Vísir - 19.03.1938, Side 3
VÍSIR
Niðupstaða dómsins væntanleg brádlega,
en tæplega í dag eða á morgun.
Eins og getiS var í blaðinu í
gær átti ruðning og tilnefning í
dóminn, af hálfu deiluaðila, að
fara fram í gær. En sjómanna-
félögin samþyktu að tilnefna
ekki mann í dóminn. Tilnefndi
þá Hæstiréttur mann í stað fé-
laganna og valdi Kjartan Ólafs-
son múrara.
Útgerðarmenn tilnefndu
Kjartan Thors og viku Agúst
Jósefssyni úr dóminum.
Sjómannafélögin neituðu
einnig að ryðja manni úr dóm-
inum og gerði forsætisráðherra
það. Vék hann Birni Steffensen
endurskoðanda úr dóminum.
ld. 8 í gærkveldi. Mættir voru
fulltrúar aðila í deilunni, Jón
Ásbjörnsson hrm. f. h. Félags
ísl. botnvörpuskipaeigenda, og
Sigurjón Á. Ólafsson og Guðm.
í. Guðmundsson lögfr. f. h.
Sjómannafélaganna, og lögðu
fram gögn í málinu.
Tóku gerðardómendur þegar
til að kynna sér þessi gögn. Kl.
10,30 var fundinum slitið. Dóm-
urinn kemur aftur saman kl.
1% e. h. í dag.
Að því er Vísir frétti laust
fyrir hádegi mun niðurstöðu
dómsins ekki að vænta i dag,
því að dóxnendur þurfa að sjálf-
sögðu að kynna sér öll gögn
málsins rækilega. Mun því
dómsniðurstöðunnar tæplega að
vænta fyrr en á mánudag, þó
ekki kunni að vera loku skotið
fyrir, að hún komi á morgun.
TOGARARNIR FARA A
VEIÐAR. 'II
Nokkui’ir togarar búast á
ufsaveiðar svo sem getið er ann-
arsstaðar í blaðinu. Þorskafli
mun enn lítill á togaramiðum.
Skídaferdir á morgun.
Gerðardómurinn er því þann-
ig skipaður:
Hákon Guðmundsson, form.
tíómsins, tilnefndur af Hæsta-
rétti.
Kjartan Thors, frkv.stj., til-
nefndur af Fél. ísl. botnvörpu-
skipaeigenda.
Kjartan Ólafsson, múrari,
skipaður af Hæstarétti, þar sem
sjómannafélögin neituðu að til-
nefna mann.
Pétur Lárusson, prentari,
skipaður af Hæstarétti.
Þorst. Þorsteinsson, skipaður
af Hæstarétti.
Gerðardómurinn tók til starfa
í gærkveldi. Mun hann hraða
störfum sem mest, en enn verð-
ur ekkert fullyrt um hvenær
niðurstaðan kemur.
HVAÐ GERA SJÓMENN?
Sú spurning er á margra vör-
um. Á fundi í Sjómannafélagi
Reykjavíkur í gærlcveldi var
samþykt tillaga þess efnis, að
sjómenn skyldu ekki skrá
sig á skipin fyrr en kunn
verður niðurstaða gerðar-
dómsins. Verður þá hald-
inn fundur í félaginu.
V'æntanlega verða það hinir
gætnari menn meðal sjómanna,
sem mestu ráða um frekari
gerðir sjómanna í þessu máli.
Á fundinum í gær kom það
skýrt fram, að sjómenn ætla
ekki að reka erindi kommúnista
Gg annara æsingamanna. Mætti
fulltrúi kommúnista í bæjar-
stjórn, Björn Bjai’nason á
fundi sjómanna og bar fram
tillögu um eins dags mót-
ixiælaverkfall gegn gerðardóm-
inurn, en sjómenn vísuðu tillög-
unni frá með miklum meiri
hluta atkvæða. Héðinn Valdi-
marsson studdi tillöguna, en
samvinna er nú með lionum og
kommúnistum sem kunnugt er.
FUNDUR KOMMÚNISTA.
Á fundi kommúnista, sem
baldinn var í gær, tóku margir
til máls og var rætt um áslcor-
un og tillögu Kommúnista-
flokksins um eins dags mót-
mælaverkfall „gegn gerðar-
dómslögunum og til samúðar
við sjómenn“ og var tillagan
vilanlega samþykt. En sjómenn
sjálfir, svo sem fyrr var getið,
liirða ekkert um þetta samúð-
ar- og mótmælaverkfallsbrölt
lcommúnista og þess vegna kol-
féll tillaga B. B. á fundi þeirra.
AÐILAR í DEILUNNI LEGGJA
FRAM GÖGN.
GerðardómLurinn tók til stai’fa
Þessi félög fai-a í slciðaferðir
í kveld og á morgun:
Armann fer í Jósefsdal í
kveld og fyrramálið. Farmiðar
fást í Brynju, og á skrifst. fé-
lagsins kl. 6—9 í kveld, sími
3356. Farmiðar fást ekki við
bílana.
íþróttafélag kvenna leggur
upp fi’á Gamla Bió kl. 9 árd.
Þátttakendur gefi sig fram i
síma -3140 kl. 6—7 í kveld.
1. R.-ingar leggja af stað lcl.
9 frá Söluturninum. Farmiðar
fást i Stálhúsgögn, Laugavegi
11, í dag, en ekki við bílana.
K. R-ingar fara til skála síns
og leggja af stað ld. 9 í fyrra -
málið frá K. R.-húsinu. Farmið-
ar fást hjá Axel Cortez, Lauga-
vegi 10, til kl. 6 í kveld, en ekki
við bílana.
Skíðafélag Reykjavíkur legg-
ur af stað kl. 9 í fyrramálið. —
Fai’seðlar fást lxjá L. H. Miiller
til kl. 6 í kveld, en ekki við bil-
ana.
Skátai*, drengir og stúlkur,
fara í sameiginlega sldðaför og
verður lagt upp frá Miklagarði
kl. 9 f. h. Farmiðar fást í Bók-
lilöðunni.
Skíðafélag Hafnarfjarðar fer
einnig í skíðaför, ef veður og
færi leyfa. Áskriftarlisti i versl.
Einai’s Þorgilssonar.
IRADDIR I
frá Iesöndunum. E
V ORHUGLEIDING AR.
Eg liefi verið að velta þvi fyr-
ir mér á þessum síðustu og
verstu tímum, þegar dýrtíðin
xxieð öllum sínum óteljandi
sköttum og tollum er að sliga
menn niður, ásamt hækkandi
útsvörum frá ári til árs, sem m.
a. stafa af atvinnuleysi fóllcsins
—- hvort Reykjavíkurbær gæti
ekki sér að skaðlausu lagfært
ýmislegt sem lxér fer aflaga með
þeim feikna vinnukrafti, sem
hann hefir yfir að ráða; eg á við
það, að þeir, sem þiggja af bæn-
um vei-ði látnir vinna að ein-
hverju leyti fyi’ir þeim styrk,
sem þeir verða aðnjótandi. Það
getur vel verið, að margir fái
vinnu lijá bænum, en það eru
líka margir, sem fá styrkinn en
enga vinnu. Það liefir verið
mikið ritað og rætt um það,
livað mikið væi’i hægt að rækta
af grænmeti o. fl. lxér á bæjar-
landinu, sérstaklega nú fyrir
síðustu bæjarstjórnarkosningar
og tel eg það efalaust rétt, að
svo sé. En það er ekki nóg að
það sé hægt að rækta grænmeti,
kartöflur og rófur o. s. frv.,
friðun á bæjai’landinu vei’ður
að vera í svo góðu lagi að þeir,
sem að því vinna, fái óáreittir
að njóla ávaxtanna af vinnu
sinni, en það er langt frá því,
að svo sé. — Eitthvert slangur
af unglingum hæjarins leika
sér að því, að eyðileggja og
skemnxa fyrir fólki, þeir fara
um bæjarlandið eins og engi-
sprettur nætur senx daga og
skenmxa tré, blónx og garð-
ávexti, og troða niður og eyði-
leggja. Það eru jafnvel dæmi
til þess, að úr trjágörðunx heima
við hús manna liafi verið tekin
heil tré nxeð rótunx og flutt
burt, og geta menn af þessu
dænxi séð, hvernig nxuni vera
fai’ið nxeð gai’ða, senx liggja ut-
’ an við bæinn. Eg liefi. unx nokk-
ur ár átt liúseign, sem stendur
á einni af leigulóðunx bæjarins.
Eg hefi lagt mikla peninga i
það og ex-fiði, að pi’ýða þennan
blett, senx mér er orðinn nxjög
hjartfólginn, en svo vii’ðist að
alt þetta sé unnið fyrir gýg —
alt er eyðilagt; svo ekki er um
nenxa tvent að velja hjá xnér:
Annaðhvort að selja eignina,
senx mér er mjög nxóti skapi,
eða að öðrum kosti setja mjög
ramgerða gaddavirsgix’ðingu til
viðbótar steingirðingu, sem fyr-
ir er, en hvort sú endurbót yrði
til prýði fyi-ir hæinn læt eg ó-
sagt. Mér hefir nú dottið í hug,
lxvort ekki væri hægt að láta
nokkura af þeim, senx erfiðast
eiga og einhverra orsaka vegna
geta ekki séð fyrir sér sjálfum,
gæta bæjarlandsins og þá sér-
staklega matjurtagarðanna og
annara lóða og lendna, senx bær-
inn leigir fólki fullu verði, og
eg vil leyfa mér að segja full
dýrt. Þetta væri ekki nein erf-
iðisvinna og gæti því hver sem
er int hana af liendi, en gæti
orðið til niikils gagns, ef vel
væri á haldið.
Þegar talað er unx það, að
auka eftirlitið í bænunx, vildi
eg leyfa nxér að henda á það, að
taknxai’kaður yrði senx mest
fótboltaleikur sá, senx nú er
iðkaður liér á götunx bæjarins.
Oft má sjá 30—40 drengi spila
fótbolta sanxan, er þa elcki spurt
að því, hvar eða hvort boltinn
lendir, fari liann, eins og oft
vill verða inn unx rúður, fá þeir,
senx verða fyrir rúðubrotinu,
ofíast nær ekki annað en fúk-
yrði og annað slikt frá drengja-
hópnum; það hefír oft verið
sagt, að lögreglan sjáist sjald-
an þegar hennar sé þöi-f, og
hefir það því niiður oft komið
fyrir í þessu lilfelli. Eg gekk um
dágiiin upp Skólavöi’ðustiginn
og varð mér þá sérstaklega
slai’sýnt á efsta liúsið, hægra
mégin á götunni, allir glugg-
arnir voru brotnir og í þá
stærstu var stungið „madress-
um“ úr rúmununx, en í þá minni
var notast við strigapoka.
þetta er næsta liús við minnis-
nxerki Leifs hepna, senx allir er
til bæjarins konxa, bæði útlend-
ir og innlendir, álita sér nærri
því skylt að skoða. Að hús skuli
vera svona útleikin á því herr-
ans ái’i 1938 er lireinasta bæjai’-
skönxm.
Reykjavik vantar margt enn
þá, til þess að geta kallast nxenn-
ingarbær. Eitt vantar liana
nxest og það er löghlýðna borg-
ax’a, senx vilja leggja hug og
hönd til að bæta og fegra þenn-
an bæ, senx oss þykir öllum
vænt unx.
Holtsbúi.
hjá stjórnarklíkunni.
Það veldur gremju meðal
nxargra, sem vonlegt er, að
heimilismæður, er eiga nxenn, er
vinna fyrir nxiklu kaupi, skuli
gela verið þektar fyrir að vinna
utan heimilis og það jafnvel
hjá sömu stofnununx og menn
þeirra vinna, samtínxis því að
f jöldi fólks er þráir þá vinnu og
hefir hæfileika til hennar situr
auðuin höndum og fær ekki
neitt að gera. —
Það liefir flogið fyrir, að jafn-
vel ein ráðherrafrúin tælci heim
til sín vinnu frá eixxni stórri
stofnun hér, og það væri alveg
fjarri því að lxún notaði þau
vinnulaun í þarfir annara. Þess
eru mörg dæmi og einmitt úr
hópi þeirra stjórnarsinnuðu, að
hjón hafi töluvert á annað þús-
und á nxánuði er Iítið lieimili
liafa, og virðast þau ekki gera
sér neina rellu út af því þó aðrir
verði að líða fyrir það.
Munu konurnar sjálfar eiga
þar nxeiri sölc, því flestir kax’l-
menn eru svo gerðir, að þeir
eru lítt gefnir fyrir að konan
sé sem gestur á heimilinu, þó
þeir liinsvegar láti tilleiðast
vegna peningagi’æðgi og af því
þeini er tanxt að taka ekkert til-
lit til annara.
Þeir standa nxeii’a að segja
fremstir þar í flokki um slikt,
er sjálfir hafa gaspi’að liátt og
talið sig fæi’asta að leiða þjóð-
ina og jafna vinnunni réttlát-
lega niður og bæta kjör almenn-
ings. „Er það nokkur furða þó
almenningi blöslcri slík lodd-
ai-amenska ?“ Það hrýs mörgum
hugur við því, að þeinx sé hoss-
að svo hátt, sem raun ber vilni,
er berastir eru að því að
ganga á x-étt annara í þeim
efnum og setja nxatarpólitíkina
öllu hærra, á sanxa tíma sem
þeini, er reyna að rækja bezt
skyldurnar við heimilið og
þjóðfélagið nxeð því að koma
upp mannvænlegum börnum,
er gert senx allra erfiðast fyrir
að konxa þeim til nxanns og það
af sjálfum stjórnarvöldunum
er gera sitt til að auka dýrtíð-
ina í landinu og koma upp miðl-
ungsnxönnum. Því efnilegri senx
barnahópurinn er, þeinx mun
meh’i áhyggjur, því stöður eru
veittar pólitískum gæðingum,
og helst þeim, er ekki geta stað-
ist samkepnispróf og hafa sem
nxinsta faglega þekkingu. — —
Þeir eru nii best settir er út-
skrífast úr Samvinnuskólanunx
(þó þeir hafi minstu til kostað)
Heð með tilkynnist, að konan min, nxóðir okkar og
tengdamóðir,
Magdaleixa Jénsdóttip,
andaðist í gær að heimili sínu, Hverfisgötu 42.
Jóhann Eyjólfsson, börn og tengdabörn.
livað stöðuveitingar snertir og
lxáskóli vor á nú ekki aldeilis
upp á háborðið lijá þeim
rauðu. Mentaskólinn, svo er
Jónasi fyrir að þakka, er nú al-
veg lokaður fyrir þeim fátæk-
ustu, er þrá þá mentabi’aut, því
árlega koniast ekki nenxa þeir
25 útvöldu, er hafa haft getu til
að undirbiia sig og ráða þvi efn-
in þar mestu. Þvi þó Gagn-
fræðaskóli Reykvíkinga geti
vex’ið góður út af fyrir sig, þá
gerir það enginn snauður,
hvei’su efnilegt senx barnið er,
að borga 150 lcr. skólagjald auk
bóka, fæðis, klæðis og húsnæðis.
Það þykjast allir sammála
um það, að hæfileikar til vinn-
unnar séu ekki sanxfara póli-
tískri skoðun, að afhui’ðagáfur
geti eins búið með þeim fátæk-
ustu og valinn maður þurfi að
vera í liverju rúnxi, ef þjóðinni
SÍÍÍSÍÍCSÍÍÍÍÍXÍSÍÍÖOÍSOÍÍOÍÍCÍÍSÍÍÍIÍSÍXÍÖS
Dalræn
fyrirbriflði
sýnd í skuggamyndum í
Varðarhúsinu á sunnudag-
inn kl. 3, bæði fyrirbrigSi
sem gerst hafa hér og hjá
Sálarrannsóknafélaginu í
London á fundum miSils-
ins
LARU
Agústsdóttur.
— Myndirnar útskýrir
Kristján I. Kristjánsson.
ASgöngumiSar hjá Bóka-
verslun Sigf. Eymundsson-
ar og K. ViSar.
LítiS óselt.
eigi að vegna vel, og réttlætið
eigi að slcapa öndvegissess með
þjóðinni.
Það hlýtur að vera meira en
litið bogið við þessa svokölluðu
„vinnandi stéttarvini“, sem þeir
svo kalla sig sjálfir, sem vinna
það til að svíkja stefnuskrá
sina, af eintómri eiginhags-
munapólitik. Og þessi þríklofn-
ingur er alveg samtaka nxeð
það, að hiðja þá stjórn, er stöð-
ugt lxækkar álögur á almenn-
ingi og eykur atvinnuleysið.
Af þvi hjábroddununxþarnxagn-
ast stöðugt bitlingasýkin. Það
er flestum ljóst, að matarpóli-
tíkin hefir aldrei verið á liærra
stigi en nú. Góðir hæfileikar
aldrei átt eins eifitt uppdi’áttar
og síðustu tíu árin. Þeir er. rælcja
best skyldurnar við þjóðfélagið
eru altaf lítið nxetnir. Vinnunni
liefir aldrei verið skift ójafnara
niður. Og alt lcenxur þetta til af
því, að miðlungskraftarnir fá
að ráða nxestu með þjóð vorri,
og loddurum helst uppi að
blekkja.
En hvað lengi á þetta að við-
gangast, að þjóð vor stynji svo
þunglega uxxdan oki nxeðal-
menskunnar og fláttslcaparins ?
Soffía M. Ólafsdóttir.
Sigurlykkjan.
— Nú er Guðriður nxín sáluð,
sagði Þorkell á Bala við prest-
inn — og fór af barnsförum.
Þvílíkt og annað eins! Eg er
konxinn til þess að láta yður
vita þetta, senx sálusorgara okk-
ar.
— Þér hafið væntanlega haft
enihverja manneskju hjá lienni
meðan á þessu stóð? Helga í I
Tungu er Iángefin yfirsetukona,
þó að ekki sé hún lærð.
— Veit eg það. En það var
hvort tveggja prestur nxinn, að
eg bjóst við að þetta nxundi
ganga „eins og í sögu“, þar sem
þetta var fjórða bai-nið og kon-
an því engin viðvaningur í
barneignum, og svo hitt, að eg
þóttist liafa annað og betra
en allar ýfirsetukonur, og það
var „sigurlykkjan". Og undir-
eins í þriðju eða fjórðu lxríð, þá
lxengdi eg lykkjuna upp yfir
Guðríði sálugu, og síðan liverja
lykkjuna af annari, uns blessuð
manneskjan skildi við. Eg skil
ekkei’t í þessu, því að „lykkjan“
á þó sannarlega að vera öi’ugg!
Bcbíof
fréttír
Æfintýrið frá Islandi til Brasilíu.
Eins og kunnugt er, fluttust
nokkurir menn héðan af landi til
Brasilíu á síðari hluta aldarinnar
sem leið. Fæstir núlifandi rnanna
hér á landi muiíu vita neitt að ráði
um afdrif þessara nxanna eða líð-
an í hinni fjarlægu heimsálfu. Lít-
ilsháttar hefir þó verið um útflutn-
inga þessa ritað, en menn hafa ekki
verið rniklu fróðari eftir. Fyrir
nokkuru tóku þeir Sigurgeir Frið-
riksson bókavörður og Þorsteinn
skáld Þ. Þorsteinsson sér fyrir
hendur, að draga saman í eina
heild alt, sem vitað verður unx
„Brasilíufarana". Árangurinn af
því starfi er nú í ljós korninn með
útgáfu bókar þeirrar, „Æfintýrið
frá íslandi til Brasilíu“, sem að of-
an getur. Er það nxikil bók og harla
fróðleg. Hefir Þ. Þ. Þ. ritað hana
eftir bestu heimildum, sem nú eru
fáanlegar ,en S. F. gefið út. Ekk-
ert hefir verið til sparað, að ritið
rnætti verða sem fullkomnast og
réttorðast. Bókin er prýdd mörg-
um myndum. Verður nánara getið
siðar.
Jónas Halldórsson setur
eitt met enn.
Jónas Halldórsson setti 35.
sundmetið sitt í gær. Synti hann
200 metra, meS frjálsri aðferð, á
2.29.4, en hið gamla met hans var
2 m. 36.2 sek. og setti hann það
árið 1932,
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 5 kr. frá P. D.
Útvarpið í kvöld.
r9>3° Þingfréttir. 19,50 Fréttir.
20,1 Leikrit: „Tímaleysinginn“
eftir Holberg (nem. Mentaskól-
ans). 21,45 Danslög.
Útvarpið á morgun.
9-45 Morguntónleikar: Tónverk
eftir Baclx (plötur). 14.00 Guðs-
þjónusta í útvarpssal. (Ræða: síra
Björn Magnússon). 15.30 Miðdeg-
istónleikar : a) Tónleikar Tónlistar-
skólans. b) Klassískir valsar (plöt-
ur). I/.40 Útvarp til útlanda (2452
m.). 18.30 Barnatími. 19.20 Erindi
Búnaðarfélagsins: Jarðvegur og
jarðlög (Jakob H. Líndal bóndi).
20.00 Fréttir. 20.15 Norræn kvöld,
IV: Svíþjóð. a) Ávarp . (Jón Ey-
þórsson). b) Ræða: Aðalræðis-
rnaður Svía, Otto Johansson. c)
(20.30) Sænsk tónlist. (Endurvarp
frá Stokkhólmi). d) (21.00) Er-
indi: Guðlaugur Rósinkranz yfir-
kennari. e) Sænsk tónlist. f)_Frá
stúdentálífi í Uppsölum: Sigur-
bjö.rn Einarsson, fil. kand. g) Glun-
ta-söngvar (plötur). h) Upplestur
á sænsku. (plötur). i) Sænsk tón^
list. Hlé. Danslög til kl. 24,