Vísir - 18.06.1940, Side 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar 1660 (5 línur).
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Háskólabygging-
in.
AÐ vekur að vonum mikla
athygli um alt land, hve
giftusamlega hefir til tekist með
háskólahygginguna, og í raun-
inni veldur hún tímamótum í ís-
Ienskri byggingarlist. Islenska
grjótið er í fyrsta sinni notað
til skreytingar, og það hefir
sannast, að unt er að ganga svo
frá því, að það stendur að engu
leyti að baki erlendum bygg-
ingarefnum, sem flutt hafa ver-
ið til landsins sem húsaskraut.
Húsameistari ríkisins hefir
fyrstur nxanna liafið tilraunir í
þessu efni, og rutt þannig nýjar
brautir, sem margir liafa lagt
leið sína um síðan. Á því er eng-
mn vafi, að hér eftir verða allar
byggingar hins opinbera
skreyttar íslensku grjóti, svo
sem vera ber, og væntanlega
láta einstaklingarnir sinn hlut
ekki eftir liggja i þvi efni.
Háskóli Islands, virðulegasta
mentastofnun landsins, liefir nú
flust í húsnæði, sem stofnuninni
er samboðið. Kennarar og nem-
endur hafa öðlast þau vinnuskil-
yrði, sem best verður á kosið,
og allir vona, að í háskólabygg-
ingunni beri íslenska menningu
hæst. Þótt háskóli vor hafi til
þessa starfað við hin lélegustu
skilyrði, hafa verið unnin þar
afrek, sem mótað hafa íslenskt
þjóðlif öllu öðru frekar. Nægir
í því efni að drepa á lagavisind-
in, norræn fræði, læknislist og
guðfræði, þau höfuðfræði, sem
kend eru við háskólann, en á
þeim sviðum öllum stöndum
við Islendingar síst að baki öðr-
um þjóðum, þótt vanefni tor-
veldi framsókn þjóðarinnar í
ýmsum greinum. Prófessorar
háskólans hafa sýnt það, að
þrátt fyrir afleit skilyrði hefir
þeim tekist af efla háskólann
svo, að hann er ekki eingöngu
stofnun, sem hefir þann vanda
með höndum að útskrifa em-
bættismannaefni, heldur er
hann fyrst og fremst vísinda-
stofnun, sem mótar lif þjóðar-
innar öllu öðru frekar.
Ýmsir hafa tilhneigingu, er
beinist í þá átt, að niðra háskól-
anum, gera litið úr þeim mönn-
um, sem þar starfa og þaðan
útskrifast. Slíkt er fráleit villa,
enda má með fullum rétti segja,
að háskólagengnir menn sýni
það yfirleitt i störfum sínum, að
þeir hafa öðlast hagkvæma og
góða mentun, sem kemur þjóð-
inni til góða á öllum sviðum at-
vinnulífsins, ekki síður en i vís-
indum og listum. Hitt er svo
alt annað mál, að þjóðin þarf í
þessum efnum sem öðrum að
aækja fram, — þarf að sanna að
hún eigi sjálfstæðan tilverurétt,
— með því að hún hafi til að
bera mentun og menningu, sem
siðaðri þjóð er samboðin.
Fræðslumál þjóðarinnar eiga að
vera í því horfi, og þá ekki síst
aðstaða æðstu mentastofn-
unar hennar, að hún tryggi
sjálfstæði vort, andlegt og
efnalegt um ókomna ævi,
og með því að vel hefir
verið af stað farið, er engin á-
stæða til að örvænta um fram-
tíðina, þrátt fyrir alla bölsýni
og hrakspár.
Þjóðin lítur með lotningu til
háskólans, sem tákns æðstu
menningar hér i Iandi, og sem
stofnunar, sem krafist er af
miklum afrekum á öllum svið-
um. Þjóðin vill hlúa að honum
og búa vel um hann í öllum
greinum, ekki til þess að koma
upp dáðlausri mentamannastétt,
heldur til hins, að afla sér nýtra
starfskrafta og lifandi lífs. Ilún
vill endurnýja og halda við því
besta, sem lifað hefir i landinu,
og hún ætlast til þess, að menta-
mennirnir skilji til hlítar þá
köllun sína, að starfa í þjóðar-
þágu, en nota ekki nientun sina
henni til óþ'urftar.
Þær óskir fylgja hinni nýju
háskólabyggingu, að hún megi
verða hæli þeirrar æðstu irienn-
irigar og menla, sem islenska
þjóðin á til að bera, og þaðan
megi koma sá lífsstraomur
sem ber þjóðina áfram til meiri
afreka, þrifa og þroska um ó-
komin ár, og svo megi ávalt
verða.
Sresku ssmniniunuin
er ekkMokið.
Hvaðan fær Þjóðvilj-
inn upplýsingar
sínar?
Það hefir verið mjög hljótt
um viðskiftasamninga þá, sem
farið hafa fram að undanförnu
milli Breta og Islendinga. En
þar sem samningar þessir snerta
afkomu allrar þjóðarinnar, er
þeirra beðið með mikilli eftir-
væntingu. En íslensku nefndar-
mennirnir hafa talið sig bundna
algerri þagnarskyldu og varist
allra frétta. Ilið sama er að segja
um ríkisstjórnina. Það hefir ver-
ið alger kyrð um þessa samn-
inga.
I morgun kemur svo Þjóðvilj-
inn og þykist vita alt um samn-
ingana. Vísir leitaði sér upplýs-
inga um hvað samningunum
liði og hefir það eftir öruggri
heimild að sanmingum er ekki
lokið, en unnið áfram að j>eim.
Um samningsgrundvöllinn fékk
blaðið engar upjjlýsingar. Er
sýnilega lögð áhersla á að ekkert
berist út um þetta fyr en samn-
ingarnir liggja fyrir.
En hvaðan hefir Þjóðviljinn
upplýsingar sínar? Það er vitað
að hann hefir þær ekki frá
nefndarmönnum, ogekkifrárik-
isstjóminni. Það verður fróðlegt
á sínum tíma, að sjá að hve
miklu leyti fregn Þjóðviljans
byggist á staðreyndum. En ef
svo skyldi reynast, mun mönn-
um þykja fróðlegt að vita, hvað-
an blað kommúnista fær upp-
lýsingar, sem haldið er leyndum
fyrir öllum öðrum.
FIMTUGUR í DAG:
Steingrímur Jónsson,
rafmagnsstjóri.
Steingrímur Jónsson raf-
magnsstjóri er fimtugur i dag.
Hann hefir verið liér rafmagns-
stjóri i tvo áratugi — en það er
ekki að sjá, að þetta umfangs-
mikla og vandasama starf hafi
mætt á Steingrími.Stjórnarhans
á rafveitu Reykjavíkur og alls
starfs hans í þágu liennar og
Sogsvirkjunarinnar mun lengi
minst verða, en rafmagnsmál-
unum og þessum fyrirtækjum
hefir Steingrímur helgað krafta
sína fremst af öllu.
Vísir óskar þessum vinsæla og
ágæta manni allra heilla á
fimtugsafmæhnu fyrir sína
hönd og lesenda sinna.
Vígsla háskólabyggingarinnar
fór fram í gær.
Glæsilegasta og vandaðasta bygging á íslandi.
Vígsla hinnar nýju háskolabyggingar fór fram í gær, að við-
stöddu miklu fjölmenni. Hófst athöfnin kl. 2 !/2 síðdegis, og
stjórnaði prófessor Magnús Jónsson henni, eftir tilmælum há-
skólarektors, dr. Alexanders Jóhannessonar. Áður en vígslu-
athöfnin hófst gekk fylking íþróttamanna, undir fánum, að
anddyri háskólabyggingarinnar, en í þeirri fylkingu voru '300
menn, allir í íþróttabúningum, en fjöldi bæjarbúa hafði einnig
safnast þafna saman, eða fylgt
Húsameistari heiðraður.
Lúðrasveitin „Svanur“ lék
íslensk ættjarðarlög eftir stú-
denta og stjórnaði Karl Ó. Run-
ólfsson hljómsveitinni.
Háskólarektor og prófessor-
ar gengu fram á tröppur há-
skólabyggingarinnar, en forseti
I. S. I. ávarpaði þá, og flutti
háskólanum árnaðaróskir í-
þróttamanna. Þakkaði rektor
lieimsóknina og árnaði íþrótta-
mönnum allra heilla.
Gestir höfðu safnast saman
í hátíðasal og tekið sæti. Voru
þar ríkisstjórn, alþingismenn
allmargir, fulltrúar erlendra
ríkja, biskupar, strulentar og
fjöldi gesta.
Háskólarektor, prófessorar,
sendikennarar og aðrir starfs-
rnenn háskólans gengu inn i
Skrúðganga íþróttamanna.
háskólasalinn stundvíslega kl.
2.30, og tóku sæti á upphækk-
uðum palli fvrir enda salarins
skrúðgöngunni.
gegnt gestum, en nýútskrifaðir
slúdentar sálu í afherbergjum
beggja vegna við prófessorana.
Að baki þeim fyrir miðjum sal
stóð íslenskur silkifáni, gull-
bryddur, er háskólanum var
gefinn síðastl. haust.
Fyrstur tók háskólarektor til
máls, og bauð gesti velkonnia
til vigslunnar. Lýsti hann sögu
háskólabyggingarinnar í stór-
um dráttum, og aflienti ríkis-
stjórn bygginguna. Þakkaði
hann sérstaklega húsameistara
ríkisins, prófessor Guðjóni
Samúelssyni, unnin störf, sem
og Þorláki Ófeigssyni, sem hef-
ir hafl eftirlit með bygging-
unni, og öðrum þeim, sem unn-
ið hefðu að henni.
Forsætisráðherra tók næstur
Forsætisráðherra flytur ávarp.
til máls. Vék hann að hugsjón
Jóns Sigurðssonar um þjóð-
skóla og rakti nokkuð ummæli
hans i því sambandi. Lagði
ráðherrann megináherslu á
það, að ef háskólinn ætti að
inna hlutverk sitt af hendi, yrði
liann að blása lífi í brjóst nem-
enda sinna og þrótti, sem mætti
islensku þjóðinni að gagni
koma. Árnaði forsætisráðherra
háskólanum allra heilla, og af-
henti hann því næst bygging-
una háskólarektor og prófess-
orum til afnota og umsjár.
Þá tók forseti lieimspeki-
deildar, prófessor Sigurður
Nordal til máls, og lýsti yfir
HÚSASMÍÐAMEISTARARNIR.
Hér að ofan birtist mynd af þeim Einari Kristjánssyni tré-
smíðameistara og Sigurði Jónssyni múrarameistara, sem bygt
Iiafa háskólann ofan kjallara, og -gengið hafa frá byggingunni
að utan sem innan. Ljúka allir upp einum munni um það, að
þeir hafi leyst störf sín prýðilega af hendi, og ber sérstaklega að
þakka þeim live öll vinna hefir gengið greiðlega við bygginguna,
þrátt fyrir margskonar erfiðleika, með efniskaup og fleira.
Eru störf þeirra vissulega viðurkenningarverð, enda svo vel
Ieyst af hendi, að ekki má að þeim finna með neinum rökum. Er
það ánægjulegt að íslenskir húsasmíðameistarar skuli hafa leyst
verk þetta af hendi, og ber að þakka þeim um leið og öðrum að
háskólabyggingin er fegursta og glæsilegasta bygging á Islandi
að öllum frágangi.
Úr hátíðasal háskólans.
I
þvi, að deildin hefði einróma
kjörið húsameistara ríkisins,
Guðjón Samúelsson, doktor
philosophiae honoris causa, í
viðurkenningarskyni fyrir hið
ágæta starf, er hann hefði leyst
af hendi í þágu háskólans. Lýst
rektor því næst doktorskjöri og
aflienti liúsameistara ríkisins
doktorsskírteini.
Þá fluttu fulltrúar erlendra
ríkja ávarp, og tók sendiherra
Dana Fr. le Sage de Fontenay,
fyrstur til máls og mælti á lat-
neska tungu. Töluðu þeir því
næst Bay, aðalræðismaður
Norðmanna, aðalræðismaður
Svía, Otto Johansen, aðalræðis-
maður Finna, Lúðvíg Ander-
sen, sendiherra Breta, Mr. Ho-
ward Smith, aðalræðismaður
Frakka M. Voillery og prófess-
or Guðbrandur .Tónsson, er
flutti ávarp frá Dyflinarhá-
skóla.
Sendiherra Breta, Mr. Ho-
ward Smith, afhenti ávarp frá
háskólanum í Cambridge, til
háskóla íslands, þar sem rætt
er um andlega samvinnu Breta
og íslendinga, og sérstaklega
getið Eiríks Magnússonar mjög
Iofsamlega, en hann starfaði
sem prófessor i norrænum
fræðum við ljáskólann í Cam-
bridge.
Að lokum þakkaði rektor
liinar hlýju kveðjur og óskaði
þess, að háskólinn mætti um
langan aldur gegna því hlut-
verki sínu, að verða blysberi
hinnar æðstu menningar í land-
inu. Var því næst leikinn þjóð-
söngurinn og athöfninni slitið.
.Takob .1. Smári hafði ort hin
prýðilegustu hátíðaljóð, i þrem
ur köflum, sem sungin voru
við vígsluna, en Emil Thorodd-
sen samdi lögin, en þau ein-
kendi norrænn þróttur.
Fór öll athöfnin mjög virðu-
lega fram, svo sem háskólan-
um var samboðið.
Að athöfninni lokinni dreifð-
ust gestirnir um bygginguna og
skoðuðu liana, og luku allir upp
einum munni um það, að hún
væri i alla staði liin vandað-
asta. Vakti það að vonum sér-
staka athygli, hve íslenska
grjótið getur verið fagurt, þeg-
ar frá er gengið á réttan liátt,
og má telja líklegt, að það
verði meira notað í byggingar
en tíðkast hefir, og móti liá- |
skólabyggingin þannig tíma-
mót í byggingarlist lands-
manna.
Rektor háskólans flytur ræðu.
—16. Ræddi hann sérstaklega
um hlutverk háskólans í ís-
lensku þjóðlífi.
Stefán Snævarr cand. theol.
las bæn í kórdyrum, og sungnir
voru eftirgreindir sálmar: „Vor
guð er borg á bjargi traust“,
„Ó, liversu sæll er liópur sá“,
og að lokum „Son guðs ert þú
með sanni“.
Kapellunni hefir verið lýst að
nokla-u hér í blaðinu, en til við-
Vígsla kapellunnar.
bólar skal þess getið, að henni
hafa borist ýmsar fagrar gjafir
og eru þessar helstar: Kross-
mark og Kristslíkan skorið af
Ágústi Sigurmundssyni, en pró-
fessor Guðbrandur Jónsson gaf.
Prófessor Magnús Jónsson gaf
kapellunni silfurbikar fagran,
og biblía, er gefin var próf. Har-
aidi Níelssyni af nemendum
hans, en frú Soffía Haraldsdótt-
ir og Haraldur Sveinsson gáfu
hana til kapellunnar. Börn pró-
fessors Sigurðar P. Sívertsen,
frú Steinunn kona Gústafs A.
.Tónassonar skrifstofustjóra, og
Ilelgi Sivertsen og frú hans
gáfu lielgisiðabók, er átt hafði
faðii þeirra.
Flóttinn frá Spánr.
heitir viðburðarík anterísk kvik-
mynd, sem Nýja Bíó sýnir um þess-
ar mundir. Aðalhlutverkin leika
uppáhaldsleikarar Reykvíkinga, Lo-
rette Young og Don Ameche.
Háskólinn.
Nafn Magnúsar Vigfússonar haföi
fallið niður, þegar getið var þeirra,
sem unnið höfðu að byggingu há-
skólans.
Lárus Salómonsson
biður þess getið, að hann hafi
unnið glímubeltið (íslandsglimuna)
jszw sinnum, en ekki 2svar, eins
og skýrt hafði verið frá hér i blað-
inu. —
—o---
Kl. 10 í gærmorgun hófst há-
skólavígslan með guðsþjónustu
í kapellu háskólans, en prófess-
or Magnús Jónsson flutti pré-
dikun og lagði út af Matt. 5, 14
Leikfélag Reykjavíkur
sýndi skopleikinn „Stundum og
stundum ekki“ síðastl. sunnudag
fyrir troðfullu húsi. Næsta sýning
verður annað kvöld og hefst sala
aðgöngumiða í dag.