Vísir - 02.08.1939, Side 2
2
V I S I R
Miðvikudaginn 2. ágúst 1939.
VtSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
8 í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Baráttan við
kommúnism-
ann.
■nr 1Ð íslendingar höfum sem
helur fer ekld mikla
reíynslu af lcommúnismanum í
þeirri mynd, sem hann birtist
viðsvegar um Evrópu, þar sem
hermdarverk og blóðsútlielling-
ar hafa siglt i kjölfar undirróð-
ursstarfseminnar og niðurrifs
verðmœta þjóðfélaganna. Hér
hafa kommúnistar látið sér
nægja að vinna markvist að
eyðileggingu atvinnuveganna,
til þess að skapa jarðveg fyrir
áróður sinn.
' Þó var svo komið um skeið,
að kommúnistar hugðust að
stofna til allskyns ofbeldisverka
og hófu þeir þá haráttu hinn 9.
nóvember 1932. Eftir þann dag
lágu allir lögregluþjónar bæjar-
ins i sárum, borgarstjórnin
hafði ve'rið beitt ofbeldi og
traðkað var á lögum ogvelsæmi,
svo sem frekast má verða. Öllu
þessu var hrundið í framkvæmd
án þess nokkurar vai'úðarráð-
stafanir væru gerðar til þess að
tryggja líf horgaranna og halda
úppi lögum og rétti í landinu.
Þegar fregnin um þennan at-
burð harst út um landið setti
flesta menn hljóða, en komm-
únistar eínir fögnuðu sigri. —
Þeim hafði tekist að sýna styrk-
leika sinn gegn þjóðfélaginu, en
það liafði aftur á móti sýnt úr-
ræðaleysi og veikleika, sem
mun vera einsdæmi í allri ver-
öldinni.
I dag standa sakir þanmg, að
ýmsir þeir lögregluþjónar, seln
slösuðust í viðureigninni við
kommúnistana umræddan dag,
hafa litlar eða engar bætur feng-
ið, en sumir þeirra liafa enn
ekki náð sér til fulls e’ftir þær
barsmiðar og limlestingar, sem
þeir urðu fyrir. Nokkrir af þeim
mönnum, sem fremstir stóðu í
baráttunni gegn ríkisvaldinu,
hafa fengið dóm, en böra höf-
uðið jafn hátt eftir sem áður,
með því að flestir þeirra hafa
ekki þurft að dvelja innan múr-
veggja högningarhússins, þrátt
fyrir þennan einstaka tilverkn-
að.
Þótt rikisvaldið hafi einnig að
þessu leyti sýnt veikleika sinn,
hefir þjóðin sjálf tekið í taum-
ana og fordæmt atferli komm-
únistanna, og þeim hefir sjálf-
um orðið þetta Ijóst, og hafa
tekið á sig nýtt gerfi, til þess
að vinna að niðurrifsstarfsemi
sinni innan þjóðfélagsins. Nú
eru ekki hnefarnir á Iofti, en ó-
slcöp vingjarnleg undirróðurs-
starfsemi er rekin, sem öll mið-
ar að því, að skapa hér ófremd-
arástand öllu verra en það, sem
vefrið hefir.
Það er ekki eingöngu almenn-
ingsálitið, sem knúð hefir
kommúnistana til þess að láta
undan síga í bili. Þeir athurðir
liafa gerst með öðrum þjóðum,
að kommúnisminn hefir verið
brotinn þar á bak aftur og sig-
urför lians um Evrópu að engu
ger. Allir spádómar um komm-
únistiskt allsherjarríki hafa að
engu orðið, og allir spádómar
um hrun lýðræðisríkjanna hafa
reynst orðin ein, en ekki stað-
reynd. Innan kommúnistaflokk-
anna hefir því vantrú komið i
stað trúar, fylgi þeirra liefir rén-
að, en í einstöku löndum staðið
í slað.
Hér á íslandi hafa þeir-menn,
sem stóðu að bardaganum 9.
nóvember sameinast til nýrrar
baráttu, og eru nú allir í ein-
um flokki, se'm gerir veikar til-
raunir til þess að lialda uppi
sókn innan þjóðfélagsins. Það
hefir einnig borið til tiðinda, að
þeir flokkar, sem stóðu að úr-
ræðaleysinu 9. nóvember, liafa
hrist af sér slénið og hafið bar-
átlu gegn starfsemi kommún-
ista hér á landi. Það eT vel, ef
vel reynist, og ekki er ástæða til
að ætla annað, þótt vitað sé, að
innan þessara flokka séu hörð
átök um afstöðuna til kommún-
istanna. í bili eru þeir ofan á,
sem liafa andstygð á framferði
kommúnistanna.
íslendingar e’iga að ýmsu Ieyti
erfiða aðstöðu . eins og sakir
slanda, og jarðvegurinn fyrir
kommúnistiska undirróðurs-
starfsemi er að mörgu leyti á-
kjósanlegur, en þrátt fyrir þetta
he'fir þjóðin sýnt það, að hún
vill sameinast til átaka, er miða
i þá átt að rétta við hag sinn, en
sú barálla miðar einnig að
hinu, að ráða niðurlögum
kommúnismans,
Gott veiði-
veður, en
lítil veiði.
Gott veður er nú fyrir norðan
land og á veiðisvæðinu fyrir
norðausturlandi er veður ágætt.
Þó er veiði fremur treg þar
einnig.
Vísir átti tal við fréttaritara
sína á Siglufirði og Norðfirði í
morgun.
Sagði fréttaritarinn að engin
veiði myndi vera að vestan, en
reitingsafli fyrir austan, svo að
Raufarhafnarverksmiðjan hefði
altaf nógu úr að vinna. Hefir
hún aldrei þurft að hætta störf-
um síðan veiði hófst fyrir al-
vöru, eins og Siglufjarða'rverk-
smiðjurnar nú. í gær kom að-
eins einn hátur til Siglufjarðar
og hafði hann fengið veiði sina
-fyrir austan.
I nótt og morgun var þoka á
Siglufirði, en siðan birti til og
er veður nú orðið gott. — Rek-
netaskipin hafa enga veiði feng-
ið undanfarinn sólarhring.
Fréttaritarinn á Norðfirði
sagði, að þangað hefði eitt skip
komið í gær með fullfeTmi,
nefnilega Mjóanes, sem hafði
1000 mál. Sögðu skipverjar að
síldin væri minkandi á nokkr-
um hluta veiðisvæðisins, en auk
þess væri erfitt að ná því, sem
þar væri, vegna hins gifurlega
skipafjölda, sem alstaðar væri
á sveimi.
Slökkviliðið
var kvatt að Laugavegi 7 í gær-
kvöldi kl. 8.24. Hafði kviknað þar
í útfrá straujárni í mannlausu her-
bergi. Var herbergið alelda, þegar
að var komið, eri slökkviliðið kæfði
eldinn á hálfri klukkustund. Hefir
prjónastofa ein aðsetur sitt þarna
og urðu nokkurar skemdir á vél-
um og vörubirgðum. Vörður var
hafður á staðnum í riótt. 1
I. R. A.-menii §eg:|a§t g;eta
haldið uppi hermdarverk-
um 1 2-3 ár tíl
Englendingum í írska fríríkinu
hótað öllu illu, nema hætt verði
að ofsækja íra í Englandi.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
r
Irsku lýðveldissinnarnir hafa hótað Bretum, að
grípa til öflugra mótvarna, ef haldið verður
áfram að gera landræka írska menn í Bret-
landi. Hótanir þessar vekja mikla athygli, þar sem eng-
inn dregur í efa, að lýðveldissinnarnir láti hart mæta
hörðu. Óttast menn, að enskum mönnum búsettumiír-
landi, verði þar ekki vært, ef lýðveldissinnar fram-
kvæma hótanir sínar.
Blaðið News Chronicle hefir birt bréf, sem talið er að vera
skrifað í aðalbækistöð írska lýðveldishersins í Dublin og er það
undirritað af „Michael Doyle útbreiðslustjóra“. í bréfi þessu er
svarað fyrirspurnum og segir m. a. í bréfinu, að
írskir lýðveldissinnar geti haldið áfram baráttu sinni og
hermdarverkastarfsemi í að minsta kosti hálft þriðja ár
til. Ennfremur að útgjöldin vegna baráttunnar gegn Bret-
um nemi 1200 sterlingspundum (32.400 kr. miðað við nú-
verandi gengi) á viku hverri.
í bréfinu er hótað að grípa til hefndarráðstafana gegn Eng-
lendingum í fríríkinu, ef haldið verði áfram að ofsækjá íra í
Bretlandi, í skjóli hinna nýju laga.
Herforingjar Þjóðverja, Spánverja
og Ungverja viðstaddir.
\.v gerð af Kkriðdrekiiin reyucfl.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Heræfingar miklar standa n.ú yfir á Ítalíu, en æfingum her-
skipaflotans er nýlokið.
Heræfingarnar fara fram í Pó-dalnum og hefir herforingj-
um frá Þýskalandi, Ungverjalandi og Spáni verið boðið að vera
viðstaddir heræfingarnar. Meðal þessara herforingja er yfir-
herforingi Þýskalands.
Pariani hershöfðingi hefir gert uppskátt, að við þessar her-
æfingar verði reynd ný gerð af skriðdrekum. Er hver þeirra
um sig 11 smálestir að þyngd.
BRESKU KONUNGSHJÓNUNUM FAGNAÐ.
Hertoginn af Kent, Mary ekkjudrottning, og litlu prinsess-
rnar, Elisabeth og Margaret Rose, fagna þeim við koniuna til
Inglands frá Ameríku.
íslandsmótið:
Niginiiiid Frcud
liíctíulcgii vcikur
London, í morgun.
Austurríski vísindamaðurinn
Sigmund Freud íiggur hættu-
lega veikur á heimili sínu í
Hampstead. Hann hefir átt við
heilsuleysi að stríða í mörg und-
angengin ár og hrakað mjög
upp á síðkastið.
Eftir innlimun Austurríkis í
StórÞýskaland settist Freud að í
Bretlandi, með aðstoð aðdáenda
og vina.
Bretar treysta land-
varnir í Egiptalandi
og Singapore.
10.000 hermenn sendir frá
Indlandi til Singapore.
London, í morgun.
Fregn frá Singapore hermir,
að talið sé, að um 8.000—10.000
hermenn séu væntanlegir til
Malayskagans, til þess að efla
landvarnirnar í Singapore.
Flestir þessara hermanna eru
Indverjar.
Bretar eru einnig að flytja
mikið lið til Egiptalands að því
er talið er til varnar Suezskurð-
inum, en þess er og að geta, að
þar standa fyrir dyrum sameig-
inlegar heræfingar breska hers-
ins í Egiptalandi og egipska
hersins.
VINNA VIÐ HITAVEITUNA
HAFIN. — í UPPHAFI ER
UNNIÐ AÐ UNDIRBÚNINGI
í ÖSKJUHLÍÐ.
Verkfræðingafirmað Höj-
gaard & Schaultz er nú í þann
veginn að hefja undirbún-
ingsstarfsemi að hitaveitunni
og hafa nokkrir verkamenn
þegar fengið vinnu. Mun nú í
upphafi verksins aðallega
verða unnið áð undirbúningi
á Öskjuhlíð, vegna geyma
þeirra, sem þar verða bygðir.
í gær kom hingað skip nteð
sementsfarm, sem ætlaður er
í væntanlegar framkvæmdir
vegna hitaveitunnar, en ýms-
ar vinnuvélar og tæki eru áð-
ur komin hingað.
Þótt hægt verði farið af
stað, má vænta þess, að stöð-
ugt verði aukið við vinnu-
kraftinn, þar til allir þeir
verkamenn hafa verið tekn-
ir í vinnuna, sem þörf er fyr-
ir. Eftir því sem skýrt hefir
verið frá í erlendum blöðum,
er ætlunin að hefja starfið
fyrir alvöru í byrjun þessa
mánaðar.
Undanfarið mun vérkfræð-
ingafirmað hafa unnið að því,
að afla tilboða í það erlent
efni, sem til framkvæmdanna
þarf, og er búist við að þau
liggi fyrir mjög bráðlega, og
að .frá samningum verði
gengið endanlega, og vélar og
efni flutt hingað til lands svo
fljótt sem frekast er unt.
1 kveld kl. 8,30 keppa Fram
og Víkingur, félögin, sem lögðu
risana Val og K. R. að velli, en
því áttu fæstir von á.
Þarf ekki að efast um að þessi
félög munu gera sitt ítrasta til
þess að sigra og er þó elcki vist
að Fram verði íslandsmeistari,
þótt þeir sigri, því að K. R. get-
ur orðið jafnt því, með því að
sigra Val. En sigri Víkingur, þá
verður hann íslandsmeistari.
Dómari verður Jóhannes
Bergsteinsson eða í forföllum
hans Guðm. Sigurðsson, háðir
úr Val. IJafa þeir háðir svo
mikla reynslu í knattspyrnu, að
þeim ætti að vera i lófa lagið,
að sjá svo um, að leikurinn
verði fallegur og drengilegur.
Allir út á völl í kvekl kl. 8,30.
Togaraskip-
stjóri sýnir
þrjósku.
í fyrradag tók varðbáturinn
Óðinn þýzkan togara, Friese-
land frá Wesermiinde, í land-
helgi austur af Portlandi.
Þrjóskaðist togarinn við að
ne’ma staðar, þegar Óðinn gaf
stöðvunarnierki, og varð að
skjóta þrem púðurskotum og 9
kúluskotum, áður en hann
stöðvaðist.
Þá fór Pé’tur Sigurðsson, sjó-
liðsforingi, Péturssonar, skip-
stjóra á Gullfossi, um borð i
togarann og hélt yfirheyrslur í
3 klukkustundir. Héldu yfir-
menn togarans því fram, að
þeir liefði ekki verið að veiðum,
heldur mist vörpuna á hrauni,
— en hraun er hvergi þarna
undan söndunum.
Var síðan farið með togarann
til Vestmannaeyja. Þegar Vísir
átti lal við hæjarfógetann í Eyj-
um í morgun, stóðu réttarhöld
ennþá yfir og neitar skipstjór-
inn harðle'ga að liafa verið að
veiðum þarna. Er búist við að
dómurinn verði ekki kveðinn
upp fyrri en seint í kveld.
Skipstjórinn á Frieseland heit-
ir Alfons og hefir aldrei verið
telcinn fyrir landhelgisbrot hér
áður.
Síra Porgrímur Sigurðsson
á Grenjaðarstað dvelur hér í
bænum þessa dagana. — Er hann
hingað kominn i erindum sveitunga
sinna varðandi rafmagnsafnot frá
Laxárvirkjuninni.