Vísir - 03.01.1940, Blaðsíða 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Ri Isijórnarskrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 3."janúar 1940.
1. tbl.
BANDALAG MILLI ITALA,
UNCVERJA OG JUGOSLAVA
í UPPSIGLINGU.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Fregn frá Budapest hermir, að Czaky, utanríkis-
málaráðherra Ungyerjalands, muni bráðlega
fara til ítalíu til þess að verja þar nokkurum
leyfisdögum. Það er f ullyrt, að hann muni þó nota tím-
ann þar til mjög víðtækra umræðna við ítalska stjórn-
málamenn.
Orðrómur, sem kominn er á kreik út af þessari f ör
Czaky, vekur gífurlega athygli, en hann er á þá leið, að
á uppsiglingu sé bandalag milli ftalíu, Ungverjalands
og Jugoslavíu. Tilgangur þessa bandalags yrði að styðja
Ungverjaland, ef til árásar á það kæmi, og þar sem ítal-
ir yrði aðilar bandalagsins, hef ði þeir aðstöðu til þess að
veita Ungverjum stuðning með því að fara yfir Jugo-
slavíu.
Ungverjar eru sem kunnugt er mjög sjálfstæðir í framkomu
©g það er kunnugra en frá þurfi að segja, að þeir höfðu hina
mestu samúð með Pólverjum, og er til átakanna kom milli
Þjóðverja og Pólverja, létu Ungverjar á margan hátt og marg-
sinnis samúð í ljós með Pólverjum, og þrátt fyrir, að Ungverjar
hafi hagnast á útþensluáformum Þjóðverja, þannig t. d., að þeir
fengu sneið af Tékkóslóvakíu, hafa þeir aldrei viljað fara lengra
en þeim sjálfum þótti hyggilegt í skiftum öllum við Þjóðverja.
Milli Itala og Ungverja hefir lengi verið vinfengi. Það hefir
ekki verið rætt um aðra hættu, að undanförnu, sem yfir Ung-
verjalandi gæti vofað, en þá, sem af því stafar, að þeir eiga nú
sameiginleg landamæri með. Rússum, á kafla, eftir að Rússar
brutust inn í Austur-Pólland.
Milli Rúmena og Ungverja hafa lengi verið deilur, en Ung-
verjar mistu mikil lönd í hendur Rúmena upp úr styrjöldinni.
En Rúmenar hafa margsinnis lýst yfir því, að þeir vilji frið-
samlega sambúð við Ungverja.
TYRKIR SENDA VIÖSKIFTANEFND TIL ÍTALÍU.
Þá vekur það mikla athygli, að Tyrkir hafa nú sent viðskifta-
sendinefnd til Italíu, til þess að ræða nýjan verslunarsáttmála
við Italíu.
Aukin viðskifti og vinfengi Itala og Tyrkja er hvarvetna talið
afar mikilvægt fyrir friðinn við Miðjarðarhaf og yfirleitt þykir
alt, sem Italir taka sér nú fyrir hendur á stjórnmálasviðinu,
bera miklum stjórnmálahyggindum vitni.
Bardagrar ligrgrja niðri vegrna frost-
hörku ©g- liri«>arv«k«>iir*.
Rússneskir fangar búast vid pyndingum
í Finnlandi.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS — Khöfn í morgun.
I morgun símar Webb Miller, fréttaritari United Press á víg-
stöðvunum í Finnlandi:
Frosthörkurnar og hríðarveðrin hafa stöðugt meiri áhrif á
gang vopnaviðskiftanna á vígstöðvunum. Rússar hafa til þessa
haldið áfram sókn sinni og gert hvert áhlaupið á víggirðingarn-
ar á fætur öðru, en í gær fór að draga úr áhlaupunum og í gær-
kveldi mátti segja, að algert hlé væri komið í bili. Finskir her-
foringjar eru þeirrar skoðunar, að Rússar freisti ekki að halda
áfram að eyða til ónýtis jafnmiklu af mönnum og hergögnum,
þar sem árangurinn sé enginn, og veðurharkan dragi stórkost-
lega úr líkunum fyrir nokkurum árangri eins og stendur.
RUSSNESKIR FANGAR ÓTTAST PYNDINGAR í FINNLANDI
Rússneskir hermenn, sem Finnar hafa tekið til fanga, eru
dauðskelkaðir við pyndingar af hálfu Finna. Pólitískir undir-
róðursmenn kommúnista, sem eru látnir fylgja hernum, telja
hermönnunum trú um, að ef þeir láti taka sig til fanga, bíði
þeirra hinar ógurlegustu pyndingar í Finnlandi.
Rússneskur flugmaður, sem Finnar hafa handtekið, segir að
flugmennirnir hafi fengið fyrirskipun um að skjóta ekki af
vélbyssum, á almenna borgara.
Sliía imir, frakk-
ií oi Ihllr sljírn-
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Sir William Seeds, sendi-
herra Bretlands i Moskva,
er lagður af stað heimleiðis
ásam frú sinni. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum er
franski sendiherrann í
Moskva einnig i þann veg-
inn að hverfa heim. Er aí-
ment talið mjög vafasamt,
að sendiherrarnir hverfi
aftur til Moskva í bráð.
ítalski sendiherrann leggur
af stað heimleiðis í dag.
(Sbr. skeyti frá'Khöfn).
Hvort sem bær spár rætast
eða ekki, að þessar brott-
ferðir sendiherra Bret-
lands, Frakklands og ítalíu
séu undanfari bess, að þessi
þrjú stórveldi slíti stjórn-
málasambandi við Sovét-
Rússland, eru þær hvar-
vetna taldar sýna alveg
ótvírætt mjög vaxandi erf-
iðleika í sambúð þeirra við
Sovét-Rússland og megna
óánægju og gremju yfir
framkomu Rússa í garð
Finna.
K.höfn í gærmorgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum í Rómaborg mun
sendiherra Italíu í Moskva, Au-
gusto Rosso, leggja af stað
heimleiðis innan fárra daga, til
þess að gefa Mussolini skýrslu
um ítölsk-rússnesk málefni.
Samkvæmt óstaðfestri fregn
mun Rosso ekki hverfa aftur
til Moskva.
Sendiherra Rússa i Róma-
borg er nýfarinn heim. Hann
var tiltölulega nýkominn þang-
að og lagði aldrei fram embætt-
isskilriki sín fyrir Italíukonung,
svo sem venja er til, að selidi-
herrar geri þegar eftir komu
sína. Orsökin var sú, að um
þetta leyti var látin í Ijós mikil
andúð i Rómaborg og viðar á
ítalíu í garð Rússa fyrir innrás
þeirra i Finnland og mislíkaði
Rússum stórum. Að sumra á-
liti er þetta upphaf þess að
stjórnmálasambandinu milli
Rússa og Itala verði slitið.
Sir William Seeds sendiherra
Rreta í Moskva er einnig lagð-
ur af stað heimleiðis, til þess að
ge'fa stjórn sinni skýrslu.
Póstferðir á morgun.
Frá R: Reykjaness-, Ölfuss- og
Fióapóstar. Akranes. Esja austur
um land í strandferð. — Til R:
Bretar hafa 3 miljóoir
manna isndir vop&um.
ISií ist við storkostlegMni átökum
ú veisttii'ví^isiöðviiiium.
EINKASKEYTI frá U. P. London, í morgun.
I fyrrakvöld undirskrifaði Georg VI. konungur til-
skipun, sem af leiðir að Bretar munu áyfirstandandiári
hafa yfir 3 miljónir manna undir vopnum. Tilskipunin
hljóðar um að kveðja til vopna nálægt þvi tvær miljón-
ir manna, í sex aldursflokkum, að 27 ára aldri.
Þessi ráðstöfun er skilin svo, að herstjórnin breska
búist við því, að með vorinu muni koma til stórkost-
legra bardaga á vesturvígstöðvunum.
Það verður tilkynt jafnóðum hvenær hver aldurs-.
flokkur um sig verður kvaddur til herþjónustu og i
hvert skifti með a. m. k. þriggja daga fyrirvara.
Iiliiii25Sfiimi
TyrUndl kiii
Járnbrautarsamband-
ið milli Ankara og
Istanbul í hættu.
K.höfn í gærmorgun.
Einkaskeytj frá United Press.
Ofan á allar landskjálfta-
hörmungarnár í Tyrklandi hef-
ir það nú bæst, að voxtiir hefir
hlaupið í öll stórvötn á állstoril
svæði í vesturhluta landsins. I
25 þorpum er alt á floti og
margt manna hefir druknað.
Einna verst er ástatt af völdum
flóða í iðnaðarhéraðinu Ada-
pazar. Menn óttast, að járn-
brautarsambandið milli Ankara
og Istanbul verði rofið af völd-
um vatnavaxtanna.
í slendingaf élag
stof nað í Ástralíu
Síðastliðinn föstudag barst
prófessor Guðmundi Hannes-
syni skeyti frá Ástralíu, þar sem
honum var skýrt frá þvi, að bú-
ið sé að stofna þar Islendinga-
félag eða félag Islandsvina (Ice-
landic Society).
Var félagið stofnað daginn
áður i Melbourne, eða fimtu-
daginn 28. des., og gengust
þau fyrir stofnuninni ungfrú
Anita Miihl og próf. Lode-
wyckx, sem hér var um árið.
Fátt mun vera Islendinga í
Ástralíu, svo að tilgangur fé-
lagsins mun vera að veita þeim
aðstoð, sem vilja nema íslensk
fræði eða kynnast íslandi og Is-
lendingum á annan hátt.
Eiga þau ungfrú Muhl og
próf. Lodewyckx þakkir skild-
ar fyrir þessa félagsstofnun
sína og kynningarstarf i okkar
þágu.
5000 manns hafa
farist á flóðasvæð
inu I Tyrklanili.
London í morgun.
Einkask. frá United Press.
Samkvæmt opinberri til-
kynningu útgefinni í Istan-
bul hafa 5000 manns farist
á flóðasvæðinu í Tyrklandi,
aðallega í Kemal-pasha, þar
sem alt er á floti, og óttast
menn nú, að flæða muni yf-
ir allan Bursadalinn. — Við
Lakea Poleon flóir líka alt í
vatni.
Selgíumenn
ásakaðip
fyriff velviid
í garð
Bandamanna.
K.höfn í gærmorgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Samkvæmt símfregnum frá
Berlin ræðst Völkischer Beo-
bachten á belgisku blöðin fyr-
ir að styðja málstað Banda-
manna, og telur hið þýska blað
' að slíkt framferði sé ekki í
samræmi við yfirlýst hlutleysi
; Belgíu.
K.höfn í gærmorgun.
Einkaskeyti frá United Press.
ÞÝSKAR FLUGVÉLAR Á
SVEIMI YFIR HOLLANDI.
Flugvélar, sem menn ekki
vissu deili á, voru á sveimi yfir
norðausturhluta Hollands i
gær. Loftvarnabyssur voru
teknar í notkun og eltingar-
flugvélar hófu sig til flugs og
ætluðu að hrekja flugvélarnar
á brott, en þær höfðu þá tekið
stefnu til norðausturs og hröð-
uðu sér á brott.
Reykjaness-, Ölfuss-
ar. Akranes.
og Flóapóst-
Nýápskveðj uf
sjómanna.
Nýárskveðjur sjómanna.
FB. 2. janúar.
Óskum vinum og vanda-
mönnum gleðilegs nýárs með
þökk fyrir það liðna.
Skipverjar á Maí.
Óskum öllum vinum og ætt-
ingjum gleðilegs nýárs og þökk-
um það gamla.
Skipshöfnin á Reykjaborg.
Burðargjald bréfa og
böggla hækkar frá
áramótum.
Samkvæmt tillögu póst- og
símamálastjóra hefir atvinnu-
og samgöngumálaráðherra á-
kveðið allmiklar breytingar á
burðargjaldstaxta fyrir póst-
sendingar, og gilda þær frá 1.
jan. 1900, þar til öðruvísi kann
að verða ákveðið.
Hækkun þessi er allveruleg,
en ekki eru tök á að rekja hana
hér, nema að þvi leyti, sem hún
snertir allan almenning að því
er bréfasendingum viðkemur.
Bréf alt að 20 gr. innanlands
og til Norðurlanda 25 aurar, en
var áður 20 aurar, 125 gr. 50
aurar, 250 gr. 75 aurar, 500 gr.
100 aurar. Almenn bréf til ann-
ara landa á 20 gr. 45 aurar, í
stað 35 aurar áður, 40 gr. 70
aura, 60 gr. 95 aura, 80 gr. 120
aura.
Hæklíun á burðargjaldi póst-
bögla nemur mestu, og stafar
það af hækkun á farmgjöldum
og tryggingum vegna striðsins.
Þá hefir póststjórnin látið
Gamlárskvöld
Gamlárskvöld var rólegt að
þessu sinni, segir lögreglan. Þó
var lögreglan kölluð út um 30
—40 sinnum um kveldið og
nóttina.
Allmikið var sprengt i mið-
bænum, eins og venja er til,
mest á Austurvelh og í nágrenni
hans, Var þar látlaus skothrið
og innan Uffl heijármikiar
„bombur", sem vel hefði getað
orðið vegfarendum að meini, ef
þær hefði sprungið nærri þeim.
Meiðsli urðu einnig á nokk-
'urum mönnum, éil fá aiyarleg,
þó þurfti að flytja tvo særða
menn á sjúkrahús. Meiðshn or-
sökuðust yfirleitt af því, að
sprengjur höfðu verið settar i
glös eða flöskur og síðan
sprengdar.
Mannfjöldi var ekki eins
mikill og oft áður á gamlárs-
kveld og mun það stafa af þvi,
hversu margir sækja nú dans-
leiki þá, sem haldnir eru svo að
segja i hverju einasta sam-
komuhúsi bæjarins.
Atvinnuieysmgar um
áramót.
Þ. 30. desember siðasthðinn
voru skráðir atvinnulausir hér
i bænum 771 að tölu. Eru það
nær eingöngu karlmenn.
Eru atvinuleysingjar um
þessi áramót því heldur færri
en i fyrra um sama leyti, þvi
að þá voru skráðir atvinnuleys-
ignjar þ. 31. de!s. 807 að tölu.
Árið þar áður, 1937, voru
skráðir atvinnuleysingjar þann
31. desember 709 að tölu, eða
öllu færri en nú.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritiÖ „DauÖinn nýtur
lífsins" annað kvöld fyrir venju-
legt leikhúsver'ð.
Athygli
skal vakin á augl. frá Howard
Little um enskukenslu í bla'Öinu i
dag. Hefir hann stundað ensku-
kenslu hér utn langan aldur, meÖ
ágætum árangri.
prenta ný frímerki í samráði
við alþjóðasamþykt í póstmál-
úm, sem ákveður að frímerki á
bréf skuli vera blá að lit, á bréf-
spjöld rauð, en á prentað mál
græn. Koma nýju frímerkin á
markaðinn í vikulokih.