Vísir - 28.03.1938, Side 2

Vísir - 28.03.1938, Side 2
VÍSIR VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Kitstjóri: Páll Steingrímsson. Bkrifstofa •C afgreiðsla Austurstrœti 12. Afgreiðsla 8400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Prentsmiðjan 4578 VerB 2 krónur á mánuði. Lausasaia 10 aurar. Félagsprentsmiðjan. Hver veit? DLAÐ Héðins Valdimarsson- u ar hlakkar mjög yfir því, að „hægri Ieiðtogum“ Alþýðu- flokksins hafi lirapallega brugð- ist bogalistin, þegar þeir spörk- uðu Héðni, og þóttust með því ætla að bjarga stjórnarsam- vinnunni við Framsóknarflokk- inn. Sú „dýra fórn“ hafi ekki komið þeim að neinu haldi „heldur mistu þeir Héðin og stjórnarsamvinnuna, því Héð- inn var rekinn og stjórnarsam- vinnan bilaði“, segir blaðið. „Reyndar“, segir blaðið, „vissu allir“, að H. V. vildi ekk- ert fremur en áframhaldandi stjórnarsamvinnu við Fram- sóknarflokkinn, og það meira að segja „aukna samvinnu“. eins og „allir sannir sameining- armenn vilja“, og þó að vísu því aðeins, að „Framsóknar- flokkurinn starfi sem vinstri flokkur". En vill Framsóknarflokkur- inn starfa sem „vinstri flokkur“ i þeim skilningi, sem hinir „sönnu sameiningarmenn“, Héðinsistar og kommúnistar, eiga við? Og gæti það nú ekki einmitt verið svo, að Héðinn og kommúnistarnir geri róttækari kröfur um „starf vinstri flokks6, en Framsóknarflokkurinn vill fallast á, og að „hægri leiðtog- arnir“ hafi látið sér skiljast, að samvinnan mundi stranda á þvi, ef þeim kröfum væri hald- ið til streitu, jafnvel þó að þeir gæti fallist á þær fyrir sitt leyti? Er það ekki svo að skilja, að „hægri leiðtogar Alþýðuflokks- ins“ hafi viljað stíga feti lengra til „hægri“, til samvinnu við Framsóknarflokkinn, en gott þýkir í herbúðum Héðinista og kommúnista, og einmitt þess vegna séu þeir kallaðir „hægri“ leiðtogar, en leiðtogar hinna „sönnu sameiningarmanna" geti einir kallast „sannir vinstri leiðtogar“. Og gæti það þá ekki einnig verið svo, jafnvel þó að Héðinn hefði viljað samvinnu Alþýðuflokksins og Framsókn- arflokksins „sem vinstri flokks“ að „hægri leiðtogarnir" hafi verið tilneyddir að losa sig við hann, til þess að hjarga sam- vinnunni við Framsóknarflokk- inn, hversu sárnauðugt sem þeim kynni að hafa verið það, að þurfa að sjá honum á bak, af því að lians kröfur um starf Framsóknarflokksins „sem vinstri flokks“ hafi verið um of til „vinstri“ ? Hitt er að sjálfsögðu rétt, að ef „hægri leiðtogunum“ er á- k.aflega mikil eftirsjá að Héðni, þá hefir þeim „brugðist boga- listin“, er þeir fórnuðu honum fyrir samvinnuna við Fram- sóknarflokkinn, ef sú verður raunin á, að þeir missi einnig af samvinnunni, þrátt fyrir þessa „dýru fórn“. Það virðist nú alveg augljóst, að Framsóknarflokkurinn vilji ekki „starfa sem vinstri flokk- ur“ að skilningi Iléðins og lcommúnista. En eftir er að fá úr því skorið, hvort hann getur fullnægt kröfum „hægri leið- toganna“ í því efni, eða hvort „hægri leiðtogarnir“ vilja vinna það til, að stíga skrefinu lengi'a til liægri, en jafnvel þeim gott þykir, til þess að bjarga stjórn- arsamvinnunni við. Og eftir því er nú beðið, að úr þessu fáist skorið, og enginn veit hve löng sú leið kann að verða, m. a. vegna þess að óvíst þykir, að Framsóknarflokkurinn viti sjálfur hvað hann vill, þó er ef til vill líklegast, að þar sé hver höndin uppi á móti annari. Heimavl&t Laugarness- skúlans liefir nú verið starfrækt 1 rúm- lega tvö ár og gefist vel. Yisi hefir horist skýrsla um börnin, sem þar hafa verið á tímibílinu frá 1. des. 1935 til 31. des. 1937 og er í henni margvíslegur fróð- leikur. Börn, sem verið liafa í heima- vistinni eru samtals 96 að tölu, 48 telpur og 48 drengir. Aldur þeirra liefir verið frá 8 til 14 ára (1 drengur). Flest hafa börnin verið 9 ára gömul (13 dr., 10 st.) og 10 ára (11 dr. og 15 st.). Hefir því rúmur helm- ingur allra barnanna verið 9— 10 ára. Mörg börnin voru berkla- smituð er þau komu í skólann, eða 31 drengur og 30 stúlkur. Bar mest á berklasmituninni hjá 9 og 10 ára börnum. Af 23 börnum 9 óra gömlum liöfðu 14 berkla og af 26 börnum 10 ára gömlum höf ðu 15 berkla. Þriðja hvert barnanna, eða 33, höfðu dvalið í sjúkrahúsum, áður en þau komu í heimavist- ina, mest vegna kirtlabólgu, 19 börn höfðu dvalið um eitt ár í sjúkrahúsi og eitt hafði verið 5 ár. Vegna margvíslegra kvilla og sjúkdóma höfðu mörg barn- anna ekki getað sótt skóla sem skyldi, t. d. höfðu átta börn aldrei sótt skóla. Sex börn höfðu mist 3 vetur úr, 14 börn 2 vetur og 16 börn höfðu mist úr 1 eða V/2 vetur. Börnin nutu kenslu meðan þau voru í heimavistinni, eftir því sem aldur þeirra og heilsa leyfði. Var daglega kent 3—5 klukkutíma. Legudagar voru mestir 34 dagar (hjá einu barni). Fimm- tíu og fimm barnanna urðu las- in meðan þau voru í heimavist- inni, en lágu flest stuttan tima. Þyngdaraukning hjá drengj- um varð mest hjá þeim dreng, er var 14 ára. I>yngdist hann á 3 mán. um 6.9 kg. og hækkaði um 0.7 cm. Þyngd og hæð jókst mest hjá 12 ára drengjum. Þyngdust þeir um 5.225 kg. að meðalíali og hækk- uðu um 2.2 sm. Hjá telpunum varð þyngdaraukningin mest hjá þeim, sem voru 11 ára, eða 5.9 kgr. Hækkunin varð mest hjá þeim 8 ára gömlu eða 2.6 sm. Sex af þessum börnum eru nú farin úr skóla og vegnar vel. 55 þeirra sækja enn skóla og eru hraust til heilsu. Ellefu sækja skóla undir lækniseftirliti, 4 sækja skóla öðru hverju, en eru Framsókn uppreistarmanna Ijandsxuót skíðamanna heilsutæp, önnur fjögur hafa ekki getað sótt skóla vegna van- heilsu, en þrjú eru á berklaliæli. Eitt barn er fatlað, hraust að öðru Ieyti, en sækir ekki skóla, og tólf eru nýkomin úr lieima- vist og geta sótt skóla. Karlakór Akureyrar kom til Reykjavíkur á M.s. Dronning Alexandrine í gærmorgun. Efn- ir kórinn til söngskemtana hér i bæ og munu þær verða fjöl- sóttar, því að mikið orð fer af kórnum og er hann hér mörg- um að góðu kunnur. Söngstjóri er Áskell Snorrason. Kórinn syngur í Gamla Bíó annað kvöld kl. 7. á Spáni stöövuö, segip í tilkyimingmn stj órn- apinnap í Bapcelona. Ppieto segip, ad sama liætta vofi yfip Fpakklandi sem Kataloniu. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Barcelonafregnir herma, að lýðveldisherinn spænski hafi stöðvað hina hröðu framsókn uppreistarmanna nálægt Fraga, sem 160 flug- vélar uppreistarmanna gerðu harðvítugar loftárásir á í gær. Framsókn uppreistarmanna til Kataloníu er stöðv- uð, en stjórnin í Barcelona viðurkennir, að Katalonía sé í stórhættu. Bardagar eru ákaflega harðir, en lið upp- reistarmanna er betur búið fallbyssum, skriðdrekum og flugvélum. Furðu mikil ró er í Barcelona, þegar tekið er tillit til þess hver hætta vofir yfir borginni og Kataloníu allri. Blöðin hvetja stjórnina til hinna róttækustu ráðstafana til þess að stöðva framsókn uppreistarmanna. Prieto hefir sagt í viðtali við blöðin: Meðan aðrar þjóðir senda oss samúðarrík orð og góðar óskir, fær óvinaherinn vopn og skotfæri í svo stórum stíl frá sínum vinum, að oss leik- ur sterklega grunur á, að ekki eigi að nota þau gegn oss einum. Hergagnaflutn- ingarnir eru í svo stórum stíl, að eg hika ekki við að full- yrða, að öryggi Frakklands sé hætta búin. United Press. Manntjón ítala á Spáni. ítalir vara Frakka vid ad senda her- lið til Spánar. London, 28. FÚ. 1 tilkynningu frá stjórn Fran- cos til stjórnarinnar á Italíu segir, að orustunum sem átt hafi sér stað á Spáni undanfarnar vikur hafi 29 liðsforingjar og 253 óbreyttir liðsmenn italskir fallið, en 125 liðsforingjar og 1300 óbreyttir liermenn særst. Auk þess sé 33 manna saknað. í ítölsku blaði i gær voru Frakkar varaðir við að grípa inn í styrjöldina á Spáni vegna þess að það mundi liafa ófyrir- sjáanlegar afleiðingar. I sama blaði er einnig minst á ræðu Chamberlain og sagt að italska stjórnin muni standa við það loforð sem hún gaf bresku stjórninni um að flytja ítalska sjálfboðaliða á brott frá Spáni þegar Frakkar og Rússar flytja sína sjálfboðaliða þaðan. Blaðið bætir því við, að þar sem að engir ítalskir hermenn liafi far- ið til Spánar nú í marga mán- uði, þá fari tala ítalskra manna sem berjast á Spáni sí-lækkandi. Loks segir að ítalska stjórnin fylgist með banáttu vinstriflokk- anna í Frakklandi til þess að fá frönsku stjórnina til að aðstoða spánska lýðveldið- 100 verour, London, 17. mars. FÚ. Samkvæmt opinberri yfirlýs- ingu, sem gefin var út í kosn- ingaræðu í Austurríki i gær, munu dr. Schusnigg og ráðu- nautar hans verða dregnir fyrir lög og dóm, fyrir það að hafa ætlað sér að hafa svik í frammi í sambandi við liið fyrirhugaða þj óðaratkvæði sem austurríska stjórnin boðaði til. Kínverjar sækja á. London, 27. mars. - FÚ. Frá Suður-Shansi-fylki í Iíína berast þær fréttir, að kín- verski herinn sæki þar á, og að Japanir eigi á hættu að Kínverj ar nái aftur úr höndum þeirra allmörgum bæjum, sem þeir höfðu áður náð á vald sitt. SKEMDARVERK VIÐ BRESKAR HERN AÐARFLU GVÉLAR Einkaskeyti til Vísis. London, í morgun. Daily Herald birtir þá fregn, að skemdar hafi verið fimm hraðfleygar sprengju- flugvélar, sem búið var að smíða handa breska loftflot- anum. Þetta var framið hjá Fairey flugvélafélaginu í Stockport. Allar rafleiðslur höfðu verið skornar í sund- ur. Leynileg rannsóknar- nefnd hefir verið sett á lagg- irnar til að hafa upp á söku- dólgunum. United Press. Á annaí þúsund Reyk- víkingar á skiðum I gær. L. IKILL fjöldi bæjarmanna 1 fór út úr bænum í gær, til þess að fara á skíðum, og muuu fleiri hafa farið úr bænum í gær þessara erinda en nokkuru sinni, þegar skíðamótsdagarnir eru undanskildir. Svo sagðist formanni Skiðafélagsins, hr. L. H. Miiller, frá í viðtali við Vísi í morgun. Um tíma í gær voru 60 bílar við skála Sldðafélags- ins, þar af 25 stórir, þegar flest- ir voru þar. Stórir bílar voru þá og víða á veginum. Um 800 manns munu hafa komið í Skíðaskála Skíðafél. Reykjavík- ur, en fjölmenni var og við skála íþróttafélaganna og víðar. Skipskaðar og manntjón í Noregi. Oslo, 26. max’s. Fiskiskúta fi'á Svotvær fórst í gær með fjögurra manna áhöfn. Frá Tromsö er símað, að fár- viðri mikið hafi geisað hvar- vetna í Norður-Noregi ineð ströndum fram og urðu mörg slys af og mikið tjón. Sextán menn hafa drukknað og óttast menn að ekki sé öll kurl kom- in til grafar. Á einni skútu, sem fórst, voru fjórir bræður og faðir þeirra. (NRP—FB). 27. xnars. FÚ. Á landsmóti skíðamanna í Siglufirði liófst skíðagangan kl. 14 í dag. Veður var ágætt, hæg- ur suðaustan kaldi og lyngdi er á leið gönguna. Göngufæri var sæmilegt. Hafði snjóað dálitið í nótt og var slóðin lögð aftur í morgun. Þegar leið á göng- una kom i ljós, að skíðamönn- um hafði ekki tekist að velja hentugan áburð á skíðin, þar eð færi breyttist meðan stóð á göngunni. Gengnir voru ná- kvæmlega mældir 18 km. Þátt- takendur voru 8 úr Skíðafélag- inu Siglfirðingur, 8 úr Skíðafé- lagi Siglufjarðar, 1 xir Sldðafé- lagi Reykjavikur, 1 úr Ármanni, 1 úr Iþróttafélagi Ólafsfjarðar og 1 frá Einherjum á IsafirðL Fyrstur varð Magnús Krist- jánsson úr Einherjum, 1 klst. 37 mín. 21 sek. Annar varð Jón Þorsteinsson xir Skíðafélagi /Siglufjarðar, 1 klst. 38 mín. 27 sek. Þriðji varð Björn Blöndal úr Skíðafélagi Reykjavikur, 1 klst. 39 mín. 7 sek. Fjórði varð Jóhann Sölvason úr Skíðafélag- inu Siglufirðingur, 1 klst. 41 mín. 3 sek. Fimti varð Jón Stef- ánsson, úr Skiðafélagi Siglu- fjarðar, 1 klst. 42 mín. 23 sek'. — Áhorfendur voru á að giska 1200—1300. Skiðastökkið hefst á xnorgun kl. 14, í Hvanneyrar- skál. Norsku sparisjóðirnir styrkja þjóðnytjafyrirtæki. Oslo, 26. mars. Oslo Sparebank hefir ákveð- ið að útliluta 205.000 kr. til nyt- samra stofnana, þ. á. m. er Nationalteati’et, sem fær 25.000 kr. NRP. — FB. Norski verklýðsflokkurinn gengur í alþjóðasamband socialista. Oslo, 26. mars. Niðux’staða atkvæðagreiðsl- unnar innan verkalýðsflokksins. norska um það, hvort hann skyldi ganga í socialistiska al- þjóðasambandið, varð sú, að mikill meirihluti samþykti að sækja um upptöku í sambandið. (NRP. — FB.). Karlakór Akureyrar

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.