
andi jafnaðarmanna, Wedg-
wood Benn, fékk 17.849 alkv.,
en Spearman, frambjóðandi í-
haldsmanna, 13.091. (United
Press.)
Ciano Greifi fær Fálka-
orðena.
Extrabladet í Kaup-
mannahöfn birtirfregn
um það að Ciano greifi,
tengdasonur Mússólíni,
hafi verið sæmdur
„stórkrossi Fálkaorð-
unnar“.
„Extrabladet“ í Kaupmanna-
höfn, sem íslenskir blaðales-
endur munu við kannast flestir,
vegná fregna þeirra, sem það
við og við birtir frá íslandi
skýrði frá því þ. 6. febrúar s. 1.,
að skömmu fyrir jól hefði ít-
alski stjórnmálamaðurinn, Ci-
ano greifi verið sæmdur „Stor-
korset af Islands Falk“!
Að þvi er Vísir hefir frétt,.
mun fregn þessi eldci griþin úr.
lausu lofti. Ciano greifi og fleiri
ítalir munu hafa verið sæmdir
Fálkaorðunni í desember s. 1.
„Hægri höndu
Stalins,
Ordionikidze
látinn.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Látinn er í Moskva Gre-
gori Ordjonikidze, yfirmað-
ur þungiðnaðarins, og oft
kallaður „hægri hönd“ Stal-
ins. (United Press.)
Nýtt samgöngutæki.
Maður að nafni Pétur Simonar-
son í Vatnskoti í Þingvallasveit,
h.efir smíSaS skíSasleSa, sem hann
knýr áfram meS hreyfivél. Hefir
hann útvegaö sér léttan hreyfil úr
litilli ílugvél, og loftskrúfu, sem
hann hefir komiS fyrir framan á
sleSanum. Fór hann um dagion
tilraunaferS um MosfellsheiSi, og
reyndist farartæki þetta hiS1 besta.
Átti hann létt meS aS knýja sleS-
ann áfram meS 50 kílómetra hraSa
á klukkustund. Einn farþegi var
meS honum á sleSanum. — Því
miSur tókst svo illa til, aS þá er
hann var kominn niSur undir
SvanastaSi, lenti hann í feni, sem
snjóaS hafSi yfir, og laskaSist
sleSi og skrúfa viS þaS. Fékk hann
þó viS þetta gert fám dögum síS-
ar, én þá var komin lausamjöll,
sem tafSi frekari tilraunir, því aS
skíSin reyndust of stutt til ^S
halda sleSanum uppi í því færi.
gegn staðgreiðslu,
fáið þér hjá
Lárusi*
Áætlanirnar um virkjun
Skjálfandafljóts eru bygðar á
mælingum, sem framkvæmdar
voru i sumar á austurbakka
Skjálfandafljóts og eru um
virkjun ó eystri hluta Goðafoss
og nokkuru falli fyrir neðan
fossinn, eins og lagt var til af
Árna Pálssyni í greinargerð fyr-
ir tillögum um virkjun Skjálf-
andafljóts dags. 6. júní 1936.
Áætlanir eru eins og áður mið-
aðar við 2000 hestöfl, þ. e. tvær
1000 hestafla vélasamstæður, en
vélasalur þegar í upphafi gerð
ur fyrir þrjár vélasamstæður og
nægilega rúmur fyrir 2000 hest-
afla þriðju vélasamstæðu, er
bætt verður við þegar þörf
krefur. Áætlanirnar ná einnig
yfir háspennulínu til Akureyrar
og afspennistöð á Akureyri, en
ekki um aukningu bæjarkerfis,
því að gert er ráð fyrir, að hægt
verði að framkvæma hinar
nauðsynlegustu aukningar bæj-
arkerfis fyrir tekjuafgang Raf-
veitu Akureyrar meðan virkjun-
in er framkvæmd, sem væntan-
lega tekur 1—2 ár. Er í áætlun-
unum miðað vjð það dagkaúp
og það verð á byggingarefni
sem nú er, en verð á rafvélum
og búnaði öllum er miðað við
þau sömu tilboð, sem lögð voru
lil grundvallar kostnaðaráætl-
unum i greinargerðinni frá 6.
júní 1936.
Er í grein Á. P. lýsing á til-
högun virkjunar 1 aðalatriðum,
ásamt kostnaðaráætlunum, en
auk þess er kafli um rekslur
Rafveitu Akureyrar undanfarin
11 ár, með greinargerð fyrir
raforkuþörf Akureyrar, þar
sem í aðalalriðum er stuðst við
nokkrar athuganir, sem gerðar
voru á Akúreyri i síðastl. októ-
ber af Árna Pálssyni.
Loks eru rekstursáætlánir
fyrir 2000 hestafla stöð, gerðar
af rafveitustjóra Akureyrar og
að nokkru leyti af Á. P.
Raforkuþörf Akureyrar.
Rafveita Akureyrar tók til
starfa haustið 1922, og liefir því
starfað í full 14 ár, flest árin
við ágæta fjárliagslega afkomu.
Rafveitan réð í byrjun yfir 330
hesla vélaafli, en íbúatala Ak-
ureyrar var þá um 2700 (véla-
afl 76 watt á mann). Var með
því séð fyrir orku til Ijósa og
smáiðnaðar, og að nokkru leyti
fvrir orku til suðu, aðallega á
sumrum. Með vaxandi íbúatölu
varð vélaafl of lítið til að full-
nægja orkuþörfinni. Var bætt
úr því að nokkuru 1930, en
fimm árum síðar er íbúatalan
orðin 4500 og vélar enn á ný
með öllú ófullnægjandi til að
bæta úr orkuþörf, svo að jafn-
vel mánuðum saman er ekki
hægt að láta í té fulla spennu,
220 Volt. Orkuframleiðslan hef-
ir aukist jafnt og þétt úr 4.900.-
000 kwst. í 8.800.000 kwst'
1925—1935, en tekjur stöðvar-
innar hafa aukist nærri því ár-
lega úr 84.000 í 144.100 kr. á
sama tímabili (óinnlieimt gjöld
ekki talin með). Hins vegar
hefir notkunartími mesta á-
lags aukist úr 2600 klst. í 3200
klst. 1925—1935, við að stöðugt
hefir aukist tala þeirra neyt-
enda, sem hafa skuldbundið sig
tii að nota ekki raforku um
ljósatímann. 1927 bætist við
slór neytandi, Kristneshæli, er
notar mikla örku allan sólar-
hringinn, en getur þó framleitt
orku með dieselhreyfli, ef álag
Glerárstöðvarinnar verður of
mikið.
I grein Á. P. er og tafla, sem
sýnir árlegan resturskostnað
stöðvarinnar. Segir þar m. a.:
„Þegar leystar liafa verið af
hendi árlegar vaxtagreiðslur og
samningsbundnar afborganir,
cr árlegur tekjuafgangur nú 40
—50.000 kr„ og fer vafal&ust
mjög bráðlega fram úr 50.000
Frh. á 4. síðu