Vísir - 07.06.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri ]
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar . 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla j
30. ár.
Reykjavík, Föstudaginn 7. júní 1940.
129. tbl.
ar flugvélap í
hundradatali á sveimi
ÞjéðTerjaU* hafa kom>
iát í Weygrandi-variiar'
beltið á nokkrum
yftp Englandl
;WAJ»-
"NÍfV *« »•- 'C "
HUJG -c.'-ai^t
Bretar óttast stórkostiegar loftárásir
Bandamenn fá
og þegar.
stöðiim.
Frakkar
búast við, að
Þjóðverja.
geta stöðvað
af birgðum
flugvélar
herskipaflota
Bandarík j anna.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Iannað skifti á sama sólarhringnum flaug mikill f jöldi þýskra flugvéla inn yfir
England i morgun, á svæði sem er tæplega 500 kilómetrar á lengd. Flugvél-
arnar skiftu hundruðum, að því er talið er. Menn ætla, að flugmenn Þjóð-
verja hafi farið í þessa leiðangra í könnunarskyni fyrst og fremst, til þess að búa sig
undir stórkostlegar árásir á bækisöðvar enska flughersins, hergagnaverksmiðjur og
aðra hernaðarlega mikilvæga staði.
:i.tí~~r-~~*. '¦• • ... *''' ¦—
1 Aðvaranir um lofárásir voru gefnar i Kent og.Durham i morgun, eftir að heyrst hafði
i flugvélunum. Loftvarnabyssur voru teknar í notkun og árásarflugvélar hófu sig til
flugs. Einnig heyrðist til þýskra flugvéla er farið var að bregða birtu og voru kast-
ljós tekin í notkun í mörgum lof tvarnastöðvum. Sprengikúlum og íkveikjusprengjum
var varpað á Lincolnshire. Þrír menn særðust og yoru fluttir í sjúkrahús.
Iflestumtilfellumliðu2—2% klst frá því er aðvaranir um loftárásir voru gefnar og
þar til hættan var liðin hjá.
jooverja
1 Lundúnablöðunum, sem út komu í morgun, koma
sumir hermálasérfræðingar með þær tilgátur, að Þjóð-
verjar ætli að hafa flugvélaflokka á sveimi yfir strönd-
um Englands í eftirlitsskyni, með það fyrir augum, að
hindra breskar flugvélar í að fara til Þýskalands til
árása og verði auk þess gerðar árásir á hernaðarstöðv-
ar, þegar tækifæri er til. Þjóðverjar ætli með öðrum orð-
um að fara eins að og Bretar, sem hafa haft flugvélar
á stöðugu sveimi yfir Helgolandsflóa, til þess að koma
í veg fyrir, að þýskar flugvélar hef ji sig til flugs og fari
til árása við Englandsstrendur.
Breskar árásarflugvélar réðust á þýskar flugvélar
yfir ströndunum við Ermarsund snemma í morgun, en
nánari fregnir af viðureignunum hafa enn ekki borist.
Fregn frá Washington hermir, að Curtiss-flugvélaverksmið/-
urnar amerísku hafi fengið keyptar 50 flugvélar af varabirgð-
um herskipaflotans, og ætli verksmiðjurnar að selja Banda-
mönnum þessar f lugvélar.
Þjóðþingsmenn í Washington eru heimildarmenn fyrir fregn-
inni. Herskipafloti Bandaríkjanna fær svo nýjar flugvélar í
staðinn frá Curtiss-verksmiðjunum.
Fullyrt er, að Roosevelt hafi fallist á, að þannig verði að far-
ið, ef trygt sé, að ekki sé framið brot á hlutleysislögum Banda-
ríkjanna.
Líkur eru til. að Bandamenn geti fengið mikið af flugvélum
og hergögnum frá Bandaríkjunum, með þessu móti. Ríkisstjórn
Bandaríkjanna veitir félögum í Bandaríkjunum, sem skifta við
Bandamenn, lánsfrest. 1 mörgum tilfellum mun svo um samið,
að verksmiðjurnar smíði nýjar flugvélar í staðinn fyrir þær,
sem Bandaríkjastjórn lætur af hendj, og fœr hún síðar flugvélar
frá verksmiðjunum, af nýjustu gerð.
Auk þeirra 50 flugvéla, sem bandamenn þannig fá, sem að
framan greinir, munu þeir geta fengið ótakmarkaðan fjölda
flugvéla af öðrum gerðum, sem amerískar flugvélaverksmiðjur
fá frá stjórninni. Með þessari aðferð endurnýjar Bandaríkja-
stjórn fIugflota hers síns og flota.
og er áætlað að xfo miljón verka-
manna muni nú losna úr þess-
um iðngreinum og geta tekið til
starfa við vígbúnaðarfram-
leiðslu.
„Daily Telegraph" segir um
þessar ráðstafanir, að almenn-
ingur muni fagna þeim, þvi að
fórnirnar séu mjög litlar, mið-
að við þann ávinning, sem af
þessu leiði.
„Times" fagnar þessum ráð-
stöfunum og væntir þess, að
ekki verði látið hér við sitja,
heldur hert á skömtuninni. t
sama streng taka flest blöðin.
Hjúskapur.
Á morgun verða gefin saman í
hjónaband af síra Garðari Þor-
steinssyni ungf rú Fanney Vilhehns-
clóttir og Gunnar Klemenzson. ¦—
Heimili þeirra verb'ur að Berg-
staðastræti 6.
„Manchester Guardian" ræð-
ir þá ósk bresku stjórnarinnar
til blaðanna, að þau birti her-
stjórnartilkynningar Þjóðverja.
„Stjórnin hefir i þessu efni
algerlega rétt fyrir sér. Þessar
tilkynningar á að birta og það,.
á að athuga þær vandlega, því
að þær sýna, hvað þýska ríkis-
stjórnin og herstjórnin vilja að
landsmenn þeirra trúi. Þess-
vegna birta þær hinar óstöðv-
andi fullyrðingar um tjón
Bandamanna á sjó og í lofti.
í báðum þessum tilfellum þora
þær ekki að horfast í augu við
sannleikann, en treysta lýginni
betur en þögninni."
Talsmaður breska flugmála-
ráðuneytisins lét svo um mælt
við blaðamenn i morgun, að
enginn fótur væri fyrir fullyrð-
ingum Þjóðverja um flugvéla-
tap Breta. Bretar hefðu ekki
mist aðrar eða fleiri flugvélar
en þær, sem tilkynt liefði verið
um jafnóðum. Hinsvegar væri
framleiðsla svo mikil, að hún
svaraði margfalt til tjónsins,
auk þess sem miklar flugvéla-
sendingar berast nú frá Banda-
ríkjunum og Kanada.
í tilkynningum Frakka árdegis í dag segir, að orust-
urnar í Weygand-varnarbeltinu haldi áfram. í nótt sem
leið varð nokkurt hlé á bardögunum, en í birtingu byrj-
uðu bardagarnir á nýjan leik. í fregnum frá Parísar-
borg er því haldið fram, að Þjóðverjar hafi hvergi sótt
f ram að neinu ráði, nema á tveimur stöðum — til hæð-
anna á hægri bakka Aisne-fljóts, og eru því skamt frá
Soissons, og suður að Bresle-fljóti, norðarlega við
Somme. Aðstaðan á vígstöðvunum hef ir eftir þessu lítið
breyst f rá því í gærkveldi, en þá var kunnugt orðið um
framsókn Þjóðverja á þessum stöðum.
í fregnum frá París er því ennfremur haldið fram/
að Frakkar séu nú farnir að venjast hinum nýju bar-
dagaaðferðum Þjóðverja, og varnir þeirra gegn þeim
haf i reynst vel.
Flugherinn franski hef ir veitt varnarsveitunum, sem
haf a það hlutverk með höndum að ráðast á skriðdreka-
sveitir Þjóðverja, mjög mikilvæga aðstoð.
verðar á morgun
kl. 2. e. Ii.
Sjá auglýsingu á bls. 4.
Samkvæmt fregnum þeim,
sem bárust i gær og gærkveldi,
var bardögum haldið áfram all-
an dagirin í gær á Sommevíg-
stöðvunum. Síðdegis í fyrradag
og i gær tefldu Þjóðverjar fram
ógrynni skriðdreka, og var
giskað á i París i gærkveldi, að
Þjóðyerjar notuðu um 2000
skriðdreka í sókninni. í tilkynn-
ingum frá Pai*ís í gærkveldi og
snémma í morgun ér viðurkerit
að Þjóðverjum hafi orðið ,á-
gengt í sókn sinni á nokkurum
stöðum, og hefði Bandamenn
hörfað þar hægt undan, en
ýmsar sveitir Þjóðverja, sem
fram hefði sótt, hefði orðið fyrir
miklu tjóni, og hefði Frakkar
eyðilagt fjölda marga skrið-
dreka fyrir Þjóðverjum. Skifti
tala þeirra hundruðum.
Bardagarnir hafa verið liarð-
astir beggja megin við Amiens,
og þar hafa Þjóðverjar sótt
nokkuð fram, en raunar var
barist í gær á öllu svæðinu frá
ósum Somme-fljóts til Sois-
sons.
Fluglið Frakka hefir tekið
mikimt þátt í bardögunum og
orðið fótgönguliðinu til ómetan-
legs stuðnings. Varpað var
mörgum smálestum af sprengi-
kúlum á birgðastöðvar Þjóð-
veija og'herflutningalestir aft-
Dregið
slu
úr fraraleið'
margskonar
glysvarnings
Bretlandi.
i
Lloyd George majór, sonur
gamla Lloyd George's, sem er
aðstoðar-viðskiftamálaráðherra,
hefir boðað ný'ja skömtun á
mörgum vörutegundum, sem
ekki geta talist nauðsynjavörur.
Verður sala á þessum vöruteg-
undum til smásala minkuð um
% frá þvi, sem áður var. Þessi
skömtun verður framkvæmd i
samræmi við lög, sem heimila
viðaskiftamálaráðuneytinu að
koma í veg fyrir ónauðsynlega
framleiðslu glysvarnings. Heild-
arsala á þessum vörum- var
1939 250 miljónir sterlingsp.,
an víglínu þeirra. 76 flugvélar
skutu Frakkar niður fyrir Þjóð-
verjum i gær og fyrradag. Þá
hafa bæði breskar og franskar
flugvélar haldið uppi stöðugum
árásum á þær hersveitir Þjóð-
verja, sem fremst fara. Þá gerðu
flugmenn Breta og Frakka
miklar loftárásir á flugstöðvar,
sem Þjóðverjar hafa á valdi
•ínu, yið Cambrai ogLe Catel-
le. Sprengjuflugvélar Breta
hafa farið i nýja leiðangra til
árása á hernaðarstaði i Vestur-
Þýskalandi, og valdið þar miklu
tjóni.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar til loftárása á England
að undanförnu, en litið tión hefir
orðið af. Virðist svo sem Bretum
haf i tekist að lrindra, að f lugvél-
ar Þjóðverja kæmist inn yfir
iðnaðarborgirnar, og komu
sprengikúlur hinna þýsku flug-
manna f lestar niður i sveitahér-
uðum. I seinustu tilkynningu
Breta segir frá því, að þýskar
flugvélar hafi flogið yfir East
Anglia, Lineolnshire og viðar.
Defiant-flugvélar reynast ágæt-
legá Og ífU hiörg dæiiii þésSj að
skotnar hafa véríð liiður marg^
ar flugvélar í loftbardoguni
fyrir Þjóðverjum þar sem Defi-
antflugvélar voru annarsvegar,
og komu þær óskaddaðar úr bar-
daganum. 1 orustu yfir Frakk-
landi mistu Þjóðverjar t. d. 21
flugvél i bardaga við Defiant-
flugvélar
„Daily Telegi-aph" birtir for-
ustugrein um viðureignirnar í
Frakklandi og kemst að þeirri
niðurstöðu, að hin nýja sókn
Þjóðverja, sem búist hafi ver-
ið við, veki enga furðu, en mæti
hinsvegar harðvítugri mótstöðu
Frakka.
„Breski herinn á þessum slóð-
um er mög fámennur, en aftur
á móti hefir breski flugherinn
veitt Frökkum þýðingarmikla
aðstoð við að ráðast á bakfylk-
ingar Þjóðverja og teppa að-
flutninga þeirra. Frönsku her-
mennirnir berjast af fádæma
hreysti, vegna meðvitundarinn-
ar um það, að sókn óvinanna
beinist nú að sjálfri París.*'
Skipshöfnin á breska kafbátnum „Sealion", sem hefir verið á verði í Skagerak, kemur heim
eftir frækilega för. — Skipstjórinn, Ben Bryant, er skeggjaði maðurinn til hægri.
Næturakstur.
B. S. 1., sími 1540, annast akst-
ur í nótt.
Næturlæknir.
Bergsveinn Ólafsson, Hringbraut
183, sími 4985. Næturverðir i Ing-
ólfs apóteki og Laugavegs apóteki.