Vísir - 08.01.1938, Page 2
VlSIR
VtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa I
f Austurstræti 12.
og afgreiðsla !
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Sigur
konunúnista.
O AMFYLKING socialista og
^ kommúnista í bæjarsjórn-
arkosningunum hér i Reykjavik
er nú fullráðin. Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna eða meiri
liluti þess, hefir tekið ráðin af
meirihluta Alþýðusamands-
stjórnarinnar og samþykt hana.
þó að með litlum atkvæðamun
sé. Og þannig hefir stjórn Al-
þýðusambandsins í rauninni
verið svift völdunum í Alþýðu-
flokknum og þau fengin
kommúnistum í hendur.
Héðinn Valdimarsson hefir
með þessu runnið á enda skeið
sitt sem ginningarfífl kommún-
ista. Uppliaflega ætlaði hann
sér að koma þvi til leiðar, að
Alþýðuflokkurinn og Kommún-
istaflokkurinn sameinuðust í
einn flokk. En á þrettánda þingi
Alþýðusambandsins haustið
1936, hafði samfylkingartilboð-
um kommúnista verið „hafnað
í eitt skifti fyrir öll“ og enn á
ný á aukaþinginu s.l. haust, var
allt slíkt samneyti við komm-
únista bannað. Hinsvegar hafði
kommúnistum á fyrra þinginu
verið gerður kostur á þvi, að
„ganga í“ Alþýðuflokkinn og á
þvi síðara að „sameinast“ hon-
um, eins og H. V. gerði tillögu
um á Dagsbrúnarfundinum 15.
júlí í sumar. En kommúnistar
höfðu aldrei viljað annað en
„samfylkingu“, og að lokum
tókst þeim að koma þeim vilja
sinum fram. Sigurinn í þessari
deilu, er sigur kommúnista, en
ekki Héðins Valdimarssonar.
Hlutverk Héðins hefir ekki ver-
ið annað en hlutverk asnans,
sem lætur teyma sig á eyrun-
um. En það lilutverk mun hann
eiga eftir að leika enn um
stund, við síminkandi orðstír,
meðan kommúnistar geta haft
hans einhver not.
Og það er svo að sjá, sem
hinir sigruðu muni ætla að
velja þann koslinn að sætta sig
við allt“. Meiri hluti Alþýðu-
sambandsstjórnarinnar, sem
opinberlega hefir lýst sig alger-
lega andvígan „samfylking-
unni“, og í hjarta sínu hefir
verið jafnandvígur sameining-
unni, virðist vera ráðinn i þvi
að halda nú ótrauður áfram á
„braut ósigranna“, eins og
kommúnistar hafa orðað það í
öðru sambandi. Þessi meiri
hluti stjórnar Alþýðusamands-
ins, og jafnframt Alþýðuflokks-
ins, sem nú hefir i raun og
veru látið svifta sig völdunum
í flokknum, með samfylking-
ar-samþykt fulltrúaráðsins,
hefði, að kunnugra manna
dómi, ekki þurft að þola þá nið-
urlægingu. Mennimir, sem
þennan meirihluta skipa þurftu
að minsta kosti ekki að una því,
að ósigur þeirra væri undir-
strikaður með þvi að nöfn
þeirra væri selt á samfylking-
arlistann. Og, ef þeir hefðu eng-
an kost gert á því, að verða á
lista með kommúnistum, þá má
fullyrða, að samfylkingarlist-
inn hefði aldrei orðið til. En
með þvi að leyfa það, að nöfn
þeirra yrðu sett á listann, hafa
þeir gerst sínir eigin böðlar, og
gert ósigur sinn enn meiri en
liann hefði þurft að vera, jafn-
vel þó að samfylkingin hefði
náð fram að ganga eigi að
síður.
Menn þykjast nú vita það, að
ekki muni „sátt og samlyndi“
allskostar ríkjandi innan sam-
fylkingarinnar, svo sem allt er
í pottinn búið, og kosninga-
horfurnar ekld sem sigurvæn-
legastar fyrir hana. Hafa menn
það fyrir satt, að á fundum
fulltrúaráðsins undanfama
daga, liafi fallið mörg „óþveg-
in“ orð og hnútur flogið þar
um borð, sem nokkrum eymsl-
um hafi valdið þeim, er fyrir
þeim urðu. Þykir þvi nokkur
hætta á því, að kosningaáliugi
Alþýðufloklísmanna verði með
minna móti i þessum kosning-
um, og talsverð vanhöld á at-
lcvæðum þeirra. En þó að svo
kynni að fara, að þau skiluðu
sér ekki öll í samfylkingardilk-
inn i kosningaréttunum, þá
stendur framsóknardilkurinn
þeim þá altaf opinn, og engin
hætta á að liann offyllist i
fyrstu göngum. Og Framsókn-
arflokkurinn virðist vera sér
þess vel meðvitandi, að honum
beri að annast um þann óskila-
fénað, sem erfiðast verði að
draga i sameiginlegan dilk so-
cialista og kommúnista i þess-
um kosningum, bæði í Reykja-
vik og annarsstaðar, þar sem
samfylking hefir verið ákveðin.
I því skyni hefir flokkurinn
vafalaust ákveðið að bjóða
fram til bæjarstjórnar i Vest-
mannaeyjum að þessu sinni, þó
að hann liafi aldrei gert það
áður. Og er þannig við öllu séð
í þessu efni, og ráðstafanir
gerðar til þess að þessi ráða-
breytni socialista og komm-
únista megi takast sem best.
Er þess þá líka að vænta, að
samfylkingin nái áður en langt
líður til allra „rauðu flokk-
anna“, og sigur kommúnista
eigi það fyrir sér að verða enn
meiri en þegar verður séð fyrir.
Símaklukkan.
Símanúmer símaklukku Bæjar-
síma Reykjavíkur breyttist um
jjaS leyti, sem nýja símaskráin
kom út úr 03 í 04. — Allmargir
hafa ekki áttaö sig á breyting-
unni og valiö fram aS þessu hiö.
eldra númer, og þá ekki fengiö
svar utan venjulegs vinnutíma.
Ástæ'öan fyrir breytingunni var
sú, aS númer símaklukkunnar lá
fast viö upphringingarnúm'er
Landsímans, og völdu um 10 af
hundraði landsímanúmeriö í staö
númers klukkulinar. Meö breyt-
ingunni, sem stækkar biliö á milli
þessara númera er áætlaö að þess-
um röngu upphringingum fækki
niöur á 3—5 af hundraði. — Hið
nýja númer símaklukkunnar 04,
er prentað á forsíöu símaskrár-
innar.
Skipafregnir.
Gullfoss fór frá Leith í gær.
Goðafoss er í Kaupmannahöfn.
Brúarfoss fer frá Kaupmannahöfn
1 dag. Dettifoss fer frá Hull í dag.
Lagarfoss er í Kaupmannahöfn.
Selfoss í Reykjavík. Lyra fór frá
Bergen í gær áleiðis hingað.
Drotningin er væntanleg hingað á
morgun.
Áheit
á Strandarkirkju, afhent Vísi:
2 kr. frá ónefndum, 1 kr. frá
stúlku.
Bretar, Bandarlkjamenn og Frtkkar
sameinast gegn yfirgangi Japana i
Shanghai.
Nýip ápekstrap i alþjóðahverflnii.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Breska stjórnin lítur mjög alvarlegum augum á það,
að japanskir hermenn réðust í gær á breska lögreglu-
hermenn í Shanghai og börðu þá. Daily Mail skýrir
frá því, að breska stjórnin muni að líkindum krefjast
þess af Japönum, að þeir biðjist afsökunar og greiði
bresku lögregluhermönnunum skaðabætur.
Daily Herald boðar, að Chamberlain muni kalla sam-
an ráðuneytisfund í næstu viku til þess að taka ákvarð-
anir um hverjar kröfur skuli bera fram á hendur Jap-
önum í þessu máli.
Af því er United Press hefir fregnað fara nú fram
viðræður milli ríkisstjórnar Bretlands, Frakklands og
Bandaríkjanna, um samtök gegn ágengni Japana og
uppivöðslu í Shanghai. Er búist við, að milli þessara
þriggja velda takist náin samvinna gegn Japönum, um
verndun réttinda þeirra í Kína.
(United Press).
Um þennan atburð segir svo
f F. Ú.-tregn.
Lodon, 7. janúar. — FÚ.
1 Slianghai bar þaö við í dag, að tveir breskir lögreglulíer-
menn voru barðir af japönskum hermönnum. Hefir atburður
þessi vakið stórkostlega gremju meðal Breta í Shanghai. Sjálf-
ur yfirforingi breska liðsins, Smollet, fór iá fund hermálaráðu-
nauts japönsku sljórnarinnar þar í borginni og tillcynti lionum,
að ef slíkir atburðir endurtækju sig oftar, en þetta er í annað
sinn sem slíkt hefir skeð, þá mundi það liafa hinar alvarlegustu
afleiðingar sem hugsast gæti fyrir sambúð þessara tveggja ríkja.
Hinir bresku lögregluhermenn voru inn á bresku varnarsvæði,
þegar þeir voi’u barðir og var orsökin til árekstursins sú að þeir
höfðu fundið að því við japanska hermenn, hvernig þeir léku
Kinverja sem þeir voru að handtaka.
Breska stjórnin hefir nú fengið nákvæma skýrslu um kröfur
Japana i sambandi við stjórn Shanghaiborgar. Krefjast Japanir
þess að fá fleiri fulltrúa og meiri ililutun um stjórn borgarinnar.
í London er litið svo á, að stjórn borgarinnar sé skipuð á full-
komlega löglegan hátt, en um hana gildir sanmingur frá 1869,
er Bretland, Bandaríkin, Þýskaland og Japan undirrita ásamt
stjórn Kína, og er þar nákvæmlega tiltekið hverja íhlutun stjórn-
ir hinna útlendu ríkja skuli liafa um stjórn borgarinnar.
Breska stjórnin liefir nú ákveðið að ráðfæra sig við stjórn
Bandaríkjanna um það, hvernig snúast eigi við þessum kröf-
um og er talið vafalaust að þær muni gera samhljóða ráðstaf-
anir, eins og þær liafa gert í öllu er viðkemur styrjöldinni í
Kína.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London i morgun.
Æsingar eru miklar í Sliang-
hai — meiri en nokkuru sinni
— og liorfir svo, að til bardaga
komi milli Japana og hersveita
stórveldanna þá og þegar. Jap-
anskir og frakkneskir hermenn
standa reiðubúnir með vélbyss-
ur sinar á mörkum frakkneska
forréttindasvæðisins. Óltast
menn, að hið minsta æsinga-
atvik geti leitt til þess, að alt
fari í bál. Orsölc æsinganna
þarna er sú, að japanskir lier-
menn höfðu ráðist á kínverska
konu, en rússneskur maður í
sjálfboðaliði forréttindasvæðis-
ins, kom henni til hjálpar. Jap-
önsku hermennirnir börðu
Rússann niður og ætluðu að
draga hann með sér yfir
merkjalínu forréttindasvæðis-
ins, en þá bar aðra sjálfboða að
og komu þeir Rússanum til að-
stoðar. Frakkar sendu þá lier-
menn á vettvang og gengu þeir
á milli og komu í veg fyrir, að
meira ilt hlytist af í bili, en
æsingarnar eru miklar og horf-
urnar slæmar.
Þrír menn teknir af lífi í Þýskalandi fyrir
landráð.
London, 7. janúar. — FÚ.
í dag er tilkynt í Berlín að 3 menn hafi verið líflátnir fyrir
landráð. Einn var handtekinn i nánd við pólsku landamærin
og var honum gefið að sök að hafa látið öðru ríki í té liernað-
arleg leyndarmál. Var hann dæmdur til dauða fyrir borgara-
legum rétti. Hinir tveir voru dæmdir til dauða af lierrétti.
Þá er dómur fallinn í máli Arnold Bernstein forstjóra gufu-
skipafélagsins „Red Star“ í Hamborg og var honum gefið að
sök að liafa farið í kring um gjaldeyrislögin. Hann var dæmd-
ur í 30 miánaða þrælkunarvinnu og 80 þúsund sterlingspunda
sekt.
Mál var einnig höfðað gegn þremur öðrum forstjórum fé-
lagsins og voru þeir dærndir í háar sektir og fangelsi.
1500—2000 UPPREISTAR-
MENN GEFAST UPP
I TERUEL.
Einkaskeyti til Vísis.
London í morgun.
Símfregnir frá Madrid
herma, að síðasta vörn
uppreistarmanna í
Teruel, sé nú brotin á bak
aftur og borgin að öllu leyti
í höndum stjórnarinnar. —
Lauk vörninni í gærkveldi kl.
9, þegar Rey Darcourt, undir-
ofursti, gafst upp með um
1500—2000 af liðsmönnum
sínum.
United Press.
ítaUr áforma stórkost-
lega flotaankningu.
London, 7. jan. — FÚ.
Italska stjórnin tilkynnir í
dag, að liún hafi i hyggju að
láta smíða 2 stór orustuskip, 35
þúsund smálestir livort. Auk
þess 12 stóra tundurspilla og
allmarga kafbáta og er hér sam-
tals um stórkostlega flotaaukn-
ingu að ræða. Segir Lundúnaút-
varpið í þessu sambandi að síð-
an 1934 liafi Mússólini látlaust
verið að kenna ítölsku þjóðinni
að flotastyrk livers ríkis ætti
undantekningarlaust að miða
við hvað mikið það hefði á tak-
teinum af orustuskipum. Þegar
hinir nýju kafbátar liafa verið
smíðaðir, en tala þeirra er eklci
látin uppi, má gera ráð fyrir að
kafbátafloti ítala sé orðinn hinn
stærsti í heimi.
Þá hefir ítalska stjórnin enn-
fremur ákveðið að þegar Hitler
fer til Ítalíu í mai í vor til að
endurgjalda heimsókn Mússó-
líni frá þvi i haust, fari fram
stórkostlegar hersýningar og
flotaæfingar.
ÖLLUM BÆJAR OG SVEITAR-
STJÓRNUM I RÚMENlU
YIKII) FRÁ.
Rúmenska stjórnin liefir sett
af allar borgarstjórnir og sveit-
arstjórnir í landinu og skipað
bráðahirgðarstj órnir hliðliollar
ríkisstjórninni. Síðan eiga kosn-
ingar að fara fram, en cnnþá er
ekkert tilkynnt um, hvenær það
muni verða. — FÚ.
ifli sinn.
Lögreglan liefir nú upplýst
þjófnaðinn á Bergstaðasræti 8»
sem sagt var frá í Vísi í gær.
Peningana, 3500 kr., áttu þeir
Kristvin Guðbrandsson og Jón
Guðlaugsson, fisksali, og var
hinn fyrnefndi valdur að þjófn-
aðinum.
Stal hann peningunum í
fyrramorgun, er liann var á leið
íil vinnu sinnar. Tólc hann sína
peninga einnig, til þess að ekki
skyldi grunsemdir falla á hann.
Faldi hann síðan peningana í
Flosaporti við Klapparstíg á
milli togaralilera og visaði á þá,
er hann játaði brot sitt í gær.
Lögreglan fann þó ekki 300 kr.
af uppliæðinni. Hafði spýtna-
brak verið tekið þarna í port-
inu til álfadansins og brenn-
unnar, sem haldin verður á
morgun.
Rnmenar þnrta
hreskt tjármagn.
London, 7. jan. — FÚ.
Nefnd breskra kaupsýslu-
manna er nú á ferð í Rúmeníu
og tók Goga forsætisráðherra
á móti henni í dag. Hann sagði,
að stjórninni væri mjög umhug-
að um það, að samvinna við
Bretland og viðskifti við það
væru jafnan hin bestu, og sér-
staklega riði Rúmeníu á að
hafa nána samvinnu við hið
breska fjármagn. Olíufram-
leiðslu Rúmeníu hefði t. d.
hrakað á undanförnum árum
og það mundi verða mjög vel
séð, ef breskt fjármagn fengist
til þess að lileypa nýju fjöri í
olíuvinsluna.
JÓN GUNNARSSON
RÁÐINN FRAMKVÆMDAR-
STJÓRI SÍLDARVERK-
SMIÐJA RÍKISINS.
Á fundi í stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins í morgun var
Jón Gunnarsson verkfræðingur
ráðinn framkvæmdarstjóri
verksmiðjanna til næstu þriggja
ára.
Ráðning hans var samþykt
með atkvæðum sjálfstæðis-
manna og framsóknarmanna, 4
atkv., gegn 1, Finns Jónssonar.
ÚR SANDGERÐI
fóru 3 bátar á sjó í dag í fyrsta
róður á vertiðinni og öfluðu 10
til 12 skippund á bát. Telst það
ágætur afli á þessum tíma árs.
Þessi mynd er úr söngleiknum „Liljur vallarins“, sem Leilc-
félagið sýnir um þessar mundir, og sýnir lciksviðið í 1. jiælti.
Allur leiksviðsútbúnaður og búningar er mjög skrautlegur og
aðlaðandi og söngvarnir mjög skemtilegir. — Um meðferð
leikenda á lilutverkum hefir áður verið getið hér í blaðinu. —
Næsta sýning verður á morgun (sunnudag). —