Vísir - 14.01.1939, Page 2
V ISÍ H
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
ELAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2'834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Úígerðar-
töpin.
er talið, að rekstrarlialli
togaraútgerðarinnar hafi
numið 6 miljónum króna á 5
árum. E’n með því er ekki nema
„liálfsögð sagan“ um taprekstur
útgerðarinnar. Sú saga er ekki
einu sinni hálfsögð með þessu,
því að bæði er taprekstrartíma-
bilið orðið lengra en 5 ár og
það er ekki að eins togaraút-
gerðin, sem. rekin hefir verið
með tapi, heldur yfirleitt allar
fiskveiðar landsmanna.
Frá og með árinu 1930 mun
hafa orðið meira og minna tap
á útgerðinni á hverju ári. Og
alt þetta tíniabil, sem útgerðin
hefir verið rekin með tapi, hefir
ekki að eins útgerðin, eða þeir,
sem hana stunda, heldur öll
þjóðin verið að tapa. Hinsvegar
virðist þó svo, sem valdhöfun-
um í landinu hafi ekki skilist
það til fullnustu, að það þyrfti
á nokkum liátt að koma til
þeirra kasta, að kippa þessu í
lag, eða að þeim væri nokkur
annar vandi á höndum i sam-
handi við taprekstur útgerðar-
innar, en áð stöðva sem fyrst
rekstur þeirra fyrirtækja, sem
söfnuðu mestum skuldum í
bönkunum, og hafa þannig
komist í „óreiðu“ þeii-ra og
„fjársukk“! Og að sjálfsögðu á
að setja nægilega ströng „gjald-
þrotalög, svo að forstöðumenn
fyrirfækjanna kæmust ekki
undan verðskuldaðri refsingu!
Nú er nokkur breyting að
verða á þessu og valdhafarnir
virðast vera farnir að gera sér
einhverja grein fyrir því, að af-
koma útgerðarinnar muni varða
þjóðarheildina svo miklu, að
ekki muni stoða að láþ það
með öllu afskiftalaust, hvernig
henni vegnar eða um hana
kann að fara. Hinsvegar er ekki
um það að villast, ef það verður
nú úr því að eitthvað verði gert
útgerðinni til viðreisnar, að þá
líta valdliafarnir svo á, að það
sé fyrst og fremst gert í þágu
útgerðarinnar og „aðstandenda“
hennar, en ekki svo mjög af al-
mennri nauðsyn.
í blöðum stjórnarfIokkanna
er [jessa dagana talað um það,
að „ef þjóðin eigi að leggja á
sig „þungar byrðar“ vegna út-
gerðarinnar, þá verði útgerðin
og aðstandendur liennar, og
jafnvel [>eir, sem einhverra or-
saka vegna kynnu „að vilja“ að
hún stöðvaðist ekki, að „færa
fórnir“. En hvaða fórnir geta
aðstandendur útgerðarinnar
fært henni, meiri en þeir hafa
gért, méð því að fórna henni
ölHun eigrium sinum?
Það er einmitt útgerðin, sem
á undanförnu viðreisnártíma-
bili þjóðarinnar hefir borið
byrðar þjóðfélagsins og verið
undirstaða allra framfara í
landinu, eins og forsælisráð-
lierrann sagði 1. desember. Á
siðustu erfiðleikaárum útgerð-
arinnar hafa aðstandendur
hennar lagt allar eignir sínar í
sölurnar, til þess að hún gæti
haldið áfram að vera þesSÍ und-
irstaða framfaranna og vel-
megunarinnar í landinu. Nú
eru þeir að þrptjam komnir, cn
þá eiga þakkirnar, sém þeir fá
fyrir það að hafa horið byrðar
þjóðfélagsins, að vera þær, að
alt verður af þeim tekið. Og
sennilega er litið svo á af vald-
höfununi, að þeir megi vera
þakldátir fyrir það, ef þeir verði
látnir sleppa við þungar refs-
ingar!
Útgerðin hefir tapað miklu
fé og á lienni hvíla miljóna-
skuldir í bönkunum. En það er
þó enginn vafi á því, að ef
reikningar liennar væru rétt
gerðir upp, þá yrði niðurstaðan
sú, að hún ætti óteljandi mill-
jónir inni hjó þjóðinni. Og
hvernig ætti þjóðin að geta ris-
ið undir þeim byrðum, sem á
hana yrðu lagðar, ef útgerðin
færi gersamlega í kaldakol? —
SkíðafeFÖir
um helgina.
Flest félögin fara nú í skíða-
ferðir um helgina, svo að um
fleiri staði er að velja en sítSast,
er aðeins tvö félög fóru.
Ármann í Jósefsdal. í kveld
kl. 8 og fyrramálið kl. 9. Far-
miðar i Brynju til kl. 6 og á
skrifstofu félag'sins k.l 7]/2—9
c. h.
Í.R.-ingar að Kolviðarhóli. —
Lagt upp frá Söluturninum kl.
9 i fyrramálið. Farmiðar i Stál-
húsgögn, Laugavegi 11.
K.R.-ingar fara kl. 8 í kveld
og 9 í fyrramálið. Farseðlar
fást í versl. Har. Árnasonar.
íþróttafélag kvenna í skála
sinn. Lagt upp kl. 9 frá Gamla
Bíó. Farmiðar fást í Höddu,
Laugavegi 4, til kl. 6.
Skíðafélag Reykjavíkur legg-
ur upp ld. 10 í fyrramálið, ef
veður leyfir, frá Austurvelli.
lincolii [IMh íinnor
nfti iand.
Oslo 13. jan.
Lincoln Ellsworth hefir sent
loftskeyti frá hækistöð sinni á
suðurheimsskautssvæðinu þess
efnis, að undanfama daga hafi
verið flogið yfir nýtt land þar
syðra og er það um 260.000 fer-
hyrningskilómetrar að flatar-
máli. Ellswortli hefir helgað
Bandaríkjunum landið. Hvaða
afstöðu Bandaríkjastjóm tekur
til þessa er enn óvíst. NRP—
FB.
Rlkissknldir Norö-
maw.
Oslo 13. jan.
Satnkv. framlögðum skýrsl-
um um hag norska ríkisins hafa
ríkisskuldimár á síðasta fjár-
hagsári verið lækkaðar um 64
milj. króna og nema nú 1428
milj. króna. NRP—FB.
Átökin miili einræöis- og lýðræðisrfkjanna byrja,
þegar Franco hefir sigrað
segir Mn@ Tabouis í L’Oeavre.
EINKASKEYTI TIL VlSIS. ;
•• London, í morgun.
Allmiklar áhyggjur koma fram í blöðum víða um
heim í dag út af horfunum í alheimsmálunum,
nú þegar viðræðurnar í. Rómaborg eru um
garð gengnar, með neikvæðum árangri. Hin mesta tví-
sýna ríkir um framtíðina og kemur það glögt fram til
dæmis í frakkneskum blöðum í morgun. Það, sem blöð-
in ræða um, er hvað gerast muni nú, er viðræðunum í
Rómaborg er lokið, en blöðin segja um það, að það
hafi verið vitað fyrirfram, að þær mundu engan já-
kvæðan árangur bera.
Mme Tabouis segir í L’Oeuvre, að um sinn verði
kannske alt með kyrrum k.jörum, en til átaka milli ein-
ræðisríkjanna annarsvegar og lýðræðisríkjanna hins-
vegar muni koma síðar. Mussolini telur hún staðráðinn
í að gera tilraun til þess að knýja fram kröfur sínar.
Og hún spyr hvenær hann muni hætta á það og svarar
spurningunni á þá Ieið, að hann muni ekki gera það
fyrr en Franco hafi sigrað á Spáni. Sigur Franco á
Spáni á að treysta svo aðstöðu hans til þess að fara sínu
fram á Miðjarðarhafi, að hann muni telja sér óhætt að
fylgja fastar fram kröfum Italíu, með stuðningi Þjóð-
verja.
Þegar um þetta er rætt er
vikið að því, að Mussolini hafi
augastað á Baleareyjum og yrði
það hættulegt Frökkum, ef hann
hefði þar flota- og flugstöðvar,
ef til styrjaldar kæmi þeirra
milli. Frakkar óttast, að ítalir
muni, þrátt fyrir bresk-ítalska
sáttmálann, gera frekari ráð-
stafanir til þess að tryggja
Franco sigurinn.
Blöðin í Ítalíu leggja áherslu
á það í morgun, að beggja á-
setningur, Chamberlains og
Mussolini sé, að vinna að því að
friður haldist. Lýsa blöðin yfir
því, að hin gamla, hefðbundna
vinátta ftala og Breta hafi á ný
verið treyst. Popolo di Roma
segir enn of snemt að gera sér
grein fyrir hver áhrif viðræð-
urnar muni hafa á ástand og
horfur í Evrópu yfirleitt og um
leitt hinna miklu vandamála
(deilurnar við Frakkland) megi
segja, að horfurnar sé mjög í
óvissu.
Parísarfréttaritari Popolo di
Roma gefur í skyn, að deilur ft-
ala og Frakka séu enn á byrjun-
arstigi. Blaðið bendir á, að
Chamberiain hefði í rauninni
ekki getað boðið neina mála-
miðlun opinberlega, þar sem ft-
alir hafi ekki formlega borið
fram neinar kröfur á hendur
Frökkum.
United Press.
brutust inn í skipsbúrið og tóku
úr læstum matvælaklefum það,
sem þeim sýndist. Skipstjórinn
upplýsti, aS skipið hefSi engan
farm haft nema korn. NRP-—
FB. —
UPPFUNDNING SEM
VELDUR STORBREYTINGU
Á SÍLDAROLÍUIÐNAÐ
INUM.
' 0
Oslo 13. jan.
Við „Bergens mekaniske
verksteder“ hefir verið gerð
uppfundning, sem haldið er
fram, að valda muni ger-
breytingu á síldarolíuiðnaðin-
um. Uppfundningin er ný teg-
und síldar-„pressu“, sem ver-
ið er að gera tilraunir með
þess dagana. NRP—FB.
Ósæmileg' fram-
koma spænskra
sjólida.
Oslo 13. jan.
Við yfirheyrslur í bæjarrétt-
inum í Oslo í gær voru gefnar
ýmsar upplýsingar varSandi
töku skipsins Norseman, sem
herskip Franco tóku og fluttu
til hafnar, en skipiS, sem var
á leiS til Noregs frá Svartahafi
með kornfarm til Komeinka-
sölu Noregs, var síSar látiS
laust. Samkvæmt upplýsingum
gefnum í réttinum komu sjólið-
amir fram af hinum mesta
hrottaskap og höfðu hótanir í
frammi. Þeir tóku farþegaklef-
apa til sinna nota og gengu um
þá af óhéýrilegum sóðáskap,
í BARDAGA VIÐ LEYNISKYTTUR.
Mynd þessi er frá gamla borgarhlutanum i Jerúsalem. Enslcir
hermenn, sem liafa riffla að voþnum, hafa tekið sér bækistöð
í húsi einu, og verjast þar leyniskyttum Araba, sem hafa falist í
húsi handan götunnar.
Um 70 manns liafa farist í
Ástpalía af völdum
skógapelda.
Fjölda manns er saknað og margir hafa hlotið bruna-
sár eða þjást af reykblindu. — Hitabylgjan í Ástralíu
heldur áfram. 45 stig á Celsius í Melbourne.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Símfregnir frá Melbourne í Ástralíu herma, að skóg-
areldarnir færist enn mjög í aukana og sé kunnugt orð-
ið, að 69 manns hafi farist af völdum þeirra. Fjölda
margra er saknað. Þorp og bæir eru víða í yfirvofandi
hættu. I bæjunum Woods Point, Frick og Marrandyte
hafir margt manna flúið heimili sín og óttast menn, að
þeir hafi farist í eldinum.
Sjúkrahúsin í f jölda mörgum bæjum eru yfirfull af
fólki, og hefir það leitað þangað vegna brunasára og
reykblindu. Komið hefir verið upp bráðabirgðabæki-
stöðvum handa fólki frá skógareldasvæðunum og er þar
margt manna sem heíir mist aleigu sína, hlotið bruna-
sár eða meiðst á flóttanum, og þar eru örvæntandi for-
eldrar, sem leita að börnum sínum, sem týnst hafa, og
grátandi börn, sem ekki geta fundið foreldra sína. —
Engin merki sjást þess, að draga muni úr hitunum.
Hitinn í Melbourne er hinn mesti, sem sögur fara af
þar í borg eða 45 stig á Celsius en á hádegi síðastliðnu
var hitinn 44 stig á Celsius í Sidney.
Fólk úr stórborgunum leitar í þúsundatali út á sjáv-
arströndina og sefur þar.
United Press.
EMILE BERTIN,
frakkneska herskipið, sem upphaflega var ráð fyrir gert, að Daladier færi á til Korsíku, Tunis og
Algier, en hann fór þess í stað á herskipinu Foch marskálkur. Frakkar áforma nú gifurlega aukn-
ingu herskipaflota síns og svara þeir þannig m. a. kröfum ítala um landvirininga og aðrar tilslak-
anir. —•