Vísir - 07.12.1937, Blaðsíða 2
VÍSIR
jipnir koiii é iloiking.
Kínverjar fóru ránshendi um borg'
ina, áður en þeir yíirg-áfu hana.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Fréttaritari U. P. í Tokyo símar, að japanski her-
inn sé nú kominn fast að útborgum Nanking
og er farinn að undirbúa innreið sína í hana.
Segir í fregninni að borgin sé yfirgefin af öllum nema
herfylkjunum, sem þar voru sett til varnar, en áður en
fólkið flýði fór það með ránum og gripdeildum um
borgina. Vörugeymsluhúsinu á fljótsbakkanum eru í
björtu báli eftir margar loftárásir Japana. Þúsundir
Kínverja, æðisgengnir af ótta ruddust inn í erlenda
hverfið í borginni, því að þar hefir alt verið rólegt fram
að þessu. Tuttugu þúsund konur og börn hafa verið
f lutt á örugga staði inn í landið.
•• ‘-rxtx
Japanski flotinn, sem verið hefir á Jangtsefljóti,
getur nú flutt sig enn nær Nanking, því að Japönum
hefir tekist að sprengja á brott skipin, sem Kínverjar
höfðu sökt þvert yfir fljótið við Kiangyin. (Kiangyin
er miðja vegu milli Nanking og Shanghai).
United Press.
Lán til hitaveitunnar til
reiðu í London með góð-
um kjörum.
Ríkisábyrgðar ekki krafist.
Eins og frá var skýrt í Vísi í gær, er hitaveitumálið nú kom-
ið á svo góðan rekspöl, að framkvæmdir munu geta hafist með
vorinu, en borgarstjóri og bæjarverkfræðingur hafa um tíma
dvalist í London til að undirbúa lántöku til fyrirtækisins og
annað er að því lýtur.
Áttu þeir tal við tíðindamenn blaða og útvarps í gær og fór-
ust borgarstjóra svo orð um hitaveitumálið og utanför þeirra:
VÍSIB
DÁGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Ritstj.: Páll Steingrímsson
Skrifstoftl . . ,
, > Austurstr. 12
og afgr. |
Símar:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Anglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 kr. á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Á að bíða?
PFTIR það, sem áður var
^ kunnugt orðið um allan
undirbúning hitaveitumálsins,
kemur það engum á óvart, sem
skýrt er frá i blöðunum í dag,
að tilboð sé þegar fengið um
lán til hitaveitunnar. En með
því að svo virðist sem lánstilboð
þetta niuni vera sæmilega hag-
stætt, er málið þá einnig komið
í það liorf, að engin töf virðist
þurfa að verða á því, að endan-
leg ákvörðun sé tekin um það,
hvort ráðist skuli í þetta stór-
merka fyrirtæki þegar í stað,
eða einhverra orsaka vegna að
slá því enn á nokkurn frest. Og
væntanlega verða skoðanir þó
lítt skiftar um það, að eftir engu
sé að bíða. En að sjálfsögðu er
„engin regla án undantekning-
Það er nú löngu kunnugt, að
minnihluta flokkarnir í bæjar-
stjórninni hafa lítinn áliuga
haft fyrir hitaveitunni. Kemur
það þá heldur engum á óvart,
þó að blöð þeirra taki nú dræmt
í málið og telji ýms tormerki á
að því verði nú þegar lirundið í
framlcvæmd. Og á þá leið far-
ast einnig Alþýðublaðinu orð í
gær, er það skýrir frá niður-
stöðum verkfræðinga bæjarins,
sem birtar hafa verið í skýrslu
þeirra. Reynir blaðið af veikum
burðum og lítilli þekkingu að
gera þessar niðurstöður sem
tortryggilegastar, en höfuðmót-
bára þess gegn því, að nú þegar
verði ráðist í framkvæmdir, er
sú, að „liitaveitan þurfi að ná til
allra bæjarbúa, en ekki að eins
til nokkurra þeirra“, Virðist
það þannig vaka fyrir blaðinu,
að þó að nú sé fengið nægilegt
vatn til þess að hita upp hálfan
bæinn, eða vel það, þá megi
með engu móti gera nokkurar
ráðstafanir til að notfæra sér
það, heldur beri að bíða þess
að vatnið verði nægilegt til að
hita upp allan bæinn!
Nú er það auðvitað, að þó að
byrjað verði á hitaveitunni nú
þegar og virkjað það vatns-
magn sem fyrir hendi er, þá
verður leitinni eftir meira vatni
jöfnum höndum haldið áfram,
og alt kapp lagt á það að afla
sem fyrst nægilega mikils vatns
til að hita upp allan bæinn. En
jafnvel lw> að gert væri ráð fyrir
þvi, að sú leit bæri lítinn eða
engan árangur, hvaða vit væri
þá í því að lála það vatn, sem
þegar er fyrir hendi, haída á-
fram að renna til ónýtis stund-
inni lengur? Jafnvel þó að sú
vrði niðurstaðan að lokum, að
sækja yrði vatn til viðbotar um
longri veg, þá breytir það engu
um það, að sjálfsagt ér að not-
færa sér það vatnsmagn, sem
þegar hefir verið aflað og næst
er hendi.
Og ef sú yrði raunin á, að
hvergi væri nægilegt valn að fá,
til að liita upp allan bæinn,
með kleifum kostnaði, ætti þá
fyrir þá sök að láta þetta valns-
magn á Reykjum ónotað um
aldur og æfi, af því að það
nægði ekki öllum bænum?
Vetrarhjálpin.
Skátar heimsækja mið- og vest-
urbæinga. — Eins og aS undan-
förnu hafa skátar með höndum
fjársöfnun fyrir Vetrarhjálpina.
Hún hófst svo sem kunnugt er
meö merkjasölu I. des. og nú í
kvöld ætla skátar að knýja á dyr
hjá öllum mið- og vesturbæingum
og leita hverskonar gjaíastyrks
hjá þeim handa Vetrarhjálpinni.
Skátar eru vinsælir hjá bæjarbú-
um og starfa hér að mannúðar-
málefni, enda sýndu móttökurnar
það í fyrra, og er þess að vænta,
að ekki veröi síður rausnarleg út-
látin í ár. Þörfin fyrir fatnað er
jafnan mest aðkallandi, maginn er
hjá flestum látinn sitja í fyrirrúmi
og tölurnar sýna, að þörfin fer æ
vaxandi með hverju árinu. Til
dæmis má nefna, að s.l. ár var af
fatnaði úthlutað 7149 flíkum alls
fyrir kr. 32148.10, en 1936 5450
stk. fyrir alls kr. 21.000.00. Tala
þeirra fjölskyldna er fatnaðar-
gjafa nutu að meira eða minna
leyti s.l. starfsár nam 470 og með-
limatalan 1982, þar af 1103 börn.
Auk þess nutu fatnaðargjafa 231
einstaklingar, mest einstæð gamal-
menni. Allar þessar tölur eru hlut-
fallslega hærri en árin áður og
sést af þessu ljóslega hversu
þörfin er brýn og mikil nauðsyn
þess að heita nú sem mest á hina
alþektu hjálpíýsi og góðgirni
bæjarbúa. Hverskonar gjöfum,
fatnaði, matvælum, peningum etc.
verður þakksamlega veitt mót-
taka. Annað kvöld, 8. þ. m., fara
skátarnir í söfnunarferð um Aust-
urbæinn. Heiðruðu bæjarbúar!
takið hvarvetna vinsamlega og
rausnarlega á móti skátunum.
Handavinnusýning.
Um þessar mundir eru sýndir
ýmsir handunnir munir og leik-
föng í sýningarglugga Vöruhúss-
ins, og er þetta alt unnið á barna-
heimilinu Sólheimum í Grímsnesi.
Vegfarendur ættu að gefa gaum
að því, sem þama er að sjá. Þetta
er alt unnið af börnunum sjálfum
og er því yfir því nokkuð annar
svipur en ýmsu öðru, sem algengt
er að hafa á boðstólum hér. Börn-
in njóta að vísu tilsagnar, en eigi
að síður er það aðdáanlegt, hversu
vel flest er af hendi leyst, sem
þarna er sýnt, enda er lögð rík á-
hersla á það í Sólheimum að glæða
smekk barna fyrir því, sem fag-
urt er, og yfirleitt er lögð mikil
áhersla á að glæða starfsáhuga
þeirra og vinnugleði. Meðali þeirra
muna, sem em til sýnis, eru brúð-
ur og brúðurúm, töskur, kerta-
stjakar, pentudúkar o. m. fl.
Er í ráði að selja þessa múni
á bazar innan skamms. Mun mega
gera ráð fyrir, að þeir seljist fljótt
og vel, því að margir munu vilja
styðja þá þörfu og góðu starfsemi,
sem hér er um að ræða. Munir frá
barnheimili munu og aldrei hafa
verið til sölu hér og ætti það ekki
að draga úr áhuga manna.
ísfisksölur.
Þessi skip seldu í gær: Brimir
í Grimsby 1432 vættir fyrir 1472
stpd. Ólafur. Bjarnason i Hull 892
vættir á 1013 stpd. N
Ný bryggja.
Þórarinn Kristjánsson hafnar-
stjóri er nýkominn iir utanför til
þess að athuga um efniskaup og
leita tilboða um að gera 130 metra
langa og 10 metra breiða bryggju
vestan við Ægisgarð, sem er f
framhaldi af Ægisgötu. Er ætlun
liafnarnefndar að láta gerá garð
úr Örfiriseyjargarði beint á móti
Ægisgarði og skilji garðarnir á
milíi vöruhafnarinnar og fiski-
hafnarinnar, sem yrði þá vestan
þeirra, og færi þar fram afgreiðsla
fiskiskipa. Yrði fyrgreind bryggja
vestan Ægisgarðs einkum notuð
sem viðgerðarbryggja í sambandi
við Dráttarbrautina. Dýpi við
bryggjuna verður 5 metrar um
fjöru. Byrjað verður á bryggjunni
í maímánuði næstkomandi og
verkinu lokið næsta sumar. (FÚ).
Frá utanför borgarstjóra.
Hann kvaðst hafa verið
ið því fylgjandi, að málið yrði
undirbúið í kyrþei, svo að
menn yrði ekki fyrir vonbrigð-
um, ef eitthvað út af bæri.
Hefði liann því ekki viljað gera
málið að umtalsefni, nema
framgangur þess væri trygður.
Um síðasta nýár, áður en nýi
borinn var tekinn í notkun, var
vatnsmagnið í borholunum á
Reykjum orðið um 150 1. á
sek., og kom þá til umræðu
milli borgarstjóra og bæjar-
verkfræðings hvort það myndi
borga sig, að virkja það magn.
Við rannsókn kom í ljós, að
það virtist gerlegt.
Átti borgarstjóri tal um mál-
ið við fjármálamenn í London,
sem á sínum tíma höfðu verið
fúsir á að útvega lán til Sogs-
virkjunarinnar, og spurðist
fyrir um hvernig þeir myndi
taka í það, að útvega fé til þessa
fyrirtækis. Tóku þeir þvi vel,
en settu það skilyrði, að trúnað-
armaður firmans athugaði mál-
ið frá rótum. (Sama skilyrði
var sett fyrir lánveitingu til
Sogsvirkjunarinnar).
Kom svo hingað verkfræðing-
ur einn, Richards að nafni, frá
firmanu Meik and Ilalcrow, ög
var hér í 14 daga við rannsókn-
ir. Sneri síðan heim aftur Og
gerði skýrslu um atbuganir sín-
ar. Var henni lokið í septemher-
byrjun. Þá skýrslu fékk borgar-
stjóri í utanför sinni í þeim
mánuði, en firmað, Power
Securities & Co, var fúst til áð
halda málinu áfram á grund-
velli hennar.
Þegar svo bæjarverkfræðing-
arnir, Helgi Sigurðsson fyrst
og fremst, höfðu lokið skýrslu
sinni í byrjun nóvember, kom
í ljós að skýrslurnar voru næst-
um alveg eins, sú enska h. u. b.
1.7% hærri í áætlunarkostnað-
inum.
I utanför sinni nú í nóvember
s. I. gengu svo borgarstjóri og
bæjarverkfræðingur frá lántök-
unni að mestu leyti hjá P. S.
& Go. fyrir 150 lítra hitaveitu.
Lánstilboðið nemur 215 þús.
stpd. með 4!/2% ársvöxtum og
er veitt til 35 ára. Er það af-
borgunarlaust 3 fyrstu árin, en
greiðist á 32 iiæstu árum (1941-
73). Hitaveitan er sjálf veð fyr-
ir láninu og síðan tekjur og
eignir bæjarins. Eitt skilyrði er
sett fyrir lánveitingunni, nefni-
lega að systurfirma P. S. & Co.,
Balfour, Beattie & Co., liafi um-
sjón með efniskaupum á Eng-
landi og fái 5% í umboðslaun,
en verkfræðingafirmað Meik &
Halcrow, sem er trúnaðarmað-
ur heggja, hefir yfirumsjón
með verkinu, gegn 3% þóknun.
Á meðan þessu fór fram í
London varð þar truflun á
kauphöllinni, sem stafaði af
erfiðleikum í Ameríku. Var því
frestað að ákveða söluverð á
skuldabréfunum, þangað til séð
yrði hvað úr verðfallinu yrði,
en það virðist þó ætla að lagast
fljótlega fyrir aðgerðir stjórn-
arvaldanna. Á borgarstjóri von
á skeyti þessa daga, um það
hvert verðið verði.
Útborgun lánsins verður að
lílcindum skift í þrent, eftir
KARL PRINS OG
LAFÐI ANNE.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Samkvæmt Lundúna-
blaðinu Daily Sketch
var haldin leynileg
’áðstefna í gær milli Lepolds
konungs, hertogahjónanna af
Portland, markgreifans af
Titchfield og tveggja dætra
hans, Anne og Margaret Ca-
vendish Bentinck. Býst blað-
ið við að þar hafi verið tekin
mikilvæg ákvörðun umfram-
tíðarfyrirætlanir lafði Anne,
og verði birt tilkynning um
það við fyrsta tækifæri. Eng-
inn veit með vissu hvar Karl
prins býr meðan hann dvelur
í London.
United Press.
þörfum, en sú fyrsta, 40—50%,
af allri upphæðinni fer fram
þegar eftir nýár. Verður það fé
sett í banka hér og fást þá hærri
vextir en erlendis. í lánsupp-
hæðinni er innifalinn sá kostn-
aður, sem þegar er á orðinn,
fyrir hitaréttindi og boranir, h.
u. b. 300 þús. kr.
Lánið á að borgast með jöfn-
um afborgunum tvisvar á ári,
1. apríl og 1. okt., og greiðast
árlega 6% af allri upphæðinni.
Ráðgert er að framkvæmdir
hefjist þegar í vor, í mars eða
apríl, og verður verkinu hrað-
að svo, að alt verði tilbúið og
hægt að selja vatnið á hausti
komanda. Byrjað verður á
þrem stöðum: Á geymunum á
Öskjuhlíð, á aðalleiðslunum og
á Reylcjum. Veita þessar fram-
kvæmdir mikla og góða at-
vinnu.
Það eru góð tiðindi og gleði-
leg, að mál þetta skuli nú hafa
ráðist svo ákjósanlega, sem
raun ber vitni.
Sjálfstæðismenn ' hrundu
Sogsvirkjuninni í framkvæmd,
gégn andstöðu núverandi stjórn-
arflokka, sem kunnugt er. En
því stórvirki er naumast lokið,
er ráðist verður í annað þrek-
virki eklci minna, þ. e. liitaveit-
una. Foringjar socialista hafa
barist sem ljón gegn því mikla
nauðsynjamáli og menningar-
máli og framsóknarmenn tekið
drjúgan þátt í þeirri baráttu.
En sjálfstæðismenn hafa látið
óp þeirra og hróp sem vind um
eyru þjóta, og unnið ótrauðir að
undirbúningi málsins. Og nú
er að því komið, að verkinu
verði lirundið í framkvæmd. —
Það er eftirtektarvert og
mjög til íhugunar fallið, að
samtímis því, sem ríkið — und-
ir stjórn rauðliða — fær hvergi
eyrisvirði að láni erlendis, virð-
ist Reykjavíkurbær, undir
stjórn sjálfstæðismanna, eiga
greiða leið að miljónalánum. —
Þetta ætti kjósendur stjórn-
arflokkanha að íhuga í ró og
næði.
^ ^jAin^ötúP
aðeinfl Loftnp.
Daoíel Daoíelsson
dyravörður í stjórnarráðinu,
andaðist í gærkveldi, eftir
slutla legu í lungnabólgu.
Hans verður síðar minst liér
í blaðinu.
Alþingi.
Sameinað þing. Þar var í gær á
dagskrá frv. til fjárl. fyrir næsta
ár, framh. 1. umr. Umræður urðu
engar og fór frv. til annarar um-
ræðu. Jafnframt var tilkynt, aö
hún mundi fara fram á miðviku-
dag (eldhúsumræður). •— Jakob<
Möller var kjörinn fyrsti varafor-
seti sameinaðs Alþingis, í sta'S
Magnúsar heitins Guðmundssonar.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 2 st., mest í gær 3,
minst í nótt o st. Yfirlit: Lægð um
Bretlandseyjar, en háþrýstisvæði
um Grænland og ísland. Horfur:
Norðaustan kaldi. Léttskýjað.
Skipafregnir.
Gullfoss fer frá Kaupmanna-
höfn í kveld. Goðafoss fer frá
Hull í dag. Brúarfoss fer vestur
og norður á miðnætti í nótt. Sel-
foss kemur til Rotterdam í kveld.
Bæjarhúar!
Munið Vetrarhjálpina. — Sími
4546.
Varðarfélagið.
Foringjaráðsfundur verður
haldinn á miðvikudagskvöld kl.
8j4- Áríðandi að allir foringjarnir
mæti.
Guido Ciardi
frá S.A.P.R.I.-firmanu í Róma-
borg dvelst hér til miðs desember
á vegum firma síns, sem framleið-
ir snurpinætur og reknet. Herra
Ciardi mun verða til viðtals dag-
lega í Heildverslun Ásgeirs Sig-
urðssonar,
Leiðrétting.
Sú leiða villa slæddist inn í frá-
sögn um málverkasýningu Krist-
ins Péturssonar nýlega, að hún
væri þar sem Húsgagnaverslun
Reykjavíkur hefði áður verið, en
átti að vera Húsgagnaverslunin
við dómkirkjuna. Húsgagnaversl-
un Reykjavíkur er, eins og hún
hefir altaf verið, á Vatnsstíg 3.
Skátar! Emir og Væringjar!
Mætið allir í Varðarhúsinu kl.
8 í kvöld. Verið vel klæddir.
Vetrarhjálpin.
U. M. F. Velvakandi
heldur útbreiðslufund fyrir
starfsemi sína í Kaupþingssalnum
í kvöld kl. 9. Dagskrá verður fjöl-
breytt, upplestur, söngur og ræðu-
höld. Gera má ráð fyrir fjölmenni
á fundinum, þar sem hér í bæn-
um er fjöldi af unginennafélögum
utan af landi, og mörgum öðrum,
sem áhuga hafa á þessum málum.
öllum er heimill aðgangur að
fundinum meðan húsrúm leyfir.
Sjálfstæðisfélag önfirðinga.
Að tilhlutun Gunnars Thorodd-
sen lögfræðings, var á Flateyri
stofnað Sjálfstæðisfélag Önfirð-
inga síðastliðinn sunnudag. Stofn-
endur félagsins voru 81 að tölu.
Formaður var kosinn Ragnar Ja-
kobsson og meðstjórnendur Sturla
Ebenesarson, Ragnar Thoraren-
sen, María Jóhannsdóttir og Guðni
Ásgeirsson. (iFÚ).
Útvarpið í kvöld.
18,45 Þýskukensla. 19,10 Veður-
fregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,50-
Fréttir. 20,15 Erindi: Líknarstarf-
semi fyrir heyrnardaufa menn
(Stgr. Arason kennari). 20,40-
Hljómplötur: Létt lög. 20,45 Hús-
mæðratími: Mismunandi uppeldi
drengsins og stúlkunnar, II (frú
Aðalbjörg Sigurðardóttir). 21,00
Symfóníu-tónleikar: a) Symfónía
nr. 4, eftir Tschaikowsky (plöt-
ur). 22,15 Dagskrárlok.
Ræturlæknir:
Karl Sig. Jónasson, Sóleyjarg.
13, síhii 3925. Næturvörður í
Laugavegs og Ingólfs apótekum.
Málverkasýning
Kristins Pétursson semasti
sýningardagur er í dag.