Vísir - 04.11.1938, Page 2
2
V 1 S I R
Föstudaginn 4. nóvember 1938
OAGBLAÐ
Utgcfandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Reynsla Dana œtli að verða
oss að kenningu. Frjálsum inn-
flutningi fylgir lækkað vöru-
verð. Þjóðin verður að heimta
breytingu á liinum heimskulegu
innflutningshöftúm og liún
verður að reka af höndum sér
framsóknar-siðspillinguna, sem
enginn lieiðarlegur maður getur
lengur minst á kinnroðalaust.
TIiof Thors í
New York,
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Reynsla Dana
JlANSKA blaðið „Berlingske
^ Tidende“ ritar 23. f. m. um
innflutningshöftin þar í landi á
þessa leið: „í sjö ár hefir ríkis-
stjórnin framkvæmt víðtæk og
harðsnúin innflutningshöft. Á
einu ári hefir sannast með
frjálsum innflutningi margra
vörutegunda, að 40% af ákvæð-
um haftanna mátti sleppa án
nokkurs skaða á einn eða annan
hátt. Sjö ára verðhækkunar-
tímabil, sem ekki á sinn líka í
sögu landsins, hefir með 12
mánaða frjálsum innflutningi
reynst að vera fórn, sem al-
menningur hefir fært skipu-
laginu, án þess að fá nokkuð í
staðinn sem réttlætti fómina“.
Hinn 9. okt. s.I. birtir New
York Tribune viðtal við Thor
Thors alþingismann, sem þá var
nýkominn til New York, til þess
að starfa að undirhúningi Is-
landsdeildar heimssýningarinn-
ar í New York.
í viðtalinu rekur Thor land-
námssögu Islancls ogGrænlands,
fund Ameríku og viðskifti Is-
lands og Grænlands fram ^gftir
öldum. Yfirlit þetta er mjög
skýrt og greinargott, svo sem
vænta mátti, en frá hendi blaðs-
ins liefir svo slysalega til tekist,
að í fyrirsögninni stendur, að
írskur maður hafi fyrstur fund-
ið Ameríku, en á auðvitað að
vera íslenskur, og ber greinin
það með sér að öðru leyti, þann-
ig að á engan hátt verður um
vilst.
Leggur Thor megináherslu á .
það, að þótt Leifur Eiríksson
liafi verið norrænn, hafi liann
eklci verið Norðmaður, heldur
íslendingur og rekur sögu hans
í aðalatriðum.
Þetta eru mjög atliyglisverð
orð. Þetta er reynsla dönsku
þjótSarinnar á höftunum. Danir
eru nú að komast að raun um
það, að höftin hafa verið þjóð-
arböl. Fyrir einu ári var inn-
flutningur gefinn þar frjáls á
fjölda mörgum vörutegundum.
Innflutningur þessara vara hef-
ir ekkert aukist en verðið hefir
stórlækkað á hverri vöruteg-
und sem gefin var frjáls.
Hér á landi er þessum málum
stýrt á annan veg. Hér ráða að-
allega tvö sjónarmið, pólitískir
hagsmunir annarsvegar og hins
vegar glámskygni lítillar þekk-
ingar. Höftin hafa liér aldrei
náð tilgangi sínum. Þau sjö ár
sém þau liafa staðið hefir gjald-
eyris-ástandið farið versnandi
með hverju ári. Aldrei hefir það
verið jafn ilt og nú og aldrei
hefir dýrtíðin verið meiri. Á
liverju ári hefir verið tilkynt af
fjármálaráðherra, að enn skyldi
hert á höftunum. Samt hafa
höftin aldrei verið fjær en nú
að ná því marki sem þeim var
sett, að ná greiðslujöfnuði við
útlönd. Aldrei munu þau ná því.
En þau hafa skapað og munu
skapa dýrtið, sem engin verð-
lagsnefnd getur bugað.
Innflutningshöftin og öll sú
spilling sem þeim er samfara,
Ijóst og Ieynt, er þyngsti skattur
sem nokkurn tíma hefir verið
Iagður á þjóðina. Og lands-
menn verða að standa undir
þessari byi'ði frá ári til árs
vegna þess að hinn pólitíski
flokkur kaupfélaganna í land-
inu notar höftin sem verkfæri
til að útrýma allri kaupmanna-
verslun og færa verslunina i
liendur kaupfélaganna. Þau eru
sem kunnugt er hinn pólitíski
bakhjarl Framsóknarflokksins.
Þess vegna eru nú félögin efld
með innflutningshöftunum, þótt
það kosti þjóðina milda fórn.
Aldrei hefir og aldrei mun
Framsóknarflokkurinn eignast
aðra eins mjólkurkýr og inn-
flutningshöftin. Hann græðir
meðan þjóðin tapar.
Bálfarir í
Vepmalandi.
I Karlstad hefir nýlega verið
reist bálstofa — sú fyrsta í
Vermalandi. Svo er til ætlast,
að frá þessu nýja liúsi fari all-
ar bálfarir fram — eins þó lík-
ið væri jarðsett. I bálstofunni er
líkgeymsla, til þess að fi-amliðn-
ir þurfi ekki að standa uppi í
heimahúsum; slíkt er mjög að
leggjast niður erlendis. Bál-
stofan í Iíarlstad er að öllu
leyti rekin með rafmagni. Líkið
er brent í rafmagnsofni, húsið
er raflýst og rafhitað, hljóðfær-
ið rafmagnsorgel (Hammond-
orgel). í kapellunni era sæti
fyrir 140 manns, og þykir það
rúmgott, þar eð útfarir eru ekki
eins fjölsóttar erlendis sem hcr
á landi.
Stofnunin var reist með for-
göngu bálfarafélagsins í Karl-
stad. Úr ríkissjóðnum sænska
voru veittar 36.000 kr. til bygg-
ingarinnar. Bálstofan var vígð
af biskupinum Arvid Runestam
þ. 8. sept. s. 1. að viðstöddu
ýmsu stórmenni. — Uin kvöld-
ið bauð bálfarafélagið og sókn-
arnefndin til samsætis á einu
hóteli bæjarins. Fluttu þar töl-
ur dr. F. Bauer yfirherlæknir,
og Vennerström landsliöfðingi
í Vermalandi, sem margir ís-
Iendingar munu kannast við. —
Fyrir tíu árum voru að eins 3
bálstofur í Svíþjóð, nú eru þær
21, og nokkurar í smíðum.
(Tilkynning frá Bálfarafé-
lagi íslands. — FB.).
H J ÚKRUN A RKVENN A-
BLAÐIÐ
er nýlega komið út. Flytur
það m. a. minninagrorð um
Guðnýju Jónsdóttur yfirhjúkr-
unarkonu í Kristnesi, fyrirlestur
eftir Kristinn Stefánsson lækni
um „vitamin“ og niðurlag grein-
ar Ilelga Ingvarssonar Iæknis
um lungnaberkla, o. fl. o. fl.
Þjóöverjar og Itatir ábyrgjast landa-
mæri Sldvakíu og Ungverjalands.
Nágpannaþjódipnip hefði
skift landinu milli sin, ef
samkomulag tiefdi ekki
nádst í Miinchen.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Frá Prag er símað, að Tiso, forsætisráðherra Sló-
vakíu hafi flutt útvarpsræðu í gærkveldi, í til-
efni af því, að gerðardómurinn hefir verið
upp kveðinn í deilu Ungverjalands og Tékkóslóvakíu.
í ræðu sinni lýsti forsætisráðherrann yfir því, að ríkis-
stjórnir ítalíu og Þýskalands hefðu tekist á hendur að
ábyrgjast hin nýju landamæri Tékkóslóvakíu og Ung-
verjalands.
í ræðu sinni lýsti forsætisráðherrann ennfremur yfir
því, að samkomulaginu í Munchen mættu Slovakar
þakka það, að ríki þeirra var ekki bútað sundur. Hefði
samkomulagið ekki verið gert, hefðu þær þjóðir, sem
höfðu augastað á Slóvakíu, flýtt sér að hrifsa til sín hér-
uð Slóvakíu, og mætti geta nærri hvaða afleiðingar það
hefði haft, en þegar alt hefði verið um garð gengið
hefði Slóvakía ekki lengur verið til.
Um gerðardómsniðurstöðuna er það annars að segja, að engin
þeirra þjóða, sem hlut eiga að máli, er ánægð með úrslitin.
Eins og framanrituð ummæli bera með sér eru Slóvakar ánægð-
ir yfir því, að þeir hafa þó ekki orðið ver úti en raun varð á, en
þeir óttuðust um skeið að missa borgina Bratislava, sem Ung-
verjum lék mjög hugur á að fá. En eins og eðlilegt er þykir
Slóvökum og Rúthenum sárt að þeir hafa orðið að láta lönd
og borgir í hendur Ungverja sem þeir töldu sér ómissandi. Ung-
verjar hafa borið meira úr býtum en ýmsir ætluðu, en ekki
nándar nærri eins mikið og þeir gerðu sér vonir um, því að þeir
vildu fá Rútheníu og þannig land að Póllandi, en Þjóðverjar
voru mótfallnir þeirri kröfu og náð hún því ekki fram að ganga.
Pólverjar eru jafngramir og Ungverjar yfir, að þessari kröfu
Ungverja var hafnað og í Varsjá er litið svo á, að þetta mál
hafi ekki verið endanlega afgreitt. Er þó hæpið, að Pólverjar
og Ungverjar hafi sig meira í frammi fyrst um sinn í þessu
máli, þar sem ítalir og Þjóðverjar ábyrgjast, að hin nýju landa-
mæri verði ekki skert.
í Prag eru menn þeirrar skoðunar, að ýms mál, vandasöm
úrlausnar, muni nú koma í Ijós, vegna þess hversu aðstaða
Rutheníu verður erfið, einkum að því er samgöngur við aðra
hluta hins nýja sambandslýðveldis snertir. Er 'nú unnið af
kappi að endurskipulagningu á ýmsum sviðum og allir gera
sér vonir um, að hið nýja sambandsríki komist sem fyrst á
traustan grúndvöll. Verða sambandslýðveidin 3, lýðveldi Tékka,
Slóvaka og Rúthena. íbúatala hins nýja sambandsríkis vérðúr
um 10 miljónir en íbúatala Tékkóslóvakíu var 15—16 miljónir.
| : United Press.
LEBRUN RÍKISFORSETI
Frakklands fór fyrir nokkuru til Bretagne og var mynd þessi
tekin í Saint Brieuc, fornkunnri borg í Coees-du-Nord, er íhú-
arnir þar fögnuðu lionum við komuna. Stúlkan með hvita höf-
uðbúnaðinn er í þjóðbúningi kvenna í Brétagne.
Sex manns,-tvö börn-
brenna til bana.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgrun.
Igær brann stór farþegabifreiðhjábænumCarcas-
sonne á Suður-Frakklandi og brunnu sex
manneskjur til bana. Þar á meðal voru tvö
börn. Auk þess skaðbrendust fimm farþegar svo, að
þeir munu bera þess merki alla æfi.
Slysið vildi til með emkennilegum hætti. Bifreiðin var á all-
hraðri ferð, er afturöxullinn hrökk í sundur. Flaug hjólið af
við þetta og féll bíllinn niður þeim megin. Við höggið kviknaði
í vara-bensíngeymi bílsins og skifti það engum togum, að hann
varð alelda.
Þeir farþeganna, sem næstir voru dyrunum björguðust út
um þær, en flestir urðu að forða sér út um glugga bifreiðar-
innar. United Press.
Carcassonne stendur við ána
Aude, 57 mílur enskar eða rúm-
lega 90 kílómetra frá Toulouse
og er hafnarborg við Canal du
Midi. Eldri hluti borgarinnar
stendur á hæð á hægra (syðri)
bakka fljótsins, nýja borgin
stendur á vinstri bakkanum. —
Carcassonne er heimsfræg fyrir
víggirðingar sínar, sem þykja
gefa mjög rétta hugmynd um
það, hvernig borgir voru víggirt-
ar á miðöldum. Á múrunum eru
54 turnar og tvö hlið. Ibúatalan
er rúmlega 30.000.
Canal du Midi liggur frá Tou-
louse til Miðjarðarhafsins við
Warboune og er um 240 km. á
lengd. Skurðurinn var grafinn á
15 árum, 1666—1681.
Poncet sæmdur
heiðursmerki.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
I.ondon í morgun.
Lebrun, forseti franska lýð-
veldisins, veitti áheyrn í gær
Francois Poncet, sendiherra
Frakka í Berlín þar til nú fyrir
skemstu, en Poncet verður nú
sendiherra Frakka í Rómaborg.
Hafa Frakkar ekki haft þar
sendiherra úm alllangt skeið,
sem kunnugt er, og þar sem nú
er verið að reyna að sætta
Frakka og ítali, er það. talin
mjög hyggileg ráðstöfún, áð
Poncet verður sendiherra í
Róm, en hann er í miklu áliti
meðal Þjóðverja og hafði Hitler
sjálfur mætur á honum.
Lebrun sæmdi Poncet stór-
riddarakrossi frönsku heiðurs-
•( L * J ’v» j *' j T , , • < • .
fylkingarinnar.
United Press.
Gamelín í eítirlits-
ferð f Tanis.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
Gamelin yfirhershöfðingi
Frakklands og Darlan vara-að-
miráll eru nú í eftirlitsferð um
Tunis, nýlendu Frakka í Norð-
ur-Afríku. Hafa þeir heimsótt
ýmsar horgir og hvarvelna ver-
ið tekið með lcostum og kynj-
um. Víða hafa heiðursbogar
verið reistir og horgirnar
skrýddar á annan hátt þeim til
heiðurs.
Þeir Gamelin og Darlan
heimsækja allar lielstu setu-
liðsstöðvar í landinu.
För þessi er talin munu
styrkja taugarnar milli Tunis og
Frakklands.
í Tunis er mikill fjöldi
ítalskra manna og liefir stund-
um verið sagt, að Mussolini
hefði augastað á Tunis.
United Press.
Kosningarnar i Englandl
og Wales.
Lokaniðnrstaða.
Oslo 2. nóv.
Lokaniðurstaða bæjar- og
sveitarst j órnai’kosninganna í
Englandi og Wales er nú fyrir
hendi. íhaldsmenn liafa unnið
37 sæti, tapað 14, frjálslyndir
unnið 14, taþað 16, Verklýðs-
flokkurinn unnið 62, tapað 79,
óliáðir unnið 40, tapað 41. —
NRP—FB^
HERMDARVERK 1 ÞÝSKU
SKIPI. ÞAÐ STÓRSKEMD
IST AF VÖLDUM SPRENG-
INGÁR.
London i morgun.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
Frá Oakland í Kaliforníu er
símað, að stórkostleg spreng-
ing hafi orðið í þýska skipinu
Vancouver“, sem er 8269
smálestir að stærð. Stór-
skemdist það. — Sprengingin
varð skömmu eflir að skipið
lét úr höfn. Kom gat á hlið
skipsins og heyrðist hvellur-
inn Iangan leiðir. Var skip-
inu siglt upp í fjöru eftir að
sprengingin varð, því að ótt-
ast var að það inundi sökkva.
Er nú verið að slökkva eld-
inn. Á skipinu var 60 manna
áhöfn og 17 farþegar og greip
menn felmtur mikill. Fjórir
farþegar særðust. Nokkurir
farþeganna urðu gripnir mik-
illi taugaæsingu.
Lögreglan er að rannsaka
ívort um hermdarverk sé að
ræða, vegna þess að maður,
sem menn enn vita eklci deili
S, símaði til fréttablaðsins
Oakland Trihune, áður en
sprengingin varð, og sagði að
skipið mundi eyðileggjast af
völdum sprengingar.
United Press.