Vísir - 25.07.1939, Síða 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
S i m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Aukið
hreinlæti.
J*LESTUM mun bera saman
um, að Röykjavík liggi á
einhverjum hinum fegursta
stað sem getur fyrir borgar-
stæði. Bærinn er bygður á hæð-
um, en rennur ekki út í eina
flatnöskju, og ef húsin væru í
samræmi við bæjarstæðið sjálft,
væri Reykjavík tvímælalaust
fegursti hær á Norðurlöndum,
og jafnvel þótt víðar væri leit-
að. Það er sagt, að Róm sé bygð
á sjö hæðum, og með tíð og
tíma verður unt að segja hið
sama um Reykjavík.
Alt fram á síðustu ár hefir
litil rækt ve'rið lögð við það, að
fegra borgina, og margt það
hefir verið aðhafst, sem bein-
iínis er til lýta. Flest húsin í hin-
um gömlu hverfum hafa verið
bygð af vanefnum og jafnve'l
vankunnáttu, og þeirra bíða þau
örlög, að verða rifin til grunna,
en vonandi rísa úr rústum
þeirra ný og fögur hús, sem
svara til bæjarstæðisins í feg-
urð og frágangi öllum. Þetta
tekur langan tima, og þess Cr
vart að ætla, að bærinn fái nýtt
andlit að fullu og öllu á næstu
árum, en þó fleygir honum
fram á ári hverju og lýti
gelgjuskeiðsins hverfa smátt og
smátt.
Þess verða Reíykvíkingar hins
vegar vel að gæta, að þótt þeir
hafi ekki efni á þvi, að byggja
upp bæinn í nýrri mynd á einni
svipstundu, geta þeir gdrt miklu
meira til þess að fegra útlit hans
en tíðkast hefir til þessa, Því
miður má líkja bænum við eins-
konar ruslakistu, með því að
vanhirðan er svo áberandi, að
slikt er óviðunandi með öllu.
Hvar sem litið er blasa við ó-
hreinindin, einkum i húsagörð-
um og sundum; þetta rusl berst
út á göturnar, og þótt götusóp-
arar bæjarins hafi sig alla við
fá þeir efkkert við ráðið, og er
þeir hafa snúið baki við einni
götu, er hún orðin jafn sóðaleg
og áður.
Bæjarbúar sjálfir eiga sök á
þessu. Þegar menn ganga um
hin nýju hverfi bæjarins, er það
auðsætt, að þar er umgengnin
öll önnur en í gömlu hverfun-
um. Lóðir og húsagarðar bera
það með sér, að ibúar húsanna
hafa hugsun á þvi, að hreinsa
lóðimar og jafnvel göturnar í
kringum hús sín, eftir því seím
ástæða gefst til, og það eitt er
víst, að ef alstaðar væri jafn
mikil áhersla á þetta lögð,
myndi bærinn í rauninni fá
annan svip. Hér er ekki fátækt
um að kerma, því að flestir hafa
nægan tíma til þess að hirða
sjálfir um lóðir sínar og húsa-
garða, og vanhirtar lóðir sýna
það eitt, að húseigandinn er
hirðulaus, en alls ekki hitt, að
hann sé það fátækur, að hann
geti ekki sinnt um alment hrein-
læti.
Það þykir góður siður, að
gæta alls lireinlætis innanliúss,
en því skyldi ekki liið sama
gilda um umgengni utan húss?
Þetta ættu mehn að athuga og
hefjast handa um hreinsurt,
liver á sínum grunni. Það er
ömurlegt, að aka austur úr bæn-
um og um holtin, vegna liins
megna óþrifnaðar, sem þar gæt-
ir, og mætti þar bæta verulega
úr, ef allir legðust á eitt. Menn
verða að gæta þess, að ánægja
þeirra sjálfra vex að sama skapi
og umgengnin er betri, þannig
að þeir ge’ra ekki aðeins bænum
greiða með auknu hreinlæti,
heldur einnig sjálfum sér. Það
eitt og út af fyrir sig, að liúsin
séu ljót, ætti að nægja, þótt lóð-
irnar séu • ekki vanhirtar að
sama skapi.
Allir Reykvíkngar eiga að
leggjast á eitt í því, að.fegra bæ-
inn og prýða á allar lundir. —
Bæjarstjórnin hefir forgöng-
una, fyrst og fremst í því, að
bæta gatnagerð, búa til leikvelli,
skemtigarða og fleira það, sem
til bóta horfir, en hver e'instak-
lingur verður einnig að rækja
skyldu sín í þessu efni. Ef allir
Iiafa þetta hugfast, getur
Reykjavík orðið fyrirmynd ann-
ara bæja um hreinlæti, ekki síst
eftir að hitaveitan hefir útrýmt
kolareyknum að mestu, og gróð-
urinn evkst á grunni liverjum.
Hlaup í Núps-
vötnum.
Margir ferðamenn
tepptir austan
Skeiðarársands.
Vísir átti tal í morgun við
Árna Jónsson frá Múla og Stef-
án A. Pálsson stórkaupmann,
en þeir eru nú staddir að Skafta-
felli í öræfum. Ætluðu þeir í
dag vestur yfir Skeiðarársand á-
leiðis hingað til bæjarins, en þá
bárust þeim þær fréttir, að
hlaup mikið væri komið í Súlu,
er rennur í Núpsvötn og væru
vötnin orðin ófær yfirferðar.
Nokkrir Reykvikingar ætluðu
vestur yfir sandinn í gær, en
urðu að hverfa frá vötnunum
vegna hlaupsins, sem í þau var
komið.
I fyrstu ætluðu menn að vöxt-
ur hefði hlaupið í árnar vegna
hinna miklu hita,sem verið hafa
undanfarið, en óhætt er að full-
yrða, að þessu er ekki svo varið,
heldur hefir lón brotist fram,
og má búast við að vöxturinn í
vötnunum haldist nokkra daga.
1 dag er meiri vatnavöxtur í
Núpsvötnum en í gær, og flæða
þau yfir sandinn á löngu svæði.
Farþegar þeir, sem teptir eru
austan vatna, hafa í hyggju að
reyna að fá flugvél til þess að
flytja sig veístur yfir sandinn,
með þvi að engin likindi eru til
að vöxturinn hlaupi úr vötnun-
um fyr en eftir nokkra daga.
Zogr í Oslo.
Oslo 24. júli. FB,
Þegar Zog fyrrverandi Alban-
íukonungur kom til Oslo ásamt
Geraldine fyrrverandi drotn-
ingu i gærkveldi hafði lögregl-
an gripið til óvanalegra varúð-
arráðstafana. Umferð var alveg
bönnuð um margar hliðargötur.
Mikill mannfjöldi var saman
kominn við göturnar til þess að
vera viðstaddur komuna. Zog
og föruneyti hans býr á Grand
Hotel. — NRP.
HAFNBANN JAPANAÁH0NG
KONG TALIÐ YFIRVOFANDI.
Þeir liafa bannad umfeFÖ um
Perluána, sem Canton stend-
up viö í tiálfan mánuð vegna
liepnaðaplegpa aðgerða.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Samkvæmt fregnum frá Hongkong í morgun hafa
japönsku yfirvöldin í Canton ákveðið að
banna alla umferð um Perluána, sem rennur
gegnum Canton til sjávar, vegna hernaðarlegs undir-
búnings. Umferðarbannið, sem nær til allra skipa, nema
herskipa Japana, á að standa í hálfan mánuð fyrst um
sinn.
í Hongkong er litið svo á, að þessar aðfarir Japana
séu upphaf þess, að þeir freisti að leggja hafnbann á
Hongkong.
Fregnir þessar vekja eðlilega mikla athygli, og aðrar fleiri,
sem allar benda til, að afstaða Japana gegn Bretum í Kína hafi
í engu breyst, þrátt fyrir tilslakanir þær, sem Bretar hafa gert,
til þess áð greiða fyrir samkomulagi um Tientsindeiluna. —
Það er mikið um deilt, hvort
breska stjórnin hafi raunveru-
lega slakað til e'ða ekki, en
Chamberlain sagði i neðri mál-
stofunni í gær, að stefna Breta í
Kína væri óbreýtt, en Bretar
myndi gera sér far um að skilja
aðstöðu Japana á þeim svæðum,
sem þeir hafa náð á sitt vald,
og ekki gera þeim þar erfitt fyr-
ir. —
Er .það ætlun margra, að Jap-
anir muni æ færa sig upp á
skaftið, og altaf geta borið því
við, að Bretar sé fyrir þeim og
afstaða þeirra geri þeim efcfitt
fyrir.
Japanir halda uppi stöðugum
áróðri gegn Bretum í þeim
hluta Kína, sem þeir hafa náð.
PIUS PÁFI XII.
er nú kominn til sumarbústaðar páfa, uppi í sveit, og dvelst
þar frám undir septemberlok, sér til hvíldar, en mun jafnframt
vinna að athugunum á alþjóðlegum vandamálum.
Hudson fer ekki frá
Æsingfin út af viðræðum hau§ við
di*. Wohltat uni garð gfciigrfn.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Talið er, að yfirlýsing sú, sem Chamberlain gaf í neðri mál-
stofunni í gær, um viðræður þeirra Hudsons aðstoðarverslun-
armálaráðherra og dr. Wohltats, ráðunauts Görings í fjármál-
um og fulltrúa Þýskalands á alþjóðahvalveiðaráðstefnunni í
London, — hafi algerlega eytt öllum misskilningi, sem upp
hefir komið í sambandi við þetta mál. Að þessari skoðun hall-
ast flestir stjómmálamenn í London, að því er talið er, og bú-
ast menn ekki við því lengur, að Mr. Hudson verði að segja af
sér, eins og ætlað var í gær af ýmsum.
U
í andstæðingablöðum stjóm-
arinnar er þó enn veist að
stjórninni vegna þessara mála,
en Daily Herald og Chronicle
segja, að þótt það sé að eins
nefnt um þessar mundir, að
gera eitthvað til þess að „friða“
Þjóðverja, geti það haft þau á-
hrif erlendis, að menn ætli, að
Bretar sé enn veikir fyrir og
muni enn slaka tik
f yfirlýsingu sinni sagði
Chamberlain, að umræðurnar
milli Hudson og Wohltat hefði
fjallað um fjárhags- og við-
skiftamál, og væri ekkert að at-
huga við, að þeir hefði rætt slik
mál, þar sem hvor um sig bæri
ábyrgð á shkum málum i sínu
landi, en viðræðurnar hefði ver-
ið e'inkaviðræður, án nokkurs
umboðs frá bresku stjóminni,
en að sjálfsögðu hefði Mr. Hud-
son skýrt stjóminni frá þeim.
Þá sagði Mr. Chamberlain, að
stjórnin liefði engin áform á
prjónunum um nokkurt lán
handa Þjóðverjum.
Stjórnarblöðin halda, að mál-
ið muni ekki hafa hættulegar
afleiðingar fyrir Breta út á við.
Bretar senda herfor-
ingrja til tlo*kva.
til þess að ræða við lierfor-
ingrjaráðið nissneska.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Samkomulagsumleiununum í Moskva er enn haldið áfram
og ætla menn að hægt og hægt miði áfram í rétta átt. — Blað-
ið Daily Sketch skýrir frá því, að breska stjórnin hafi ákveðið,
að senda breskan herforingja til Moskva til skrafs og ráða-
gerða við rússneska herforingjaráðið. Þessi breski hershöfðingi
er ekki nafngreindur.
Þá vekur það athygli, að Rússar hafa ákveðið að senda flota-
málasérfræðing til þess að starfa við sendisveitarskrifstofumar
rússnesku í París og London.
f þessu þykjast menn sjá upphaf samvinnu milli herforingja-
ráða Breta og Frakka annarsvegar og Rússa hinsvegar. Er þann-
ig verið að fullnægja einu því skilyrði Rússa, sem mestum erf-
iðleikum hefir valdið upp á síðkastið í samkomulagsumleitun-
unum í Moskva. Er hér enn um tilslökun af hálfu Breta að
ræða, en þeir voru að sögn tregir til að láta nein hemaðarleynd-
armál í hendur Rússum.
Litháar byggja
nýja höfn í
Memel.
i
Litáar, sem urðu að afhenda
Þjóðverjum Memel í vor, byrj-
uðu þ. 11. þ. m. á að byggja
nýja hafnarborg í fiskimanna-
bænum Shventai. j
Litáiskir verkfræðingar, sem
eiga að stjórna þessu verki, liafa
dvalið í Gdynia til þess að kynna
sér byggingu og fyrirkomulag
hennar, því að liún var smíðuð
undir líkum kringumstæðum og
á að verða fyrirmynd Shventai.
hugum manna. Með sýningun-
um og hátíðahöldunum var
minning hans sæmd á óvana-
legan og stórkostlegan hátt>.
Ling-mótinu
lokið.
Stokkhólmi 24. júlí. FB.
S.l. laugardag sýndu íslensku
leikfimisflokkarnir leikfimi við
hið mesta lof í Alvikshallen í
Stokkhólmi, að viðstöddum
fjölda leikfimikennara og ann-
ara sérfróðra manna. Best þóttu
takast jafnvægisæfingar stúlkn-
anna á bómu og stökk piltanna
yfir hest og kistu. Leikfimi
stúlknanna vakti sérstaka at-
hygli og höfðu þær aukasýn-
ingu á Skansen á laugardags-
kvöld og voru þar ákaft hyltar
af 10.000 áhorfendum. Sein-
asta sýningin var i gærkveldi í
Alvikshallen, en klykt var út
með kveðjuhátíð í Ráðhúsinu.
Yfirleitt tókust allar leikfimi-
sýningarnar vel, en í þeim
tóku alls þátt 7500 fimleika-
menn, piltar og stúlkur, og sýn-
ir þessi mikla þátttaka og hin
glæsilega Ling-hátíð yfirleitt,
hversu rik ítfck Ling á enn í
PÁFINN I SUMARLEYFI.
Athuganir á alþjóðlegum
vandamálum.
Hans heilagleiki Píus páfi
XII. kom til sumarbústaðar
sins i gær. Var hann hyltur
mjög innilega af íbúum
jxn’psins, þar sem sumarbú-
staðurinn er, og kom páfi
margsinnis fram á svalir
sumarbústaðarins.
í sumarleyfi sínu mun páfi
gefa sig að athugunum á
lausn alþjóðlegra vandamála.
Ilann kemur í lok septem-
bermánaðar til Rómaborgar
og veitir þá Franco áheyrn,
en liann kemur í hina opin-
beru heimsókn sína til Ítalíu
um það leyti.