Vísir - 28.03.1940, Síða 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Rúitst jórnarskrifstof ur:
í'élagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 28. mars 1940.
Ritstjóri Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri , 5 línur
Afgreiðsla
71. tbl.
Bandamenn áforma stór- Mesti sigur,
kostlega hernaðarlega,
viðskiftalega og stjórn-
málalega sókn
gegn Þjóðverjum
ViiiiieiTiíd Itamlii-
manna á fundi í
Bretlandi.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London, í morgun.
Yfirherráð Bandamanna kemur saman á fund, að því
er ætlað er í dag eða á morgun, til þess að taka m jög mik-
ilvægar ákvarðanir. Sennilegt er að fundurinn verði
haldinn í Bretlandi.
Að því er United Press hefir fregnað er í ráði, að
Bandamenn áformi nú að hef ja sókn gegn Þjóðverjum
á öllum sviðum, hernaðarlega, stjórnmálalega og við-
skiftalega.
Þá er talið víst, að yfirherráðið muni taka til sérstakr-
ar íhugunar hversu Þjóðverjar skeyti lítt um réttindi
hlutlausra þjóða, og mun herráðið taka mikilvægar á-
kvarðanir af því tilfelli. Hefir óánægjan magnast mikið
út af því í Frakklandi, að hlutlausu þjóðirnar sumar,
seinast t. d. Noregur, bera fram mótmæli út af því, er
þær telja bresk lierskip nærgöngul, er þau elta flutninga-
skip Þjóðverja og telja bresk og frönsk blöð, að hlut-
lausu þjóðirnar farí sér ólíku hægara í mótmælaáttina,
þegar Þ jóðverjar sökkvi skipum þeirra næstum daglega
eða geri flugvélaárásir á þau. Blöðin lialda því fram, að
Bandamenn megi i engu skeyta um það, þótt Þjóðverjar
geri háværar kröfur til hlutlausu þjóðanna um, að þær
mótmæli því, þótt Bandamenn reyni að hindra siglingar
þýskra skipa, sem bræða meðfram ströndum hlutlausra
landa, til þess að komast heim til Þýskalands. Kröfur
Breta og Frakka um straneara hafnbann verða æ hávær-
ari. Minnast má þess, að frönsk blöð kröfðust þess fyrir
skömmu, að Bandamenn réðist á Þjóðverja hvar sem
hægt væri og hvemig sem á stæði.
Bresk herskip hafa að undanfömu sést víða við strendur Nor-
egs og Danmerkur og hafa sökt tveimur þýskum flutningaskip-
um, en tvö hafa forðað sér undan breskum herskipum með því
að renna á land. Seinasta fregnin um það, er að þýskur togari
varð að gripa til slíks ráðs. Hitt var skipið „Ost-Preussen“, sem
strandaði við Jótland, og áður var frá sagt.
BRETAR ÓTTAST STARFSEMI NJÓSNARA. LANDLEYFI
ERLENDRA SJÓMANNA 1 BRESKUM HÖFNUM VERÐA
MJÖG TAKMÖRKUÐ.
Að því er United Press hefir fregnað verða landleyfi erlendra
farmanna og fiskimanna mjög takmörkuð framvegis í Bretlandi.
Stafar það af auknum ótta Breta við njósnir. Þá verða gerðar
ráðstafanir til þess í hinum ýmsu hafnarborgum Bretlands að
takmarka enn meira en verið hefir aðganginn að hafnarsvæðun-
um, og aukinn lögregluvörður hafður við hafnirnar. Allar þessar
ráðstafanir eru hluti af víðtækum áformum, sem verið er að
hrinda í framkvæmd um land alt, til þess að uppræta njósnar-
starfsemi.
Ákvarðanir í þessum efnurn voru teknar eftir að einn af yfir-
starfsmönnum upplýsingastofnunar flotans lét í ljós það álit
sjóliðsins, að flóttamenn og erlendir farmenn kynni að láta
Þjóðverjum í té mikilvægar upplýsingar.
Hlutleysi
Noregs
margbrotið.
Norska utanríkismálaráðu-
neytið tilkynnir, að þ. 22. mars
liafi breskur tundurspillir skotið
aðvörunarskoti til þýsks versl-
unarskips er var á leið suður
með Noregsströndum. Gerðist
þetta við Ovrest'Éfd i norskri
landhelgi. Hið þýska skip nam
ekki staðar, en lundurspillirinn
gerði ekki frekari tilraun til þess
að beita valdi. Fallbyssukúlan
lcom niður milli sjávar og Var-
baug-járnbrautarstöðvar, en
olli elcki tjóni. Norska sendi-
herranum í London hefir verið
falið að mótmæla þessu frek-
lega hlutleysisbroti. — Norska
flotamálastjórnin tilkynnir, að
23. mars liafi bresk tundur-
spilladeild verið úti fyrir strönd-
um Jaðars. í flotadeildinni
voru 8—9 lierskip. Tvö þýsk
flutningaskip komu auga á hana
og sigldu imi Tosfjörð, milli
Lindesnes og Farsund, en tund-
urspillarnir fóru eftir, uns þeir
sem frjálsLfl.
í Kanada hef -
ir unnið.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Kosningasigur frjálslynda
flokksins í Kanada, undir for-
ustu McKenzie King forsætis-
ráðherra, er hinn mesti, sem
flokkurinn hefir nokkuru sinni
unnið. Hefir flokkurinn fengið
Áhöfn og farjiegum var bjargað 177 þingsæti af 245, en íhalds-
E.s. Comefa, eign Ber-
genska, skotin í kaf.
E.s. Cometa, 3794 smál., eign
Bergenska, er talið af. Menn
ætla, að annaðhvort hafi skipið
farist á tundurdufli eða verið
skotið í lcaf með tundurskeyti.
og eru skipbrotsmenn væntan-
legir tíl Kirkwall á bresku her-
skipi. Hafa þá alls farist 9 skip
hlutlausra þjóða um páskaleyt-
ið, af völdum stríðsins, þar af
6 dönsk og 2 norsk. Bandamenn
hafa ekki mist neitt skip síðast-
liðna viku og er það fyrsta vika
styrjaldarinnar, sem þeir missa
ekkert skip af völdum styrjald-
arinnar. NRP—FB.
flokkurinn fékk aðeins 38. Enn
er ókunnugt um úrslit í 5 kjör-
dæmum. Kommúnistar komu
engum sínum frambjóðanda að
og Social-Credit-flokkurinn,
sem hafði 15 menn á seinasta
sambandsþingi, kom aðeins að
einum manni.
Hið nýja sambandsþing mun
koma saman í maímánuði n. k.
Nlg'nrHsar
Viðreisnarstjórn
mynduð i Finnlandi
Ryti áfpam fopsætispáðhepra
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Finska stjórnin hefir verið endurskipuð, en Ryti er áfram for-
sætisráðherra, og' nokkrir gömlu ráðherrarnir eiga enn sæti í
stjórninni. Utanríkismálaráðherrann er nýr maður í ríkisstjórn-
inni, Viiti að nafni. Tanner fyrrverandi utanríkismálaráðherra
er félagsmálaráðherra. Paasikiivi á ekki sæti í stjórninni.
Þessi nýja stjóm — viðreisnarstjómin — því að viðreisn eftir
styrjöldina, — er hennar mesta og æðsta hlutverk, — kom sam-
an á fyrsta fund sinn í Helgsingfors í gær. Ryti gerði grein fyrir
áformum stjórnarinnar til viðreisnarinnar. Helstu atriði við-
reisnaráætlunarinnar eru:
1) Að sjá öllum þeim, sem heimilislausir eru vegna styrj-
aldarinnar fyrir heimilum og atvinnu í sveitum lands-
ns. Telur stjómin hyggilegra, að ráða fram úr málun-
um á þann hátt, heldur en stuðla að útflutningi þess
fólks, sem flytja varð úr héruðunum, sem Rússar
fengu, og Finnlandi fyrir bestu, að fólkið verði kyrt í
landinu.
2) Að koma nýju skipulagi á landvarnirnar. Þetta er hin
mesta nauðsyn, eftir að Finnar urðu að láta af hendi
Kyrjálanes, þar sem Mannerheimvíggirðingamar eru.
3) Að hagnýta náttúrugæði landsins sem best, einkanlega
námur landsins og skóga. Vegna hinna gífurlegu út-
gjalda, sem fyrirsjáanlega verða um mörg ár, vegna
styrjaldarinnar og viðreisnarinnar, er mikil nauðsyn
að auka útflutninginn sem mest.
4) Að efla atvinnulíf í landinu og treysta fjárhag þess á
hvern þann hátt sem unt er.
Ennfremur gerði Ryti grein fyrir áformum stjórnarinnar um
margskonar hjálp til handa þeim, sem eiga um sárt að binda af
völdum styrjaldarinnar, og kvað hann alla verða að bera þær
byrðar sameiginlega.
áttu eftir að eins 1 mílu inn
fjörðinn, en sneru þá við og
béldu til hafs.
Stór erlend flugvél, sennilega
tveggja lireyfla liernaðarflugvél,
flaug í gær í mikilli hæð inn yfir
Þrándheim og yfir bæinn og hélt
svo áfram til sliðvesturs og
stefndi til hafs frá Romsdals-
firði. Norskar hernaðai-flugvél-
ar hófu sig til flugs, en tókst
eklci að ná sambandi við flug-
vélina. Nánari atliugun á hlut-
leysisbroti hinnar erlendu flug-
vélar fer fram. NRP—FB.
Finnar enn hjálpar
þurfi.
Finska þjóðarhjálpin hefir
enn á ný snúið sér til Norslta
Rauða Krossins og beðið að-
stoðar. Það er lögð áhersla á, að
þörfin sé enn meiri eftir að
friðarsamningarnir voru undir-
skrifaðir en meðan styrjöldin
geisaði. Norski Rauði Krossinn
álcvað þegar að leggja enn fram
50.000 kr. í lijálparskyni. Verð-
ur þvi fé varið til aðstoðar
veiku fólki og börnúm. NRP. —
FB.
skipstjóri á Gullfossi
á 25 ára skipstjóraafmæli í dag.
I dag eru 25 ár Jiðin
frá því Sigurður skip-
stjóri Pétursson frá
Hrólfsskála, var
„munstraður“ sem skip-
stjóri á Gullfoss, fyrsta
skip Eimskipafélags Is-
lands, en Gullfoss lét úr
höfn í fyrsta sinn (frá
Khöfn) þ. 1. apríl fyrir
25 ánim. Má því segja,
að sem skipstjóri sé Sig-
urður jafngamall sínu
góða og þrautreynda
skipi. Nú, í dag, liggur
Gullfoss við Vestmanna-
eyjar, á útleið, í blind-
hríð.
Það væri að bera í
bakkafullan lækinn að
hrósa Sigurði Péturssyni. Það er alþjóð kunnugt, að hann er
hinn mesti ágætis drengur, sem hvarvetna, og ekki síst sem skip-
stjóri, hefir áunnið sér traust og hylli allra, sem hann hefir átt
saman við að sælda. Skipstjórn hans hefir að allra dómi verið
með afbrigðum góð og aldrei hefir neitt óhapp komið fyrir und-
ir hans stjórn. Áður en Sigurður varð skipstjóri á Gullfossi hafði
hann iðulega haft skipstjóri á hendi ferð og ferð sem stýrimaður
og farnaðist vel sem æ síðar.
SIGURÐUR PÉTURSSON.
Franskur tundurspill-
ir ferst af sprengingu
Ógurleg sprenging varð í
franska tundurspillinum Raill?
euse, er liann fór frá Cacablance.
Sökk herskipið og er talið að
100 menn hafi farist eða særst.
NRP. — FB.
Sverrir vera talsvert lekur, því
að hann hjó mjög á skerinu
og veltist á því.
Kolaskip strandar við
innsiglinguna í Eyjum
Skömmu eftir hádegið i gœr
strandaði e.s. Suerrir frá Akur-
eyri við innsiglinguna á Vest-
mannaeyjahöfn. Var lágsjáv-
að er þetta skeði, og fór skipið
upp á rif, sem nefnt er Hörgs-
eyri.
Sverrir er 158 smál. brúttó
á stærð og hét áður Smyrill, er
Færeyingar áttu hann. Var
hann Ieigður til kolaflutninga
og var í fyrstu ferð sinni frá
Englandi til Vestmannaeyja.
Tók liann ckki hafnsögumann.
V.b. Már, héðan úr bænum,
dró Sverri af skerinu. Mun
—o—
Neðri deild sam-
þykti hann.
Atkvæðagreiðsla fór fram í
neðri deild í gær um bæði um-
fcrðarlaga-frumvörpin.
Var komin fram breytiilgar-
tillaga á þá leið, að vinstri
akstur skyldi framvegis í lög-
um, en ekki tekinn upp hægri
akstur, eins og var i frumvarpi
stjórnarinnar. En breytingar-
tillagan var feld með 14 atkv.
gegn átta og fara bæði frv. nú
til Efri deildar.
Samþykki Efri deild frv. ó-
breytt, með hægri handar
akstri og öllu saman, verður
hann tekinn upp frá áramót-
um.
NJÓSNARA(HÆTTAN. — í öllum löndum eru menn varaðir
við njósnaraliættunni og við því því að vera of opinskáir um
mikilsvarðandi mál, því að allsstaðar geta verið njósnarar. —
Myndin er frá Finnlandi, tekm áður en stríðinu lauk, og sýnir
sjálfboðaliða skoða auglýsingu, sem áminnir menn um að liafa
gætúr á tungu sinni.