Vísir - 23.04.1937, Blaðsíða 2
VlSIR
DAGBLAÐ
Otgefandi:
BLAÐAtJTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa 1 ^usturstræti 12.
og afgr. J
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Ný gullöld.
Mönnum skilst það, að nú
muni i vændum ný gullöld fyr-
ir land og lýð „Gullöld“ glæsi-
legra loforða, sem að visu hlýt-
ur að fara eftir atvikum hverjar
efndir verða á.
Fyrir síðustu kosningar voru
núverandi stjórnarflokkar hinir
örlátustu á slík loforð. Um
efndir á þeim loforðuin sýnist
nú víst sitt hverjum. ,
Fyrir síðustu kosningar
sömdu socialistar „hina lands-
kunnu fjögra ára áætlun", sem
formaður alþýðuflokksins
nefnir svo i kosningaávarpi
sinu í Alþýðublaðinu í fyrradag.
Áætlun þessi var barmafull af
gullnum loforðum. Og lá henni
virðist hafa verið að eins sá
eini ágalli, eftir þvi sem nú er
komið i ljós, að sögn socialista
sjálfra, að hún entist þeim ekki
í fjögur ár, eins og til var stofn-
að. Áætlunin var í 30—40 liðum
að minsla kosti, og liún er nú
svo að segja öll komin i fram-
kvæmd, segir formaður alþýðu-
flokksins. Hún átti að leysa öll
vandræði þjóðarinnar, en þó að
hún sé nú að mestu komin í
framkvæmd, sjást þess engin
merki önnur en sivaxandi vand-
ræði og þrengingar.
Um áætlun þessa, „hina lands-
kunnu“, virðist þannig nokkuð
líkt á komið og manninn, sem
kveðið var um: „Þú ert sá mesti
maður Jón, makalaus hæði í
raun og sjón. En furðuleg er
flónska sú, að fáir vita það
nema þú.“ — En um fjögra ára
áætlunina veit enginn, að hún
liafi leyst nokkurs manns vand-
ræði.
En hvað um það, og livað
sem framkvæmd áætlunar
þessarar líður, þá er það nú
kunnugt orðið, að þar er ekki
„meira að liafa“! Og því er það,
að nú er efnt til nýrra kosninga.
Því að þrátt fyrir blessunarríkt
starf núverandi stjórnar og
stjórnarflokka í þrjú ár, þá
virðist öll alþýða manna sam-
mála um það, og þó líklega það
eitt, að'„svona getur það ekki
gengið lengur“. Og það segir
Alþýðuldaðið líka, og formaður
alþýðuflokksins virðist vera á
sömu skoðun.
Þannig má það vera hverjum
manni ljóst, að tími muni til
kominn og ekki seinna vænna,
að efna til nýrra kosninga og
nýrra kosningaloforða, nýrra
fyrirheita um nýja gullöld fyrir
land og lýð.
En þessi nýju fyrirheit er að
finna i „starfsskrá“ alþýðu-
flokksins. „Áætlunin“ er úrelt
heiti, nafnið engu síður en „inn-
lialdið“. Nýtt nafn hæfir best
nýjum tíma og nýjum Ioforð-
um. Menn kynnu að öðrum
kosti að ætla, að um efndir lof-
orðanna mundi fara líkt og
áður.
1 síðuslu kosningum börðust
socialistar fyrir „útrýmingu at-
vinnuleysisins“. Nú hefja þeir
nýja baráttu fyrir „viðreisn“ at-
vmnuveganna. Með framkvæmd
„hinnar landskunnu“ fjögra
ára áætlunar átti að „útrýma
atvinnuleysinu“. Sú áætlun er
nú að mestu komin í fram-
kvæmd, og komst það á tveim
árum, segir Jón Baldvinsson. En
þrátt fyrir það er alvinnuleysið
í landinu nú magnaðra en nokk-
uru sinni áður. Ef til vill stafar
það áf því, að socialistum hafi
„skjöplast“ nokkuð um fram-
kvæmdina.
Það liefði mátt ætla, að fyrslu
ráðstafanirnar, sem gera þurfti,
til að útrýma atvinnuleysinu,
væri ráðstafanir til viðreisnar
atvinnuvegunum. Hinsvegar
virðast socialistar ekki liafa
gert sér það ljóst í upphafi.
Þeim liugkvæmist það ekki fyrr
en nú, eftir að fjögra ára áætlun
þeirra er „að mestu komin í
framkvæmd“, að gera þurfi
nokkurar ráðstafanir til við-
reisnar sjávarútveginum, og
þeir virðast hafa hugsað sér að
litrýma atvinnuleysinu án þess!
Sjálfstæðismenn báru fram til-
lögur til viðreisnar sjávarútveg-
inum þegar á fyrsta þingi eftir
að socialistar komust til valda.
En við þeim tillögum vildu so-
cialistar yfirleitt ekki líta,þar til
nú, að þeir tóku sér fyrir hend-
ur að „sjóða upp úr þeim tillög-
ur þær, sem þeir báru fram á
síðasta þingi, í kommúnistisk-
um búningi, „eftir rússneskri
fyrirmynd“, og svo „lélega úr
garði gerðar“, að þeir mega
vita, að þær geta aldrei náð
fram að ganga.
En kosningarnar munu leiða
það í ljós, að þjóðin lætur ekki
nú ginnast af loforðum þeirra.
Hún lætur sér ekki nægja, að
mega eiga von á endurteknum
yfirlýsingum þeirra um það í
lok næsta kjörtímabils, að nii
hafi öll fyrirheit verið uppfylt
án þess að nokkuð hafi verið
gert.
ERLEND VlÐSJÁ.
Roosevelt og
friðurinn.
ÞaS vakti athygli er hinn gamli
enski fri’Sarvinur George Lansbury
tók sig upp og fór til Bandaríkj-
anna til móts við Roosevelt for-
seta. Erindi hans var aS fá Roose-
velt til að gangast fyrir ráSstefnu
um friSarmál. Undir eins eftir för
Lansbury til Ameriku bárust
fregnir um aS forsetinn hefSi ein-
mitt stungiö upp á því viö Lans-
bury að slík ráSstefna skyldi hald-
in, en i fréttum erlendis frá í gær
er þetta boriS til baka og lýsir
Roosevelt því yfir aS "hann hafi
alls ekki tekiS svo ákveSiS til orSa
beldur aSeins aS hann vonaSist
eftir aS aSstæSur breyttust svo, aS
von væri um aS hægt væri aS
halda slíka ráöstefnu.
Þeir eru margir, sem líta til
Roosevelts, sem hins mikla bjarg-
vættar friöarins. Forsetinn er á-
kveSinn friöarvinur ,#g ein af
kosningayfirlýsingum hans var
um, aS hann hataSi ófriö.
Þýski rithöfundurinn Emil Lud-
wig er einn af þeim, sem telur aS
Roosevelt geti haft manna mest
áhrif í friöaráttina.
Emil Ludwig hefir nýlega ritaS
grein í tímaritiS Current History
um næstu styrjöld. Telur hann aS
hún muni verSa af völdum ÞjóS-
verja, en endar grein sína á þessa
leiS:
Franco neitar að samkomulag
komi til nokkura mála.
Viötal Francos vid Randolph
Cliixreliili.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
1 > andolph Churchill hefir átt viðtal við Franco, er
^ sagði meðal annars:
Vér munum vinna sigur. Vér munum ekki fallast á
neinar samkomulagsumleitanir eða að farinn verði
neinn meðalvegur.
Um bardagana á Guadalajaravígstöðvunum á dögunum
sagði hann, að nú hefði aftur breyst, og hersveitir sínar fært
herlínuna fram um marga kílómetra. Þeir munu ekki hörfa
undan um einn þumlung á því svæði, sagði Franco að lokum.
MANNFALL í MADRID.
Fregnir frá Madrid herma, að
50 menn hafi beðið bana, en
80 særst í loftárásinni á Madrid
í gær. — Undanfarna 11 daga
hafa 210 menn beðið bana af
völdum skotárása á Madrid, en
340 særst. — United Press.
London í morgun,
Áköf fallbyssuárás var aftur
gerð á Madrid í gær, og vörpuðu
uppreistarmenn sprengikúlum,
„shrapnel“-kúlum og eld-
sprengjum.
Spánska fréttastofna (Span-
ish Press Agency) skýrði frá
því í gærkveldi, að erlendur
stjórnmálamaður hefði verið
kyrsettur í Valencia, þar sem
sá grunur lék á, a hann hefði
óleyfilegan varning meðferðis,
var gerð leit í farangri hans,
og fundust þar skjöl, sem þóttu
mjög grunsamleg. Þjóðerni
þessa stjórnmálamanns er liald-
ið leyndu. :
BRESK SKIP FARA
TIL BILBAO.
Nýkomin frétt frá La Roch-
elle hermir, að þrjú bresk skip
hafi siglt frá Jean de Luz klukk-
an hálf tólf í gærkveldi og ætl-
að að reyna að komast til Bil-
hao. Þar sem siglingaleiðin er
aðeins 70 sjómílur, ef farið er
beina leið, ættu skipin, ef alt
gengur að óskum, að hafa kom-
ist þangað skömmu eftir dögun.
í fylgd með þeim verða þrír
flugmenn, sem áður hafa flogið
til Bilbao. FÚ.
GÍFURLEGT TJÓN f MADRID.
London, í gær.
Á miðvikudag var gerð skot-
árás á Madrid þrívegis og varð
af þeim gífurlegt tjón. Hvar-
vetna á götunum eru blóðpollar,
grjót og brotið gler úr hrundum
húsum o. s. frv.
„Einn einstakur maöur getur
enn foröaö frá ófriöi. Þessi maöur
er Franklin D. Roosevelt. Hann
veit þetta og hefir fulla vitund
um hiö sögulega hlutverk sitt. En
öröugleikar hans eru miklir, því aS
fjöldinn af Ameríkumönnum telur
ranglega aS Evrópa geti og skuli
ráöa málefnum sínum sjálf. Þessir
menn hugsa ekki um afleiSingarn-
ar ef Japan og Þýskaland ynni
stríSiö. Ef til vill gengur forsetinn
þó fram fyrir skjöldu — en til
þess þarf þjóS hans öll aS standa
einhuga aS baki honum. Forsetinn
hefir nú sagt, aS engin ráSstefna
verSi haldin í bili — en hvaS síSar
verSur, sýnir framtíSin.“
MIJAJA KVEÐST VERA
ÓSÆRÐUR.
London, í gær.
Fregnir bárst um það ný-
lega, að Miaja hershöfð-
ingja hefði verið sýnt bana-
tilræði og hefði hann særst.
— Mijaja hefir nú birt til-
kynningu þess efnis, að það
sé uppspuni, að hann hafi
særst. United Press.
Osló, 23. apríl.
Samkvæmt fregn til Wran-
gels útgerðarfélagsins í Hauga-
sundi, tóku lierskip Francos
eimskipið Augvald og fluttu það
til Ceiita. Skipstjórinn mótmælti
þessu og bað frakkneskt herskip
um aðstoð. Augvald var því
næst látið laust. — NRP.-FB.
3
Osló, 23. apríl.
Frá Sevilla er símað, að flug-
vélar uppreistarmanna hafi gert
loftárás á tvö spænsk skip við
Cartagena og sökt öðru þeirra.
Hitt strandaði skömum síðar.
NRP. — FB.
Fárvidri á
Saghalin-
©yju.
Fjöldi sjómanna
ferst.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í gær.
Fregnir frá Estoyohara á Sag-
halin herma, að þar hafi geisað
fárviðri mikið á vesturströnd-
inni og 47 fiskimenn druknað,
en 57 er saknað. —
United Press.
Launahækk-
un í Ítalíu.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Samkv. Rómaborgar-fregn-
um hefir náðst samkomulag
í grundvallaratriðum í samfé-
lags-aðalráðinu, að laun verka-
manna skuli liækka um 10%,
en laun allra annara um 8%.
Talið er, að þetta muni engum
ágreiningi valda, og að launa-
hækkunin komi tilframkvæmda
9. maí. United Press.
Sumarkveðja.
Óskum vinum og vanda-
mönnum gleðilegs sumars.Þökk
fyrir veturinn. — Förum frá
Port Talbot í dag áleiðis til
Genua. — Vellíðan allra.
Skipshöfnin á Eddu.
Randolph Churchill.
DjóÉdði smiia
loRskip lyiir Breta.
Skipin verða af
sömu stærð og
„Hindenbupg^.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í gær.
Flugmálasérfræðingur
Morning Post skýrir frá
því, að samvinna sé í vænd-
um milli Breta og Þjóðverja
um smíði stórra loftskipa
til farþega og póstflutninga.
Skip þessi verða af sömu
stærð og Hindenburg og
eiga að notast í póst- og far-
þegaflugferðum milli Bret-
lands og nýlendnanna.
Að því er sérfræðingur Mor-
ning Post segir hafa tvö skipa-
útgerðarfélög og tvö flugfélög
áhuga fyrir málinu, þ. e. að
kaupa loftskip af Þjóðverjum í
þessu skyni og ef til vill semja
við þá um smíði slíkra skipa í
Bretlandi.
Talið er, að byrjað verði með
því að sniíða tvö loftskip til
flugferða milli Bretlands og
Canada og Bretlands og Suður-
Afríku. — United Press.
Söngheimsökn frá
Aknreyri.
Kantötukór Akureyrar, sem
stjórnaS er af Björgvin GuS-
mundssyni tónskáldi, kom með
Ægi til Reykjavíkur kl. I e. h. í
gær.
Er skipiS var aö leggjast aS
bryggju, söng kórinn kve'Öjulag, en
Fóstbræður, undir stjórn Jóns Hall-
dórssonar, svöruðu með því að
syngja hina norrænu söngmanna-
kveðju eftir Grieg. Síðan hélt Jó-
hann Frímann skólastjóri stutta
ræðu fyrir hönd Kantötukórsins,
en Sveinn G. Björnsson fulltrúi
svaraði og bauð kórinn velkominn
til Reykjavíkur.
Mikill mannfjöldi hafði safnast
saman á bryggjunni til að mæta
gestunum og hlýða á söng kóranna.
Reykvíkingar hafa fengið góðan
gest þar sem er Björgvin Guð-
mundsson, er hann kemur nú hing-
að með kór sinn. Björgvin er vin-
sæll af öllum íslenskum tónlistar-
nemendum fyrir tónsmíðar sínar,
sem margar hverjar eru á allra vör-
um. Þess er því að vænta, að tón-
skáldið og kór hans fái góðar við-
tökur hjá Reykvíkingum, eins og
þeir gestir eru vanir að fá, er koma
til að syngja fjör og gleði í hjörtu
bæjarbúa.
f
Kristján H. Magnnsson
listmálari
andaðist í gærkveldi 22. apríl.
Bandamein lians var magasár.
Hans verður nánara minst hér í
blaðinu síðar.
liöivaBgs-
hlanp I. R.
liið 21. í röðinni var háð í gær.
Fjögur félög keptu: íþróttafélag
Borgarfjarðar, Iþróttafélag
Kj ósarsýslu, Knattspyrnuf élag
Beykjavíkur og íþróttafélag
Reykjavíkur. Hlauparar voru
22. Lögðu þeir af stað frá Al-
þingisliúsinu. 20 komu að
marki. K. R. vann með 9 stigum.
I. K. fékk 18 stig, I. B. 28 og í. R.
31 stig.
Fyrstur að marki var Sverrir
Jóliannesson úr K. R. á 14 mín.
22.4 sek., annar Bjarni Bjarna-
son úr í. B. á 14.44.2 mín. og
þriðji Pétur Jóhannesson úr K.
R. á 14.44.8 sek.
Leiðin var heldur lengri en í
fyrra eða 4 kílómetrar.
Nú voru aðrar reglur gildandi
um stigafjölda félaganna. Eru
nú 3 menn taldir i sveit í stað 5
áður.
Kept var um Svaiiabikarinn,
en liann verður að vinna þrí-
vegis í röð til fullrar eignar eða
fimm sinnum alls.
I. R. hélt keppendunum veislu
í gærkveldi. Þar afhenti forseti
I. S. 1. verðlaunin og liélt ræðu.
Voru margar ræður haldnar og
var liófið hið skemtilegasla.
Veður var hagstætt í gær og
margt manna á ferli. Skrúðgöngur
barnanna frá skólunum að Austur-
velli tókust vel. Ræðu flutti af svöl-
um Alþingishússins dr. Símon
Ágústsson, um starfsemi Sumar-
gjafar og velferðarmál barnanna.
Margir áheyrenda höfðu lítil not
ræðunnar, því að hátalarinn var
ekki í góðu lagi. *— Aðsókn að
skemtunum „Barnadagsins“ var
góð.
.. ——— i
Mattbfas Þðrðarson
flytnr fyrirlestur í
Stokkhðlmi.
Stokkhólmi, 23. apríl. — FB.
Matthías Þórðarson þjóð-
minjavörður hélt fyrirlestur við
ágæta dóma í háskólanum i
Stokkhólmi i gær um Miðalda-
lislir á íslandi. Álieyrendur voru
margir og þeirra meðal forn-
minjavörður ríkisins, Curman.
Blöðin í Stokkhólmi hafa birt
viðtöl við Matthías Þórðarson í
tilefni af kornu hans og fjalla
þau aðallega um íslenskar forn-
minjar o. fl.
H. W.
Norskl sáttasemjarlnn
afstýrir Tinnnstöívnn.
Osló, 23. apríl.
SATTASEMJARI ríkisins
tilkynti í nótt, að til-
lögur hans til þess að leiða tii
lykta deilu Fél. atvinnurek-
endasambandsins annarsveg-
ar og Sjómanna- og vélstjóra-
sambandsins hinsvegar hefði
borið þann árangur, að til
vinnustöðvunar muni ekki
koma. Að því er Aftenposten
hermir, fá sjómenn í strand-
ferðum nokkurar kjarabætur.
Málið verður til fullnaðar-
ákvörðunar á ríkisráðsfundi á
morgun. — NRP.—FB.