Vísir - 19.02.1937, Side 4
VISIR
Tryggið yður meðan þér
eruð hraustur og vinnnfær.
Líftryggingarfélagið
D A N M A R K
Aðalumboð:
Þórðup Sveinsson & Co. h.f.
Sími 3701.
ókeypistilnæstu
mánaðamóta.
Til auglýsenda.
Auglýsendur eru vinsamlegast beðnir að skila aug-
lýsingum til blaðsins ekki síðar en kl. 10.30 árdegis
þann dag sem þær eiga að birtast. Auglýsingar sem
koma eftir þann tíma verða að bíða næsta dags.
eru mjög glæsilegir, svo sem vera
ber.
Var það alment álit manna, að
betri og skemtilegri fundur hefði
■ekki verið haldinn’ hér í baéniun hin
síðari árin.
Heimsmeistaratignin
í meðalvigt.
1 kveld (19. febr.) fer frani í
New York hnefaleikakepni um
lieimsmeistaratignina i meðal-
vigt milli Freddie Steele, núv.
heimsmeistara, og Babe Risko,
fyrv. heimsmeistara. Steele varð
heimsmeistari 11. júli s. 1. og er
þetta’ fyrsta kepni hans síðan.
Er alnient gert ráð fyrir að
hann sigri Risko nú aftur.
Áðrir heimsmeistarar hafa
oft þann sið að sýna hnefaleika,
fyrst eftir að þeir liafa unnið
titilinn. Berjast þeir þá oft við
menn sem eru úr þyngra flokki
ten þeir sjálfir, en titillinn er
:auðvitað aldrei í veði. Þetta vill
•Steele ekki. Hann ver titilinn i
livert skifti sem liann berst og
er það af tveim ástæðum. I
fyrsta lagi getur liann þá kraf-
Ist meiri peninga, og í öðru lagi
vill liann ekki eiga á hættu að
verða „barinn niður“, þótt það
myndi ekki skerða heimsmeist-
ara-tign lians, en á því er jafn-
an meiri hætta ef andstæðing-
urinn er úr þyngra flokki. Með
þessu móti getur liann grætt
stórfé á skömmum tíma, því að
i Ameríku er jafnan mikil „að-
sókn“ að titlunum.
Í.O.O.F. 1 = 118372198V2 =
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík —i, Bolungarvík
—4, Akureyri —i, Skálanesi 2,
Vestinannaeyjum 2, Sandi —2,
Kvígindisdaí —3, Hesteyri —5,
Gjögri —2, Blönduósi —4, Siglu-
nesi —2, Grítusey —o, Raufarhöfn
1, Skálum i, Fagradal 2, Papey 1,
Hólum í Hornafirði 1, Fagurhóls-
mýri 1, Reykjanesi 1 stig. Mestur
hiti hér í gær 4 stig', minstur o.
Úrkoma 3.2 tum. Yfirlit: Alldjúp
lægð yfir íslandi á hægri hreyd-
ingtt norðáustur eftir og fer mink-
andi. — Horfur: Suðvesturland,
Faxaflói; Breiðafjörður: Stinn-
ingskaldi á tiorðvestan og norðan.
Éljagangur. Vestfirðir, Norður-
land: Hvass norðan. Snjókoma.
Norðausturland: Breytileg átt.
Víðast úrkomulaust. Snjókoma.
Austfirðir, suðausturland: Suð-
vestan og vestan kaldi. Léttir til.
. Skipafregnir.
'Culfoss er í Leith. Goðafoss er í
Hamborg. Dettifoss fer í kveld
vestur og norður. Selfoss er í Ant-
werpen. Lagarfoss er í Kaup-
tnannahöfn. Brúarfoss fer annað
kveld vestur og norður um land
til átlanda. G/s Island fór til út-
landa i gærkveldi. Britnir kom frá
Englandi í nótt. Venus kotn af
• ufsaveiðuín í morgun. Þórólfur fór
'a veiðar í dag.
Afmælisfaguað
'sinn heldur Húsmæðrafélagið í
Oddfellowhúsinu á þriðjudaginn
kemur. Askriftarlistar í Bóka-
verslun Sigf. Eymundssonar, V. B.
ÍC, Vísir útbúi, Fjölnisveg og í
Vörubúðirmi, Laugaveg 53. Ann-
ars má fá nánari uppl. í símum
4740, 4591 og 3360.
Þjófnaðir.
I nótt var brotitt rúða í búðar-
glugga Jóh. Norðfjörð, Laugaveg
18, og stolið úrum,' hringum o. fl.
Málið er í rannsókn. — Er tals-
\-ert um þjóftiaði í bænum um þess-
ar tnundir. í • gærkveldi var lög-
reglunni tilkynt, að stolið hefði
verið peningum, 130 kr., af eld-
húsboröi í húsinu Ingólfsstræti
21B. Einnig var lögreglunni til-
kynt í gær, að stolið hefði verið
peningum, 25 kr., í hárgreiðslust.
Centrum í Þingholtsstræti. Einnig
var stolið sijfurhringum með
svörtum steinum, að líkindum í
fyrradag, úr bftð á Laugavegi. —
(Bæjarbúar ætti að hafa hugfast,
að skilja ekki eftir mannlausar í-
búðir ólæstr.
óspektir og slys.
Enskur togari, „Northern Chief“,
kom hingað í fyrradag. Lagðist
togarinn að. bryggju í gær og
fengu skipsmenn landgöngul. og
kontu um horð á tilskildum tíma,
nema tveir, sem lögreglan var beð-
in að hafa upp á. Fann hún þá
á kaffistofunni „Öldunni“ og voru
báðir druknir og var annar þeirra
mjög æstur. Flutti lögreglan þá til
skips. Skömtuu siðar hljóp skip-
verjinn, sem æstastur var, upp i
aftursigluna, og datt úr henni á
þilfarið, en hugðu sumir, að hann
heföi kastað sér niður. Meiddist
hann, en minna en búast mátti við.
— Kl. 8 í gærkveldi átti skipið
að fara, en hásetar neituðu að fara
og gengu á land. — Skipið fór
kl. 1 í nótt.
Ráskólafyrirlestrar
próf. dr. H. Mosbechs um Gyð-
ingaland. Næsti fyrirlestur próf.
Mosbechs verður um samkutidu-
húsið í Kapernaum. Hefir verið
grafið í rústir þess og verða sýnd-
ar skuggamyndir af rústunum og
af samkunduhúsinu, eins og það
leit út á Krists dögum, ennfrem-
ur af öðrum rústuin og uppgreftri,
m. a. í Samaríu, Annnon og Djer-
ash. Fyrirlesturinn verður fluttur
í dag í Kaupþingssalnum og hefst
kl. 6 stundvísl.
Pétur Sigurðsson
Péturssonar skipstjóra á Gull-
:fossi lauk sjóliðsforingjaprófi á
foringjaskóla í Danmörku á s.l.
ári. Nú hefir verið lagt fram.frutn-
varp á Alþingi um að veita Pétri
skipstjóraréttindi á íslenskum
skiputn. Ríkisstjórnin hefir ráðið
Pétur til að starfa að ýmsum niæl-
ingum og athugunum. sem varða
siglingamál frá 1. jan. 1938.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson,
Skólavörðustíg 12. Sítni 2234. —
Næturvörður í Laugávegs apóteki
og Ingólfs apóteki.
Útvarpið í kvöld.
18,40 Erindi: Um búreikninga
(Guðmundur Jónsson búfræði-
kennari). 19,10 Veðurfr. 19,20
Hljómplötur: Létt lög. 19,30 Þing-
fréttir. 20,00 Fréttir. 20,30 Kvöld-
vaka: a) Vilhj. Þ. Gíslason: Úr
Islendingasögum; b) Magnús
Jónsson prófessor: Upphaf mor-
móna á íslandi, II; c) Jónas Þor-
bergsson útv.stj.: Með „Goða-
■fossi“ eldra frá New York í
Straumnes; d) ungfrú Þórunn
Magnúsdóttir: Saga. Ennfremur
sönglög.
VIRKJUN GOÐAFOSS.
Frh. af 2. síð.u.
kr. við að vaxtagreiðslur minka
árlega, en það þýðir, að Raf-
vcitan getur verið með ölln
skuldlaus árið 1939 og liaft þá
eignir sínar óveðhundnar.“
Rafveitan hefir ekki getað
séð stærri iðnfyrirtækjum, sein
risð liafa upp, fyrir hreyfiafli,
og eru þau því rekin með gufu-
afli eða olíuhreyflum. Á síðari
áium hefir risið upp mikill iðn-
aður á Akureyri, og er aukning
þessara iðnfyrirtækja svo mik-
il, að flest þeirra skortir hreyfi-
afl, og verða þau því að fá sér
nýjar og stærri gufuvélar eða
diesellireyfla, ef Rafveita Akur-
eyrar getur ekki séð þeim fyrir
hreyfiafli.Er því knýjandi nauð-
syn, að auka Rafveitu Akureyr-
ar. Iðnaður Akureyrar er orð-
inn svo mikill, að mörg hundr-
uð bæjjarhúa lifa eingöngu á
iðnaði, svo að vöxtur og við-
gangur Akureyrar verður að
miklu leyti undir þvi kominn,
að iðnaður fái góð skilyrði til
að aukast, en eitt af þýðingar-
mestu skilyrðunum til þess er
einmitt ódýrt og liagkvæmt
hreyfiafl. — Má ætla, að eftir
nokkur ár, verði orkuþörf til
iðnaðar um 50% liærri, eða um
1.670.000 kwst., sem lireyfiafl
til iðnaðar. Áætlað er, að á
næstu árum þurfi 1.800.000
kwst. til suðu árlega. Þá er rætt
ítarlega um aðra orkuþörf, sem
æskilegt væri að fullnægja, þ.
e. lil hitunar, sem nú fer fram
með kolum. Er þar átt við hit-
11 n íbúðar- og verslunarhúsa og
liitun til iðnaðar. Til allra þeirra
þarfa, sem gerð er grein fyrir,
ei ráðgert, að á næstu árum
verði orkuþörf Akureyrar sam-
tals 18.550.000 kws't. Fram-
leiðsla í orkuveri verður sem
næst 25% hærri, eða 23 milj.
kwst. á ári, en til að framleiða
þá orku, þarf með 5000 stunda
notkunartíma (mesta álags),
válaafl á 4700 kw. = 7500 liest-
öfl.
Það kemur þó tæplega til
greina, að Akureyri virki þeg-
ar i byrjun 7500 liestöfl, og
verði því byrjað með mun
minna orkuveri, og velja stærð
þess þannig, að rekstur beri sig
þegar á fyrstu rekstursárúm.
Rekstursáætlanir sýna, að liæfi-i
legt sé að byrja ineð 2000 hest-
öflum (til ljósa, suðu og hreyfi-
afls), og því sem hægt er af
orku til hitunar, sem þó verð-
ur fyrst uin sinn ekkí nema lít-
ið eitt. En þegar rekstur 2000
hestafla orkuvers fer að gefa
tekjuafgang, sé sjálfsagt að
verja þeim tekjuafgangi til
aukningar á orkuveri og fram-
leiðslu, svo að hægt verði seni
fyrst að fullnægja orkuþörf til
hitunar að miklu leyti.
Virkjun Skjálfandafljóts.
Næsti kafli fjallar um virkj-
un Skjálfandafljóts. Er þar
fvrst rætt um rensli Skjálfanda-
fljóts, og nokkur almenn atriði,
en því næst gerð grein fyrir til-
högun virkjunar í aðalatriðum.
Er greinargerð þessi öll mjög
ítarleg og fylgja uppdrættir og
teikningar til skýringar.
Kostnaðaráætlun.
Rostnaður við 2000 hestöfl
með háspennulínu til Akureyr-
ar er 1.350.000, en ef bætt er við
þriðju vélasamstæðu á 2000
hestöfl, verður allur kostnaður
1.605.000 kr.
Samkvæmt áætlun verður
kostn. á hestöfl þessi:
Fyrir 2000 liestöfl við stöðv.
arvegg 496 kr.
Fyrir 2000 hestöfl, á Akureyri
675 kr.
Fyrir 4000 hestöfl, við stöðv-
arvegg 306 kr.
Fyrir 4000 hestöfl, á Akur-
eyri 401 kr.
Það athugist þó, að hér er
ekki talinn með kostnaður við
kaup á vatnsréttindum.
Sést af tölum þessum, að
virkjun er liér hagstæð, enda
aðstæður flestar ágætar, tiltölu-
Iega lítil sliflugerð, ldappir í
stiflustæði og i stæði orkuvers,
svo ’að inestu er hægt að byggja
orkuver og sprengja fyrir
frárenslisskurði á þurru.
Mestu veldur það þó um ó-
dýra virkjun, að komist verður
með tilhögun þessari lijá að
gera stíflu yfir þvert fljótið;
verður fyrst um sinn að eins
gérð stífla fyrir eystri hluta
l’ossins; þarf því mjög lítið að
veila vatni til í farvegi, heldur
aðallega gera varnargarð með-
fram farvegi, meðfram kletta-
hryggnum að vestan. Gerir það
og verkið mun öruggara í fram-
kvæmd, hve lítið þarf að veíta
vatni til, bæði við stíflustæði og
við orkuver.
Þegar kostnaðaráætlun er
sundurliðúð eftir aðkeyptu efni,
farmgjöldum, vinnulaunum,
flutningum o. fl., verður áætl-
unin þannig:
1. Aðkeypt efni, innkaups-
verð (f.o.b.) .... 434.000
2. Farmgjöld .......... 48.000
3. Aðflutningsgjöld .. 38.000
4. Vinnulaun ......... 485.000
5. Flutningur á landi 32.000
6. Verkstjórn ........ 29.000
7. —Yfirstjórn o.fl. .. 80.000
8. Ýmisl. og ófyrirséð 79.000
9. Vextirmeðan verkið ,
er í framkv....... 125.000
Samtals 1.350.000
Loks er áætlun þeirra A. Páls-
sonar og Otterstedt um rekst-
urskostnað fyrir 2000 hestafla
orkuver og veitu með 5000
stunda notkunartíma.
Nýkomið!
Tvinni (hvítur og svartur) 0.25
Silkitvinni 0.20
Hörtvinni 0.35
Stoppigarn 0.15
o. fl. smávörur.
Grettisgötu 57 og Njálsgötu 14.
Munið
FISKSÖLUNA í VONARPORTI
Sími: 2266.
Vinsælasta fisksala bæjarins.
Hár
við íslenskan og útlendan bún-
ing, frá 55—90 cm. lengd. Af-
greitt eftir ósk, svo mikið eða
lítið sem vill. — Keypt afklipt
hár. —
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
PERLA,
Bergstaðastræti 1. Sími 3895.
VÍSIS KAFFIÐ
gerir alla glaða.
Itaíá« riiNDití
Sjálfblekungur lapaðist á
Grundarstíg. Lyklakippa fundin
í Tryggvagötu. Uppl. í síma 2185
(344
Tapast liefir peningaveski í
miðbænum með ýmsum skjöl-
um, meðal annars skírnarvott-
orð eiganda. Finnandi vinsam-
lega beðinn að skila veskinu til
eiganda, á Hótel Skjaldbreið,
gegn fundarlaunum. (349
Bensíngeymislok með lyklum
áföstum, hefir tapast. Skilist
gegn fundarlaunum á Aðalstöð-
ina. (351
Kvenveski tapaðist s. 1. laug-
ardag. Skilist á vinnustofu Vig-
fúsar Guðbrandssonar, Austur-
stræti 10. (353
tHUSNÆfH
2 herbergi og eldhús, með nú-
tíma þægindum, óskast til leigu
14. maí. Tilboð, merkt „40“,
sendist Visi. (340
2 herbergi og eldhús til leigu
nú þegar, eða frá mánaðamót-
um. Uppl. á Njálsgötu 75, í
kjallaranum, á morgun frá 4—
6. (342
2 stofur og eldhús með þæg-
indum til leigu vestan við bæ-
inn. Umsókn leggist i box 292.
(345
Sá, sem vill greiða nokkurra
mánaða liúsaleigu strax, getur
fengið 2 lierbergi, eldliús og bað
14. maí í nýju húsi í austurbæn-
um. Lystliafendur 'sendi riöfn og
heimilisfang á afgr. Vísis merkt:
„Öll þægindi“. (346
Herbergi til leigu við miðbæ-
inn, aðgangur að eldhúsi getur
verið með fyrir barnlaust fólk.
Afgr. vísar á. (348
2 herbergi og eldhús óskast
til leigu 14. maí. Tilboð sendist
Vísi, merkt: „40“. (325
2 nýtisku 4ra herbergja íbúð-
ir, ásamt baði og stúlknaher-
bergjum, til leigu 14. mai, ná-
Iægt miðbænum. Uppl. í sima
3190 og eftir kl. 8 í 3590. (327
glLEIGÁÍ
Steinskúr til leigu ódýrt, lient-
ugur fyrir vinnustofu. Uppl.
Urðarstíg 16 A, eftir kl., 8 siðd.
(347
ÍTíIk/nnincarI
Leikfangasalan er í Veltu-
sundi 1. Elfar. Sími 2673. (854
MVimÆM
Vinnumiðlunarskrifstofan
óskar eftir góðri stúlku til inni-
verka á ágætt heimili hér i bæn-
um. Sömuleiðis ágætar vistir úti
á landi, fyrir stúlkur, sem
mættu liafa barn með sér. Sími
1327. (339
Stúlka óskast. Soffía Hall-
dórsson, Laugavegi 29. Simi
2982. (341
Stúlka óskar eftir að sauma
í húsum. Uppl. i síma 4295. (343
Stúlka óskar éftir að komast
á saumastofu. — Uppl. i sima
4645 frá 5—7. (352
Unglingsstúlka óskast í vist.
Uppl. Njarðargötu 45. Sími
1614. (354
Þvottahús Elliheimilisins þvær
vel og ódýrt. Þvotturinn sóttur
og sendur. Hringið í síma 3187.
(291
KkadpskapijrI
Hestakjöt af ungu i buff og
steik. Góð hrossabjúgu 85 aura.
Saltað heslakjöt 55 aura. Kjöt-
fars 70 aura. Pönnufiskur 50
aura. Fiskfars 50 aura. Fiska-
pylsur 60 aura. — Fiskpylsu- og
matargerðin, Laugavegi 58. ■—
Sími 3827. (337
8CC)
‘8UM7 IUIÍS ‘uoA ‘Baiau jSjbui
go jnyo}.m>[ ‘jnjojpig ‘jipæj
-piS ‘pnfliAi-j -lofjiBgnBS giSuBH
•)or>iBjp;p gisoj^i 'Sii z/i 'Jd bjub
0Q Bflp Bup b lorjjBpiuii gBpBs
•o[>iB)saq giSuBu pofiiBisaii
gB)!BS ‘)or>!BpiBioj ‘jjnq 1 )orq
-B)saii- : uuijBuisSBpnuuns- j
SEM NÝTT útvarpstæki til
sölu mjög ódýrt. Uppl. á Grett-
isgötu 16, annari hæð. (350
Vörubíll óskast til kaups.
Gott ef stöðvarpláss gæti fylgt.
A. v. á. (355
FASTEIGNASALA.
Hefi nú mörg smá stein-
hús með hentugum íbúðum.
Með sanngjörnu verði —
góðum greiðslukjörum. —
Tek hús og aðrar eignir í
umboðssölu.
Sigurður Þorsteinsson,
Bragagötu 31.
Besta FISKFARSIÐ fæst hjá
Pöntunarfélagi Verkamanna,
Skólavörðustíg 12. Sími 2108.
(292
Sjómenn! Kaupið sjóbuxur
yðar i „Álafossi“. Þær endast
best og eru ódýrastar. (64
Fornsalan
Hafinarstræti 18, selur, með
tækifærisverði, ný og notuð
húsgögn og lítið notaða karl-
mannafatnaði.
Daglega nýtt fiskfars í buðum
Sláturfélags Suðurlands. (391
FÉLAGSPRENTSMIÐJ AN