Vísir - 31.07.1937, Blaðsíða 3

Vísir - 31.07.1937, Blaðsíða 3
VlSIR Skúli Þorleifsson vard glímukonungur. ] SLANDSGLÍMAN var háð í gærkveldi þrátt fyrir óhagstætt veður. Áður en glíman hófst sýndi hinn vinsæli karla- flokkur Ármanns fimleika undir stjórn Jóns Þor- steinssonar. Tókst flokkn- um mjög vcl að vanda. Strax að lokinni fim- leikasýningunni hófst glíman og tóku þátt í lienni 8 menn, allir úr Glímufclaginu Ármann. Glíman fór prýðilega fram; glímdu menn bæði vel og drengilega. Úrslit urðu þau að Slcúli Þor- leifsson feldi alla keppi- nauta sína og hlaut þar með sæmdarheitið Glímu- konungm’ íslands. Fékk Skúli 7 vinninga. Er Skúli liinn mesti glímumaður, sterkur vel og lipur og glímír af miklum dreng- skap. Næstur varð Einar Ól- afsson með 6 vinninga, þá Sigurður Hallhjörnsson með 5 vinninga og lilaut hann fegurðarglímuskjöldinn nú í fyrsta sinni og titilinn „Glímusnillingur íslands“. Er Sigurður efnilegur gUmumað- ur. Jóhannes Bjarnason hlaut 4 vinn., Sigurjón Hallbjörnsson Kristófer Kristófersson og Hörður Markan hlutu 2 vinn. liver og Árni Stefánsson engan. Að glímulokum afhenti forseti í. S. 1., Ben. G. Waage, sig- urvegurunum verðlaunin. SKULI ÞORLEIFSSON, VO má heita að síldarlaust ^ væri norðanlands í nótt. Á miðunum er vestanstorm- ur og mikill straumur, og er veður því mjög óhentugt til veiða. > í gær voru saltaðar á Siglu- , firði um 3000 tn., en verulegur hluti af þeirri síld, sem harst á land, fór í bræðslu. í gær komu þessi skip til Siglufjarðar með yfir 200 tn.: Már 225, Málmey 327, Oliv- ette 315, Gotta 209, Frigg 224, Ásbjörn 346. Siglufirði, 30. júlí — FÚ. Fréttaritari útvarpsins í Siglufirði segir trega veiði þenna sólarliring, enda hvass- viðri af suðri og strauma mikla og síldina tæplega veiði- tæka sakir styggðar. Ríkisverk- smiðjunum liafa horist á sólar- hringnum rúmlega 4000 mál. Söltun í Siglufirði nam 2682 tunnum —- þar af voru tæplega 1200 tunnur matéssíld og 118 tunnur reknetasild Gantar teknr enskan togara. Norðfirði, 30 júlí. — FÚ. Varðbáturinn Gautur kom til Norðfjarðir í dag með hreska togarann Beverlac H. 72, er liann sakar um ólöglegar veiðar út af Norðfjarðarhorni. Málið er í rannsókn. SJÁLFSTÆÐISMENN! MUNIÐ EIÐI! Bipgðir Kolasöl- unar og Alþýöii- blaðið. 1 Alþýðublaðxnu var í gær grein um verðhækkun á kolum þar sem sérstaklega er talað um miklar kolabirgðir, sem Kola- salan s.f. eigi. Með þessu vill hlaðið halda því frarn, að til séu birgðir frá þvi áður en kolin fóru aðhækka. Sé því hækkunin nú aðeins olr- urtilraun af hálfu kaupmanna. Út af þessu hefir Vísir feng- ið þær upplýsingar hjá Kola- sölunni s.f., að af kolum þeim, sem eru nú í porti verslunar- innar, er alt selt nema ca. 300 smál. Sumt af þvi, sem óaf- greitt er, verður ekki afgreitt fyr en síldveiðiskipin eru kom- in að norðan. Alt tal Alþýðublaðsins um miklar eldri birgðir og okur á þeim er því út i loftið. Kolakaupmenn eru nú að semja ýtarlega skýrslu úm kola- birgðir og verðlag sem verður send atvinnumálaráðuneytinu. Medferð Creysis ogf eftiriit með lionum. Nýjar reglup. ÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefir nýlega sett reglur «m meðferð og eftirlit með Geysi í Haukadal. Er Statourist falin umsjá me'ð hvernum og ákveðin leyfi til að setja sápu í hverinn og endurgjald fyrir það. Reglurnar eru svoliljóðandi: REGLUR um meðferð og eftirlit með Geysi í Haukadal. 1. gr. Geysir i Haukadal er eign ríkisins og ákveður dóms- málaráðuneytið alt um með- ferð lians og eftirlit með hon- um. Fcrðaskrifstofa rikisins annast um shkt eftirlit fyrir hönd ráðuneytisins og sér urn að fylgt sé þeim reglum, sem settar eru um meðferð Geysis. 2. gr. Óheimilt er að bera sápu í Geysi nema að fengnu sérstöku leyfi. Einstaklingar eða félög, sem óska að bera í hann sápu, geta fengið slikt leyfi með þeim skilyrðum, sem siðar greinir. Skal umsókn um slíkt leyTi vei*a skrifleg og send- ast Ferðaskrifstofunni með eigi minna en tveggja sólai’hringa fyrirvara og skal greina í um- sókninni væntanlega tölu þátt- takenda. 3. gr. Leyfi til þess að bera sápu í Geysi má eigi veita oftar en tvisvar í viku, á sunnudög- um og einhvern einn virkan dag í vikunni, nema sérstaklega standi á. Aldrei má bera sápu í hverinn nema að minsta kosti tveir sólarhringar séu liðnir frá því borið var í hann næst á und- an, og ef svo stendur á, að sótt liafi verið um með nægilegum fyrirvara, og leyfi hafi verið veitt til þess að bera sápu í hverinn einhvern ákveðinn dag, má ekki veita öðrum aðiljum leyfi til að bera í hann sápu næsta sólarhring á undan. , 4. gr. Fyi’ir leyfi skal greiða | I p Porsleinn Bjsrusn ( kaupmaður á Blönduósi, and- aðist að heimili sínu sunnudag- inn 25. þ. m., 62 ára að aldri. Mun banameinið hafa verið hjartabilun. Við fráfall Þ. B. er mikil- hæfum manni á bak að sjá. Hann var af fátæku foreldri kominn og bjuggu foreldrar lians á Illugastöðum í Laxár- dal í Húnavatnssýslu, litlu koti, liægu og landgóðu. Mun Þ. B. hafa dvalist í foreldraliúsum fram um tvítugt. Langaði liann mj.ög til þess, að „ganga skóla- veginn“, sem kallað var, en ekki gat úr því orðið sakir f jár- skorts. Þorsteinn hóf búskap á Efri- Mýrum laust fyrir aldamótin, algerlega eignalaus, en ekki stóð sá búskapur lengi. Hann var stórliuga og keypti alhnargt p[>[3 unra ua ‘sguiuad upucSmig Stefano Islandi kom til bæjarins í morgun. TEFANO Islandi var með- al farþega á Gullfossi, sem kom í gærkveldi frá Kaup- mannahöfn. Söngvarinn hefir dvalið þar undanfarið og hélt nýlega hljómleika í Tivoli við mikinn orðstír. i Mun liann mjög bráðlega veita Reykvíkingum tækifæri til að hlusta á söng sinn. 50 kr. lágmarksgjald, ef um alt að 50 manna hóp er að ræða. Séu þátttakendur alt að 150, greiðst 75 kr., en 100 kr., ef tala þátttalcenda er yfir 150 manns. Leyfisgjaldið skal greitt fyrir- fram um leið og leyfi er veitt. Dr. Trausti Einarsson hefir nú það starf með hönd- urn, að gera ýmsar breytingar og lagfæringar við Geysi, en þar er ýmislegt, sem ganga þarf bet- ur frá, en ennþá liefir ekki' unn- ist tími til að gera. hafa liagnast á þeim kaupum. Búskapur hans á Efri-Mýrum stóð og skamma stund. Fluttist Þ. B. þaðan til Blönduóss og átti þar heima æ siðan. Þ. B. var hneigðari fyrir kaupsýslu en búsýslu í sveit. Kaupsýsla varð og aðalstarf lians, því að hann rak verslun á Blönduósi frá því laust eftir aldamót og til dánardægurs. En verslun hans varð aldrei mjög umfangsmikil og' um eitt skeið mun liann liafa stjórnaS. félagsverslun. Þorsteinn Bjarnason var prýðilega greindur maður, fróð- leiksgjarn og stálminnugur. Hann var stjórnmálamaður að eðlisfari og hverjum manni hetur að sér i stjórnmálasögu þjóðarinnar hina siðustu ára- tugi. Talinn var liann góður ræðumaðui’, ekki síst ef um stjórnmál var talað, og örðugur mótstöðumaður. Svo sem að likum lætur um slíkan hæfileikamann sem Þ. B., var honum beitt allmjög fyrir í málefnum Blönduóss- lirepps. Oddviti hreppsins var hann um meira en tvo áratugi, og sýslunefndarmaður litlu skemur. Hann átti og lengi sæti í stjórn kvennaskólans á Blönduósi, og fleiri trúnaðar- störfum mun hann hafa gegnt í þágu sýslufélags og sveitar. Þ. B. var kvæntur frú Mar- gréti Kristjánsdóttur og lifir hún rnann sinn, ásamt þrem börnum þeirra hjóna. — Frú Margrét er dóttir ,,Verts- hús“-hjónanna, er oft voru svo nefnd, þeirra Kristjáns veit- ingamanns Halldórssonar á Blönduósi og konu hans, frú Sigríðar Sigurðardóttur. Voru þau lijón mörgum að góðu kunn nyrðra, greiðvikin, gest- risin og höfðingjar í raun. — Þorsteinn Bjarnason var fríður maður sýnum og vel á sig kominn, prúður í fram- göngu, hæglátur og alvörugef- inn. SJÁLFSTÆÐISMENN! MUNIÐ EIÐI! Sáttatilrannir og ir±xi.3iiid.óxii.stóll. Því hefir verið haldið fram í V í s i, að 9. gr. Dagsbrúnar- samningsins fæli í sér grundvallaratriði þeirra ákvæða úr frv. sjáltstæðismanna um vinnudexlur, sem lúta að starfi sátta- semjara og frestun vinnustöðvunar. Verkamönnum er alment ekki ljóst í hvaðá átt frv. um vinnudeilur fer, og hafa þeir verið mjög blektir um öll þau mál. I sambandi við Dagsbrún- arsamninginn hefir vaknað áhugi hjá fjölda verkamanna fyr- ir því, að kynnast sannleikanum um frv. sjálfstæðismanna. — Verður hér á eftir gerð nokkuð nánari grein fyrir ákvæðum frv. urn vinnudeilur um störf sáttasemjara og vinnudómstól- inn. — GRUNDV ÖLLUR TILLAGANNA. í fáurn orðum má segja, að grundvöllur tillagna sjálfstæðis- manna um störf sáttasemjara og vinnudómstól, sé sá að finna leiðir til þess að deilur vei’ka- manna og vinnuveitenda verði leiddar á friðsamlegan hátt til lykta og afstýi’a í lengstu lög, að til vinnustöðvana þurfi að koma. Réttur vinnuveitenda til vinnusviftingar og réttur verka- manna til verkfalls er viður- kendur, en tillögurnar miða að- eins í þá átt, að reynt sé til þrautar hvort samningar megi ekki takast áður en gripið er til vinnusviftingar eða verkfalls. Ágreiningur sá, sem komið getur upp milli vinnuveitenda og verkamanna er tvennskonar: í fyrsta lagi, ágreiningur um skilning iá gerðum sanmingi, hvort hann liafi verið brotinn o. s. frv. — í öðru lagi, deila um hver kjör verkamanna skuli vera, skv. samningi, sem fyrir liggur að gera. 1 samræmi við þetta greinast tillögurnar einnig í tvent: 1. Ákvæði um vmnudómstól, sem sker úr ágreiningi urn skilning á samningi o. s. frv. og 2. sáttatilraunir í deilum út af kaupi og kjörum. Verða hér fyrst atliugaðir höfuðþættir ákvæðanna um sáttatilraunir. SÁTT ATILR AUNIRN AR. Ef vinnuveitendafélag eða verkamannafélag liefir fyrir- hugað að hefja vinnustöðvun út af ágreiningi um kaup og kjör, er skylt að tilkynna það til sáttasemjara og láta fylgja ýmiskonar upplýs. varðandi deiluna. Sáttasemjari getur þó, ef honum sýnist, reynl sáttatil- raunir í deilu, sem stendur yfir, áður en slík tilkynning hefir vex’ið send, en að öllum jafnaði mundi slílc tilkynning verða upphafið að starfsemi sátta- semjara. Það félag, sem hefir fyrirhug- að vinnustöðvun má ekki skella lienni á fyr en fjórir sólarliring- ar eru liðnir frá þvi að tilkynn- ing var send sáttasemjara. Eftir að sáttasemjari hefir fengið slíka tilkynningu, hefir liann heimild til aðbannavinnu- stöðvun þar til sættir hafi verið revndar og geri hann það, er honum skylt að liefja sáttastarf sitt þegar í stað. Eru síðan í frumvarpinu ýms ákvæði um skyldur sáttasemjai'a og störf hans, sem oflangt mál er að rekja liér. En séu liðnir 10 sólarhringar eða meira frá því að sáttasemj- ari bannaði vinnustöðvun, án þess að sáttatilraunir hafi tek- ist, getur liver aðili sem er kraf- ist þess, að sáttatilraunum skuli lokið og er þá skylt að Ijúka sáttatilraunum innan fjögra sólarliringa eftir að krafan kom í hendur sáttasemjara. Náist ekki sættir á þeim tíma telst sáttatilraun árangurslaus og er þá opin leið fyrir aðila, að að grípa til vinnustöðvana, til að knýja fram kröfur sínar, ef þeir telja sér það hagkvæmt. Eins og af þessum lákvæðum sést, er tilgangur þeirra, að sjá svo um að reynt sé að fullu hvort ekki megi semja áður en vinnustöðvun sé skelt á. Því fer fjarri5 að lögfest sé bann gegn vinnustöðvun lield- ur er aðeins um frestun að ræða. En sú takmöi'kun, sem frestunin gerir á réttinum til vinnustöðvunar er gerð, bæði með tilliti til þjóðfélagsins í heild og eins með tilliti til þess, að vinnustöðvanir eru að öll- um jafnaði tjón fyrir þá aðila sem í slíku eiga, og er samn- ingsleiðin því ólíkt giftusam- legri. VINNUDÖMSTÓLLINN. Þá eru ákvæðin um dómstól- inn,’ sem sker úr ágreiningi milli vinnuveitenda og verlca- manna út af skilningi á samn- ingi o. s. frv. Sósialistar hafa jafnan látið í veðri vaka, að dómstóll þessi ætti að ákveða fyrir hvaða kaup verkamenn skyldu vinna. Slíkt er auðvitað fjarstæða ein. Verkefni Vinnudómstólsins er fyrst og fremst, að skera úr á- greiningi um gildi samnings, hvernig beri að skilja hann, eða um kröfur, sem bygðar eru á gerðum sanmingi. Taldir eru upp í frv. um vinnu- deilur rnargir liðir rnála, sem falla undir Vinnudómstólinn og allir lúta aðsamningum millifé- laga vinnuveitenda og verka- manna. Dómstóllinn kemur aldrei nálægt því að ákveða kaup manna, en hefir aðems það hlutverk, að skera af þekk- ingu og skilningi úr deilum að- ilja út af samningum, sem þeg- ar hafa verið gerðir annaðhvort með eða ián aðstoðar sátta- semjara. í dómnum eiga sæti 5 menn. Hæstiréttur útnefnir formann vinnudómstólsins, varafor- mann, tvo aðaldómara og tvo varadómara, alla íil þriggja ára í senn. Stjórn Vinnuveitenda- félags Islands kýs einn aðal- dómara og einn varadómara og sljórn Alþýðusamhands Íslands, einnig einn aðaldómara og einn varadómara. Dómarar þeir, sem Hæsti- réttur útnefnir mega ekki liafa þá aðstöðu, að þeir verði taldir vilhallir um málefni vinnu- veitenda og verkalýðs. Síðan eru ýtarleg ákvæði um störf dómsins og flutning mála fyrir honum. Við meðferð mála fyrir dóm- stólnum skal engin réttargjöld greiða lil ríkissjóðs. Afl at- kvæða ræður úrslitum um nið- urstöður dómsins, og skal hann kveða upp dóm svo fljótt sem unt er. Hér hafa í sem stystu máli verið rakin ákvæði frv. um vinnudeilur um sáttaumleitan- ir og hlutverk og skipun vinnu- dómstólsins. Þegar verkamenn aðeins hætta að láta sér nægja ósann- indi og æsingar broddana í verkalýðsfélögunum og taka að íhuga málið 'sjálfir, þá hljóta þeir að komast að þeirri niður- stöðu að hér er ekki um nein „þrælalög“ að ræða heldur þvei't á móti reglur, sem eru sanngjarnar og réttlátar og miða til þess að firra tjóni. Æsingar foringjanna í verk- lýðsfélögunum gegn slíkum reglum eru lítt skiljanlegar og ákaflega heimskulegar. Ef til vill telja þeir að valdi sínu sé of rniklar takmarkanjr settar og er það þó vandskilið. En hvað myndu þeir segja um lög eins og vinnulöggjöf frönsku alþýðufylkingarinnar, þar sem verkföll og vinnu- stöðvanir eru beinlínis bönnuð og aðilum gert að skyldu að jafna égreining sinn, sem fljót- ast með aðstoð hins opinbera? Vinnulöggjöf hlýtur að kom- ast á liér á landi eins og í lang- flestiun menningarlöndum öðr- um. Og þess er skamt að biða, að liún komist á og vei'ði hún svipuð því, sem liér lxefir verið lýst mun hver verkamaður, sem mælir af heilum hug, við- urkenna gagnsemi hennar, og óska þess að slíkar reglur hefðu verið settar löngu fyr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.