Vísir - 15.11.1937, Side 3
TfS€R
Vinniideilaui á AkuFgygi,
Samningatilraunir hafa strandað.
Kommúnistar í „Iðju“ á Akureyri
höfnuðu tillögum sáttasemjara og
samninganefndar.
Framsöknirflokknrinn hélt í gær flokksfund nm málið.
Samningatilraunir þær, sem staðið hafa undanfarna
daga í vinnudeilu félagsins „Iðju“ á Akureyri við Sam-
band ísl. samvinnufélaga og Kaupfélag Eyfirðinga,
hafa nú farið út um þúfur.
1 fyrradag höfðu samninga-
nefndir frá báðum aðilum og
fulltrúi sáttasemjara, Þorsteinn
M. Jónsson, gengið frá samn-
ingi mn ágreiningsatriði, en
fundir höfðu þá verið haldnir
3 undanfarna daga, er niður-
staða þessi fékst.
Samningur þessi var í höfuð-
atriðum þannig, að verkafólk
skyldi fá 12—17% kauphækk-
un, eftir því við hvaða iðn það
starfar og í hvaða launaflokki
það er og að S. I. S. og K. E.
A., sem greitt hafa verkafólk-
inu ágóðalilut, ábyrgist þvi að
minsta kosti sama ágóðahlut
fyrir yfirstandandi ár og i
fyrra. Enn fremur að vinnutími
skyldi vera 8%' stimd, en í
taxta Iðju var gert ráð fyrir
8 stundum, og að lokum, að
komið yrði sem fyrst á álcvæð-
isvinnu í skóverksmiðju S. 1. S.
Fulltrúar S. I. S. og K. E. A. í
samninganefnd, þeir Yilhjálm-
ur Þór kaupfélagsstjóri og
Böðvar Bjarkan málaflutnings-
maður, samþyktu éndanlega
þessa niðurstöðu á ágreinings-
atriðunum, en fulltrúar Iðju
kváðust þurfa að leggja samn-
inginn undir félagsfund, áður
en þeir gætu samþykt hann
endanlega og lofuðu þeir, að á
þeim fundi skyldi þeir mæla
með, að þessi niðurstaða fengist
samþykt.
Iðju-fundurinn kom saman
kl. 8V2 í fyrrakvöld og bjóst
Jón Sigurðsson erindreki og
,þeir, sem með honum voru í
samningum við S. í. S. og K. E.
A., að fundurinn mundi ekki
standa lengi og samningurinn
yrði samþyktur og höfðu þeir
þvi talað svo um við Vilhjálm
Þór og Böðvar Bjarkan, að þeir
hittist allir aftur í fyrrakveld
kl. 10y2 og undirrituðu þá end-
anlega samninginn. En til þess
kom ekki, því um kl. 11 til-
kynti Jón erindreki Vilhjálmi
Þór, að Iðjufundurinn hefði
hafnáð samningsuppkastinu.
Á Iðju-fundinum bar mest á
hinum róttækari, eða kommún-
istum, sem eru mjög sterkir i
félagi verkalýðsins á Akureyri
og auk félagsmanna voru mætt- |
ir á fundinum þeir Steingrimur
Aðalsteinsson, frambjóðandi
kommúnista á Akureyri við síð-
ustu kosningar og Halldór Frið-
jónsson, sem er Alþýðuflokks-
maður að nafninu til. Voru þeir
komnir á fundinn til að styðja
þá róttækari og stappa i félags-
menn stálinu og fengu þar mál-
frelsi, enda þótt þeir væri ekki
félagar.
Jón Sigurðsson erindreki
lagði samningsuppkastið fyrir
fundinn og mælti með þvi, en
fylgdi því þó ekki mjög fast
eftir. Að ræðu hans lokinni
fengu kommúnistar og þeirra
fylgismenn fljótt yfirhöndina
og þeir Steingrímur og Halldór
töluðu einnig á móti samnings-
uppkastinu, og var þvi flest til
foráttu fundið.
Að loknum umræðum fór síð’
an fram skrifleg atkvæða-
jgreiðsla og var samningsupp-
kastið felt með 52 atkv. gegn 8,
en 7 seðlar voru auðir og ógild-
ir og milli 10 og 20 manns sátu
hjá.
Er blaðið átti síðast tal við
Akureyri var ekki vitað um
hvað yrði um áframhaldandi
sanminga. Spá sumir þvi, að S.
I. S. og K. E. A. gerist nú stirð-
ari í samningum og muni ekki
horfa í, þótt stöðvunin haldi
eitthvað áfram.
Sáttasemjari, Þorst. M. Jóns-
son, mun þó hafa hug á að leita
um frekari sættir, en óvíst er
hvort frekari fundir verði i dag.
f gær átti Jón Sigurðsson er-
indreki Alþýðusambandsins tal
við Villijálm Þór kaupfélags-
stjóra út af deilunni, en ekki er
vitað hvað þeim hefir farið á
milli.
Akureyrardeilan er fyrsti al-
varlegi áreksturinn, sem orðið
hefir milh Alþýðusambandsins
eða útsendara þess og sam-
vinnufélagsskaparins. Var eðli-
legt, að til shks kæmi með vax-
andi atvinnurekstri kaupfélag-
anna og Sambandsins, en á Ak-
ureyri á aðalverksmiðjurekst-
ur þessara fyrirtækja heima. í
deilum einstaklinga við Alþýðu-
sambandið á liðnum árum hafa
þeir jafnan notið fremur lítils
skilnings í herbúðum kaupfé-
Iaganna, en nú, er þessi fyrir-
tæki sjálf eru búin að fá að
kenna á því, sem Jón Árnason
kallar „þjösnaskap“ forráða-
manna Alþýðusambandsins,
mun hafa aukist skilningur
ineðal þessara manna á þvi, við
livað einstaklingsfyrirtækin
hafa haft að etja í hinum
mörgu og löngu deilum á und-
anförnum árum. Flokkur sá, er
lelur sig málsvara kaupfélag-
anna, er nú einnig farinn að
tala umvinnulöggjöf ognauðsyn
liennar og hefir borið fram
frumvarp um þau efni.
Er nú einnig tilefni til að
spyrja þennan flokk: Hvaða af-
stöðu tekur hann til vinnulög-
gjafarinnar á yfirstandandi Al—
þingi? Á miálið að grotna niður
í aðgerðaleysi þingsins, eða á að
fylgja því fram til samþyktar?
Enginn friður verður um
atvinnu og framleiðslu
þjóSarinnar á næstu árum
nema skynsamleg vinnulög-
g jöf verSi sett nú þegar.
Þingmenn Framsóknar-
flokksins höfðu verið kallaðir á
skyndifmid í gær, er upp úr
slitnaði í bili með samningsað-
iljum nyrðra. Höfðu forstjórar
S. í. S., sumir að minsta kosti,
setið þann fund. Blaðinu hefir
ekki tekist að afla sér upplýs-
inga um það, hvað gerst hafi á
Frh. á 4. bls.
Alþinfi.
Neðri deild.
Þar voru sjö mál á dagsskrá.
Umræður urðu að eins nokkr-
ar um fyrsta málið, frv. til laga
um vátryggingafélög fyrir rél-
báta. Meðal þeirra, er til máls
tóku, voru PéturOttesen og Sig-
urður Hlíðar. önnur mál á dag-
skrá voru þessi. Um bráða-
birgðaverðtoll (fór til 3. umr.),
strandferðasjóð (fór til 2. um-
r.), breytingar á 1. um tekju- og
eignarskatt (fór ,til 2. umr.)
breyt. á jarðræktarlö,gunum,
heimild fyrir stjórnina til að
veita bæjarfélögum einakleyfi
til bæjarreksturs og framl. úr
ríkissjóði til Vestmannaeyja til
verklegra framkvæmda. Þessi
þrjú síðustu mál voru tekin út
af dagskrá.
Efri deild.
Þessi mál voru þar á dagskrá:
Frv. um heimild fyrir rikis-
stjórnina til að láta öðlast gildi
milliríkjásamning um möskva
fiskinetja og minsta mál á fiski,
frv. til 1. um sildarverksmiðju
á Sauðárkróki og frv. um að-
stoðarpresta i Reykjavik.
Oðdverjataðil.
Málaralist.
Málarinn er í þetta skifti
kvenmaður. Við fyrsta augna-
kast á sýninguna er að finna
fjör og gleði, léttleik og lita-
yndi; nánari kynni af hverri
mynd fyrir sig styrkir liin fyrstu
áhrif sýningarinnar. En það er
af þvi að hér er óvanalega takt-
hreina list að sjá.
Hispursleysi mætti kalla auð-
kenni sumra myndanna —
ávöxtur barnslegrar vinnugleði.
þroskaðs snillianda sem þakkar
því efni er unnið er með, livað
léreftið sýnir. Hið bjarta lit-
fagra (annarlega lands) vor er í
sumum þessum myndum auð-
þektur skóli. — 1 fylkingar-
broddi lifandi snildar ber stúlka
þessi málaralistinni merki sitt
sem paralellisti.
Sumar þessar myndir eru
kompositionir og pbantasi,
unnar af hæfni og leikni mál-
ara sem þekkir takmörk liins
ópósitíva á paletti og kanvas.
Vel væri til fallið finst mér af
dönsku stjórnmni eða íslenska
ríkinu, að reyna að eignast alla
þessa sýningu, til þess að ekki
myndirnar, sem gætu verið
samstæð heild færu út um
kvíppínn og hvappinn. Eitt
lítið safnhús, sérstakt með sér-
stakri slcilningsmikilli, fagurri
list í menningarborg, mundi
geta orðið einskonar góður,
hjálplegur skóli i paralelist-
iskri framtíð fyrir listleitandi
fólk sem þar mundi geta fundið
eitt ekki svo lítið kvantum til
leiðbeiningar listinni í heimi þar
sem karlmenn eru i miklum
meirhluta sem málarar.
Jóh. S. Kjarval.
stofnað í Kaupmannaliöfn árið
1912 og hefir nú starfað i
fjórðung aldar.
Bogi Th. Melsted sagnfræð-
ingur mun hafa verið fyrsti
hvatamaður þess, að félagið
væri stofnað, er sýnt þótti að
Hafnardeild Bókmentafélagsins
yrði flutt hingað heim. Hann
var andvígur heimflutningi og
svo var um fleiri fræðimenn ís-
lenska, er þá voru búsettir i
Kaupmannahöfn. Má þar til
nefna meðal annara, þá dr. Þor-
vald Tlioroddsen og dr. Finn
Jónsson.
Á stofnfundi félagsins var B.
Th. M. kjörinn forseti þess og
gegndi hann forsetastörfum æ
siðan eða 1912—1929 (d. 1929).
Stofnendur — eða félagar frá
uppliafi — voru þessir, auk
Boga: Dr. Finnur Jónsson, há-
skólakennari, Sigfús Blöndal,
bókavörður, Þorvaldur Thor-
oddsen, dr. phil. Gísli læknir
Brynjólfsson, di’. Kr. Kálund,
bókavörður, Magnús Jónsson,
cand. jur. & polit. (síðar há-
skólakennari), Valtýr Guð-
mundsson, háskólakennari, dr.
phil., og Holger Wiehe, mag.
art. Síðar voru fáeinir menn
kjörnir félagar, en alls hafa 19
menn verið í félaginu. Sam-
kvæmt lögum félagsins mega
félagar ekki vera fleiri en 12 í
senn „og skulu þeir kosnir að
verðleikum og eftir þeim hk-
indum, sem eru til þess, að þeir
geti unnið að tilgangi" þess, en
hann er einkum sá, „að styðja
og styrkja íslensk vísindi og
bókmentir með útgáfu gamalla
og nýrra rita, er snerta sögu Is-
lands og náttúru, íslenskar bók-
mentir og þjóðfræði“.
„Fræðafélagið“ hefir nú gefið
Út minningarrit um 25 ára starf
sitt, og er það saman tekið af
Jakobi Benediktssyni cand.
mag., er verið liefir ritari þess
siðustu árin. Segir þar að upp-
hafi frá stofnun félagsins og
tildrögum þess, að það var
stofnað. En þá er rætt um fjár-
hag þess og störf.
Fræðafélagið hefir alla tíð
látið lítið yfir sér og margir hér
heima harla lítið vitað um starf-
semi þess. En merkilegt starf
hefir það unnið eigi að síður og
gefið út mörg úrvalsrit, m. a.
sum af ritum dr. Þorv. Thor-
oddsens, Jarðabók Árna Magn-
ússonar og Páls Vídalins o. fl.
afbragðs rit, sem hér verða ekki
talin.
Félaginu hefir verið stjórnað
af mikilli ráðdeild og er fjár-
hagur þess í góðu lagi. Útgáfu-
kostnaður þess frá upphafi, að
ritlaunum meðtöldum, er nú
orðinn um 125.000 krónur. Að
loknu fyrsta starfsári félagsins
(1913) nam fastasjóður þess
354.01 kr., en er nú (1937)
kominn upp í 100.524.87 kr.
Dr. Kr. Kálund bókavörður
gaf félaginu mikinn hlut eigna
sinna að sér látnum og nam sú
gjöf 18.284.49 kr. — Er það
mesta gjöfin, sem félaginu hef-
ir áskotnast.
Félagið hefir nú lækkað verð
á mörgum forlagsbókum sín-
um, svo að sem flestir geti eign-
ast þær. Snæbjörn bóksali Jóns-
son er umboðsmaður félagsins
hér í Reykjavik.
■> UA V » • ». » ■ i,-
aðeine Loftnp.
Móðir mín,
Aldís Pétursdótíir,
andaðist 14. nóvember að heimili okkar, Brekkugötu 6,
Hafnarfirði.
Jóhanna Eiríksdóttir.
Orgel og fiðluleikur í fríkirkjunni.
Fyrstu hljórnleikar Tónlistarfé-
lagsins á þessum vetri voru haldn-
ir í fríkirkjunni síðastl. miðviku-
dag. Tónlistarfélagið hefir safnað
styrktarmeðlimum undanfariiS og
gekk þa'ð grei'ðlega. Hver styrkt-
armeðlimur leggur fram kr. 2.50
á mánuði, og fær í staðinn tvo að-
göngumiða að hverjum hljómleik,
en þeir verða haldnir mánaðarlega
yfir veturinn. Með þessum hætti
hefir tekist að safna saman í einn
hóp hinum þroskaðri og gáfaðri
tónlistarunnendum höfuðstaðarins,
og er hópurinn orinn svo stór, að
hann næstum fylti kirkjuna. Er
ánægjulegra að hlusta á góða tón-
list í samstiltum hóp. Það munu
ílestir kannast við.
Tónlistarfélagið er stofnað árið
1932 af 12 áhugamönnum. Það
starfrækir bæði Tónlistarskólann
og Hljómsveit Reykjavíkur og
hefir gengist fyrir hljómleikum
og óperettusýningum (Meyjar-
skemman og Systirin frá Prag).
Það var myndarlega af stað far-
ið með þessum hljómleikum. Við-
fangsefnin voru öll eftir meistar-
ana J. S. Bach, Brahms og Reger.
Fyrsta verkið var „Piælúdía og
Tripelfúga“ í es-dúr eftir Bach.
Dr. Guðmundur Finnbogason
myndi nefna verkið: forleik og
þrístefjahljómþulu. Mér flugu í
hug þessi orð ritningai'innar, er
eg vissi að spila ætti þetta verk:
„Ef einhver hefir eyru að heyra
með, hann heyri!“ Verkið gerir
miklar kröfur til áheyrandans, og
verður hann að geta gert sér grein
fyrir þessu stórformi tónlistar-
innar, svo það veiti honum listar-
unað. Hljómþulan er þrískift. Það
er álitið, að Bach hafi viljað lýsa
heilagri þrenningu; fyrsta stefið
táknar föðurinn, annað soninn og
það þriðja heilagan anda. Fyrsta
stefið gengur í gegnum allar þrjár
hljómþulurnar og bindur þær
þamiig saman í eina sterka heild.
Páll ísólfsson lék verkið snildar-
vel og mjög í anda Bachs. Allar
línur voru skýrt dregnar, því stíl-
vitund hans er örugg, og eru til-
finningar hans styrkar.
Páll lék nokkur kóralforspil
eftir Bach og Brahms á milli stóru
verkanna, blíð og innileg, og var
hvíld í þeim. Síðast lék hami
„Introduktion og Passacaglia" í
f-rnoll eftir Reger, eitthvert feg-
ursta verkið, sem eftir hann ligg-
ur. (Passacaglia er tilbrigðaþátt-
ur og gengur stefjan eða themað í
gegn í bassanum). Meðferð Páls á
þessu stórbrotna verki var einkar
snjöll og glæsileg.
Við kvörtum stundum undan
því, að tónlistalíf okkar sé snautt
og fátæklegt. Við höfum þó hér
á staðnum bæði orgelsnilling og
píanóleikara í fremstu röð, eins
og Pál ísólfsson og Árna Krist-
jánsson. Páll hefir þó orðið að
spila orgelverkin lengst af fyrir
mjög fámennan áheyrendahóp, því
að margir sem hlýddu á hann
komust að raun um, að með heyrn-
inni heyrðu þeir það, sem þeir
ekki skildu. En nú er þetta sem
betuf fer að breytast. Sá hópur,
sem skilur æðri tónlist, er óðum
að stækka. Það er ekki síst að
þakka starfsemi Tónlistarfélags-
ins og á eg einkum við starfsemi
Tónlistarskólans.
Hans Stepanek, kennari í fiðlu-
leik við Tónlistarskólann, spilaði
íiðluhljómleik í e-dúr eftir J. S.
Bach með undirleik strengjasveit-
ar og orgelsins. Hann er dugleg-
ur fiöluleikari, vaxinn erfiðusttí
viðfangsefnum, sem hann túlkar
stilhreint og innlíft.
Skýringar á viðfangsefnunum
fylgdu efnisskránni, ásamt ágripí
af æfi höfundanna. Er þessi nýn
breytni bæði góð og gagnleg.
b. a:
Veðrið í morgun:
í Reykjavík 4 st., mest í gær 6
st., minst í nótt 4. Úrkoma í gær
0.3 mm. Yfirlit: Hæð fyrir sunnan
land. Grunn lægð fyrir vestan land
á hreyfingu austur. — Horfur:
Faxaflói: Vaxandi suðvestan átt.
a.llhvass í nótt. Rigning.
Skipafregnir.
Gullfoss er á leið til Leith frá
Kaupmannahöfn. Brúarfoss er iá!
leið til London. Lagarfoss kom til
Djúpavogs kl. 6 í morgun. Selfoss
er á leið til Vestmannaeyja frá
Hamborg. Dronning Alexandrine
kom að norðan og vestan í gær-
morgun. Edda kom frá útlöndum
í nótt með kolafarm. Tveir þýskir
togarar komu í morgun. Var ann-
ar með brotna skrúfu og hjálpaði
hinn honum til hafnar.
Bifreið
var ekið út af veginum laust
eftir miðnætti s. 1. nótt, inn undir
Laugabrekku. Bfireiðinni hafði
verið ekið á vinstra vegarkanti og
svo utan vegar og á girðingu og
c-3it henni nokkurn spöl, en að
lokum lenti bifreiðin í skurði og
lá þar á hliðinni, er að var komið.
í bifreiðinni voru tveir menn og
meiddust ekki Bifreiðin fór yfir
ýmsar ójöfnur og varð fyrir miklu
hnjaski. En hún er nýleg og sterk,
með óbrjótanlegu gleri. Rannsókn
er ekki lokið.
Goðafoss
fer vestur og norður í kvöld. —
Hann kemur ekki við á Sandi, eins
og stóð í auglýsingu í Vísi á laug-
ardag.
Esjupóstur.
Esja var á Akureyri um leið og
M.s. Dronning Alexandrine. Flutti
M.s. Dronning Alexandrine hing-
að Austfjarðapóst úr Esju.
Freðfiskur
varv fluttur út fyrir 171670 kr.
Magn: 182950 kg. Af fiskmjöli
voru fluttar út 232 smál., að verð-
mæti 51.890 kr.
Vænn dilkur.
Dilkur, sem var eign Kristjáns
Kristjánssonar i Skógarnesi syðra
í Miklaholtshreppi, var seldur eft-
ir lifandi vigt til Borgarness í
haust og vóg þá 137 pund. Pund-
ið var borgað með 26 aurum, og
gerði dilkurinn því kr. 35.62. Þetta
var hrútlamb, borið á Hvítasunnu-
dag, en ærin gekk í heimalandi
í sumar. Kristján átti nokkra
heimagengna dilka aðra, sem vógu
um og yfir 100 pund. — FÚ.
Félagsblað Ármanns,
lii'ð fyrsta, er fyrir skömmu út
komið. í því eru margar greinar
og fróðlegar, og fjöldi mynda.
Efnið er m. a. þetta: Pétur Jóns-
son blikksmiður, eftir Guðm.
Guðmundsson, Það helsta, sem
skeði á liðna starfsárinu, eftir Jens
Guðbjörnsson, Brot úr ferðasögu
róðrarflokks Ármanns í sumar,
eftir Ólaf Þorsteinsson, Hring-
ferð Glímufél. Ármanns í sumar,
eftir einn úr hópnum o. m. fl.