Vísir - 19.03.1938, Blaðsíða 2

Vísir - 19.03.1938, Blaðsíða 2
V I S 1 R VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Páll Steingrímsson. Skrifstofa ! Austurstrœti 12. og afgreiðsla j Blntr: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Stjórnin. P ORSÆTISRÁÐHERRANN * tilkynti í byrjun þing- funda í gær, að Haraldur Guð- mundsson, atvinnumálaráð- herra, ráðherra Alþýðuflokks- ins í samsteypustjórn Fram- sóknarflokksins og Alþýðu- flokksins, liefði beðist lausnar úr ríkisstjórninni. Kvaðst for- sætisráðherrann þegar hafa símað konungi lausnarbeiðni hans og lagt til, að sér yrði fal- ið að gegna störfum atvinnu- málaráherra fyrst um sinn. Þá lýsti forsætisráðherra því, hve þungt sér félli viðskilnaðurinn við þennan ágæta starfsbróður sinn og bandamann. — En svo var sú saga ekki lengri, og þótti ýmsum sem „botninn“ vantaði! Forsætisráðherrann gerði enga grein fyrir því, hvernig sá hlutjfc, ríkisstjórnarinnar, sem eftir væri, hugsaði sér að kom- ast af, þegar ráðherra Alþýðu- flokksins væri farinn úr stjóm- inni og hún hefði, að þvi er ætla mætti, mist stuðning þess flokks. Framsóknarflokkurinn getur ekki farið einn með stjórn landsins, þannig að kröfum þingræðisins sé fullnægt. Kröf- um þingræðisins er ekki full- nægt með því einu, að fela öðr- um ráðherranum sem eftir er í stjórninni störf atvinnumála- ráðherrans! Það yerður auk þess að bæta upp þann fylgis- missi, sem stjórnin hefir orðið fyrir, við það að Alþýðuflokk- urinn svifti hana stuðningi sín- um, Eða, er það ef til vill engan veginn svo að skilja að Alþýðu- flokkurinn hafi svift stjórnina stuðningi sínum, þó að liann hafi látið ráðherra sinn segja af sér? — Ætlar flokkurinn að halda áfram að styðja stjórn- ina, eftir sem áður, eða veita lienni hlutleysi, til þess að hún geti farið áfram með völd? Ef svo væri ekki, hefði for- sætisráðherrann ekki aðeins átt að biðja konung að leysa Har- ald Guðmundsson frá stjómar- störfum, þegar hann hafði af- hent lausnarbeini sina, heldur bar honum þá að beiðast lausn- ar fyrir alt ráðuneytið. Eftir að ráðherra Alþýðuflokksins er far- inn úr stjórninni, og hún hefir verið svift stuðningi flokks hans, er stjórn Hermanns Jón- assonar orðin minnihlutastjórn, bæði utan þings og innan, og getur ekki farið með völd stund- inni lengur, án þess að leita sér stuðnings annarsstaðar. Það virðist nú næsta ólíklegt, að Alþýðuflokkurinn ætli að veita Hermanni Jónassyni stuðning, til þess að fara áfram með völd, eflir að flokkurinn liefir tekið ráðlierra sinn úr stjórninni. Hafi flokknum þótt hagsmunum sínum illa borgið, meðan hann átti sjálfur full- trúa i ríkisstjórninni, þá er þess þó síst von, að betur verði fyrir þeim séð, ef liann á þar engan málsvara, en verður að eiga alt undir öðrum. Hinsvegar er það kunnugt, að Alþýðuflokleurinn hefir talið það meira máli skifta en alt annað, að komið yrði í veg fyrir það, að sjálfstæðis- menn kæmist til nokkuiTa valda. Er þvi engan veginn fyrir það að synja, að hann kysi jafn- vel heldur að afsala sér sjálfum öllum beinum afskiftum af sijórn landsins og styðja þó stjórnina eftir sem áður, en að til þess þyrfti að koma, að á- lirifa Sjálfstæðisflokksins gætti þar að nokkuru. En ef svo er, að Haraldur Guðmundsson hafi verið „dreginn“ út úr ríkis- stjórninni, aðeins til þess að svo gæti lilið út á yfirborðinu sem Alþýðuflokkurinn vildi enga á- byrgð bera á gerðardómslögum Hermanns Jónassonar, en floklc- urinn ætlar þó eftir sem áður að veita stjórninni stuðning sinn, þá verður aðeins „síðari villan verri liinni fyrri“. Og liefði Haraldur þá betur setið fast og setið kyr! Deilur Púlverja og Liibana. BRETAR OG FLEIRI ÞJÓÐIR ÓTTAST, AÐ NÝJAR VIÐSJÁR í ÁLFUNNI, KOMI ÖLLU í BÁL OG BRAND. Oslo, 18. mars. Horfur í alþjóðamálum vekja almennan ugg og ótta um alla álfuna. — Pólverjar hafa hafn- að að leggja deilumál sín og Lithaua fyrir hlutlausa alþjóða- nefnd. — Frestur Lithaua til að svara úrslitakröfum Pólverja er útrunninn á laugardagskveld. London, 18. mars. — FÚ. Pólverjar liafa í dag dregið saman lier á landamærum Pól- lands og Lithauen. 1 frétt frá Varsjá segir, að Smigly-Rydz marskálkur liafi farið til Vilna til þess að framkvæma þar her- skoðun. Sendiherra Breta í Var- sjá fór i dag á fund pólska utan- ríkismálaráðþprrans og fór þess á leit fyrir hönd bresku stjórn- arinnar, að Pólverjar notuðu sér ekki atburð þann er gerðist ó landamærunum á dögunum til þess að vekja nýjar viðsjár. Sendiherra Lithauen i París, London og Moskva fór á fund utanríkisráðherranna i þessum borgum, Lithauiska sendisveit- in í París hefír sagt, að Pólverj- ar hafi neitað að semja um at- burðinn á dögunum, enda þótt stjórnin í Lithauen hafi þegar orðið við ýmsum kröfum Pól- verja. Smetana forseti hefir kvatt saman þingið í Lithauen og einnig stjórnmálalega Ieiðtoga og yfirforingja hersins. Frétta- ritari Reuters í Kaunas álítur, að í ráði kunni að vera að taka þjóðaratkvæðagreiðslu um breylingu sljórnarskrárinnar, er heimili stjórninni að viður- kenna yfirráðarétt Póllands yfir Vilna. Hann segir einnig, að Pólverjar vilji að Lithauar geri samskonar samning við sig og Austurriki og Þýskaland gerðu sín á milli. Stjórnir Lettlands og Eist- lands hafa snúið sér til lithau- Lithauar nmnu láta kúgast, segir United Press. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Fréttaritari United Press í Kovno símaði þaðan snemma í morgun, að ríkisstjórnin kæmi saman á fund kl. 10 árdegis til þess að ganga frá svari við úrslitakost- um Pólyerja. Þeir, sem þessum málum eru gerst kunnir, líta svo á, að Lithauen sé engin leið fær önnur, en að ganga að kröfum Pólverja í einu og öllu, þar sem algerlega von- laust sé, að her Lithaua geti veitt pólska hernum við- nám, en fullvíst má telja, að Pólverjar ráðist inn í Lit- hauen, verði úrslitakostum þeirra hafnað. United Press. „75 miljónix* manna ganga til atkvæða og lýsa yfíi* ein— ingn þýsku þjóöarinnar66. London, 19. mars. — FÚ. Hitler tilkynti í ræðu sinni í rikisþinginu í gær að Þjóðverjar mundu laka þátt í þjóðaratkvæða- greiðslunni um innlimun Austurríkis í Þýska- land, en hún á að fara fram 10. apríl n. k. „Ger- völl þýska þjóðin,“ sagði Hitler, „mun ganga til atkvæða þann dag, — — ekki sex og hálf miljón, heldur sjötiu og fimm miljónir manna munu verða beðnar að lýsa yfir einingu þýsku þjóðarinnar og eg geri mér vonir um, að þær komist að réttri niðurstöðu.“ Þá leysti Hitler upp ríkisþingið eins og það er nú skipað og lýsti því yfir, að um leið og þjóðaratkvæðagreiðslan færi fram, yrði kosið nýtt ríkisþing fyrir hið nýja sameinaða ríki. Hitler sagði, að þegar landamæri Austurríkis liefðu verið á- kveðin i Versölum, hefði hálf sjöunda miljón manna verið svi- virt. Hið sorglegasta við myndun þess Austurríkis hefði verið, að þannig var í haginn búið að það gat ekki verið til frambúð- ar og nú hefði þjóðin tekið örlög sín í sínar eigin hendur. MEXICO SLÆR EIGN SINNI Á EIGUR ER- LENDRA OLÍUFÉLAGA. Einkaskeyti til Vísis. London í morgun. ARDENAS, forseti Mexi- co, hefir gert upptækar og slegið eign sinni á allar ei,gur erlendra olíufélaga í landinu. Er þar með lokið deilu, sem staðið hefir lengi milli ríkisstjórnarinnar og olíufélaganna. Verkamenn kröfðust hærra kaups, vegna mjög hækkaðs verðlags á lífsnauðsynjum manna, en félögin kváðust ekki geta sint kröfunum. Stjórnin studdi verkamenn og lauk deilunni sem áður getur. 1 lögunum sem gefin voru út vegna þess- ara ráðstafana, segir að olíu- félögunum skuli bættur skað- inn á næstu 10 árum með peningagreiðslum. United Press. isku stjórnarinnar og skorað á hana að verða við kröfum Pól- verja ef mögulegt sé, svo að ekki komi til innrásar af þeirra hendi eða a. m. k. að ganga eins langt til samkomulags eins og frekast sé mögulegt. Sendiherra Lithauen í Lon- don gekk í dag á fund Halifax lávarðar og átti viðtal við liann. I London eru menn vongóðir um, að deila þessi verði lcyst á friðsamlegan hiátt. aðeins Loftup. Austarríki. Hvar er Schussnigg? Osló 18. mars. FÚ. Ekkert er vilað um það með vissu, hvar Schussnigg fyi’ver- andi kanslari Austurríkis er niður kominn. Hann er ekki i liöll þeirri sem liann var sagð- ur. Um þetta mál eru miklar getsakir. Fná Wien berast fregnir um, að daglega sé menn teknir þar fastir af pólitískum ástæðum. Meðal hinna handtelcnu er fyrv. formaður kaþólska flokksins og fjölda margir Gyðingar. NRP. — FB. Kína. Lögregluvörður alþjóðahverfis- ins aukinn. London, 18. mars. — FÚ. I frétt frá Shanghai segir, að Japanir hafi borið á móti því, að þeir ætli að senda her inn í alþjóðahverfið eða franska borgarhlutann. Lögregluvörð- ur alþjóðahverfisins liefir ver- ið aukinn. Kínverjar ná aftur bæjum, sem Japanir höfðu unnið. Japanir tefla nú öllu liði sínu fram á Lung-hai vígstöðvunum, og hafa dregið þangað lið frá ýmsum öðrum hlutum Kína- veldis, sem ]>eir liöfðu lagt und- ir sig. Kínverjar hafa notað tækifærið sem þeim liefir þann- ig gefist, til þess að taka aftur allmarga bæi sem Japanir höfðu náð á sitt vald. „Fram“. Knattspyrnuæfing x. og 2. flokks á mo'rgun (sunn'udag) kl. io f. h. HÁLF MILJÓN MANNA FLÝR BARCELONA. Einkaskeyti til Vísis. London í morgun. | OFTVARNIR Barcelona- ^ borgar eru nú að engu orðnar og þúsundir manna, eða um hálf miljón hafa flú- ið borgina og haldið til fjalla, vegna þess að uppreistar- menn gera nú hverja loftá- rásina á fætur annari. Eru varnir í svo miklu öngþveiti, að flugvélarnar geta flogið mjög lágt. Síðustu árásirnar urðu 600 að bana en særðu 750. Þúsundir manna hafa sest að á torgum borgarinnar undir opnum himni eða í hvelfingum neðanjarðar- brautanna. United Press. Spáun. Loftárásunum á Barcelona haldið áfram. London, 18. mars. — FÚ. Eignatjón og manntjón í Barcelona af völdum loftárása uppreistarmanna er nú orðið gífurlegt. I dag liefir hver loft- árásin á fætur annari átt sér stað. Hófust þær kl. 4 í morg- un, en sú síðasla sem fréttist af, átti sér stað kl. 2 síðdegis í dag. Alt miðbik borgai’innar er í rústum. Stjórnir Bretlands og Fraklc- lands hafa ítrekað tilmæli sín til beggja stríðsaðila á Spáni uin að leggja niður árásir á varnar- laust fólk og liafa farið fram á það við páfann í Róm, að hann skori á Spánverja að verða við þessum tilmælum. Samkv. FÚ-fregn í morgun hafa 610 beðið bana en 1100 særst í loftárásunum. Oslo, 18. mars. Norska ræðismannsskrifstof- an í Barcelona eyðilagðist að nokkuru Ieyti í loftárásunum á borgina. Starfsfólkið slapp ó- sært. NRP. — FB. Þúsundir fasista handteknir í Brasilíu. London, 18. mars. — FÚ. Lögreglan í Brasilíu hefir handtekið þúsundir fasista, eða meðlima „Grænstakka“-félag- anna og er þeim gefið að sök að hafa gert samsæri til að myrða forseta Brasilíu og stcvpa stjórninni. Nýr bresk-ítalskur verslunar- samningur. London, 18. mars. — FÚ. í dag var undirritaður i Róm nýr verslunarsamningur milli Bretlands og Ítalíu, og gerir hann ráð fyrir nokkurri aukn- ingu á viðskiftum milli þess- ara landa. Einnig voru undirrit- aðir nýir „clearing“ samningar. Verkföllunum í Danmörku frestað. Kalundborg, 13. mars. - FÚ. Verkföllum þeim, sem yfir liafa vofað í Danmörku liefir nú verið frestað um stundar- sakir.. Sáttasemjari hins opin- bera mun nú á næstuni leggja fram málamiðlunartillögur, sem taka til alt að 500 iðngreina og fyrirtækja og 85 þúsund verka- manna. Málamiðlunartillögur sáttasemjara eru miðaðar við 2 □ Edda 59383227 — 1. Messur á morgun. í dómkirkjunni: Kl. 11, sira FirSrik Hallgrímsson, kl. 5 sira Bjarni Jónsson. 1 fríkirkjunni: Kl. 2 barnaguSs- þjónusta (sr. Á. S.) og kl. 5 sira Árni' Sigurösson. í HafnarfjarSarkirkju: Kl. Yi barnagu’Ssþjónusta, sr. GarSar Þorsteinsson. í fríkirkjunni í HafnarfirSi: Kl. 5 sr. Jón AuSuns. Framhalds- aSalsafnaðarfundur eftir- guSs- þjónustu. í Laugarnesskóla: Kl. 10,30 barnaguSsþjónusta, kl. 2, sira GarSar Svavarsson. I ASventkirkjunni kl. 8,30 síSd. O. J. Olsen. í kaþólsku kirkjunni: í Reykja- vík: Lágmessa kl. 6)4 og 8, há- messa kl. 10, kveldguSsþjónusta meS prédikun kl. 6. í HafnarfirSi í Hámessa kl. 9, kvöldguSsþjónusta. meS prédikun kl. 6. Veðrið í morgun. 1 Reykjavík 1 st., mestur hiti í gær 4, minstur í nótt 2 st. Úrkoma í gær 1.0 mm. Heitast á landinu í morgun 4 st., Fagurhólsmýri; kaldast — 2 st., Bolungarvík. Yfir- lit: Grunn lægð fyrir sunnan og austan land á hreyfingu í austur. — Horfur: Faxaflói: Hæg norð- austan eSa norðanátt. Úrkomulaust. Skipafregnir. Gullfoss er á leiS til Leith frá Vestmannaeyjum. GoSafoss fór frá Kaupmannahöfn í dag. Brúar- foss er í Kaupmannahöfn. Detti- foss fer frá Hamborg í dag. Sel- foss er í Reykjavík. Höfnin. Haukanesið kom af veiðum í morgun. Kolaskipið Felix fór í morgun. Tryggvi gamli, Kári og Belgaum eru að búast á ufsaveiðar og fara í dag. Otur er að hita upp á Kleppsvík og fer á ufsaveiðar á morgun. Flokkakeppni í fimleikum. verður háð 26. apríl. Keppt verð- ur um Farandbikar Oslo Turnfore- ning,handhafi Glímufél. Ármann. Öllum félögum innan l.S.l. er heimil þátttaka. Keppendur gefi sig skriflega fram við Glímufélagið Ármann og sendi stundaskrá flokk- anna eigi síðar en 11. apríl n.k. „Leikfélag' Reykjavíkur“ sýnir á morgun sjónleikinn „Fyr- irvinnan“ í síðasta sinn, og er lækk- að verð á aðgöngumið.um. — í næstu viku tekur Leikfélagið nýtt leikrit á sýningaskrána, sem verið hefir æft af miklum krafti nú síð- ustu daga. Næturlæknir næstu nótt: Halldór Stefánsson, Ránargötu 12, sími 2234. Nætur- vöröur í Reykjavikur apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. K. F. U. M. Almenn samkoma annað kveld kl. 8)4. Magnús Runólfsson talar: Um Jesúm Krist. Allir velkomnir. Hjúskapur. í dag verða gefin saman í Hafn- firði í hjónaband, af síra Jóni Auð- uns, ungfrú Ása Einarsdóttir, Hró- bjartssonar, póstfulltrúa, Brekku- stig 19, og Guðm. Egilsson, .loft- skeytamaður, Sjafnargötu 7. Prjónastofan Vesta, Laugavegi 40, veröur lokuð næstu daga vegna breytinga á búðinni. Slcíðamót Ármanns hefst á morgun í Bláfjöllum.' Kept verður í 15 km, göngu um nýjan silfurbikar, sem einn af vel- unnurum Ármanns hefir gefið. •Síðar verður kept í krókahlaupi. Lára Ágústsdóttir mun sýna á sunnudag í Varðar- hús.inu skuggamyndir af ýmsum dulrænum fyrirbrigðum, sem hér hafa gerst og í London á fundum miðílsins. Er þetta í fyrsta skifti sem þetta er sýnt hér með skugga- myndum. Helgidagslæknir á morgun: Eyþór Gunnarsson, Laugaveg 98, sími 2111. Bjarni Björnsson endurtekur skemtun sína í síð- asta sinn, með alþýðuverði á morg- un kl. 3, í Gamla Bíó..

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.