Vísir - 10.01.1938, Blaðsíða 2
vísrK
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Páll Steingrímsson.
Skrifstofa i , „
} Austurstræti 12.
og afgreiðsla I
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Útrýming.
grein, sem birtist í Alþýðu-
blaðinu daginn eftir að
fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
ákvað að leita samkomulags
við kommúnista, um sameigin-
legan lista í bæjarstjórnarkosn-
ingunum, er sagt frá því, að
aðalritari alþýðusambands
kommúnista hafi nýlega látið
svo um mælt, i ávarpi til
franska kommúnistaflokksins,
„að leiðtogar socialistaflokk-
anna standi í þjónustu auð-
valdsins“ og að Stalin hafi haft
á réttu að standa, þegar hann
hafi sagt, „að það væri ómögu-
legt að útrýma auðvaldinu án
þess að útrýma fyrst jafnaðar-
stefnunni í verkalýðshreyfing-
unni.“
Daginn eftir að „samfylking1'
Alþýðuflokksins og Iiommún-
istaflokksins í bæjarstjórnar-
kosningunum var ákveðin, og
samkomulag fengið um bæjar-
fulltrúaefni flokkanna, lét
blað kommúnista svo um mælt
í forustugrein sinni, að með
þeirri samfylkingu væri „stígið
veigamesta skrefið í átt fram-
tíðarstarfsins, unninn einn af
þýðingarmestu sigrum í alhliða
baráttu verkalýðsins.“
Markmið „framtíðarsíarfs-
ins“ er samkvæmt ummælum
Stalins og aðalritara alþjóða-
sambands kommúnista, að „út-
rýma auðvaldinu“, en það er
„ómögulegt án þess fyrst að út-
rýma jafnaðarstefnunni í verka-
lýðshreyfingunni“. Og einmitt
þess vegna er „samfylkingin“
„veigamesta skrefið“ og „einn
af þýðingarmestu sigrum i
verkalýðsbaráttunni, að henni
er ætlað að „útrýma jafnaðar-
stefnunni í verkalýðshreyfing-
unni“.
í forystugrein þeirri í blaði
kommúnista, frá 8. þ. m. sem
að framan er getið er að sjálf-
sögðu lögð meiri áhersla á það,
að samfylkingin sé „fyrst og
fremst sókn og vörn gegn
íhaldinu“. Enda segir blaðið, að
alþýðan skilji það, að féndur
hennar séu ekki fyrst og fremst
í hópi alþýðunnar. Hinsvegar
er blaðið svo sem ekki í nokk-
urum vafa um það, að alþýð-
unni sé það full-ljóst, að hún
eigi einnig féndur í sinum liópi,
og þeir féndur hennar eru vit-
anlega „leiðtogar socialista“, eða
forvígismenn jafnaðarstefn-
unnar, sem Stalin segir að óhjá-
kvæmilegt sé „að útrýma fyrst“,
óður en röðin komi að auðvald-
inu!
Alt þetta hefir mönnum lengi
verið Ijóst. Hinir gömlu „leið-
togar socialista“, eða Alþýðu-
flokksins, hafa ekki gengið þess
duldir, að markmiðið með sam-
fylkingarbaráttu kommúnista
væri það, að „útrýma jafnaðar-
stefnunni í verkalýðslireyfing-
unni“, og þeim er það ljóst, að
sá „grundvöllur að sameiningu
verkalýðsflokkanna í framtið-
inni“, sem kommúnistar ætla
að skapa með „samfylking-
unni“ er kommúnisminn. Og að
sjálfsögðu er leiðtogum konnn-
únista það ekki síður ljóst, að
„samfylkingin“ er ekki fyrst og
fremst „sókn og vörn gegn
ihaldinu“, heldur liljóti hún ein-
mitt að tryggja sigur „íhalds-
ins“ í svipinn.
Hinir gömlu leiðtogar soci-
alista hafa orðið undir í sam-
fylkingarbaráttunni. Allir fylg-
ismenn þeirra, sem nokkurn
greinarmun kunna að gera á
„jafnaðarstefnunni“ og komm-
únismanum, skoða ósigur þeirra
í þessari baráttu sem sinn ósig-
ur. Það er þvi mjög fjarri sanni,
að samfylkingin hafi vakið
nokkurn þann „eldmóð“ i
brjósti þess hluta Alþýðu-
flokksins, eins og blað komm-
únista talar um. Og eins og for-
maður Alþýðuflokksins hefir
látið strika nafn sitt út af sam-
fylkingarlistanum, eins munu
þeir flokksmenn hans, sem
mest traust hafa til hans borið,
af öllum leiðtogum flokksins,
margir hugsa sig tvisvar um,
áður en þeir greiða listanum at-
Icvæði.
1 blaði kommúnista er gert
ráð fyrir því, að „með sameig-
inlegum lista fari ekkert at-
kvæði forgörðum. hjá verka-
lýðsflokkunum“. Og svo mundi
það líka reynast, ef flokkurinn
væri einhuga um listann og um
samvinnuna. En af þvi að svo
er ekki, er hætt við því, að van-
höldin verði mikil. En það er
lika algert aukaatriði í augum
kommúnista. Þeir vita að engin
von er um sigur þeim til lianda
í kosningunum. Sá sigur, sem
þeir keppa að, er „útrýming
jafnaðarstefnunnar í verkalýðs-
hreyfingunni“, útrýming liinna
gömlu leiðtoga socialista, og
þann sigur þykjast þeir nú þeg-
ar hafa unnið að hálfu leyti.
Italir fá ekki aS kafa
toiarastöi í Þírshflfa.
Fréttaritari útvarpsins í Kaup-
mannahöfn telur sig hafa orðið
þess vísari í dag, að danska
stjórnin hafi endanlega neitað
að gefa samþykki sitt til þess,
að ítalski fiskikaupmaðurinn
Gismondi fengi leyfi til þess að
að setja upp bækistöð fyrir
ítalska togara í Þórshöfn í Fær-
•cyjum. FÚ.
Kalundborg 9. jan. FÚ.
Eins og áður hefir verið frá
skýrt, hefir danska stjórnin nú
neitað að gefa samþykki sitt til
að Italir fengju bækistöð fyrir
fimm togara í Þórshöfn. Jafn-
framt hefir það orðið að sam-
komulagi milli rikisstjórnarinn-
ar og fulltrúa Færeyinga, að
lögþingið og ríkisstjórnin setj-
ist á rökstóla til þess að finna
færar leiðir til að bæta Færey-
ingum það atvinnutjón, er þeir
telja sig hafa beðið við þessa
ráðstöfun stjórnarinnar. Hefir
stjórnin þegar undirbúið ýmsar
tillögur í þessu efni, sem meðal
annars miða að því, að veita
Færeyingum aukinn styrk til
fiskniðursuðu, veita aukið f jár-
magn til kolavinslu á Færeyj-
um, hjálpa með lánum og styrk-
veitingum til þess áð auka
skipastólinn og gera hann ný-
tískari, og auk þess veita fé til
þess að hlynna að landbúnað-
Rúmenski stj óphíh ep
ekki eix&pæOisstjóPD,
segir Kapl konungui*. „Verdi ég óánægðup
með gerdip hennap kpefst ég breytingap44
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Daily Herald birtir í morgun viðtal við Karl Rúm-
enakonung, og er viðtalið vegna stjórnar-
skiftanna þar |í landi. Karl segir m. a. við
blaðið:
Stefna stjórnarinnar hef-
ir engin áhrif á bandalag
Rúmeníu eða stefnu i utan-
ríkismálum. Hver einasta
af ríkisstjórnum mínum
verður að hafa samþykki
mitt. Sama dag sem eg verð
óánægður með stjórn þeirra
JAPANIR TÓKU
TSINGTAO.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
LONDON 1 MORGUN.
Frá Tokio er símað, sam-
kvæmt fregnum frá Tsien-
tsin, að japanskir sjóliðar
hafi verið settir á land í
Tsingtao í gær. SIó þegar í
bardaga milli þeirra og kín-
verskra hersveita, en Kínverj-
ar hörfuðu undan áður en
langt um leið. Japanir fást nú
við að leita uppi leyniskyttur
og hermenn, er hafa falist í
húsum borgarinnar.
United Press.
Di tleno bakkar
hetjunum í Teruel, sem
vörðust, þar til þeir voru
að verða hungurmorða. —
London 10. jan. FÚ.
I útvarpi frá Sevilla réðist de
Llano með mikilli heift á upp-
reistarforingjann i Teruel, sem
gafst upp ásamt liði sinu á laug-
ardaginn. Hann nefndi hann
„þrjótinn, sem gafst upp án
þess að ráðfæra sig við yfirboð-
ara sína“.
Samkvæmt heimildum spönsku
stjómarinnar hafa flestir særðir
hermenn meðal uppreistar-
manna, sem gáfust upp í Tem-
el, verið sendir í sjúkrahús í
V'alencia. Stjórnin hefir gefið
fyrirskipanir um að fylstu
mannúðar skuli gætt i meðferð
fanganná.
NÝ MÁLAMIÐLUN ÁRANGURSLAUS.
Enn þá liafa menn það fyrir satt, að sendiherrar Þjóðverja
í Tokíó og í Kina séu að reyna að koma á vopnahléi, og vissa
er fyrir því, að þýsku stjórninni er það mikið áhugamál að
endir verði bundinn á styrjöldina í Kína. Þessar málaleitanir
virðast þó ekki bera neinn verulegan árangur, því að í dag
lýsir sendilierra Japana í Iíína opinberlega yfir því, að engin
von sé um frið af liendi Japana meðan stjórn Chiang Kai Sheks
situr að völdum og sú stefna sé ríkjandi í landinu sem hann
hafi haldið fram. Japanir séu þegar búnir að setja fram lág-
markskröfur sínar, en þeim hafi ekki verið sint að neinu.
Stjórn sú er Japanir liafa selt á stofn í Peiping hefir skipað
sérstaka nefnd til þess að rannsaka fjármál og gjaldeyrismál
Norður-Kína með það fyrir augum að stofna nýjan gjaldmiðil
og gjaldeyrisfyrirkomulag er hvili að öllu leyti á hinu japanska
yen. — FÚ.
FJÁRHAGSÖNGÞVEITI YFIRVOFANDI í JAPAN.
Fjármálaráðherra japönsku stjórnarinnar hefir á ráðherra-
fundi leitt stjórninni fyrir sjónir, að styrjöldin í Kína hljóti að
hafa í för með sér stórkostleg útgjöld svo að ekki verði hjá því
komist, ef syrjöldin heldur áfram, að taka stór lán. 1 sambandi
við þetta varar ráðherrann stjórnina við því, að stórkostlegar
lántökur geti vel leitt til gengishruns, svo að Japan komi til að
standa í svipuðum sporum eins og Þýskaland eftir ófriðinn
mikla. —• FÚ.
FRANCO VIÐURKENNIR ENGAR VERÐBRÉFASÖLUR
SPÆNSKU STJÓRNARINNAR.
London, 8. jan. — FÚ.
Franco hersliöfðingi birtir opinberlega tilkynningu í dag,
þar sem hann viðurkennir ekki neinar verðbréfasölur spænsku
stjórnarinnar, útflutning hennar á verðbréfum og verðmætum,
né neitt annað er hún hafist að af slíku tagi og kveðst skoða
það lögleysu eina, með þvi að hún hafi ekkert vald til þess að
ráðstafa opinberu fé Spánverja.
á málefnum þjóðarinnar,
mun eg kref jast breytingar.
Þegar hann var spurðuí
um ráðstafanirnar gagn-
vart Gyðingunum, sagði
liann, að þær væri að eins
gegn þeim Gyðingum, sem
hafa komist inn i Rúmeníu
á ólöglegan hátt, frá Galisíu
í Póllandi eða Rússlandi, en
þeir eru í hæsta lagi 250
þúsund.
Karl sagði að þessir Gyðing-
ar hefði gert innrás í landið,
ekki komi til mála að vísa þeim
úr landi, en ómögulegt sé að
veita þeim stjórnmálaleg rétt-
indi. Bætti Iíarl því við, að eng-
ir þyrfti að óttast það í öðrum
löndum, að ekki yrði á allan
hátt komið vel fram við þessa
menn.
Karl neitaði því algerlega, að
hann hefði í hyggju að stofna
til einræðis í landinu, en hvað
framtíðinni við kemur, sagði
hann þetta: „Ákvörðun mín
mun fara eftir því, hvað eg álít
koma sér best fyrir hina rúm-
ensku þjóð.“ — United Press.
KONUNGLEGT BRÚÐKAUP.
Kalundborg 9. jan. FÚ.
í Aþenu hefir verið mikið um
dýrðir í dag. Páll krónprins á
Grikklandi gekk í dag að eiga
liejrtogainnuna af Brunschvig-
Liineburg. Voru þau gefin sam-
an eftir gríslc-kaþólskum hjú-
skaparformála með stórkost-
legri viðhöfn og aðstoðuðu 30
biskupar við hjónavígsluna. —
Fjöldi útlendra gesta voru við-
staddir, fulltrúar frá flestum
ríkisstjómum og konungsfjöl-
skyldum í Evrópu. Fyrir hönd
dönsku konungshjónanna
mættu Knútur prins og kona
hans, Karoline Matthilde prin-
sessa.
inum meira en undanfarið, m.
a. með auknum styrkveitingum
til fjárræktar. Stjórnin hefir og
fleiri tillögur og ráðagerðir í
fórum sínum, sem komið geta
til framkvæmda, ef forráða-
menn Færeyinga fallast á.
Bretar eg Banda-
ríkjamenn smiða
mðrg 46000 smá-
lesta herskip.
Fregnirnar frá Rómaborg um
að Mussolini hafi ákveðið að
auka herskipaflotannn um tvö
ný orustuskip, tvö önnur or-
ustuskip, 8 beitiskip og tugi
lundurspilla og kafbáta, vekja
alheimsathygli. Þegar þessi á-
form liafa verið framkvæmd,
hafa ítalir mesta kafbátaflota
heims, svo fremi, að önnur
stórveldi grípi eklci þegar í stað
til ráðstafana til þess að auka
kafbátaflota sína. En svo horfir
nú, vegna flotaaukningaáforma
ítala og Japana, að Bretar og
Bandaríkjamenn hefji þegar í
stað stórfelda aulcningu her-
skipaflota sinna. Ensku blöðin
skýra frá því, að Bretar og
Bandaríkjamenn ætli að smíða
mörg 46.000 smálesta beitiskip,
vegna flotaaukningaáforma
Japana. NRP—FB.
Forsætisráðherra Frakklands
hefir boðað fulltrúa verka-
manna og atvinnurekenda á
ráðstefnu í því markmiði, að
leysa deilumál þeirra og koma
á vinnnufriði í landinu. NRP—
FB.
aðeins Lofíur.
Un\mM i Kellis-
sandi.
Sandur 9. jan. FÚ.
I dag liófst verkfall hjá há-
setum á Helhssandi. — Hafa
undanfarið staðið þar yfír
samningaumleitanir milli full-
trúa liáseta og útgerðarmanna
um lilutaskifti á vertíðinni, en
ekki náðst samkomulag. Grein-
ir á um hálfan hlut. Nokkrir út-
gerðarmenn, sem standa fyrir
utan Útgerðarmannafélag Hell-
issands, hafa þegar gengið áð
kröfum háseta.
Skíiaftrilr nm belgina
Skíðafélag Reykjavíkur fór i
gærmorgun í skíðaför úpp &
Hellisheiði. Tóku þátt í förinni
um 120 manns. Sumir fóru 1
Innstadal, aðrir voru í Gíghól
og í Reykjarfelli, en aðalliópur-
inn var í brekkunni við Skiða-
skálann, enda var snjórinH
mestur þar. Annars var snjólít-
ið á Hellisheiði. Veður vár
ágætt allan daginn.austan kaldi,
nokkurra stiga frost og gott
skíðafæri. x
Framboð sjálfstædis-
manna út um land.,
Seyðisfirði, 9. jan. FÚ.
Á lista Sjálfstæðisflokksins
til bæjarstjómarkosninga á
Seyðisfirði eru 10 efstu menn:
Jón Jónsson, Firði, Halld. Jóná
son kaupmaður, Gísli Jónsson
verslunarmaður, Einar Bland-
on, Benedikt Jónasson forstjóri,
Benedikt Þórarinsson bankarit-
ari, Jónas Jónsson verslunar
stjóri, Kári Forberg símritari,
Jón Stefánsson kaupmaður og
Einar Hihnar lyfsveinn. Listinn
er skipaður 18 mönnum.
Vestmannaeyjm. FÚ
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
lagt fram lista sinn til bæjar-
stjórnarlcosningar í Vestmanná-
eyjum. Tíu efstu menn listans
eru: Ásæll Sveinsson útgerðar-
maður, Ástþór Matthíasson for-
stjóri, Guðlaugur Gíslason for-
stjóri, Haraldur Eiríksson raf-
virki, Ólafur Auðunsson út-
gerðarmaður, Þorsteinn Jóns-
son útgerðarmaður, Hinrik
Jónsson lögfræðingur, Tómas
Guðjónsson afgreiðslumaður,
Ólafur Jensson póstafgreiðslu-
maður og Eirikur Ásbjörnsson
útgerðarmaður.
KULDARNIR Á MEGINLANDI
ÁLFUNNAR.
FÓLK HELFRÝS
Á VÍÐAVANGI.
Kalundborg 9. jan. FÚ.
Daglega eru að berast fregn-
ir um fannfergi og illviðri,
og er frostgrimdin svo mikil,
að fólk finst helfrosið á víða-
vangi. í þorpi einu suður við
Svartahaf fundust 6 manns hel-
frosnir í morgun, á vegarbrún
skamt utan við þorpið og var
því líkast, sem þeir hefðu sest
niður til þess að hvíla sig, en
frostið yfirbugað þá.
í Konstanz er víða þriggja
metra djúpur snjór og öskrandi
hríðarbylur í dag. Hafa tveir
menn orðið þar úti í úthverfum
borgarinnar. I Bukharest var 36
stiga frost á Celsíus í gær.