Vísir - 19.05.1938, Blaðsíða 2

Vísir - 19.05.1938, Blaðsíða 2
V í S I R VlSIR OAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiösla: Hverfisgötu 12. (Gengi'ð inn frá Ingólfsstræti). S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Réttur neytendanna. í menningaiiöndum þar sem einstaklingsframtakið hefir fengið að njóta sín án hóflausra hafta og hanna frá hendi ríkis- valdsins, hefir samkepnin skap- að fjöldanum viðunandi lífs- kjör. Vörumiðlararnir, hvort sem um kaupmenn eða kaupfé- lög hefir verið að ræða, liafa gert sitt ítrasta til að bæta lífs- kjör manna með hóflegu vöru- verði samfara auknum vöru- gæðum, og það hefir orðið eins- konar málsháttur vegna þessar- ar viðleitni seljendanna, að „viðskiftavinurinn hefði altaf á réttu að standa“. Við íslendingar höfum notið fulls verslunarfrelsis, en að eins um skamman tíma, og vissir flokkar hér í landi liafa unnið markvist að því að grafa undan verslunarfrelsinu. Þeir hafa byrjað á því að koma mönnum í hagsmunasamtök, sem hafa reynst misjafnlega, þótt þeim hafi verið veitt frtá ujrpliafi ýms fríðindi umfram einstaklinga, og stöðugt hefir verið haldið áfram á forréttindabrautinni þar lil svo er komið að þessi samtök eiga ein allan rétt, en allir aðrir engan rétt í þjóðfé- laginu. í fyrstu hitnaði þetta aðallega á keppinaulunum, en þegar þeir voru orðnir Iamaðir og hættu- lausir var snúist gegn neytend- unum sjálfum, sem eðlilegt hefði verið að fyrirtæki þessi hefðu virt að nokkuru, og nú er ekki tekið tillit til krafa þeirra né eðlilegra óska, heldur er réttur þeirra einnig horinn fyrir borð. Nú má svo heita að öll versl- un innanlands sé háð höftum og bönnum. Enginn má selja kjöt né mjólk hafi hann ekki fengið til þess náðarsamlegt leyfi stjórnskipaðra nefnda, sem litil skil kunna á þeim vei'kefn- um, sem þær hafa með höndum, og hafa sumar hverjar gert sig herar þegar í upphafi að fullum fjandskapi gegn neytendunum. Þelta hefir leitt til þess meðal annars að vöruvöndun og vöru- gæði eru öll önnur en vera skyldi og í slað þess að leitast sé við á allan hátt að auka neyslu þessara vara á innlend- um markaði, hefir verið úr henni dregið með uppspentu vöruverði, en minkuð neysla bitnar aftur beinlínis á fram- leiðendunum, en þeir einu, sem hafa af þessu beinan hag eru hinar stjórnskipuðu nefndir. Nærtækasta dæmi í þessu efni er mjólkin, sem öllum er nauðsynleg og þvi eftirsótt vara. Á því leikur enginn vafi, að neyslu Iiennar má auka til mik- illa muna hér i hænum, ef kröf- ur neytenda eru virtar að nokk- uru. Nú er mjólkin seld óþarf- lega háu verði, en auk þess er liún í sumum tilfellum nokk- urra daga gömul er hún kemur hér á markaðinn, og jafnvel orðin súr, eða þolir ekki geymslu, en er þó sekl sama verði og nýmjólk. Það, sem gera þarf í þessu tilfelli, er að flokka mjólkina, þannig að fult tillit sé tekið til neytend- anna. Það mætli flokka hana alt frá barnamjólk niður i súr- mjólk, áir og undánrennu, og með því að lækka milliliða- kostnaðinn gæti verðið til neyt- endanna einnig lækkað bændum að skaðlausu, en gæti orðið þeim hreinn hagur vegna auk- innar neyslu. Ef haldið verður áfram á sömu hraut og hingað til leiðir það til áframhaldandi beins og óbeins tjóns bæði fyrir fram- leiðendur og neytendur, og virðist það því ekki vera ósann- gjörn krafa að mjólkursölu- nefnd reyni að leysa þetta verk- efni betur hér eftir, en hún hef- ir gert hingað til. Hagsmunir framleiðenda og neytenda fara saman, en þeirra liagur er hagur heildarinnar. Hitaveitan Borgarstjóri Pétur Hall- dórssón fer utan með Lyru í kveld. Er erindi hans að ganga frá lántöku í Svíþjóð til hitaveitunnar, og munu allar líkur benda til að lánið fáist þar. Engin opinber skýrsla mun liggja fyrir enn sem komið er, frá hinum sænska verkfræðingi, sem hér var, en hinsvegar er það fullyrt manna á meðal, að honum hafi litist mjög vel á hitaveituna og allan undirbún- ing liennar, og talið áætlanir all- ar mjög varlegar, og miklu fleiri möguleika til hagkvæmra nota hennar, en látið hefir verið uppi Ristöiii lilkiir- söluneiar rift meö M\ uodirréttar. Á sínum tíma ákvað meiri hluti Mjólkursölunefndar að taka tekjuafgang Samsölunnar til verðuppbótar á vinslumjólk, en þrátt fyrir það, að tekjuaf- gangurinn rynni þarinig til upp- bótar á þessu mjólkurmagni einu, nægði það engan veginn til að tryggja það verð, sem fást átti fyrir vinslumjólkina, en það var 2 aurum lægra en neyslum j ólkurver ð. IÞessari ráðstöfun tekjuaf- gangsins vildu ýmsir bændur ekki una og Ólafur Bjarnason í Brautarholti höfðaði mál gegn Mjólkursölunefnd og krafðist greiðslu sér til handa á kr. 2.776.99, er hann taldi sinn hlut ágóðans, en mál þetta var höfðað til reynslu, þannig að fjölmargir framleiðendur aðrir gera sömu kröfur á hendur nefndinni. f fyrradag féll undirréttar- dómur í málinu og varð, niður- staða hans, að tekjuafganginum bæri að jafna niður á alla inn- vegna mjólk verðjöfnunarsvæð- isins, og kæmi þannig: í hlut Öl- afs kr. 998,00. Dómur þessi hefir mjög Rýfur Mussolini bresk-ítalska samn- inginn og sendir herafla til Spánar? Bretar óttast að stefna Chamberlains í utanríkismálum só dauðadæmd, ef ftalir meta meira signr Francos en gerða samninga. EINKASKEYTI TIL YÍSIS. London, í morgun. 0 Astand og horfur á Spáni valda bresku ríkisstjórn- inni meiri áhyggjum en nokkuru sinni, þar sem allar líkur benda til, að Mússólíni áformi að senda aukinn herafla til Spánar. Mússólíni hefir margsagt, að rauðu flokkarnir skuli aldrei sigra á Spáni og það heit virðist hann ætla að standa við. En þegar ítaísk-breska samkomulagið var gert á dögunum var það eitt höfuðatriðið, að Mússólíni sendi þangað ekki meira lið. Breskir stjórnmálamenn óttast, að ef Mússólíni met- ur sigur Francos meira en samkomulag Breta og ítala, séu allar helstu stoðir brotnar undir utanríkismála- stefnu Chamberlains, að minsta kosti muni það gefa andstæðingum hans byr í seglin, en þeir hafa frá upp- hafi haldið því fram, að samkomulag við ítali væri gagnslaust, af því að Mússólíni væri ekki að treysta. Lundúnadagblöðin í morgun skýra frá því, að Mússó- líni ætli að senda viðbótarherafla til Spánar til þess að leiða styrjöldina til lykta hið bráðasta. Daily Express skýrir frá því í morgun, að breska stjórnin hafi hinar mestu áhyggjur af þessu og hafi farið þess mjög alvarlega á Ieit við Mússólíni, að hann hætti við þetta áform sitt, því að það gæti haft stórhættu- legar afleiðingar. Chamberlain mun einnig fara þess á leit við frakknesku stjórnina, að hún komi í veg fyrir að Barcelonastjórnin sé studd af Frökkum. Horfurnar á lausn ýmislegra vandamála er þetta varða, hafa yfirleitt versnað að miklum mun, síðan er Mússólíni flutti ræðu sína í Genúa á dögunum, og var allóvæginn í garð Frakka, og þótti það allfurðulegt mörgum, þar sem samkomulagsumleitanir Frakka og ítala voru byrjaðar. Frökkum gramdist ræðan stórlega, en Bretum þótti sér að óþörfu gert erfitt fyrir. Vegna þess ágreinings, sem kominn er upp — eða a. m. k. er á uppsiglingu — milli ítala og Breta — um Spán, spáir Daily Herald því, að nýir stjórnarerfiðleik- ar blasi við Chamberlain — svo kunni að fara, að í Ijós komi, að utanríkismálastef na hans verði honum að falli. Þess vegna gerir Chamberlain nú alt, sem í hans valdi stendur, til þess að koma í veg fyrir, að til alvarlegs áreksturs komi milli Breta og ítala. United Press. Noregsför 0 Armanns. Úrvalskvenflokkurinn úr Ár- manni fer utan í kvöld með Lyra, til að taka þátt í 13. lands- móti Norðmanna. Sýndi flokk- urinn leikfimi i gærlcveldi i húsi Jóns Þorsteinssonar og vakti rtiikla aðdáun áhorfenda. Þess- ar stúlkur eru í flokkinum: Díana Einarsdóttir, Eiríks- g'ötu 23, Dídí Hermannsdóttir, Freyjugötu 24, Gróa Ólafsdóttir Skólavörðustíg 20, Guðný Jóns- dóttir, Laugavegi 82, Guðrún Úlfarsdóttir, Þjórsárgötu 5, Gyða Thorlacius, Hringbraut 157, Ingunn Kristinsdóttir, Laugavegi 18, Ólöf Björnsdótt- ir, Njálsgötu 56, Ragnheiður Þorkelsdóttir, Ljósvallagötu 18, Rósa Níelsdóttir, Sólvallagötu 7 A, Sigriður Björnsdóttir, Sel- landsstíg 7, Sigríður Þórðar- dóttir, Leifsgötu 9, Stella Áma- dóttir, Grettisgötu 2, Yigdís Jónsdóttir, Yesturgötu 36, Þór- ný Þórðardóttir, Grettisgötu 43. Fimleikastjóri er Jón Þor- steinsson og fer frú hans, Eyrún Guðmundsdóttir með flokknum. Victor ESmauuel fer í opiubera heimsókn til Berliuar* Berlín, 19. maí. - FÚ. Talið er, að ítalska stjórnin sé óánægð með afstöðu Frakk- lands til Spánarmálanna. ítalska hlaðið Corriere della Sera segir, að Frakkar megi ekki undrast það, að Mussolini hafi sett fram þá kröfu og skilyrði til sanm- inga, að Frakkland forðaðist hverskonar stuðning við Spán- arstjórn. Popolo di Roma segir, að í Spánarmálunum muni Ítalía aldrei slá Iiið minsta af yfirlýstri stefnu sinni, lil sam- komulags við önnur ríki. í London er meiningarmunur sá í Spánarmálunum, sem kom- ið hefir í Ijós við samninga Frakka og Itala, talinn mjög al- varlegs eðlis, og er talið, að hreska stjórnin muni reyna að mikla þýðingu, fyrst og fremst af þeim sökum, að liann tryggir framleiðendur gegn arðráni og eignajöfnun Mjólkursölunefnd- ar, sem hingað til hefir farið sínu fram, án þess að virða kröf- ur neytenda og framleiðenda. Mjólkursölunefnd mim hafa ákveðið að áfryja dóminum. draga úr þessum ágreiningi og liafi hún í því skyni falið sendi herra sínum í Róm að eiga við- tal við Ciano greifa. Giornale d’ Ítalía fer hörðum orðum um hina frönsku utan- ríkispólitik og segir, að Frakk- land verði að skilja, að til þess að ávinna sér vináttu Ítalíu, verði það að varpa fyrir horð vináttu sinni við sum önnur rílri, sem Evrópu slafi háski af. Berlín, 19 maí. - FÚ. Um framhald fransk-ítölsku samningana er alt í óvissu. Við- tal það, sem tilkynt hafði verið að Blondel, sendisveitarfulllrúi Frakka i Róm, myndi eiga við Giano greifa, hefir enn ekki átt sér stað og vekur það undrun margra. Þó hefir heyrst, að við- talinu hafi að eins verið frestað um nokkura daga. aðeins Loftur. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Fregn frá Rómaborg hermir, að Yictor Emanúel muni fara í heimsókn til Berlínar, sennilega í júlí, en þegar Hitier var í Rómaborg á dögunum bauð hann kon- ungi þangað. United Press. ráðsfund Þjóðabandalagsins átt tal við Lilvinoff í Genf og þyk- ist fréttaritarinn liafa fregnir af því, að Litvinoff hafi sagst mundu gera alt sem unt værí til þess að horfið yrði frá hlut- leysisstefnunni í Spánarmálum og að hann liafi lýst því yfir, að til þess gæti komið að Sovétrik- in sæju sig tilneydd að hindá enda á Spánarstyrjöldina. En fjTst um sinn myndu Rússar freista að bjarga Spánarstjórn með því að senda lienni flug- vélar og fallbyssur. Póstsamgöngum mílli Kata- loníu og Mið-Spánar er nú liald- ið uppi með kafbátum, sem sagt er að stjórnað sé af rússneskum sérfræðingum. RÚSSAR HJÁLPA RAUÐLIÐ- UM Á SPÁNI. Berlín, 19. maí. - FÚ. Fréttaritari Daily Mail í Genf símar blaði sínu, að Rússar ætli að hjarga stjórninni á Spáni með þvi að senda henni nægi- lega mikið af hergögnum. Segir hann, að utanríkisráðherra Spánar, del Vayo, hafi eftir DÆMD í LÍFSTÍÐAR FANG- ELSI FYRIR NJÓSNIR. í s.l. september handtók Gestapo, þýska leynilögregl- an, Octavie Wielapolska greifafrú, sem er 29 ára, for- kunnar fögur, fædd í Rúss- landi og gift Wielapolska greifa, sem er 56 ára. Daily Express skýrir frá því ný- lega, að pólskur stjórnmála- maður hafi sagt frá því við konu sína á leið frá Varsjá til Berlín fyrir skömmu, að greifafrúin hafi verið dæmd í lífstíðarfangelsi. Mál henn- ar var tekið fyrir leynirétt. Hávarður IsfirSingur kom til Isafjarðar 14. þ. m. með 92 föt lifrar. Alls hefir hann fengið á vertíðinni 403 föt. — (FÚ.).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.