Vísir - 24.01.1940, Qupperneq 3
VÍSIR
Gamla Míé
Valsakongarinn
V opnaburðtir
Á§tralíitnegi'
----JÓHANN STRAUSS---------
Hrífandi fögur amerísk kvikmynd, um hiö fræga
tónskáld og hina ódauðlegu valsa hans. Myndin er
tekin af Metro-félaginu undir stjórn franska kvik-
myndasnillingsins Julien Duvivier. — Aðalhlut-
verkin leika LUISE RAINER, FERNAND GRA-
VEY og pólska „kóleratur“-söngkonan MILIZA
KORJUS. 90 manna symfóníuhljómsveit undir
st jórn Dr. Arthur Gutmann leikur lögin í myndinni.
Hafið þér athugað?
að líftrygging er sparisjóður efri áranna og
fjárhagslegt öryggi fyrir yður og yðar nánustu,
að iðgjöld falla niður ef þér verðið veikur og ó-
vinnufær, að öll tryggingarfjárhæðin er greidd
yður ef þér verðið fullkominn öryrki, að öll
þessi hlunnindi fáið þér hjá líftryggingarfélag-
inu „DANMARK“, Hafnarstræti 10—12, sími
3701, gegn venjulegu líftryggingariðgjaldi. —
Leikiél ag: 16 e y k j si \ í k u r
„Dauðinn nýtur lífsins“
Sýning á morgun kl. 8.
Hljómsveit undir stjórn Dr. V. Urbantschitsch aðstoðar.
Aðgöngum. seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Gljábrensla
Að gefnu tilefni viljum vér vekja athygli á, að
verkstæði okkar er það eina hér í Reykjavík sem
GLJÁBRENNIR reiðhjól.
Gljábrensla á reiðhjólum er yfirleitt sú eina lakk-
ering, sem að nokkru haldi kemur, enda öll ný
reiðhjól gljábrend.
Látið því gljábrenna reiðhjól yðar og gera í stand
hjá okkur.
Reiðhjólaverksmiðjan „FÁLKINN“
Minkaskinn
KAUPVM VIÐ HÆSTA VERÐI.
TÖKUM EINNIG í UMBOÐSSÖLU.
M o 11 o:
Hersir skóga hafði réttinn,
lijó í vondsku, fúll og grettinn;
frumlegur í fullum krafti
fitjaði á trýni og gapti.
Pétur G a u t u r.
Heiðraði O. Fr.! Þó að þú
eigir ekkert í því nafni, sem þú
„lánaðir“ undir lcveðju þína til
mín í Vísi í gær út af leikdómi
mínum um sjónleikinn „Dauð-
inn nýtur lífsins“ í Vikunni 11.
þ. m., þá ávarpa eg þig saml
svo, um leið og eg hið þig að
bregða upp fyrir þér þeirri
mynd, sem Pétur Gautur gefur
af skógarapa í vigahug. Eg er
ekki að segja, að myndin sé af
þér, en þú ert svo kunnugur
vopnaburði Ástralíunegra, aö
þú kannast a. m. k. við frænd-
semina . Annars liélt eg það
vera óþarfa, að innleiða útlend-
an vopnahurð í íslenskri blaða-
mensku, jafnvel þó mikið standi
nú til út af sýningu liins út-
lenska ineistaraverks, sem L.
R. hefir verið svo óhyggið að
velja sem jólaleikrit. En þú um
það. Eg þekki ekki svo á þetta
ástralska vopn, sem þú fleygir
af hendi, að eg treysti því, að
það hitti sjálfan þig að lokum,
en ekki saklausa menn, og allrá
helst þar sem þú treystir þér
ekki fram i dagsbirtuna. Eg
sendi þér því skeyti af alt
annari tegund og geng beint
framan að þér með það, sem
eg þarf að segja þér.
Eg hleyp yfir ónot þín í minn
garð út af sýningu sjónleiksins
„Á heimleið“. Þau eru sprottin
upp úr sama andlega urtagarð-
inum og haktjaldamakk vissr-
ar „klíku“ innan Leikfélags
Reykjavikur. Það er engum
hagur að þvi að viðra þann ó-
fögnuð. Eins læt eg mér í léttu
rúriii liggja mat þitt á þekk-
ingu minni á sviði leiklistarinn-
ar, henni eru takmörk sett, en
alt önnur takmörk en þín,
minn góði „0. Fr.“
En það, sem eg vildi segja
þér, var þetta: Ummæli min i
leikdómi um sjónleikinn
„Dauðinn nýtur lífsins“, sem
þú hnýtur aðallega um, voru
þau, að eg taldi efni leiksins
dulbúna viðurstygð. Hvaða leilc
hefir þú nú verið að horfa á
„0. Fr.“? Það sem eg sá var
þetta: Ungur og glæsilegur
maður, en óreyndur á refilstig-
um ástarinnar, vill kynnast
þessu meginafli mannhfsins.
Hann spyr gamlan, alræmdan
flagara ráða og hann gefur hon-
um nokkurar ráðleggingar af
gnægð reynslu sinnar. Ungi
maðurinn fer eftir ráðlegging-
um flagarans, þegar hann
kemst í færi við fyrsta kven-
mann, sem verður á vegi lians,
hýður til sætis á legubekk og
slekkur ljósið — þurfum við að
rekja þá sögu lengra? Hann
gerir tilraun við aðra, áður en
hann finnur hina útvöldu. Og
áhorfendur á bekkjunum í Iðnó
eiga að hafa það liugfast, að
þessi ungi maður sé dauðinn
sjálfur. Það Stoðar litið að
segja, að þetta sé ranghverfan
á ástinni, sem höfundur er að
lýsa, því svo alvarlega fatast
honum tökin á efninu, að liann
gefur enga aðra skýringu á
samdrætti „dauðans“ og „hrúð-
ar hans“, en þá sem áliorfendur
sjálfir gera sér í hugarlund á
meðan á ■ stefnumóti þeirra
stendur utan sviðs, en eftir þvi
sem á undan var gengið, þá er
það ekki nema á einn veg, þrátt
fyrir vesældarlegt j'firklór ungu
stúlkunnar, þegar inn er kom-
ið. Vegna liinna mörgu, sem
kynst hafa dauðanum í öðrum
myndum en líkingu Don Juans,
sé eg eftir að hafa notað orðið
„dulbúin“ í sambandi við þessa
viðurstygð — hitt munar svo
minstu livort „dauðinn“ sé tal-
inn vera „í fríi“ eða hann sé
„að njóta lífsins“. Réttnefni
leiksins eftir efninu er „Brúður
dauðans“, eins og kvikmyndin
hafði. Að liún kafnaði ekki und-
ir nafni, var að þakka afburða
leik og leilcsviðssetningu, en
keppinauturinn í Iðnó kafnar
undir hvaða nafni sem er, eins
og útsendari hans undir dul-
nefninu „O. Fr.“
Að lokum þetta: Eg vil hvetja
menn til þess að fara og sjá
leikinn, en þeim er hetra að
hafa skynsemina með sér, en
skilja hana ekki eftir heima
eins og „O. Fr.‘, sem gín yfir
ófögnuðinum af því liann er
„heimsfrægur“ og útlenskur i
þolckahót.
L. S.
Veðrið í morgun.
í Reykjavík 4 st., heitast í gær
3, kaldast í nótt 1 st. Heitast á land-
inu í morgun 5 st., í Vestmanna-
eyjum, kaldast — 6 st., á Akureyri.
— Yfirlit: Lægðarsvæði fyrir suð-
vestan land. —Horfur: Suðvestur-
land: Hvass suðaustan. Rigning.
Faxaflói, Breiðaf jörður : Allhvass
austan og suðaustan. Sumstaðar dá-
lítil rigning.
Næturlæknir:
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234. Næturvörður í Lyfja-
búðinni Iðunni og Reykjavíkur apó-
teki.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Akranes. — Til Rvík-
ur: Laugarvatn, Akranes.
Leiðrétting.
Þegar sagt var frá gjöfum til
Slysavarnafélagsins síðast, stóð að
S. 1. S. hefði gefið 1000 kr., en
átti að vera S. 1. F.
Silfurbrúðkaup
eiga í dag sæmdarhjónin frú Elin-
horg Lilja Jónsdóttir og Eggert
Thorberg Grímsson, Smiðsnesi i
Skerjafirði.
Næturakstur:
Bs. Geysir, Kalkofnsvegi, stmar
1216 og 1633, hefir opið í nótt.
Nýja Bíó
sýnir þessi kvöldin stórmerka
kvikmynd, setn nefnist „Dóttir póst-
afgreiðslumannsins", en hún bygg-
ist á samnefndri skáldsögu eftir Al-
exander Pushkin, heimskunnan
rússneskan skáldsagnahöfund (f.
1799). Alexander Pushkin var af
aðalsætt kominn og var settur til
menta í Tsarkoje Selo. Það fyrsta,
sem frá hans hendi kom á prenti,
voru ljóðmæli, en heimsfrægur varð
hann fyrir „Boris Godunov“, „Pol-
tava“ o. m. fl. Pushkin lést 1837 af
sárum, sem hann hlaut í einvígi.
Sagan, sem kvikmyndin fjallar um,
er ein af kunnustu sögum höfund-
arins. Það er Milo-film í París, sem
hefir látið gera kvikmyndina úr
garði, og hefir hún þótt ágætlega
takast, enda stendur frönsk lcvik-
myndalist á mjög háu stigi. Aðal-
hlutverk eru leikin af Harry Baur,
Janine Crispin og Georges Rigaud.
Ástarævintýri þeirra Dounia og
Andre, sem er mikilvægur þáttur
myndarinnar, er áhrifamikið og
hugðnæmt. Kvikmyndavinir ættu
ekki að sitja sig úr færi að sjá þessa
kvikmynd og kynnast franskri kvik-
myndalist eins og hún er best nú
á tímum. -v.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið Dauðinn nýtur lifs-
ins á morgun. — Nú fer að fækka
sýningum á þessum góða leik, því
að i byrjun næsta mánaðar, eða 2.
febrúar, verður frumsýning á
Fjalla-Eyvindi.
Afmælisfagnaður
Verslunarmannafélags Reykja-
víkur, verður haldinn næstk. laug-
ardag, 27. þ. m„ að Hótel Borg og
hefst með sameiginlegu borðhaldi
kl. 7.30, stundvíslega. Skemtiatriði
verða fjölbreytt. Aðgöngumiðar
fást i Tóbaksversl. London fimtu-
dag og föstudag.
bíö
] Dótlif ptsiðlpiliiii
| Frönsk afburða kvikmynd, gerð ef tir samnefndri sögu rúss-
| neska stórskáldsins Alexander Puschkin. Aðalhlutverkið
| leikur einn af mestu leiksnillingum nútímans, HARRY
| BAUR, ásamt Jeanine Chrispin Rigand o. fl. Myndin ger-
| ist í St. Pétursborg og í nánd við liana á keisaratímunum
| í Rússlandi.
I Börn fá ekki aðgang. — Kynnist franskri kvikmyndalist.
I
Á afmælisdegi í. S. í. 28. janúar verður haldið samsætí t3
heiðurs forseta í. S. í„ Bened. G. Waage (í tilefni 50 ára afmæl-
is lians). Hefst samsætið kl. 7 e. li. í Oddfellowhúsinu. Sanrsæt-
ið er fyrir íþróttamenn og aðra vini Bened. G. Waage. Aðgönga-
miðar fást í Bókaverslun ísafoldarprentsmiðju, Austurstræfi,
til hádegis iá laugardag.
Tryggið yður aðgöngumiða í tima þvi rúm er takmarkað.
FORSTÖÐUNEFNDIN.
Bifreiðasteðin GEYSIR
Síraap 1633 og 1216
Nýir bíiap. Upphitadir bilax*.
Hotel
HJöriifiiii
í kvöld
4 manna hljómsveit
Annað kvöld
S(»il»4an§
og fleira til skemtunar.
Frá Ameríku
fengum við litla sendingu af
búsáliöldum, þar á meðal:
UPPÞVOTTAFÖT,
ÞV OTTAFÖTUR,
SKAFTPOTTA,
PÖNNUR,
bæði fyrir gas og raf-
magn,
VATNSGLÖS,
SKÁLASETT,
MATARSTELL,
TE- og KAFFISTELL
og fleira.
HA91BORG
Laugavegi 44.
Litið, nýlegt
steinhús
óskast keypt
Tilhoð merkt „10“ sendist af-
gr. Vísis fyrir mánaðamót.
Veggalmanök
og
mánaðardaga
selur
Slysavarnafélagið
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.15 Islenskukensla, i. fl.
18.40 Þýskukensla, 2. fl. 19.20
Hljómplötur: Vínarvalsar. 19.50
Fréttir. 20.15 Spurningar og svör.
20.30 Kvöldvaka: a) dr. Jón Helga-
son biskup: Jón ritari. Erindi. b)
á píanó. c) 21.20 Jochum Eggerts-
son: Skreiðarferðir til Grímseyjar.
21.05 Frú Fríða Einarsson leikur
Erindi. d) 21.45 Fríða Einars-
son leikur á píanó.
Vörabíll
í góðu standi er til sölu
vegna flutnings úr bænum.
Semja her við
Ólaf ÞorgrímssoK
lögfræðing.
Austurstræti 14.
Sími: 5332.
Barnasokkar
af öllum stærðum.
Karlmannasokkar.
Kvensokkar
frá 1.95 parið.
K. F. U. M.
A.—D. fundur annaS
kvöld kl. 8'i/2. Sira SigurSur
Piálsson talar. Allir karlmenn
velkomnir.
NÝKOMINi
eítirmiðdags
kjólaefni.
Í
Falleg efni og fallegir Iitir.
SAUMASTOFA
Guðrúnar Amgrímsdóttur.
Bankastræti 11. Sími 2725.
Nýtísku
Ilárkainliar
Dáripennnr
1
Hárgreiðslustofan
PERLA
Bergstaðastræti 1.
Sími: 3895.