Vísir - 28.03.1938, Blaðsíða 2
VÍSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN
VÍSIR H.F.
Kitstjóri: Páll Steingrímsson.
Bkrifstofa
•C afgreiðsla
Austurstrœti 12.
Afgreiðsla 8400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Prentsmiðjan 4578
VerB 2 krónur á mánuði.
Lausasaia 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan.
Hver veit?
DLAÐ Héðins Valdimarsson-
u ar hlakkar mjög yfir því,
að „hægri Ieiðtogum“ Alþýðu-
flokksins hafi lirapallega brugð-
ist bogalistin, þegar þeir spörk-
uðu Héðni, og þóttust með því
ætla að bjarga stjórnarsam-
vinnunni við Framsóknarflokk-
inn. Sú „dýra fórn“ hafi ekki
komið þeim að neinu haldi
„heldur mistu þeir Héðin og
stjórnarsamvinnuna, því Héð-
inn var rekinn og stjórnarsam-
vinnan bilaði“, segir blaðið.
„Reyndar“, segir blaðið,
„vissu allir“, að H. V. vildi ekk-
ert fremur en áframhaldandi
stjórnarsamvinnu við Fram-
sóknarflokkinn, og það meira
að segja „aukna samvinnu“.
eins og „allir sannir sameining-
armenn vilja“, og þó að vísu
því aðeins, að „Framsóknar-
flokkurinn starfi sem vinstri
flokkur".
En vill Framsóknarflokkur-
inn starfa sem „vinstri flokkur“
i þeim skilningi, sem hinir
„sönnu sameiningarmenn“,
Héðinsistar og kommúnistar,
eiga við? Og gæti það nú ekki
einmitt verið svo, að Héðinn og
kommúnistarnir geri róttækari
kröfur um „starf vinstri flokks6,
en Framsóknarflokkurinn vill
fallast á, og að „hægri leiðtog-
arnir“ hafi látið sér skiljast, að
samvinnan mundi stranda á
þvi, ef þeim kröfum væri hald-
ið til streitu, jafnvel þó að þeir
gæti fallist á þær fyrir sitt leyti?
Er það ekki svo að skilja, að
„hægri leiðtogar Alþýðuflokks-
ins“ hafi viljað stíga feti lengra
til „hægri“, til samvinnu við
Framsóknarflokkinn, en gott
þýkir í herbúðum Héðinista og
kommúnista, og einmitt þess
vegna séu þeir kallaðir „hægri“
leiðtogar, en leiðtogar hinna
„sönnu sameiningarmanna"
geti einir kallast „sannir vinstri
leiðtogar“. Og gæti það þá ekki
einnig verið svo, jafnvel þó að
Héðinn hefði viljað samvinnu
Alþýðuflokksins og Framsókn-
arflokksins „sem vinstri flokks“
að „hægri leiðtogarnir" hafi
verið tilneyddir að losa sig við
hann, til þess að hjarga sam-
vinnunni við Framsóknarflokk-
inn, hversu sárnauðugt sem
þeim kynni að hafa verið það,
að þurfa að sjá honum á bak,
af því að lians kröfur um starf
Framsóknarflokksins „sem
vinstri flokks“ hafi verið um of
til „vinstri“ ?
Hitt er að sjálfsögðu rétt, að
ef „hægri leiðtogunum“ er á-
k.aflega mikil eftirsjá að Héðni,
þá hefir þeim „brugðist boga-
listin“, er þeir fórnuðu honum
fyrir samvinnuna við Fram-
sóknarflokkinn, ef sú verður
raunin á, að þeir missi einnig af
samvinnunni, þrátt fyrir þessa
„dýru fórn“.
Það virðist nú alveg augljóst,
að Framsóknarflokkurinn vilji
ekki „starfa sem vinstri flokk-
ur“ að skilningi Iléðins og
lcommúnista. En eftir er að fá
úr því skorið, hvort hann getur
fullnægt kröfum „hægri leið-
toganna“ í því efni, eða hvort
„hægri leiðtogarnir“ vilja vinna
það til, að stíga skrefinu lengi'a
til liægri, en jafnvel þeim gott
þykir, til þess að bjarga stjórn-
arsamvinnunni við. Og eftir því
er nú beðið, að úr þessu fáist
skorið, og enginn veit hve löng
sú leið kann að verða, m. a.
vegna þess að óvíst þykir, að
Framsóknarflokkurinn viti
sjálfur hvað hann vill, þó er ef
til vill líklegast, að þar sé hver
höndin uppi á móti annari.
Heimavl&t Laugarness-
skúlans
liefir nú verið starfrækt 1 rúm-
lega tvö ár og gefist vel. Yisi
hefir horist skýrsla um börnin,
sem þar hafa verið á tímibílinu
frá 1. des. 1935 til 31. des. 1937
og er í henni margvíslegur fróð-
leikur.
Börn, sem verið liafa í heima-
vistinni eru samtals 96 að tölu,
48 telpur og 48 drengir. Aldur
þeirra liefir verið frá 8 til 14
ára (1 drengur). Flest hafa
börnin verið 9 ára gömul (13
dr., 10 st.) og 10 ára (11 dr. og
15 st.). Hefir því rúmur helm-
ingur allra barnanna verið 9—
10 ára.
Mörg börnin voru berkla-
smituð er þau komu í skólann,
eða 31 drengur og 30 stúlkur.
Bar mest á berklasmituninni
hjá 9 og 10 ára börnum. Af 23
börnum 9 óra gömlum liöfðu
14 berkla og af 26 börnum 10
ára gömlum höf ðu 15 berkla.
Þriðja hvert barnanna, eða
33, höfðu dvalið í sjúkrahúsum,
áður en þau komu í heimavist-
ina, mest vegna kirtlabólgu, 19
börn höfðu dvalið um eitt ár í
sjúkrahúsi og eitt hafði verið 5
ár.
Vegna margvíslegra kvilla og
sjúkdóma höfðu mörg barn-
anna ekki getað sótt skóla sem
skyldi, t. d. höfðu átta börn
aldrei sótt skóla. Sex börn höfðu
mist 3 vetur úr, 14 börn 2 vetur
og 16 börn höfðu mist úr 1 eða
V/2 vetur.
Börnin nutu kenslu meðan
þau voru í heimavistinni, eftir
því sem aldur þeirra og heilsa
leyfði. Var daglega kent 3—5
klukkutíma.
Legudagar voru mestir 34
dagar (hjá einu barni). Fimm-
tíu og fimm barnanna urðu las-
in meðan þau voru í heimavist-
inni, en lágu flest stuttan tima.
Þyngdaraukning hjá drengj-
um varð mest hjá þeim dreng,
er var 14 ára. I>yngdist hann
á 3 mán. um 6.9 kg. og
hækkaði um 0.7 cm. Þyngd og
hæð jókst mest hjá 12 ára
drengjum. Þyngdust þeir um
5.225 kg. að meðalíali og hækk-
uðu um 2.2 sm. Hjá telpunum
varð þyngdaraukningin mest
hjá þeim, sem voru 11 ára, eða
5.9 kgr. Hækkunin varð mest
hjá þeim 8 ára gömlu eða 2.6
sm.
Sex af þessum börnum eru nú
farin úr skóla og vegnar vel. 55
þeirra sækja enn skóla og eru
hraust til heilsu. Ellefu sækja
skóla undir lækniseftirliti, 4
sækja skóla öðru hverju, en eru
Framsókn uppreistarmanna
Ijandsxuót
skíðamanna
heilsutæp, önnur fjögur hafa
ekki getað sótt skóla vegna van-
heilsu, en þrjú eru á berklaliæli.
Eitt barn er fatlað, hraust að
öðru Ieyti, en sækir ekki skóla,
og tólf eru nýkomin úr lieima-
vist og geta sótt skóla.
Karlakór Akureyrar kom til
Reykjavíkur á M.s. Dronning
Alexandrine í gærmorgun. Efn-
ir kórinn til söngskemtana hér
i bæ og munu þær verða fjöl-
sóttar, því að mikið orð fer af
kórnum og er hann hér mörg-
um að góðu kunnur. Söngstjóri
er Áskell Snorrason.
Kórinn syngur í Gamla Bíó
annað kvöld kl. 7.
á Spáni stöövuö,
segip í tilkyimingmn stj órn-
apinnap í Bapcelona. Ppieto
segip, ad sama liætta vofi yfip
Fpakklandi sem Kataloniu.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Barcelonafregnir herma, að lýðveldisherinn
spænski hafi stöðvað hina hröðu framsókn
uppreistarmanna nálægt Fraga, sem 160 flug-
vélar uppreistarmanna gerðu harðvítugar loftárásir á í
gær. Framsókn uppreistarmanna til Kataloníu er stöðv-
uð, en stjórnin í Barcelona viðurkennir, að Katalonía
sé í stórhættu. Bardagar eru ákaflega harðir, en lið upp-
reistarmanna er betur búið fallbyssum, skriðdrekum og
flugvélum.
Furðu mikil ró er í Barcelona,
þegar tekið er tillit til þess hver
hætta vofir yfir borginni og
Kataloníu allri.
Blöðin hvetja stjórnina til
hinna róttækustu ráðstafana
til þess að stöðva framsókn
uppreistarmanna.
Prieto hefir sagt í viðtali
við blöðin:
Meðan aðrar þjóðir senda
oss samúðarrík orð og góðar
óskir, fær óvinaherinn vopn
og skotfæri í svo stórum stíl
frá sínum vinum, að oss leik-
ur sterklega grunur á, að
ekki eigi að nota þau gegn
oss einum. Hergagnaflutn-
ingarnir eru í svo stórum stíl,
að eg hika ekki við að full-
yrða, að öryggi Frakklands
sé hætta búin.
United Press.
Manntjón ítala á
Spáni.
ítalir vara Frakka
vid ad senda her-
lið til Spánar.
London, 28. FÚ.
1 tilkynningu frá stjórn Fran-
cos til stjórnarinnar á Italíu
segir, að orustunum sem átt hafi
sér stað á Spáni undanfarnar
vikur hafi 29 liðsforingjar og
253 óbreyttir liðsmenn italskir
fallið, en 125 liðsforingjar og
1300 óbreyttir liermenn særst.
Auk þess sé 33 manna saknað.
í ítölsku blaði i gær voru
Frakkar varaðir við að grípa
inn í styrjöldina á Spáni vegna
þess að það mundi liafa ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar.
I sama blaði er einnig minst
á ræðu Chamberlain og sagt að
italska stjórnin muni standa við
það loforð sem hún gaf bresku
stjórninni um að flytja ítalska
sjálfboðaliða á brott frá Spáni
þegar Frakkar og Rússar flytja
sína sjálfboðaliða þaðan. Blaðið
bætir því við, að þar sem að
engir ítalskir hermenn liafi far-
ið til Spánar nú í marga mán-
uði, þá fari tala ítalskra manna
sem berjast á Spáni sí-lækkandi.
Loks segir að ítalska stjórnin
fylgist með banáttu vinstriflokk-
anna í Frakklandi til þess að fá
frönsku stjórnina til að aðstoða
spánska lýðveldið-
100 verour,
London, 17. mars. FÚ.
Samkvæmt opinberri yfirlýs-
ingu, sem gefin var út í kosn-
ingaræðu í Austurríki i gær,
munu dr. Schusnigg og ráðu-
nautar hans verða dregnir fyrir
lög og dóm, fyrir það að hafa
ætlað sér að hafa svik í frammi
í sambandi við liið fyrirhugaða
þj óðaratkvæði sem austurríska
stjórnin boðaði til.
Kínverjar sækja á.
London, 27. mars. - FÚ.
Frá Suður-Shansi-fylki í
Iíína berast þær fréttir, að kín-
verski herinn sæki þar á, og að
Japanir eigi á hættu að Kínverj
ar nái aftur úr höndum þeirra
allmörgum bæjum, sem þeir
höfðu áður náð á vald sitt.
SKEMDARVERK VIÐ
BRESKAR
HERN AÐARFLU GVÉLAR
Einkaskeyti til Vísis.
London, í morgun.
Daily Herald birtir þá
fregn, að skemdar hafi verið
fimm hraðfleygar sprengju-
flugvélar, sem búið var að
smíða handa breska loftflot-
anum. Þetta var framið hjá
Fairey flugvélafélaginu í
Stockport. Allar rafleiðslur
höfðu verið skornar í sund-
ur. Leynileg rannsóknar-
nefnd hefir verið sett á lagg-
irnar til að hafa upp á söku-
dólgunum.
United Press.
Á annaí þúsund Reyk-
víkingar á skiðum I
gær.
L. IKILL fjöldi bæjarmanna
1 fór út úr bænum í gær, til
þess að fara á skíðum, og muuu
fleiri hafa farið úr bænum í
gær þessara erinda en nokkuru
sinni, þegar skíðamótsdagarnir
eru undanskildir. Svo sagðist
formanni Skiðafélagsins, hr. L.
H. Miiller, frá í viðtali við Vísi
í morgun. Um tíma í gær voru
60 bílar við skála Sldðafélags-
ins, þar af 25 stórir, þegar flest-
ir voru þar. Stórir bílar voru
þá og víða á veginum. Um 800
manns munu hafa komið í
Skíðaskála Skíðafél. Reykjavík-
ur, en fjölmenni var og við
skála íþróttafélaganna og víðar.
Skipskaðar og manntjón
í Noregi.
Oslo, 26. max’s.
Fiskiskúta fi'á Svotvær fórst í
gær með fjögurra manna áhöfn.
Frá Tromsö er símað, að fár-
viðri mikið hafi geisað hvar-
vetna í Norður-Noregi ineð
ströndum fram og urðu mörg
slys af og mikið tjón. Sextán
menn hafa drukknað og óttast
menn að ekki sé öll kurl kom-
in til grafar. Á einni skútu, sem
fórst, voru fjórir bræður og
faðir þeirra. (NRP—FB).
27. xnars. FÚ.
Á landsmóti skíðamanna í
Siglufirði liófst skíðagangan kl.
14 í dag. Veður var ágætt, hæg-
ur suðaustan kaldi og lyngdi er
á leið gönguna. Göngufæri var
sæmilegt. Hafði snjóað dálitið í
nótt og var slóðin lögð aftur
í morgun. Þegar leið á göng-
una kom i ljós, að skíðamönn-
um hafði ekki tekist að velja
hentugan áburð á skíðin, þar eð
færi breyttist meðan stóð á
göngunni. Gengnir voru ná-
kvæmlega mældir 18 km. Þátt-
takendur voru 8 úr Skíðafélag-
inu Siglfirðingur, 8 úr Skíðafé-
lagi Siglufjarðar, 1 xir Sldðafé-
lagi Reykjavikur, 1 úr Ármanni,
1 úr Iþróttafélagi Ólafsfjarðar
og 1 frá Einherjum á IsafirðL
Fyrstur varð Magnús Krist-
jánsson úr Einherjum, 1 klst. 37
mín. 21 sek. Annar varð Jón
Þorsteinsson xir Skíðafélagi
/Siglufjarðar, 1 klst. 38 mín. 27
sek. Þriðji varð Björn Blöndal
úr Skíðafélagi Reykjavikur, 1
klst. 39 mín. 7 sek. Fjórði varð
Jóhann Sölvason úr Skíðafélag-
inu Siglufirðingur, 1 klst. 41
mín. 3 sek. Fimti varð Jón Stef-
ánsson, úr Skiðafélagi Siglu-
fjarðar, 1 klst. 42 mín. 23 sek'.
— Áhorfendur voru á að giska
1200—1300. Skiðastökkið hefst
á xnorgun kl. 14, í Hvanneyrar-
skál.
Norsku sparisjóðirnir styrkja
þjóðnytjafyrirtæki.
Oslo, 26. mars.
Oslo Sparebank hefir ákveð-
ið að útliluta 205.000 kr. til nyt-
samra stofnana, þ. á. m. er
Nationalteati’et, sem fær 25.000
kr. NRP. — FB.
Norski verklýðsflokkurinn
gengur í alþjóðasamband
socialista.
Oslo, 26. mars.
Niðux’staða atkvæðagreiðsl-
unnar innan verkalýðsflokksins.
norska um það, hvort hann
skyldi ganga í socialistiska al-
þjóðasambandið, varð sú, að
mikill meirihluti samþykti að
sækja um upptöku í sambandið.
(NRP. — FB.).
Karlakór Akureyrar