Vísir - 08.03.1939, Blaðsíða 2

Vísir - 08.03.1939, Blaðsíða 2
VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGAFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (GengiS inn frá Ingólfsstræti). Símar: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 Verð 2 krónur á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Löng leið. Tíminn segir i gær, i forystu- grein sinni, að Alþingi biði nú eftir „svari“ frá Sjálfstæðis- flokknum. Á það liklega að vera skýring á þeim dularfullu ummælum blaðsins á dögun- um, að „mikið lengur yrði þess ekki beðið, 'að eitthvert sam- komulag fengist um lausn hinna mest aðkallandi vanda- mála“. En eins og það var þá „óráðin gáta“, hver þessi „mest aðkallandi vandamál“ væru, j>á er nú alt á liuldu um það, hvað það muni vera, sem Sjálf- stæðisflokkurinn liefir verið spurður um og Alþingi bíður eftir að fá svarað. Blaðið ber Vísi það á brýn, að lianu sé ineð „einhverskonar ólíkindalæti“ um það, að ríkis- stjórnin sé eittlivað að „pukra“ á bak við tjöldin. Aðstandendur Vísis muni vita það fullvel, að umræður hafi átt sér stað milli flokkanna og um hvað þær við- ræður hafi snúist. En þó að Tímann virðist bresta einurð til j>ess að segja það beruin orð- um, um hvað þessar viðræður hafi snúist, þá má lesa það á milli línanna í foiystugrein blaðsins. Þar segir, að nú sé það „augnablik upprunnið“, að engum getum þurfi að því að leiða, live mikinn raunveruleg- an áhuga Sjálfslæðisflokkurinn liafi á því, að rétta við hag sjávarútvegsins, og hvað hann vilji á sig leggja til þess. Nú sé honum „sú leið opin“, að hafa fult samstarf við aðra flokka ura lausn þessara mála „sem fullkomlega ábyrgur aðili“, ekki einungis með atkvæðum sínuin á Alþingi, heldur einnig „að fara með framkvæmd þeirrar yiðreisnar.“ Þapnig má væntanlega telja það fullkomlega upplýst, að það, sem Sjálfstæðisflokkurinn á „að leggja ó sig“ til þess að rétta við hag sjávarútvegsins, er að mynda stjórn með Fram- sóknarflokknum og Alþýðu- flokknum- Og væntanlega er það þá það, sem hann hefir verið spurður um, hvort liann vilji „leggja þetta á sig“, eins og Tíminn orðar það, og það er „svarið“ við þeirri spurningu sem Alþingi biður eftir. — En er það þá ekki að vonum, að nokkuð geti teygst úr þeirri bið? Timinn viðurkennir það, að það muni vera talsvert erfitt, að veita sjávarútvegnum slíkan „stuðning“. En hinsvegar gefist líka Sjálfstæðisflokknum með þessu tækifæri til að sýna, hvort hann sé sjávarútvegnum sá „vinur sem í raun reynist“, og hvað hann vilji í sölurnar leggja fyrir liann. Og það má telja það allrar virðingar vert, hve gíöggan skilning blaðið hef- ir á því, hvílíkur þyngslabaggi stjórnarsamvinnan við Fram- sóknarflokkinn mundi reynast Sjálfstæðisflokknum. Nú er þess að gæta, að það liefir að sjálfsögðu átt að lieita, að nokkur samvinna hafi orðið milli allra þingflokka um það, að greiða úr erfiðleikum sjávar- útvegsins á undanförnum erfið- leikaárum hans. En sú sam- vinna hefir verið með þeim hætti, að Sjálfstæðisflokkurinn liefir beitt sér fyrir því, að ým- islegar ráðstafanir yrðu gerðar útveginum lil viðrpisnar, en stjórnarflökkarnir lagst á eitt um það, að snúa öllum tillögum hans, er að því lutu, til verri vegar og jafnan tekið það aft- ur með annari hendinni, sem þeir gáfu með hirini. Og á þeirri reynslu verða litlar vonir reist ar um glæsilegan árangur af samstarfi við þá flokka að þess- um málum, jafnvel þó að það yrði nokkuru nánara en verið hefir. En þar við bætist, að það, hvernig til muni takast um við- reisn sjávarútvegsins, er ekki undir því einu komið, að sæmi- lega sé lialdið á stjórn sérmála sjávarútvegsins, heldur ef til vill miklu meira undir þvi, hvernig fer um stjórn ýmsra annara mála, sem engu síður gæti orðið afdrifarík fyrir hags- muni útvegsins. Það gæti því svo farið, að sá flokkur, sem allan veg og vanda ætti að hafa af „framkvæmd þeirrar við- reisnar“, fepgi af lienni litla sæmd, jafnvel þó að aðrir ætlu sök á því, sem mest færi aflaga. Fimtupir: i ðiiiisr Bjarni Snæbjörnsson læknir í Hafnarfirði er fimtugur i dag og skyldi það enginn ætla, sem hann þekkir, með þvi að svo er hann unglegur, að fáir myndu telja hann meira en fertugan, sem ekki vissu betur. Bjarni Snæbjörnsson er ekki fyrir það gefinn, að láta milcið á sér bera, en kýs það helst, að starfa í kyrþei að læknisstörf- um sínum og áhugamálum. Sem læknir hefir Bjarni traust alha manna, sem hann þekkja, enda hefir hann rækt þau störf með þeirri samviskusemi og alúð, sem einkepna hina bestu menn í öllum störfum. Með fram- göngu sinni allri vinnur Bjami traust allra manna, og þvi hefir ekki hjá því farið, að á hann hafa hlaðist ýms opinber störf, og hefir liann þannig um langt skeið átt sæti i bæjarstjórn Hafnarfjarðar og átt sæti á Al- þingi sem fulltrúi Hafnfirðinga, fyrst á árunum 1931—1934, en þá vildi hann ekki gefa kost á sér aftur til þingsetu, en við síð- ustu kosningar lét hann þó til leiðast, fyrir eindregnar óskir flokksmanna sinna, og náði þá kosningu á ný. Það eitt ssannar, hvert traust menn bera tií hans í Hafnarfirði, að þótt Sjálfstæð- ismenn séu þar i minni hluta í bæjarstjórn, þarf enginn að ætla sér að bera sigur af hólmi, ef Bjarni Snæbjörnsson keppir annars vegar um trúnaðarstöð- ur fjæir bæjarfélag sitt. Bjarni Snæbjörnsson er yfir- lætislaus og rólyndur maður, sem vinnur ekki traust manna með snöggu áhlaupi, en með aukinni kynningu. Þeir, sem eitthvað hafa með honum starf- að, munu allir á einu máli um það, að samviskusamari, gætn- ari og betri mann getur ekki, og öllum málum er vel borgið, sem hann beitir sér fyrir. í dag berast Bjarna Snæ- Rússar heita Pólla,itd± og Rú- mez&íii hemaðarlegri adstod, ef Fáðist verður á vestni*- landamæpi píkjanna. EINKASKEYTI TIL VÍSIS. London, í morgun. Stjórnmálafréttaritari Lundúnadagblaðsins Daily Express skýrir frá því í dag, að rúss- nesk ráðstjórnin hafi tilkynt ríkisstjórnum Póllands og Rúmeníu, að ef ráðist verði á vesturlanda- mæri þeirra, muni Sovét-Rússland koma Pólverjum og Rúmenum til hjálpar með allan herafla sinn og yfirleitt styðja Pólland og Rúmeníu á hvern þann hátt, sem Rússar geta. Fregn þessi vekur gífurlega athygli, vegna þess hversu ákveðið er hér til orða tekið, miklu ákveðnara en þegar deilurnar um Tékkóslóvakíu voru á döfinni. Rússar hafa undanfarin ár stefnt að því, að auka svo herafla sinn og hernaðarlegan útbúnað, að þeir geti samtímis átt í styrjöld í Austur-Asíu og á meginlandi Evrópu. — Talið er, að ástæðan til þess loforðs, sem hér hefir verið gefið Pólverjum og Rúmenum, stafi af óttanum við áform Þjóðverja um sjálfstætt Ukraine, en einnig hafa Rússar augastað á Rúmeníu sem korn- forðabúri og olíuforðabúri, í næstu styrjöld. United Píess. Þjóðverjum hafa orðið mikil vonbrigði að því, að Stoyadino- vitsch, forsætisráðherra í Rú- meniu, varð að fara frá, og ekki síður, að dr. Imredy, forsætis- ráðherra í Ungverjalandi, var neyddur til þess að biðjast lausnar. Báðir þessir menn voru viuveittir Þjóðverjum og sjá Þjóðverjar fram á eftir fall þeirra, að áform þeirra muni sæta rneiri mótspyrnu í þessum hluta álfunnar. Ilafa Þjóðverjar snúið sér að Rúmeníu i seinni tíð og nasistaleiðtogarnir segja, að þeir skuli leysa „Rúmeníu- vandamálið 1939 eins og Tékkó- slóvakiu-vandamálið 1938“- En orsökin til hins mikla áhuga Þjóðverja fyrir Rúmeníu er auðlegð landsins (olía o. fl.), og svo er landið kornræktar- land mikið, auk þess sem marg- ir ætla, að Þjóðverjar ætli sér að sækja fram austur á bóginn, eins og þá dreymdi um fyrir stríð, jafnvel alt til Indlands, — en „vegurinn liggur yfir Rú- meníu og Svartahaf“. Vilja Þjóðverjar uppræta áhrif Breta og Fráiíka i Rúmeníu, en Karl konungur, sem er niðji Viktor- íu Englandsdrotningar, er mik- ill Breta- og Frakkavinur og liann hefir stjórnað landi sínu af miklum dugnaði og bælt nið- ur tilraunir rúmenskra fascista, járnvarðliðsins, sem talið er að unnið hafi að náinni samvinnu við Þjóðverja. Þjóðverjar eiga hægra um vik með undirróður í Rúmeníu vegna þess, að þar í landi er þýskur þjóðernisleg- ur minnihluti (% úr milj.) og þar til nazistar náðu völdum og áhrifum utan Þýskalands var þessi þjóðernisminnihluti holl- ur Rúmeniu. Þjóðverjar virðast gera sér von um stuðning Jugo- slava gegn Rúmenum, en ýmis- legt bendir til, að mikill meiri hluti þjóðarinnar sé algerlega andvígur nazisma og fascisma, og Jugoslavar muni standa með Bretum og Frökkum, ef í harð- bakka slær. DE VALERA FER TIL RÓMABORGAR. Einkaskeyli til Vísis. London, í morgun. De Valera kom í morgun kl. 5 með lest sinni til Eust- on-járnbrautarlestarinnar í London. Flokkur leynilög- reglumanna gætti stöðvarinn- ar, með tillilti til sprengju- árásanna og hermdarverka- tilrauna írska lýðveldishersins á Englandi, en de Valera hefir vítt mjög þá starfsemi íra. De Valera fór ekki úr vagni sínum fyrr en seinna um morgunin, er hann skifti um lest og fór í lestina, sem flytur hann til Dover. De Valera er á leið til Rómaborgar til að verða viðstaddur vígslu páfans, en írar eru sem kunnugt er, rammkatólskir. United Press. björnssyni lilýjgr kveðjur og óskir um langa lifdaga og alla blessun, en mestu blessunina ber hann í eigin barmi, með þvi að maðurinn er.í öllu sjálfum sér samkvæmur, — góður og sannur maður í sjón og raun. AU GLÝSIN G AST ARFSEMI OG HEIMSSÝNINGAR. Oslo, 7. mars. FB. Utanríkismálanefnd Stór- þingsins liefir samþykt að Ieggja til, að veitlar verði 30.000 til útbreiðslu á norskum frétt- um í Bandaríkjunum meðan Olafur ríkiserfingi og Martlia krónprinsessa dveljast vestan hafs og vegna heimssýninganna beggja, sem þar verða haldnar. NRP. — NÝ FRtMERKI. Oslo, 7. mars. FB. Eftri tvo mánuði verða géfin út ný frímerki til minningar um Maud Noregsdrottningu og með myndum af henni. Frí- merkin verða seld með 4 aura aukagjaldi og gengur það í hjálparsjóð þann, sem ber nafn hinnar látnu drottnjngar. — NRP. — NYGAARDSVOLD UM BREYTINGAR Á NORSKU ST J ÓRNINNI. Oslo, 7. mars. FB. Nygaardsvold forsætisráð- lierra tilkynti í dag á fundi sambandsstjórnar Alþýðu- flokksins, að engar breytingar væri ráðgerðar á skipun ríkis- stjórnarinnar, nema að Bergs- vik fjármálaráðherra gengi úr stjórninni næsta haust. Líklegt f *. i »i'iwi' JOSEF STALIN BUROARMAÐUR. Mynd þessi var tekin af Josef Stalin, einræðisherranum rússneskg, er útför Valery Chkaloff flugmanns fór fram, en Valery var stýrimaður rússnesku flugvélarinnar, sem flaug yfir norðurheimskautið. Fórst liann fyrir nokkuru í flugslysi Moskva. — Til vinstri er Vyacheslaff M. Molotoff forsætisráð- herra og til liægri við Stalin Lazar K. Kaganovitscli járnbraut- ar-málaráðherra. í kerinu, sem þeir bera, er aska flugmanns- ins, sem var sett í jörð nálægt gröf Lenins. Uppreistartilrann kommim ista gegn varnarráðinn í Madrid bæld niðor. Yarnarráðið vill semja frið við Franco. EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun. Uppreistartilraun kommúnista í Madrid og víðar á lýðveldis- Spáni hefir, að því er nú er vitað, verið útbreiddari og kröft- ugri en í fyrstu var ætlað. Hefir allvíða komið til vopnaviðskifta, en uppreistartilraun kommúnista hefir nú verið bæld niður að mestu. Samkvæmt opinberri tilkynningu frá Madrid hefir „uppreist- artilraun kommúnista gegn varnarráðinu verið bæld niður að heita má.“ Það lítur þó út fyrir, að kommúnistar haldi áfram að veita mótspyrnu á stöku stað, því að skothríð og sprengingar heyrast frá nokkurum stöðum utan borgarinnar, og í Madrid er barist á nokkurum stöðum, þar sem kommúnistar hafa búið um sig til varnar í húsum. Frá Kartagena, aðalflotahöfninni á austurströndinni hefir Casado borist fregn um það, að uppreistartih;aun kommúnista hafi verið gersamlega bæld niður. — Herskip lýðveldissinna, sem létu úr höfn í Kartagena og sáust á siglingu austur Mið- jarðarhaf, eru komin til Bizerta, flotahafnar Frakka i Tunis. United Press. Oslo, 7. márs. FB. Varnarráðið í Madrid óskar að hefja samkomulagsumleit- anir við Franco hið fyrsta um vopnahlé, á þeim grundvelli að: 1) Að sjálfstæði landsins verði ekki skert á nokk- urn hátt. 2) Að allir erlendir her- menn á Spáni verði fluttir á brott. er að Torp ráðherra taki við fjármálaráðherraembættinu. — NRP. — Herskipafloti lýðveldisins er flúinn frá Spáni og er sagður sigla austur Miðjarðarhaf. Varnarráðið hefir fyrirskipað víðtækar ráðstafanir til þess að uppræta starfsemi kommúnista í Madrid. Margir kommúnistar hafa verið handteknir. Enda þótt Franco haldi áfram að senda lið og liergögn til víg- stöðvanna við Madrid er talið líklegt, að ekki komi til frekari blóðsútliellinga og að sam- komulag náist milli Franco’s og varnarráðsins. NRP.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.