Vísir - 29.10.1938, Blaðsíða 2
V IS IR
VÍSIR
DAGBLAB
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Rauðu þingin
KlNGUM rauöliða er nú lok-
K ið.—
Þingi kommúnista eða ný-
socialista var slitið í fyrrakvöld
og iiafði þá tekist að koma sam-
an nafni á hinn „nýja flokk“.
Á flokkurinn að heita hvorki
meira né mhma en: „Samein-
ingarflokkur alþýðu — Social-
istaflokkurinn", að því er blað
kommúnista skýrir frá í gær.
Einnig segir hlaðið frá þvi, að
tveir hafi verið kosnir formenn
floklcsins og miðstjórnar hans,
þeir Héðinn Valdimarsson og
Brynjólfur Bjarnason. Mun
ekki annáð hafa þótt hlýða, en
að formennirnir væri tveir með
tilliti til flokksnafnsins. Mun
Héðinn einkum ætlað að hafa
forystu fyrir sameiningunni en
Brynjólfi fyrir socialismanum.
Jafnmargir varaformenn voru
kosnir eins og aðalformenn. í
þær virðingarstöður voru kosn-
ir þeir Einar Olgeirsson og Sig-
fús Sigurhjarlarson. En auk
þessara fjögra formanna og
varaformanna voru sjö menn
aðrir kosnir i miðstjórn flokks-
ins, en flokksstjórnina skipa 33
menn. Annað eða meira cn
þetta, lætur blað kommúnisía
að svo stöddu ekki upp urn
þingslörfin.
Þingi uppgjafa-socialista.nna,
þeirra Stefáns Jóhanns og fé-
laga hans, var slitið í fyrrinótt.
Hefir Alþýðublaðið sagt frá
störfum þess þings undanfarna
daga og lauk þeirri frásögn í
blaðinu í gær. í beinu f'ramhaldí
af þeirri frásögn tilkynnir Odd-
ur Sigurgeirsson Iesendum
blaðsins, að hann eigi 59 ára
afmæli í dag. Segist Oddur einu
sínni hafa verið „tekinn fastur“
óg síðan „dæmdur á Klepp“
fyrir að „húðfletta alt aftur-
hald“. Fer þannig ekki illa á
því, að afmælis Odds sé minst
í sambandi við þetta þinghakl
þeirra Stefáns Jóhanns.
Ein af „ályktunum“ þessa
þings er á þá leið, að „skora
á ríkisstjórn og Alþingi að taka
í sínar héndur hitaveitumál
Reykjavíkur þar sem það hafi
sýnt sig, að meirihluti bæjar-
stjórnar þar sé þess algerlega
ómegnugur að leysa það mál“.
En þó að uppgjáfa-socialistarn-
ir hér i Reykjavík hafi marg-
sinnis gert sig að fíflum í aug-
um alls almennings með svip-
uðum ályktunum í hitaveitu-
málinu, þá hefði mátt vænta
þess, að þeir gerðu sér ekki leik
að því, að óvirða „allsherjar-fé-
lagsskap“ verkalýðsins í land-
inu með því að skjalfesta í þing-
tiðindum lians svo flónslegan
dóm um mál, sem þann félags
skap brestur öll skilyrði til að
dæma um. En engin málsbót
er þeim að þvi, þó að tilgang-
ur þeirra með þessu hafi verið,
að „húðfletta“ meiríhluta bæj-
arstjórnarinnar i Reykjavik, að
dæmi Odds Sigurgeirssonar,
þegar hann var að „húðfletta alt
afturhald“, og var „dæmdur á
KIepp“ fyrir það.
Einhverntíma kemur ef til vill
að þvi, að Alþýðusamhandið á
59 ára afmæli, eins og Oddur
á í dag, og þvi gefast þá einnig.
tilefni til að líta yfir liðið æfi-
skeið, eins og honum nú. Verð-
ur þá margs að minnast, og
meðal annars þessarar þings-
ályktunar. En þó að það verði
nú hvorki „tekið fast“ né
„dæmt á Klepp“ fyrir þá á-
ljrktun, þá er þó óvíst að það
verði þá eins hróðugt yfir henni
eins og Oddur er nú yfir afrek-
uni sínum á liðinni æfi. Og cf
til vill kynni þvi þá að þykja
sem það hefði átt það skilið, að
vera „dæmt á Klepp“ fyrir
liana. Og þó er ekki með öllu
synjandi fyrir það, ef það á að
liggja fyrir fulltrúum þingsins
mann fram af manni, að fara
altaf heimskari lieim af þingi
en þeir komu, að það fari þver-
öfugt, og því verði haldið þeg-
ar fram liða stundir.
ÞjóSverjar reyna varn-
arvirki Tékka.
Þjóðverjar vinna að því vís-
indalega að eyðileggja varnar-
virki Tékka með stórskothríð
og dynamitsprengjum. Á þann
hátt munu þeir kynnast frönsku
Maginotlínunni betur en Frakk-
ar sjálfir, því að virki Tékka eru
bygð eins og Maginotvirkin.
Jarðsjálftamælar eru notaðir
til þess að mæla titringinn, sem
orsakast af hverri sprengingu
undir fallbyssuturnunum úr
stáli og steini.
Fyrsta dynamitsprengjan er e.
t. v. ekki nógu sterk, en þá eru
notaðar sterkari, þangað til ein
þeirra eyðileggur það sem til er
ætlast.
Þá vita Þjóðverjar hve mikið
þeir þurfa af sprengjuefni til
þess að eyðileggja eitt virki.
Stórskotaliðið skýtur í sífellu
á neðanjarðargöngin milli virkj-
anna, og skotfærabirgðanna,
sem eru neðanjarðar og það er
aðgætt nákvæmlega, hver áhrif
skotin hafa. Á þann hátt kom-
ast Þjóðverjar að því, hvaða
gerðir og stærðir fallbyssna þeir
eiga að nota, til að hindra skot-
færaflutning að virkjunum,
Þegar hernaðarsérfræðing-
arnir hafa kynst því, sem þeir
þykjast þurfa, verða pólitískir
fangar, sem safnað hefir verið
saman í stærstu borg Sudeta,
Reichenberg, látnir ljúka við að
eyðileggja virkin. Fyrir mánuði
síðan gortuðu sumir fanganna
af því, að virkin myndi verða
Verdun næsta stríðs.
Tékkar munu ekki Ieggja
nýjar jámbrautir í stað þeirra,
sem nú liggja um land Þjóð-
verja. Hraðlestin milli Prag og
Briinn fær að fara um þýzka
grund, en þýzk lögregla fylgir
henni.
(D. E. 19. okt.)
Reykvíkingar!
Á sunnudaginn kl. 5 e. h. gefst
ykkur kostur á — eins og svo oft
áður —, að sýna velvild ykkar og
hugarþel til ungmenna og æskuiýðs
þessa bæjar; því þá verður að til-
hlutun Bræðrafélags Fríkirkjusafn-
aSarins haldin samkoma, fjölbreytt
að efni, til ágóÖa og eflingar kristi-
legri starfsemi meðal barna og ung-
linga safnaðarins. Er þess vænst,
að allir. þeir, er nokkuð láta sig
skifta heill og framtíðarvelferS
æskulýðsins, Sæki þessa samkomu,
og fylli kirkjuna svo, að helsf hvert
sæti verði skipað. Væri slíkt ekki
nema makleg viðurkenning til þeirra
er fyrir þessu standa, auk þess, sem
það er stuðningur við gott inálefni.
Aðgöngumiðar verða að sjálfsögðu
seldir í bókabúðum og við inngang-
inn.
Portúgal og Sambandsnýlendar Snðnr-Afrikn mpda
með sér varnarbandalag gegn yfirgangi Þjóðverja
Samkomulag nádist nm
þetta millum Salazap og
Pirow iiermálaFádiieFra
Sudup-Afriku.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Fréttaritari United Press í Lissabon hefir það eft-
ir öruggum heimildum að Portúgal ogf sam-
bandsnýlendurnar í Suður-Afríku ætli að taka
sín á millum upp nána samvinnu í því augnamiði að
koma á.fót varnarbandalagi gegn Þjóðverjum, ef svo
kunni að fara að þeir gerðu innrás í nýlendur þessar,
eða reyndu að ná fyrri nýlendum sínum með hervaldi.
Er talið að fult samkomulag hafi náðst í þessu efni í
viðræðum, sem þeir hafa átt að undanförnu, Pirow,
hervarnarmálaráðherra sambandsnýlendanna, í Suður-
Afríku og Salazar, forsætisráðherra í Portúgal.
f viðræðunum mun Pirow hafa haldið fast við þá ákvörðun
stjórnar sambandsnýlendanna, að undir engum kringumstæð-
um gæti það koinið til greina að Þjóðverjum yrðu afhentar
hinar fyrri nýlendur sínar, en að öllum kröfum þeirra í þá átt
yrði að hafna skilyrðislaust. Bauð Pirow Salazar að hann skyldi
hlutast til um við stjórn sína að stjórnir sambandsnýlendanna
í Suður-Afríku ábyrgðust að vernda og verja hinar portugölsku
nýlendur Angola og Mozambique gegn hugsanlegum innrásum
frá hendi Þjóðverja.
I viðræðunum mun Salazar hafa lagt megináherslu á það, og
fullvissað Pirow um, að það kæmi aldrei til greina að Portugal
afhenti nokkurn hluta af nýlendum sínum til nokkurrar ann-
arar þjóðar, hvað sem í boði væri.
Portúgölsku nýlendurnar,
sem að ofan greinir, eru næstar
sambands nýlendum Breta í
Suður-Afríku.
Angola liggur á milli Kongo
að norðan, Rhodesíu að austan
og þýsku nýlendanna að sunn-
an. Angola er að stærð ca.
1.200.000 km.2, en íliúar ný-
lendunnar eru á 4. miljón.
Helstu framleiðsluvörur ný-
lendunnar eru: Maís, kaffi, sylc-
ur, gúmmí og kokoshnetur. í
jörðu er gnægð af kolum, kop-
ar, járni og jarðolíu. Höfuð-
borg nýlendunnar hefir verið
frá árinu 1928 Nýja Lissabon,
sem áður hét Humabo.
Mozambique er um 700 þús.
km.2 að stærð og liggur á milli
Tanganyika að norðan, Rliodes-
iu að vestan og Transvaal að
vestan og sunnan. Fóllisfjöldi
er ca. 314 miljón. Helstu fram-
leiðsluvörur nýlendunnar eru:
Sykur, maís og baðmull. Beira
er höfuðborgin.
Báðar þessar nýlendur hafa
mikla þýðingu f-yrir Portugal
vegna ln-áefna þeirra, sem það-
an flytjast.
United Press.
Fjöldi stórhýsa í Mar-
seille brenna til kaldra
kola.
Skjöl frönsku ráðherranna bjargast
með naumindum. Þingi jsosíal-
radikala-fiokksins frestað.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Stórkostlegur eldsvoði varð í miðhluta Marseille
í gær og brann f jöldi húsa til kaldra kola, en
margir menn slösuðust og nokkrir biðu bana.
Eitthvert stærsta verslunarhús borgarinnar, Nou-
velles Galeries brann til kaldra kola og Hótel Noailles
gereyðilagðist, en þar mun eldurinn hafa komið upp.
í þessu gistihúsi bjuggu þeir Daladier forsætisráð-
herra Frakka, Bonnet utanríkismálaráðherra og Mar-
chandeau fjármálaráðherra, og bar eldinn svo bráðan
að, að með naumindum tókst lögreglunni að bjarga
farangri þeirra, en þar á meðal voru ýms mjög mikil-
væg skjöl, sem þeir ,höfðu haft meðferðis á fund radi-
kalsocialistaflokksins, sem stóð yfir þar í borginni.
Fjöldi af öðrum fulltrúum flokksins bjuggu í hótelinu
og mistu margir allan farangur sinn í eldsvoðanum.
Daladier bar fram tillögur á flokksþinginu í gær um
það, að því skyldi frestað vegna þessa óvænta atburðar
og var það samþykt, en mun væntanlega koma bráð-
lega saman til funda að nýju.
Seint í gærkveldi hafði slökkviliði Marseille og ná-
grannaborga tekist að ráða bug á eldinum. Tjónið er
gífurlegt, en ekki verður fullyrt neitt með vissu hve
miklu það muni nema.
United Press.
BONNET OG DALADIER
og sendiherra Frakka í London, Charles Corbin, yst til hægri
á myndinni.
V*
vegna ágreinings um stofnun nýs ráðuneytis. — Á-
greiningur þessi tefur endurskipulagningu stjórnar-
innar, sem verður að vera lokið áður en þing kemur
saman.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Bresku stjórninni virðist œtla að veitast nokkuru erfið-
legra að ná samkomulagi um endurskipulagningu
ráðuneytisins en menn höfðu búist við, en það veltur
á miklu fyrir Chamberlain, að hafa einhuga stjórn að baki sér,
er þingið kemur saman þ. 8. nóvember. Enda þótt stjórn hans
eigi öruggan þingmeirihluta vísan veikir það aðstöðu Cham-
berlain’s, ef framhald verður á því, að erfitt verður að ná sam-
komulagi innan stjórnarinnar um mikilvæg mál, ekki síst á
jafn viðsjárverðum tímum og núna, en breska þingið fær nu
mörg stórmál til meðferðar, sem miklum deilum valda. Meðal
þessara mála eru bresk-ítalski sáttmálinn, nýlendukröfurnar,
vígbúnaðarmálin o. m. fl. Stjórnmálamenn í London eru þeirrar
skoðunar, að allalvarlegur ágreiningur sé upp kominn innan
stjórnarinnar.
Samkvæmt því, sem United Press hefir fregnað, er stjórnin
klofin vegna ágreinings um hvort nauðsynlegt sé, að sérstakt
ráðuneyti hafi með höndum að sjá um, að nægar birgðir sé
ávalt til af nauðsynjum og fara með yfirstjóm þessara mála.
Vegna ágreinings þessa hefir enn ekki náðst samkomulag
um endurskipulagningu stjórnarinnar sem búist var við að
samkomulag mundi greiðlega nást um, en nú gæti svo farið,
að erfitt yrði að ganga frá henni, áður en þing kemur saman,
en á það verður lögð hin mesta áhersla af Chamberlain, að al-
gert samkomulag náist Iim öll ágreiningsatriði, áður en þing
kemur saman.
LOFTVARNARRÁÐSTAFANIR 1 KAUPMANNAHÖFN.
í hinum ýmsu borgarhlutiím Kaupmannaháfnar hefir verið
komið fyrir loftvarnaklukkum, sem til heyrist i tveggja lriló-
metra fjarlægð. Þegar er þær byrja að lála til sín heyra eiga
borgarbúar að leita skjóls á stöðum þar sem þeir geta verið
óliultir.
J