Vísir - 03.03.1939, Qupperneq 4
4
V I S I K
Föstudaginn 3. mars 1939.
Frá tískusýningu.
MA TREIÐ S LA.
Aprikosuábætir.
125 gr. þurkaðar aprikosur,
% ltr. sjóðandi vatn, safi og
börkur einnar sítrónu, 1 dl. syk-
ur, 3—4 blöð matarlím, l1/^ dl.
rjómi.
Aprikosurnar eru skolaðar og
sjóðandi vatni lielt á þær. Látn-
ar standa yfir nóttina. Soðnar
daginn eftir i vatninu ásamt
sykrinu, fcitrónusafanum og
þvi ysta af berkinum. Síðan sí-
að i hárfínni síu. — Matarlím-
inu fyrst dyfið í kalt vatn ogsíð-
an leyst upp í 2 dl. sjóðandi
vatni. Síað áður en þvi er hrært
saman við aprikosurnar. Þegar
þetta svo er orðið kalt og byrjar
að hlaupa saman (verða ,,stíft“)
er þeyttum rjóma hrært saman
við. Þetta er svo sett í fallega
skál og skreytt með þeyttum
rjóma.
„Karamel“-ábætir án eggja.
3 dl. mjólk, i/4 1. rjómi, 7
blöð matarlím, kg. sykur, %
dl. kalt vatn, vanilledropar eða
stöng. — Sykurinn er látiim í
pott og vættur með köldu vatni.
Potturinn settur á eldinn og
ekki hrært í honum fyr en syk-
urinn fer að brúnast og á þá að
hræra þar til liann er brúnaður,
—- 1 matskeið af rjóma er sett
saman við mjólkina og hún
soðin með vanilíunni. Matar-
límið er bleytt upp og þeytt
saman við liana. Mjólkin siuð
og látin kólna. Þegar hún fer
að stirðna, er djálitlu af sykur-
kvoðunni og þeyttum rjóma
hrært saman við. Sett i form og
látið standa á ís.' — Það sem
eftir er af sykurkvoðunni er
blandað vatni og notað fyrir
sósu. Sumir Iiræra þeyttan
rjóma saman við og er það
mjög ljúffengt.
DREKKIÐ LÝSI.
Talsvert hefir verið að því
gert hér í bæ og hér á landi
síðustu árin, að gefa börnum
og unglingum lýsi, og er það
vafalaust mikilsverð fram-
för og lýsið heilsugjafi þeim
sem neyta. Sagt er, að i lýs-
inu séu tvö mikilsverð fjör-
efni — A og D. — Og nóg er
til af lýsinu hér á landi og
það svo ódýru, að engum er
ofvaxið að afla sér þess.
Sennilega liafa börn og
unglingar allra mesta þörf
fyrir þennan hreysti- og
heilsugjafa, en líklega hefðu
allir íslendingar gott af því,
að neyta lýsis daglega — frá
einni teskeið og upp í eina
matskeið.
C-fjörefni
er í mörgum matvælategund-
um, en einna mest í sítrónum,
tómötum og Appelsínum. All-
mikið er og af fjörefni þessu í
jarðeplum, en það dofnar til
muna, ef þau (þ. e. jarðeplin)
eru soðin lengi. Sjálfsagt er að
sjóða kartöflurnar í heilu lagi
og með hýðinu, ef þær eru ekki
soðnar yfir gufu.
G-fjörefni er og til góðra
muna í gulrófum og skarfakáli
og fíflablöðum. Hvönn er og
talin auðug af þessu fjörefni. í
ribsberjum er allmákið af G-
fjörefni og sömuleiðis í jarðar-
berjum. t þurkuðum ávöxtum
og þurkuðu káli er yfirleitt
heldur lítið af C-fjörefnum.
LÉK SJÁLFA SIG.
Belgisk leikkona, Ada Bodart
að nafni, er talin vera eini leik-
andinn, sem sýnt hefir í kvik-
mynd nákvæmlega einn þátt úr
lífi sínu. Hún var vinkona
Edith Cavell. Árið 1915 tóku
Þjóðverjar leikkonuna fasta og
lögðu fyrir liana ótal flækju-
spurningar í samandi við mál
Edit i Cavell, er ákærð var fyrir
njósnir, sem kunnugt er, dæmd
til dauða og skotin. — Tólf ár-
um síðar (1927) var Ada Bodart
fengm til þess að leika þenna
þátt sinnar eigin sögu í kvik-
mynd einni enskri, seni fjallaði
um starfsemi og afdrif Edith
Cavells.
ELSTA ÁSTABRÉF,
sem til er i heiminum, svo að
menn viti, er talið um 3500 ára
gamalt. Það fanst fyrir nokkur-
um árum á Egiptalandi og er
rist eða ritað á stein. Það er
biðilsbréf og er orðalagið talið
bera vitni um mikla ást og
heitar tilfinningar. Viðtakandi
bréfsins er einhver prinssessa.
Það er talið ljóst af bréfi þessu,
að fyrir 3000—4000 árum muni
ástfangnir menn liafa túlkað
tilfinningar sínar á mjög svip-
aðan hátt og meim gera enn
•
Það er
mikil hagsýni að ákveða fyr-
irfram og skrifa hjá sér, hvað
hafa skuli til matar alla vik-
una. Verður þá hægara að raða
niður fyrir sér og panta alt i
einu til dagsins lijá kaupmann-
inum og nokkuð þægdlegra, en
að síma ef til vill tvisvar eða
þrisvar á dag eftir vörunum.
Þetta eru teikningar af „modelIum“, sem sýndar voru hjá Ambassadeurs í París í vetur. —- a. Svört klæðisdragt með loku-
fellingu í bakinu á jakkanum. Ermarnar úr blárefaskinnum. Hatturinn (pillbox) er svartur og ísaumaður með rauðu á
hægri hlið og á parti að framan. — b. Mjög falleg, létt skinnkápa úr svörtu persnesku skinni (broadtail), sem ei mjög í
tísku. Kraginn er litill og ryktur i hálsmálið. Ilúfa og handskjól úr silfurrefaskinni. c. og d. 2 hatlar í nýjustu tísku.
e. „Swagger“ úr eftirgerðu bifurskinni. — f. Kápa skreytt^ að framan, aftan og í hálsinn með svöitu skinni af persnesku
lambi. — g. Kragalaus kápa úr svörtu ullarefni með quilt-saumuðu crepe-de-chine fóðri. h. Nýtísku hattur, sem geng-
ur ofan á ennið og eru börðin uppbrett á hliðunum. Hárið er vafið upp öðru megin á höfðinu. i. Ivihneptur jakki úi
persnesku skinni. — j. Mjög algengt Iag á kápu úr persnesku lambaskinni. Þetta lag á kápum minnir nokkuð á þær káp-
ur, er í tísku voru fyrir lieimstyrjöldina.
HtJSRÁÐ
OG HEILLARÁÐ
Skinnhanska (hvitt glasé) er
best að hreinsa með baðmull,
sem vætt er í magnium karbo-
nat. Áður en þeir eru notaðir,
skal hrista þá vel.
•
Þegar þér kaupið skinn-
hanska, skulið þér ekld láta yð-
ur nægja, að fá það númer, sem
þér eruð vanar að nota, heldur
skulið þér reyna hanskana, því
að ekki eru allar skinntegundir
jafn teygjanlegar.
Það er ágætt að baða þreytta
fætur í saltvatni.
©
Skiljið eldd litil börn eftir
ein síns lið í íbúðinni.
•
Ef mygla hefir komist í
brauðkassann yðar, skulið þér
þvo hann að innan með klút
vættum í ediki. — Það kemur
ekki ediksbragð að brauðinu
fyrir því.
Notið aldrei varalit, þegar
þér liafið „iáblástur“ eða
sprungnar varir. Það getur ver-
ið hættulegt. Eiturefni geta
verið í litnum.
A5 FOðna.
Margir munu ætla, að þeir,
sem snögglega skifta lit i and-
liti eða roðna, sem kallað er,
hvort sem orsöldn er feimni,
reiði, gleði, blygðun o. s. frv.,
roðni ekki annarsstaðar en í
sjálfu andlitinu. En þessu er
víst ekki þannig varið. Sagt er,
að fólk geti alveg eins roðnað
um bolinn og geri það oft —-
alla leið niður að mitti eða
mjöðmum. En vitanlega er
þessu sjaldan athygli veitt — af
góðum og gildum ástæðum!
ummi Lausaveo 35.
Aðeins nokkra daga kápur og frakkar með tækifærisverði.
Úrval af fermingarkápum og frökkum. Verð frá 75 krónum.
Sig. Guðmundsson.
Sími 4278.
9
Það sem eftir er á útsölunni af
vetr ar höttu m,
verður selt með mjög lágu verði.
Fjaðpir og filíblém
í miklu úrvali.
Hattaverslun SofTíu Pálma.
Laugavegi 12.