Vísir - 02.08.1939, Qupperneq 4
4
Ví SIR
Miðvikuriagihn 2. ágúst 11939,
ÍÞRÓTTASÍÐA VÍSIS
Íþróttalíf á ísafirði.
rjsr: pjsoverjsr.
Sverrir Guðmundsson, formaður knattspyrnufél. „Hörður“ á
ísafirði, og fararstjóri ísfirska knattspyrnuflokksins, sem hér
hefir verið, leit inn á ritstjórn Vísis í gær og átti þá Íþróttasíð-
an tal það við hann, sem hér fer á eftir.
Er dálítið fjör í íþróttalífinu
á Isafirði?
Já, sérstaklega í skíðaíþrótt-
inni á veturnar og svo knalt-
spyrnunni á sumrin. Skiða-
íþróttin er samt vinsælust og
mest iðkuð af öllum almenn-
ingi. Enda stöndum við vel að
vígi hvað skilyrði snertir, til að
iðka skíðaferðir.
En aftur á móti eru skilyrðin
til að iðka knattspyrnu ekki eins
góð, þótt þau sé mikið betri nú,
en fyrir nokkurum árum og
getum við þakkað það fyrst og
fremst knattspyrnumönnunum
sjálfum og bæjarstjórn, sem
lagði fram fé til endurbóta á
vellinum. Knattspyrnukappleik-
ir eru mikið sóttir af Isfirðing-
um, sem þykir það góð skemt-
un að horfa á góðan knatt-
spyrnuleik, sérstaklega er þó
fjölment, er flokkar koma utan
af landi og héðan úr Reykjavík.
Því miður eru tekjurnar af
kappleikjum ekki eins miklar
og skyldi, vegna þess að völlur-
inn er ógirtur og virðist ætla
að verða töf iá því að fá hann
girtan, m. a. vegna efnisskorts,
þar eð innfluningur á efni fæst
ekki.
Annars er svæðið fulllítið og
ekki nærri nógu fullkomið. T. d.
er þar engin hlaupabraut og
yfirleitt slæm aðstaða til að iðka
frjálsar íþróttir.
Er nokkur áhugi fyrir þeim á
Isafirði ?
Frjálsar íþróttir hafa legið
niðri þar í mör'g undanfarin ár,
en vorið 1937 gekst knatt-
spyrnufél. Hörður fyrir nám-
skeiði í frjálsum íþróttum og
aflur vorið 1938. Þátttaka var
góð. 40—60 piltar sóttu nám-
skeiðin. Kennari var hinn góð-
kunni skiðamaður og kennari,
Tryggvi Þorsteinsson. Við þessi
námskeið hefir áhugi manna
aukist fyrir Jjessum iþróttum
og eru þær nú talsvert meira
iðkaðar en áður og þá sérstalc-
lega af þeim yngri.
Hafið þið lialdið nokkur mót
í frjálsum íþróttum?
Já, í fyrsta sinn í mörg ár
héldum við eitt mót í fyrra
haust, fyrir forgöngu Harðar og
voru 15—20 þátttakendur.
Og árangurínn ?
Var ekki góður hjá þeim eldri,
en góður eftir ástæðum hjá
þéim yngri.
Iðkið þið mikið sund?
Því miður er það ekki iðkað
sem skyldi, og stafar það fyrst
og fremst af þvi, að við eigum
enga sundlaug í bænum. Sund-
kenslu hafa Isfirðingar notið í
Reykjanesi undanfarin ár, en
það fullnægir ekki þörfum oklc-
ar hvað sundið snertir og er það
nú brennandi áhugamál bæjar-
búa, að reist verði sundlaug hið
allra fyrsta.
Hvernig líst þér á knattspyrn-
una hér?
Mér líst veí á hana, sérstak-
lega hjá meistaraflokkunum og
getum við, sem búum úti á
landi, mikið af þeim lært. En
til þess að við getum gert okkur
von um að geta tekið þátt í
meistarakepni, þurfum við
bætta aðstöðu og þjálfara.
Er það satt, að engir af þeim
piltum, sem þú ert hér ineð,
reyki tóbak eða bragði vín?
Já, mér er ánægja að geta
staðfest það. Þeir eru allir mjög
reglusamir og sannir íþrótta-
menn.
Svo vildi eg gjarnan nota
tækifærið til að láta í Ijósi
ánægju okkar yfir móttökunum
hjá Fram, en við erum gestir
þeirra meðan við dveljum hér í
bænum, — svo og öllum hinum
félögunum og bæjarbúum yfir-
leitt, sem liafa sýnt okkur hina
meslu vinsemd og hvatt okkur
óspart til sigurs á vellinum.
Hafnarfjarðar-
hlaupið.
Hafnarfjarðhlaupið fór
fram í gær. Að eins einn mað-
ur hafði gefið sig fram til
kepni. Þannig var það i fj'rra,
að eins einn keppandi. Yfirleitt
hefir verið mjög lítil þátttaka í
þessu hlaupi siðustu árin og fer
þverrandi. Iþróttamenn okkar
virðast engan áhuga liafa fyrir
slíkum hlaupum og er það skilj-
anlegt, því slík hlaup á grjót-
] hörðum vegum eru síst ánægju-
leg og langt frá því að liafa
nokkurt iþróttalegt gildi.
Það virðist liggja beint við,
þegar að eins einn maður gefur
sig fram til kepni, að láta hlaup-
ið ekki fara fram. Enda getur
það ekki verið mikil ánægja
fyrir hlaupara, að vinna stóran
hikar fyrir að rölta einn sunn-
an úr Hafnarfirði og lítil aug-
lýsing er það fyrir íþróttalífið í
höfuðstaðnum. Vonandi verður
þetta í síðasta sinn, sem hlaup
þetta verður látið fara fram.
Iþi'óttamót
við Þjór§á.
Síðastliðinn sunnudag (30.
júli) var haldið íþróítamót hjá
Villingaholti, að tilhlutun ung-
mennafélaganna „Vöku“ og
„Samhygðarinnar“. Var þetta
fjTsta mót þessara félaga og
gekst Vaka fyxir því að þéssu
sinni. — Eftir setningu mótsins
hélt Jón Konráðsson kennari
ræðu. Hófust síðan iþróttirnar.
Þessir urðu sigurvegarar:
100 m. hlaup: Guðm. Ágústs-
son (V) 11.8 sek.
Hástökk: Guðm. Ágústsson
(V) 1.54 mtr.
Langstökk: Guðm. Ágústsson
(V) 5.44 mtr.
Þrístökk: Guðm. Ágústsson
(V) 11.86 mtr.
Kúluvarp: Guðm. Ágústsson
(V) 10.48 mtr.
800 m. hlaup: Þórður Þor-
géirsson (V) 2:27.8 mín.
Stangarstökk: Guðm. Odds-
son (S) 2.60 mtr.
Svo unnu Vökumenn Sam-
hygðarmenn i reiptogi.
I 100 m. og stökkunum var
ldaupið undan vindi, en annaTs
var aðstaða til íþrótta frekar
slæm og auk þess kalt í veðri.
Mótið fór vel og skipulega
fram og sást varla vín á nokk-
urum manni.
Vökumenn unnu kepnina og
fengu 25 stig, hinir fengu 17 st.
Bestu sundmenn Ungverja
keptu við bestu sundmenn Þjóð-
verja í Vínarborg nýlega og
sigruðu Þjóðverjar með 29 st.
gegn 15.
Þessi afrek náðust:
100 m. frjáls aðferð: 1. Fis-
chér, Þýskalandi, 59.6 sek. og 2.
Elmar Þýskalandi á 1:01.0 mín.
400 m. frjáls aðferð: 1. Könn-
inger, Þýskal., 4:59.6 mín. og 2.
Körösi, Ungverjal., á 5:17.7 mín.
1500 m. frjáls aðferð: 1. Ar-
endt, Þýskal., á 20:31.0 mín.
100 m. baksund: 1. Schlaucli,
Þýskal., á 1:09.4 mín.
200 m. bringusund: 1. Heina,
Þýskal., á 2:44.0 mín.
4x200 m. boðsund: 1. Þýska-
land á 9:18.2 mín. og Ungverja-
land á 9:27.8 mín.
Dýfingar: 1. Weiss, Þýskal.,
með 162.13+139.26 stig.
Vatnsknattleikur: Ungvei-ja-
land 3 mörk, Þýskaland 1 mark.
Arítaki
Je§§e Owens.
Jesse Owens var stúdent við
háskólann í Cleveland í Ohio
þegar hann varð frægur. Nú er
þar við nám annar blökkumað-
ur, að nafni Chester Thomas,
sem talinn er munu verða arf-
taki Owens, sem mesti sprett-
hlaupari í heimi.
Á dögunum tók Tliomas, sem
er aðéins 18 ára gamall, þvátt í
100 og 200 yards hlaupum og
langstökki. Það var í kepni milli
skóla og fékk háskóli hans 52 */£
stig. Thomas vann 19)4 stig af
þeim.
Thomas hljóp 220 yárds á
21.8 sek., en Owens setti skóla-
met á 20.8, árið 1933. Thomas
hljóp einnig Iokasprettinn í 880
yards boðhlaupi og var sett nýtt
met, 1:29.4 mín. Gamla metið#
var 1:30.3 min., sett 1933, þeg-
ar Owens hljóp lokasprettinn.
Þegar Thomas hljóp þenna
dag„ var hann í gömlum
hlaupaskóm, sem Owens átti.
U. P. Red Letter.
Pólvérjar íá sér knatt-
spyrnukennara.
Knattspyrnusnillingurinn Al-
ex James, sem fyrir nokkrum
árum var einn af frægustu
mönnum Arsenal og jafnframt
alls knattspyrnuheimsins, hefir
verið ráðinn til PóIIands, sem
þjálfari pólska knattspyrnu-
sambandsins.
James á fyrst og fremst að
taka að sér landsliðið og nýliða
og það er enginn efi á því, að
Pólverjar geta lært ósköpin öll
af honum. Hefði þeir varla get-
að fengið betra mann til kenslu,
og verða vafalaust skeinuhættir
í Finnlandi að sUmri.
Álitlegur gróði.
Sigurvegarinn í bikarkepn-
inni ensku — Portmouth F. C.
—hefir nýlega sent frá sér
reikninga sina fyrir s. 1. leikár.
Hagnaður á árinu nam 15 þús.
sterlingspunda, eða 405 þús.
króna. Á félagið nú í sjóði um
250 þús. króna.
Meistaramót
Frakka í frjálsum
íþróttum.
Frakkar eru búnir að halda
meistaramót sitt í frjálsum í-
þróttum. Þessir urðu meistarar:
Hlaup:
100 m.: Goldoski 11.0
200 —: Bucourt 22.6
400 —: Marcillec 49.9
800 —: Pfanner 1:56.8
1500 —: Normand 4:00.8
5000 —: Rochard 14:49.5
110 m. grhl.: Brisson 15.6
400 — grhl.: Joeye 54.2
3000 m. hindr.hl.: Letis-
seraud 9:46.8
Stökk:
Hástökk: Despostes 1.83 m.
Langstökk: Bandry 7.01 —
Stangarst.: Lacombe 3.80 —
Þrístökk: Roujon 13.47 —
Köst:
Kringla: Noel 47.96 m.
Kúla: Drezq 13.94 —
Sleggja: Broca 45.59 —
Spjót: Frinot 61.66 —
Kristilegt
íþróttamót.
K. F. U. M. á Norðurlöndum
heldur árlega norrænt mót í
frjálsum íþróttum. Á mótinu,
sem haldið var í sumar í Sví-
þjóð voru engir Norðmennmeð-
al þátttakenda. Meðal afreka má
nefna eftirfarandi:
100 m. hlaup:
1. Válima, Finnl. .. 11.1 sek.
2. P. Valkama, Finnl. 11.2 sek.
3. B. Nillsen, Danm. 11.3 sek.
1500 m. hlaup:
mín.
1. M. Karhumaa, Finnl. 4:07.6
2. J. Reitamo, Finnl. . . 4:08.2
3. R. Montonen, Finnl. 4:10.0
Kúluvarp:
1. S. Nenone, Finnl. 12.89 m.
2. A. Piipartuen,Finnl. 12.18 m.
3. P. Hallquisl, Svíþjóð 11.89 m.
Langstökk:
1. L. Válima, Finnl. .. 7.01 m.
2. P. Valkama, Finnl. 6.82 m.
3. P. Otto, Danm....6.69 m.
Stangarstökk:
1. S. Malmivúori, Finnl. 3.50 m.
2. E. Bothén, Svíþj. 3.20 m.
3; G. Rosén, Sviþjóð 3.10 m.
1000 m. boðhlaup:
1. Danmörk ...... 2:03.8 m.
2. Svíþjóð ...... 2:04.6 m.
3. Finnland 2:10.2 m.
ERLENDAR
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Hjólreiðar
eru vinsæl íþrótt á megin-
landi Evrópu og eru Danir,
Þjóðverjar og Hollendingar
meðal fremstu manna í heimi.
Á dögunum fór fram hjólreiða-
kepni í Landskrona í Sviþjóð og
voru þar þálttakendur frá fjölda
þjóða, m. a. 4 frá Danmörku.
Daninn Frode Sörensen var
fj’rstur í þrem greinum: 3200
m. á 5:33.0 mín., 4800 m. á
8:56.2 mín. og 8000 m. á 12:21.9
min.
—o—
Tennis.
Bandaríkjam., sem á þessu ári
og í fyrra, báru sigur úr býtum
í öllum kappleikjum í Wimble-
don, ætla nú að reyna að fá því
til leiðar komið, að þeir fái að
sjá um heimsmeistarakepnina í
tennis næstu skifti. Þykir þeim
óréttlátt að þurfa að fara alla
leið til Wimbledon og geta ald-
rei fengið að keppa úrslitaleik-
ina heima.
200 km.
kappganga.
Um miðjan júlí var baldin
heimsmeistarakepnin í 200 km.
kappgöngu í Sviss og hófst
gangan í Lausanne. Tuttugu og
tveir menn bjæjuðu gönguna,
en 16 gáfust upp.
Úrslit urðu þessi:
1. Cornet, Frakkl. 23.36.35
klst. -—-
2. Husson, Frakld. 10 mtr. á
eftir. —
3. Seibert, Þýskal. 25.52.00
klst. —
4. Malles, Frakkl., 26.00.55
ldst. —
—o—
Afrek kvenna
í frjálsum íþróttum.
í síðustu Iþróttasíðu var sagt
frá meistaramóti Þjóðverja í
frjálsum iþróttum. Þau afrek,
sem hér fara á eftir, náðu kon-
ur á þessu sama móti:
100 m. hlaup: 1. Kúhnel 12.1
sek. og 2. Grete Winkels 12.2
sek. —
200 m. hlaup: 1. Winkels 25.3
sek. og 2. Dorte Voigt 25.4 sek.
80 m. gr.hlaup: 1. Peter 11.7
sek. og 2. Dempe 11.7 sek.
Hástökk: 1. Salius 1.60 m. og
2. Elfriede Kann 1.60 m.
Langstökk: 1. ChristelSchultz
5.92 m. og 2. Voss 5.68 m.
Kringlukast: 1. Gisela Mauer-
mayer 46.79 m. og 2. Hagemann
40.85. —
Kúluvarp: 1. G. Mauermayer
13.53 m. og 2. Schröder 13.00
m. —•
Spjótkast: 1. Lisa Gelius 44.34
m. og 2. Pastoors 42.23 m.
Sundmeistaramót
Danmerkur.
Nýlega er lokið kepni um sjö
sundmeistarastig í Danmörku
og urðu meistararnir frá í fyrra
allir meistarar á nýjan leik.
Fara hér á eftir afrek meistar-
anna og næsta manns á eftir
þeim:
Konur:
100 ni., frjáls aðferð: 1. Ragn-
liild Hveger 1:07.2 mín. og 2.
Birthe Ove-Petersen 1:08.3 min.
Dýfingar: 1. Asta Aggerholt
84.50 st. og 2. Eva Bach 74.23 st.
Stúlkan, sem varð Evrópumeist-
ari í dýfingum, Inge Beeken,
varð nr. 4.
200 m. bringusund: Inge Sör-
ensen 3:06.1 og 2. Breth Sönne-
sen 3:13.3 min.
4x100 m. boðsund: 1. D. K. G.
4:50.3. og 2. Aarlius Gjnnna-
stikforening 4:53.6 mín.
Karlar:
100 m. baksund: 1. Börge
Bæth 1:14.1 mhn og 2. Ove
Becker 1:19.6 mín.
400 m. frjáls aðferð: 1. Poul
Petersen 5:22.3 mín. og 2. Jör-
gen Wulff 5:32.8 mín.
Dýfingar: 1. Tliomas Clirist-
ensen 125.05 st. 2. Jörgen Jesp-
ersen 104.85 st.
MET Á. 2 ENSKUM MÍLUM.
í síðustu Íþróttasíðu var
sagt frá því þegar Maki setti
nýtt heimsmet í 2ja enskra
mílna hlaupi og þeir Pekuri
og Tuominen hlupu einnig
undir hinu fyrra heimsmeti.
Met var fyrst sett í þessu
hlaupi árið 1884, eða fyrir 55
árum og hefir verið bætt að
eins 7 sinnum á öllum þeim
árum. Hér fer á eft.ir, hvernig
það hefir verið lækkað smám
saman.
1884 B. George, Engl. 9:17.2
1904 A. Shrub, Engl. 9:09.6
1926 E. Wide, Svíþjóð 9:01.4
1931 P. Nurmi, Finnl. 8.59.6
1937 Don Lash, Band. 8:58.0
1937 Höckert, Finnl. 8:57.4
1937 Szabo, Ungv. . . 8:56.0
1939 T. Miiki . . . 8:53.2
Nund.
Þýsk sundstjarna.
Þjóðverjar hafa fyrir skemstu
„uppgötvað“ nýja sundstjörnu,
sem mun í framtíðinni verða
Inge Sörensen, hinni dönsku,
liættulegur keppinautur — ef
hún heldur áfram að talca lik-
um framförum sem undanfarið.
Stúlka þessi, sem að eins er 14
ára, heitir Inge Schmidt frá
Hamborg. Hún sigraði í þýska
sundnieistaraniótinu á 200 m.
bringusundi á 3:02.0 mín.
Á sundmóti í Budapest setti
Ungverjinn Augyai nýtt ung-
verskt met í 200 m. bringusUndi
á 2:46.4 mín. Auk þess varð
liann fyrstur í 100 m. bringu-
sundi á 1:11.2 mín.
Á móti í Trieste á Ítalíu hefir
verið bætt metið í 100 m. sundi
kvenna — frjáls aðferð — úr
1:13.7 mín. í 1:12.5 mín. Sú
heitir Bianca Lekar, sem setti
nýja metið.
Heimsmet.
Hollenska sundmærin Jopie
Waalberg hefir nýlega sett nýtt
heimsmet iá 200 yards bringu-
sundi. Nýja metið er 2:40.3
mín., en það gamla, sem hún
setti 2. nóv. 1937, var 2:41.4
mín.
Hnéfaleikai*.
/. t f • r
Hnefaleikar.
Evrópumeistarinn í fluguvigt,
ítalinn Enrico Urbinati, barðist
nýlega í Rómaborg við Englend-
inginn Tiny Bostock og sigraði
hánn eftir 12 lotur. Þó lá við
borð í síðustu lotu, að Bostock
slæi Urbinati „út“.
Síðan Jolin Henry Lewis var
bannað að keppa í Englandi og
víðast í Ameríku, hefir New
York Boxing Commission, sem
hefir yfirstjórn hnefaleika í
New York og nágrenni látiðfara
fram* bardaga Um heimsmeist-
aratignina í létt-þungavigt milli
Billy Conn og Melio Bettina
Bardaginn stóð í 15 Iotur og
sigraði Conn á stiguin. — Eru
þá þrír menn í lieiminum í dag,
sem gera kröfu lil þess að vera
nefndir heimsmeistari í létt-
þungavigt og eru það John
Henry Lewis, Conn og Englend-
ingurinn Len Harvey.
Norðmaðurinn Jarl Johnsen,
sem er hnefaleikari í þjmgsta
flokki, barðist nýlega í New
York við Gene Bonin og sigraði
hann. Johnsen hefir sigrað Bon-
in áður.