Vísir - 06.10.1938, Blaðsíða 2
VISIR
VlSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Vonir rætast?
[T Ivarpinu hefir þótt það
U nokkurum tíðindum sæta,
og í frásögur færandi, aö danska
blaðið „Social-demokraten“ hafi
birt „langa“ grein eftir Stefán
Jóh. Stefánsson, um deilurnar í
Alþýðuflokknum, hinar „mis-
hepnuðu“ samfylkingartilraun-
ir Héðins Valdimarssonar og
kommúnista „á íslandi“. En
svo eru deilur þessar kunnar
hér, að óþarft virðist að vísa
mönnum á frásagnir af þeim í
útlendum blöðum, og litlu til
þess kostandi að afla slíkra
frétta. En vera má, að þessi
„langa“ grehi Stefáns Jóhanns
hafi líka þótt frásagnarverð
ekki síður fyrir annara hluta
sakir en þess, sem var aðalefllí
hennar.
I greininni skýrir St. J. svo
frá, að „mjög sterkur áhugi sé
fyrir því á íslandi, að áfram
verði haldið samvinnu milli
bænda og verkamanna á svip-
aðan hátt og nú tíðkast annars-
staðar á Norðurlöndum“. Og
um það efast víst enginn, að
„sterkur áhugi“ sé fyrir þvi
imian Alþýðuflokksins, að þeirri
samvinnu „bænda og verka-
manna“, sem verið hefir milli
hans og Framsóknarflokksins,
verði haldið áfram. En ofmælt
kann það þó að vera, að sterk-
ur áhugi sé fyrir þessu i land-
inu yfirleitt. Og tiltölulega lítill
hefir áhugi verkamannanna
í landinu verið fyrir þessu í
undanförnum kosningum.
Hinsvegar er þess nú að
gæta að samvinna Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins hefir að vísu verið með
nokkuð ósvipuðum hætti þvi,
sem „nú tíðkast annarsstaðar á
Norðurlöndum“ um samvinnu
„bænda og verkamanna“. Hér
á landi liafa „verkamennirnir“
í Alþýðuflokknum verið „al-
gerðar undirlægjur „bænd-
anna“ í Framsóknarflokknum.
Annars staðar á Norðurlöndum
eru það verkamennirnir sem
mestu ráða í samvinnunni. Hér
á landi er samvinna flokkanna
í sífeldu upplausnarástandi.
Annars staðar á Norðurlöndum
ríkir friður og eindrægni milli
flokkanna. En í því efni virðist
Stefán Jóhann ekki gera sér
grein fyrir, að nokkuð megi bet-
ur fara í samvinnu Alþýðu-
flokksins "og Framsóknar-
flokksins. Það er að eins um
eitt, sem Iiann virðist finna sárt
til, að hér skorti nokkuð á, að
samvinna flokkanna sé með
þeim hætti, sem æskilegast
væri og nú tíðkast annarsstaðar
á Norðurlöndum. En það er, að
Alþýðuflokkurinn eigi engan
fulltrúa í ríkisstjórninni!
Eftir frásögn Útvarpsins,
lætur Stefán þá von sína í ljós
í þessari grein sinni, að „eftir
flokksþing Alþýðuflokksins í
haust, kunni svo að fara, að Al-
þýðuflokkurinn fái á ný full-
trúa í ríkisstjórnina“. — Og
væntanlega er það „þungamiðj-
an“ í þessari löngu grein Stef-
áns, sem Útvarpið liefir talið
sér skylt að kynna öllum lands-
lýðnum.
Á flokksþingi Alþýðuflokks-
ins í haust, á flokkurinn að
reka kommúnistana af höndum
sér, af því að Framsóknar-
flokkurinn vill svo vera láta og
það er skilyrði fyrir þvi að
flokkurinn „fái fulltrúa i ríkis-
stjórninni“ og að áfram verði
haldið samvinnu Alþýðuflokks-
ins og Framsóknarflokksins á
svipaðan hátt og áður. Hitt er
eftir að sjá, hvort það nægir til
þess að samvinnan verði „á
svipaðan hátt og nú tíðkast“
milli hænda og verkamanna
annars staðar á Norðurlöndum.
Bílslys í gær.
Drengur lærbrotnar,
Um kl. i gær varð dreng-
ur fyrir bíl á Vesturgötu neð-
arlega, og lærbrotnaði. Slysið
varð hjá Verslun Geirs Zoega,
en þar skagar húshorn út í göt-
una, sem kunnugt er, og er
þetta hættulegur umferðarstað-
ur..— Bíllinn var á leið vestur
götuna, en drengurinn, Sigurð-
ur Jónsson, Seljavegi 15, hljóp
skyndilega yfir götuna, fyrir
bilinn. Bílstjórinn beitti þegar
hemlunum, en áður en billinn
stoðvaðist, varð drengurinn
undir honum. Var drengurinn
fluttur i Landakotssjúlcrahús.
Doktorsefoi rið Gnð-
fræðadeild Háskólans.
Ritgerð sira Eiríks Albertssonar
Síra Eiríkur Albertsson á
Hesti í Borgarfirði, hefir sent
Iiáskólanum mikið rit um
Magnús Eiríksson guðfræðing,
sem mikill styr stóð um á þeirri
tið, sem hann var uppi, en hann
andaðist í Kaupmannahöfn ár-
ið 1881. Hefir guðfræðideild Há-
skólans talið ritið maklegt til
doktorsnafnbótar, og mun dok-
torsvörnin fara fram um ára-
mótin.
Síra Eiríkur Albertsson er
fyrsti guðfræðingur liér á landi,
sem ver slíka doktorsritgerð við
guðfræðideild Háskólans. Hefir
hann unnið að þessu verki í
mörg ár í tómstundum sinum,
en árangurinn liggur nú fyrir
og er talinn með ágætum.
Magnús Eiríksson fór ungur
til Kaupmannahafnar og lagði
stund á guðfræði við liáskólann
þar og lauk prófi í þeirri grein
árið 1837. Var hann svo frjáls-
lyndur í trúarskoðunum, að
hann samþýddist lítt þeirrar
tíðar guðfræðinga, einkum í
Danmörku. Magnús samdi ýms
rit um guðfræðileg efni og leit-
aðist við að sanna að kenning-
ar Nýja-testamenntisins væru
að ýmsu leyti úr lagi færðar frá
])vi, sem upphaflega hafði ver-
ið, og hvatti til fullrar gagnrýni
í þvi efní. Hlaut hann mikla
viðurkenningu fyrir rit sín í
Þýskalandi og viðar, en auðg-
aðist ekki á þeim að sama skapi,
enda var liann blásnauður mað-
ur alla æfi. en hafði ofan af
fyrir sér með kenslu og annari
íhlaupavinnu.
Matthías Jochumsson hefir
getið Magnúsar í æfisögu sinni,
en hann kyntist Magnúsi á
Hafnarárum sínum. Er ekki ó-
h'klegt, að Magnús hafi haft
III lausnr Mlinl I
Landið verði falið umsjá
JBreta og innflutninguF
Qyðinga verði stoðvaðui*.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Sawaidi, utanríkismálaráðherra í Irak, sem nú er
staddur í London, er talinn hafa meðferðis
tillögur til lausnar deilumálunum í Palestinu,
þannig að landið verði friðað til fulls, en að undan-
förnu hefir kveðið þar mjög að róstum og hryðjuverk-
um. Voru Palestinu-málin til umræðu í breska þinginu
í gær og lýsti nýlendumálaráðherrann, Malcolm Mac-
Donald yfir því, að horfurnar þar í landi væru mjög
ískyggilegar þótt lögreglu og her hef ði tekist að hindra
og bæla niður ýmsar óeirðir.
Talið er að tillögur Sawaidis séu þess efnis, að Palestina verði
falin umsjón Breta, á sama hátt og Irak, en Arabar og Gyðing-
ar skuli hafa þar jafnrétti að lögum. Sawaidi ræður hinsvegar
eindregið frá því, að landinu verði skift milli Gyðinga og Ar-
aba, og leggur til að stöðvaður verði innflutningur Gyðinga til
Palestinu, með þvi að þetta hvort tveggja muni að eins leiða
til frekari óeirða og blóðsúthellinga þar í landi.
Sawaidi mun ræða þessi mál í dag við hresku ráðherrana,
þá Malcolm MacDonald, Hore-Belisha og Weizmann leiðtoga
Gyðinga, en hann hefir krafist frekari réttinda til lianda Gyð-
ingum í Palestinu, og að þeir fái full umráð yfir landshlutum
þeim, sem þeir byggja þar.
United Press.
Bresk-ftUlsko sanming-
arnir ganga i giidi.
Italsklr sjálfboðaliðar flnttir frá Spáni.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Talið er að f ult samkomulag hafi náðst milli Ciano
greifa, utanríkismálaráðherra ítala og Perth
lávarðar, sendiherra Breta í Róm, um öll þau
atriði, sem ollu því, að bresk-ítalski sáttmálinn hefir
ekki komist til framkvæmda, en þeir hafa samið um
þessi mál nú að undanf örnu. Þar, sem fult samkomulag
hefir náðst, m. a. um brottflutning ítalskra sjálfboða-
liða frá Spáni, er búist við því að stórráð f asistaflokks-
ins muni lýsa bráðlega yfir því, að samningur Breta og
ítala gangi í gildi. Fréttaritari United Press í Róm skýr-
ir svo frá, að Mússólíni hafi samþykt að kalla heim
10.000 sjálfboðaliða frá Spáni,en hlutleysisnefndin,sem
á að hafa umsjón með brottflutningi hermannanna,
mun þegar hefjast handa um allan undirbúning í því
efni.
United Press.
haft allmikil áhrif á Matthías,
semj mun hafa hneigst að kenn-
ingum hans að ýmsu leyti, enda
liefir Matthiasi þótt mikið til
hans koma, sökum þekkingar
hans og dirfsku. Þótt Magnús
hlyti aldrei sérstaka viðurkenn-
ingu hér á landi, meðan hann
lifði, hefir aukið frjálslyndi í
trúarefnum stuðlað að aukinni
viðurkenningu horium til handa
meðal guðfræðinga.
er miðstöð verðbréfaviðskift-
anna.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
byrjar vetrarstarfsemi sína n.k.
þriðjudag, Ii. þ. m. Ættu K.R.-fé-
lagar að veita athygli auglýsingu um
æfingar félagsins í vetur, sem birt-
ist í blaðinu í dag, og einnig aðrir
þeir, er ætla sér að gerast meðlim-
ir félagsins.
Ægir,
9. blað þ. á., er nýlega komið út.
í því eru þessar greinar m. a.:
tyrktarsjóður W. Fischers, Hvers-
vegna er ekki verkað meira af salt-
fiski, Síldveiði og síldarsala Norð-
manna, Þorskur í Kötluvatni á
Sléttu, Viðhorfið til dragnótaveið-
anna 0. m. fl.
Lifandi endur
getur sá fengið, sem fer á hluta-
veltu Sjálfstaeðisfélaganna í dag og
hefir hepnina með sér! Engin núll!
|nr
LAUN EKKJUNNAR.
Á myndinni er Mússólíni að festa lieiðurspening i barm ekkju
ítalsks flugmanns, sem farist hefir í styrjöldinni á Spáni. Var
slíkum peningum úthlutað í flughöfninni við Róm til aðstand-
enda ýmsra þeirra sjálfhoðaliða, sem farist hafa á Spáni. Fór
athöfnin fram með mikilli viðhöfn og að viðstöddu fjölmenni.
Tiðtal við fríherra von Schwerin, sem
er hingað kominn til þess að flytja
erindi við Háskúlann
Eins o@ getið var í Vísi í gær, er hingað kominn sænskur
mentámaður, fríherra H. H. von Schwerin, til þess að flytja
erindi, á vegum Háskóla Islands, um húsagerðarlist, og til
að kynna sér íslenskt mál og nútíðarlíf. Tíðindamaður Vísis
átti viðtal við fríherrann í morgun, á Hótel Borg, þar sem
hann býr, og spurði hann um för hans hingað og áform.
rRÍHERBA H. H. von
* Schwerin á herragarð
mikinn á Skáni og liefir um-
sjón búreksturs með höndum
sjálfur. Hefir liann mikinn á-
huga fyrir landbúnaði og mun
hann m. a. kynna sér islenskan
landbúnað liér en fríherrann
hefir lofað að skrifa greinaflokk
um Island í mesta dagblað Suð-
ur-Sviþjóðar, Syd-svenska dag-
bladet,sem gefið er út í Málmey,
en greinarnar munu fjalla um
ýmisleg efni.
Friherrann, sem á heima í
Lundi, hlaut háskólamentun í
Uppsölum. Er hann doktor í
heimspeki frá háskólanum þar.
Að þvi er Vísir hefir heyrt mun
fríherranum hafa staðið til boða
kennarastaða við sænskan há-
skóla, en hann hefir kosið að
sjá um ættareign sína og jafn-
framt halda áfram að vinna að
hugðarmálum sínum, svo sem
rannsóknum í húsagerðarlist, en
í því efni er hann sérfróður og
gert margar sjálfstæðar at-
huganir.
Tiðindamaður Vísis bíður fri-
herrann að segja sér frá til-
drögunum að þvi, að hann kom
til íslands.
,Eg hefi að sjálfsögðu noklc-
ur kynni af bókmentum íslands
og sögu“, sagði fríherrann, „en
við að ferðast norður á lióginn
— norður að ísliafi — Petsamo
i Finnlandi, vaknaði löngun til
þess að kynnast liinum norð-
lægustu löndum. Eg liafði og
kynst dr. Ohlmarks, er hér var
sendikennari við Háskólann, og
hvatti hann mig til þess að
kynnast íslandi og íslensku nú-
tíðarlifi af eigin reynd. Skipað-
ist svo, að eg kæmi hingað og
flytti fyrirlestra iá vegum Há-
skólans“.
„Og þeir fjalla um húsgerð-
arlist?“
„Já, alt frá því á dögum
Grikkja og Rómverja og eins
langt fram eftir öldum og eg
kemst, sennilega alt til 18. eða
19. aldar, ef tími vinst til.
Fyrsti fyrirlesturinn verður á
mánudag og verða tveir fyrir-
lestrar á vilcu hverri fram í
nóvember, en eg fer héðan um
miðbik nóvembermánaðar.
Seinustu tveir fyrirlestrarnir
munu að likindum fjalla um
herragarða-liúsag'erðarlist á
Skáni, bæði á þeim tíma, er
Skánn tilheyrði Danmörku, og
siðar“.
„Hvernig líst yður á Island
við fyrstu kynni,“
„Eg hefi aðeins verið hér tvo
daga. En eg varð þegar við
fyrstu kynni — er við komum
til Vestmannaeyja, hrifinn af
mikilfengleik íslenslcrar nátt-
úru. Heimaklettur er mjög til-
komumikill. Og mér þótti
furðulegt, er hingað til liöfuð-
staðarins kom, liversu mikið
líf var hér og urnferð. Einkum
furðaði eg mig á bílaumferð-
inni“.
„Finst yður ekki húsagerðin í
bænum ósamræmileg ?“
„Manni finst þegar, að i þessu
efni sé dálítill Klondykebragur
á bænum, þ. e. að margt beri
vitni um mjög öran vöxt. En eg
hefi þegar veitt eftirtekt fögr-
um og sérkennilegum húsum, t.
d. Þjóðleikliúsinu, sem þvi mið-
ur stendur alt of nærri Lands-
bókasafninu. Nýju háskóla-
bygginguna hefi eg þvi miður
ekki séð enn. Alþingishúsið
vakti þegar athygli mína og
konu minnar. Það minti okkur
þegar á réttarbygginguna í
Jönköbing, en það er hús af
svipaðri stærð, reist 1670. Við
vorum mjög hrifin af nnálverk-
um þeim, sem við sáum i sölum
og hliðarherbergjum þingsins..
— Ein hinna nýrri bygginga,.
sem vakti hrifni mina, er Sund-
höllin. Og það finst mér mjög
til fyrirmyndar, að allir hafa
aðgang að henni frá því
snemma á morgnana, og geta
því synt þar jafnvel áður en þeir
fara að vinna — eða eftir vinnu.
Þar sem eg þekki til eru suiuL
Frh. á 4. síðu.