Vísir - 15.02.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
RLitstjórnarskrifstofur:
iPélagsprentsmiöjan (3. hæð).
30. ár.
• •
Oll virki, §em R᧧ar
toku
9
aftnr í hön<
Rússar búa sig undir að halda áfram sóknánni.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Edward Beattie, fréttaritari United Press, símar
í morgun frá vígstöðvunum í Finnlandi:
Það er ekki lengur neinum efa undirorpið,
að hin síendurteknu áhlaup Rússa undangenginn hálf-
an mánuð hafa algerlega mishepnast. Þeir náðu nokk-
urum framvirkjum Finna á sitt vald í bili, en Manner-
heimvíggirðingarnar eru órofnar, eins og Finnar halda
fram. Þeir segjast hafa náð aftur öllum framvirkjum,
sem Rússar tóku undanfarna daga. Hefir nú heldur
dregið úr áhlaupum Rússa í bili, en það er margt, sem
bendir til, að þeir búi sig undir að halda áfram áhlaup-
unum á Kyrjálanesi af sama kappi og áður.
Italir reiðu-
búnir.
Ráðstaíanir gerðar til
allsherjar hervæðing-
ar, ef nauðsyn krefur.
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
■ ■ ■ ;‘x
EINN AF FIMMTÍU. — Þegar styrjöldin hófst milli Bandamanna og Þjóðverja áttu Þjóðverjar
um 50 kafbáta. Bretar og Frakkar lialda því nú fram að þeir liafi sökt a. m. k. 40 af þeim og nú
siðast í gær tveim í viðbót, sem höfðu sökt þrem breskum skipum. — Þegar myndin var tekin af
kafbátnum hér að ofan — U-35 —• var styrjöldin en ekki skollin é, því að jregar hún hófst mál-
uðu kafbátarnir yfir einkennisstafi sína.
Það er giskað á, að á Sumaa-vígstöðvunum, eða gegnt
miðhluta Mannerheimvíggirðinganna, þar sem harðast
hefir verið barist, hafi Rússar sjö herfylki, eða um
150.000 manns, en alls á Kyrjálanesi á f jórða hundrað
þúsund manns. Og enn draga þeir að sér liðsafla, enda
veitir ekki af, því að manntjón í liði þeirra hefir verið
ógurlegt í áhlaupunum að undanförnu. Samkvæmt á-
reiðanlegustu heimildum hafa fallið af Rússum upp
undir 40.000 menn á Kyrjálanesi undanfarna daga.
Auk þess hafa Finnar eyðilagt mikið af hergögnum
Rússa, aðallega skriðdreka. Fyrir framan Kiovisto, þar
sem Rússar höf ðu hætt sér út á ísilagt vatnið með skrið-
dreka sína, f ór illa f yrir þeim, því að ísinn brotnaði og
margir skriðdrekar fóru niður um ísinn.
í tilkynningum Finna segir,
.að bardágarnir við Summaa séu
hinir hörðustu, sem liáðir liafa
verið í styrjöldinni, og liarðari
bardagar ekki liafa verið háðir
í Heimsstyrjöldinni. Það er
giskað á, að seinustu daga hafi
Rússar skotið 300.000 fallbyssu-
kúlum á dag inn yfir víggirðing-
ar Finna. En þrátt fyrir það og
að þeir hafa sótt fram með
fjölda skriðdreka og hafi ótak-
mörkuðum mannafla á að skipa
liafa þeir hvergi komist inn í
víggirðingarnar sjálfar — að
eins náð nokkurum fram-varð-
stöðvum, sem nú eru aftur í
höndum Finna. Finska lier-
stjórnin hefir altaf gengið út
frá þvi, að Rússum mundi tak-
ast að ná einhverjum hluta
fremstu víggirðinganna á sitt
vald, a. m. k. í bili, og þess
vegna liefir verið þannig frá
víggirðingunum gengið, að liver
virkjaröðin tekur við af annari.
Lita Finnar enn svo á, að horf-
urnar séu alls ekki þær, að þeir
þurfi að óttast, að Rússum tak-
ist að brjótast í gegn á Kyrjála-
nesi. En herlið Finna er farið
að þreytast og hefir orðið að
kveðja aukinn mannafla til
vopna.
Á Kuhmovígstöðvunum geng-
ur Finnum vel. 54. herfylki
Rússa þar er umkringt, en or-
listunni þarna er ekki lokið enn.
NRP—FB.
FINSKIR ÍÞRÓTTAMENN
HYLTIR I OSLÓ.
—o—
Finskir hockey-leikarar voru
ákaft hyltir á landsmóti í Osló
í gær af 10.000 áhorfenda. Með-
al viðstaddra voru Ólafur kon-
ungsefni Norðmanna og Mavtlia
krónprinsessa. — Allur ágóði
— sem nam 40.000 kr. — af
kappleiknum, rann til Finn-
landssöfnunarinnar. — NRP.
ÐjóQverjar leii olíi-
oevmg í Koestaizð
ndir ríssiislu ilíi.
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn í morgun.
Þjóðverjar liafa leigt tvo olíu-
geyma við Konstanza, hafnar-
borg Rúmena við Svartahaf. —
Þarna er tilætlunin að geyma
rússneska olíu, sem flutt verð-
ur frá Konstanza Donárleiðina
þegar ísa leysir.
Czaky gxeiú væntan-
legur í nýja heimsókn
til Ítalíu.
Einkaskeyti frá United Press.
ILhöfn í morgun.
Czaky greifi, utanríkismála-
ráðherra Ungverjalands, er
væntanlegur í nýja lieimsókn til
Rómaborgar, segir í símfregn-
um þaðan í morgun. Fer hann
í ferð þessa lil þess að ræða á-
stand og horfur í utanríkismál-
um við Ciano greifa, þar sem
hórfurnar eru taldar allmjög
breyttar frá því, er þeir rædd-
ust við síðast.
Þá hefir lieyrst, að Ungverjar
séu óánægðir með samþyktir
þær, sem geríSar voru á Balkan-
ráðstefnunni.
Fregnir frá Rómaborg herma,
að ákvarðanir hafi verið tekn-
ar um undirbúning allsherjar
hervæðingar og mjög viðtækar
loftvarnir borga, liergagnaverk-
smiðja o. s. frv. Ennfremur var
ákveðið að vinna að því, að unt
verði að breyta til i f jölda mörg-
um verksmiðjum, þannig, að
hægt verði að nota þær til her-
gagnaframleiðslu. Alt er þetta
gert til þess að ítalir verði við
öllu búnir, en menn búast við,
að íalir muni lialda sömu stefnu
og forðast þátttöku i styrjöld-
inni meðan þeir geta.
Fyrrnefndar ákvarðanir vorn
telcnar á fundi yfirlandvarna-
ráðsins, sem liefir setið á stöð-
ugum fundum að kalla undan-
farna daga.
Fregnirnar um ítalskt-
ungverskt persónusamband
bornar til baka.
Ungverskir stj órnmálamenn
neila því, að til orða hafi kom-
ið, að stofnað yrði til persónu-
sambands ítala og Ungverja,
þannig, að Victor Emmanuel
konungur Ítalíu yrði einnig
konungur Ungverjalands. Hins-
vegar er talið víst, að samvinna
verði áfram hin traustasta með
Ungverjum og ítölum, og víst
er, að ítalir eru staðráðnir i að
vera vel á verði gegn hverskon-
ar hættum, sem Ungverjalandi
og Balkanlöndunum kann að
stafa frá Rússum.
Ipskip hermda?verk-
menn enn á feröÍKai
Einkaskeyti frá United Press. -
Frá Birmingham er simað í
morgun að tvær vítisvélar hafi
sprungið í Birmingham. Önnur
sprengingin varð fyrir framan
skófatnaðarsölubúð, sem eyði-
lagðist að mestu, en hin sprakk
í einu úthverfi bæjarins, og
brotnuðu rúður í nokkrum
liúsum, en um annað tjón er
ekki getið. — Lögreglan hefir
hafið leit um allan bæ og fund-
ið þrjár sprengjur í sambandi
við klukku. Víðtækar várúðar-
ráðstafanir hafa verið gerðar og
aukinn lögregluvörður er |við |
opinberar byggingar, póst- og
símastöðvar, járnbrautarstöðv- j
ar o. s. frv.
Það er talið, að írskir hermd- j
arverkamenn úr „Irska lýðveld- j
ishernum“ (I R. A. menn) séu j
hér að verki og sé hér úm að
ræða upphaf tilrauna til þess að i
liefna Barnes og Richards, sem t
nýlega voru teknir af lifi i j
Birmingham fyrir sprengjutil- j
ræðin i Coventry.
-----------------------
Valsblaðið,
I. tbl. 2. árg. er nýkomið út. ■—
Efni þessa tbl. er þetta m. a.: Fyr-
ir 20 árum. 1939—1940. Utanför
Vals og Víkings, eftir Fr. H. Ensk
knattspyrna, eftir Joe Devine. Yfir
Kjöl að Súlum, kvæði eftir Gu‘Ö-
mund Sigurþsson. Sigurvegarar
1939 o. m. fl. BlaðiS er vandað að
efni og frágangi.
Tveimur þýskum
kafbátum sökt, - -
rétt á eftir að þeir höfðu sökt 3
breskum fiutnmgaskipum.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Breska flotamálaráðuneytið tilkynti í nótt sem leið, að !
tveimur þýskum kafbátum hefði verið sökt í gær — skömmu
eftir að þeir höfðu gert árásir á þrjú bresk flutningaskip og
sökt þeim. — Skip þau, sem kafbátarnir söktu nefndust „Brit-
ish Triumph“, „Greta Field“ og „Sultan Star“. Öðrum kaf-
bátnum var sökt hálfri klukkustund eftir að „Sultan Star“ var .
sökt, en það var 12.000 smálesta skip á heimleið frá Suður-
Ameríku með kjötfarm. Því var sökt liðlega 200 mílur frá
strönd Lands End, suðvesturodda Bretlands.
í Varðarhúsmn.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður settur kl. 5 í
dag í Varðarhúsinu. Undanfama daga liefir fjöldi
fulltrúa komið hingað til bæjarins úr öllum sýslum
landsins og er líklegt að fulltrúar, sem mæta með umboð á
fundinum verði um eða yfir tvö hundruð. Verður fulltrúaskír-
teinum úthlutað í dag í Varðarhúsinu þar til fundur hefst.
Er fundarsetning hefir fram farið mun formaður flokksins,
Ólafiu’ Thors atvinnumáiaráðherra, flytja erindi, þar sem gert
verður grein fyrir stjórnarsamvinnunni og alment yfii'lit gef-
ið um viðhorfin eins og þau ei’u nú.
Fundir halda þvínæst áfram þar til á sunnudags- eða mánu-
dagskvöld, en því verður hagað með tilliti til fei'ða, og endan-
lega ákveðið síðar á fundinum.
Isalögin við
Banmarku.
Fjórtán flutningaskip bíða fyrir
utan Helsingborg. 100 skip föst
í ísnum við Banmörku.
Einkaskeyti frá United Press.
Kaupmannahöfn í morgun.
ísalög valda enn xniklum
flutningaerfiðleikum við Dan-
möi'ku. Eftir margra daga
mikla erfiðleika, vegna ísi’eka,
tókst loks í gær að safna saman
14 flutningaskipum, þar af 11
kolaflutningaskipum á leið til
Khafnar, fyrir utan Helsing-
borg, og bíða þau nú þai', uns
tekst að í'yðja þeim braut gegn-
um Eyrarsund með isbrjótum.
ísinn í sundinu verður æ þykk-
ari, en alt verður gert sem unt
er til þess að koma skipunum
eins fljótt og auðið er til Kaup-
mannahafnar, vegna hinna
mildu eldsneytisvandræða, sem
þar eru.
Alls ei’u nú um 100 slcip föst
í ísnum við strendur Danmerk-
ur.
Við strendur Noi'egs hefir
heldui' færst í betra liorf með
siglingarnar. ísinn hefir rekið
til hafs. Sti-andferðir eru enn á
ringulreið eftir erfiðleikana,
sem ísinn olli, en það er búist
við, að strandferðirnar komist
í samt lag næstu daga, ef isinn
rekur ekki að landi aftur.
All»ingrissetnlng’
fld. I í dagr.
Þingsetning’ fór fram kl. 1 e.
h. í dag og var henni hagað
Iíkt og venjulega og hófst með
því að þingmenn gengu í kirkju.
Síra Friðrik Rafnar vígslu-
! bislcup flutti ræðu í kirkju, en
j því næst geixgu þingmenn til
Alþingisliúss og las forsætisráð-
herra upp venjulegan kon-
ungsboðskap um þingsetningu,
en ekki er búist við frekari
þingstörfum í dag. Forsetakjör
fer væntanlega fram á morgun
eða á mánudag og upp úr því
liefjast þingstörfin fyrir alvöru
enda mun fjái'lagafrumvarpi
úthlutað þá, að öllu forfalla-
lausu.
Ýmsir fundir og þing standa
yfir þessa dagana, og vei’ða rík-
isstjórn og þingmenn að taka
þátt í þeim fundahöldum.
-------—«■ZHSE3S2KS»»—----
Handknattleiksmótið
hefst 30. mars.
í gær barst stjórn Í.S.Í. svar
frá knattspyrnufélaginu Víking,
viðvikjandi þvi, hvort félagið
vildi taka að séi\ með Val, að
balda handknattleiksmót. —
Kvaðst Víkingur reiðubúinn til
þess.
Kjósa bæði félögin menn i
nefnd, þrjá hvort, en sjöundi
maðurinn verður fulltrúi Í.S.Í.
og verður það Frímann Ilelga-
son. Mun nefndin hefja undix'-
1 búning af kappi næstu daga,
j slcrifa félögum úti um land og
| bjóða þeim þátttöku.
! Tveim dögum áður en mótið
; hefst, á Esja að korna úr lirað-
■ ferð utan af landi. Virðist
j standa vel á þeirri ferð fyrir
flokka utan af landi.