Vísir - 02.07.1940, Síða 3
Búlgarir eru hlutlausir og
eiga enga bandamenn.
R ÚSSAR hafa fært sig upp á skaftfð nú um mánaðamótin og
fengið norðurhluta Bukovinu og Bessarabíu frá Rúmen-
um. Eftir heimsstyrjöldina lýsti Bessarabia — sem Rússar
höfðu náð 1812 -— yfir sjálfstæði sínu og gekk inn í rúmenska
ríkið. Rúmenar fengu Transylvaníu af Ungverjum og Dobrudja
frá Búlgörum um líkt leyti, og hafa þessi ríki aldrei getað
gleymt því. — Nú láta þessi ríki heldur ófriðlega, en Búlgaría á
nokkra sérstöðu í álfunni, og fer hér á eftir grein um hana.
Hún er eftir Hugo Speck, fréttaritara U. P. í Sofia, sem var áð-
ur í Konstantinopel.
Búlgaría á enga bandamenn
og hefir ekki gert neina samn-
inga eða sáttmála um hjálp, ef
á hana verður ráðist. Hún ætlar
að láta hlutleysisyfirlýsingar
sínar vera sér vernd í því fár-
viðri, sem nú geisar í Evrópu.
Það er sagt, að Boris konung-
ur hafi orðað þetta á þessa leið:
„Búlgaría reynir að koma sér
svo fyrir, að hvorki heyrist til
liennar né sjáist.“ En það er
ekki ósennilegt, að þessi afstaða
breytist, ef eitthvað óvænt kem-
ur fyrir.
Enda þótt Búlgaria hafi
landakröfur á hendur öðrum
ríkjum, hafa búlgarskir forvig-
ismenn hvað eftir annað gefið
út yfirlýsingar á þá lund, að ef
ráðist verður á einhver Balkan-
lönd, muni Búlgarir ekki grípa
til neinna þeirra ráðstafana,
sem stofni þeim ríkjum í frek-
ari hættu.
Búlgarir hafa aldrei fallið frá
kröfunum á þeim liluta Do-
brudja, sem Rúmenar fengu,
landræmunni i Þrakíu niður að
Eyjahafinu gríska og því landi,
sem Jugoslavar fengu. En þeir
bafa ákveðið, að láta allar lcröf-
ur niður falla um sinn og geyma
þær til betri tima.
I
*.
Standa utan
Balkanbandalagsins.
Búlgarir hafa hvað eftir ann-
að hafnað því, að ganga í Balk-
anbandalagið. Þeir bafa einnig
hafnað að undirrita nokkurn
sameiginlégan sáttmála með
Balkanríkjunum eða Dónár-
löndunum. Tyrkir liafa þó unn-
ið að þvi sleitulaust mánuðum
saman, að fá þá til þess að gera
bandalag gegn væntanlegri árás
á Balkanrikin, úr hvaða átt sem
hún kæmi.
Enda þótt Grikkjum, og Rúm-
enum hafi verið lieitið stuðn-
ing af Bretum og Frökkum og
Tyrkir hafi gert varnarbanda-
lag við þá, hafa Búlgarir ekki
Makkaroni
Maizena mjöl
Vi5irv
Laugavegi 1.
ÚTBÚ, Fjölnisvegi
Játið það á sig fá. Enda er nú í
ljós komið, að þau loforð, sem
Bandamenn gáfu, voru lil Iítill-
ar hjálþar, þar sem Frakkar
hafa verið brotnir á bak aftur
og Bretar bafa nógu að sinna
að öðru lejdi.
En Búlgaría er enn ekki úr
allri bættu samt. Ef ófriður
brýst út á Balkan, er eingöngu
um nágrannaríki Búlgaríu að
ræða. Stríðið mundi standa við
húsdyr þeirra, ef svo má að orði
kveða. Og jiað óttast þeir mest
af öllu. Ef annaðhvort Griklc-
land, Jugoslovia eða Rúmenía
drægist inn í styrjöldina, þá er
ekki að vita nema eitthvað
þriðja ríki krefðist þess, að fá
að flytja her um Búlgaríu, til
þess að koma viðkomandi riki
til hjálpar. Slíkt er fjarri þvi
að vera óhugsandi.
1
4
Lega landsins
sannar hættuna.
Það þarf ekki annað en að
virða fyrir sér landabréFið rétt
sem snöggvast, til þess að verða
ljóst, hversu rétt þetta er. Tvrlc-
ir hafa oft látið í veðri vaka, að
ef til ófriðar dragi á Balkan-
skaga, muni þeir þegar í stað
láta til skarar skríða og biða
ekki þess, að hættan verði al-
veg komin að bæjardyrum
þeirra.
Er þá liin nijóa strandlengja
norðausturhluta Grikklands
nægilega breið til þess að veita
svigrúm til nútíma hernaðarað-
gerða, ef ítalir herja frá Al-
baníu áleiðis til Eyjahafsins og
Hellusunds? Búlgarir óttast, að
svo sé ekki.
Myndu Bretar láta sér nægja,
að senda her aðeins sjöleiðis fil
Rúmeniu, ef liún bæðí þá um
hjálp og þeir ákvæðu að ve'ita
hana? Búlgarar óttast að svo
muni ekki vera.
Búlgarir óttast ekkert af
Rússa liendi. En myndi ítalskur
og þýskur her, er sækti til
Svartahafsins og Hellusnuids,
virða hið margyfirlýsta hlut-
leysi Búlgara? Þeir óttasl að
svo muni ekki verða.
Búlgarir horfast æðrulaust í
augu við veruleikann og eru
slaðráðnir i því, að verja land
sitt, hver sem ætlar að brjóta
])að undir sig. En þeir þurfa að
eins að Iíta á landabréfið, lil
]>ess að sjá, að nú er varla nokk-
ur þjóð í meiri bættu en þeir.
RUGLVSINQflR
BRÉFHRUSfl
BÓKflKÓPUR
ei:
QUSTURSTR.12.
WdtfVtíWiVM
er miðstöð verðbréfavið-
skiftanna. —
Samstiltur hópux í
vinnumensku.
Þegar það er athugað, að víð
höfum hreina samvisku af
vopnaburði og höfum því fengíð
að halda besta kjarna vorum,
þá er sist að undra, þótt við
getum eitthvað verið til fyrir-
myndar, ef við viljum það við
hafa og látum það betra ráða.
Það var heldur betur handa-
gangur í öskjunni Jónsmessu-
daginn, beinlínis hugbetrandi
og upplyftandi í sykurhallærinu
að sjá þær við stóru kaffikönn-
una, sjálfstæðiskonuna og
kommúnistakonuna, skrúfandi
úr sama krananum í bolla Al-
þýðuflokksmeyjarinnar eða
Framsóknarmaddömunnar, •—
brosandi livor til annarar með
systurhug. Allar keptust þær
mislitu í eldhúsinu, við búðar-
V I S I R
diskinn og afgreiðsluna, og um
vinnuhlé var ekki að ræða eða
grænan eyri um tímann.
Ekki lágu þeir heldur á liði sínu,
þeir bráðflekkóttu, pólitískt séð,
blessaðir okkar, og gæfu þeir sér
stundar frið, ruku þeir inn í eld-
liús að kasta mæðinni,
en mæðulegir voru þeir ekki,
þó minna en ekkert hefðu þeir
um tímann frá auralegu sjónar-
miði, þvi hlýjasta viðmót var á
báða bóga og þreytan lagði á
flótta. Lúðrasveitin og ösin
manaði burt allan ótta.
Trúi því bver sem vill að kær-
leikurinn og fórnfýsin séu ekki
máttarstoðir hvers þjóðfélags
og veiti sannasta gleði. Því þeg-
ar á alt er litið þá er það sálin,
sem á að lifa og svara fyrir sig,
bæði í þessu lífi og öðru.
S. M. Ó.
Mjólkin hækkar um
27,5.%’ frá áramótum.
í gær var mjólkin hækkuð í
annað sinn á þessu ári, í þetta
skifti um 6 aura. Nemur þá
hækkunin frá áramótum 11 au.,
eða 27,5%.
Kauphækkun verkafólks nem-
ur hinsvegar aðeins 22.5%.
Ekki munu hændur njóta
mikils góðs af þessari mjólkur-
hækkun, því að til þeirra mun
ekki renna nema þriðjungur
hækkunarinnar, en hitt gleypir
skipulagið.
Mjölkurverðið er nú 56 au. 1.
heimsendur, en 54 au. í flöskum
í búðum..
Rjómaverðið liefir hækkað
um 35 au., úr kr. 2.80 lítrinn í
kr. 3.15. , \
Stórstúkuþingið kref st
lokunar áfengisút-
salanna.
Stórstúkuþingið hélt áfram í
gær og voru m. a. samþyktar
eftirfarandi tillögur:
1. Störstúkan felur fram-
kvæmdarnefnd sinni að vinna
að því að hafin verði almenn
fjársöfnun um land alt til
heilsuhælis fyrir drykkjumenn,
og að haft verði um það sam-
starf við annan bindindisfélags-
skap í landinu, eftir því sem við
verður komið.
Jafnframt er framkvæmdar-
nefndinni falið að afla sem full-
komnastra upplýsinga um
þörfina fyrir slikt hæli og beita
ser fyrir ráðstöfunum. sem
bætt gætu úr hinni brýnustu
nauðsyn, uns fullkomið hæli er
fengið.
2. 40. þing Stórstúku Islands
samþykkir að skipa sjö manna
nefnd til að ræða við ríkisstjórn-
'ina um nauðsyn þess að loka
áfengisútsölunum, meðan er-
lendur her dvelur í landimx.
í nefndina voru skipaðir:
Árni Jóhannsson, Alíureyri,
Friðrik Hjartar, Siglufirði. Ei-
ríkur Einarsson, ísafirði, Felix
Guðmundsson, Revkjavík. Snæ-
björn Rjarnason, Vestmanná-
eyjum. Sr. Sveinn Víkingur,
Seyðisfirði og Sigurgeir Gisla-
son, Hafnarfírðí.
Ferdafélagid;
Átta daga íerð
um Norðurland
J^æstkomandi laugardags-
morgun leggur Ferðafélag-
ið af stað í 8 daga ferðalag um
Norðurland og verður farið héð-
an kl. 8 árdegis.
Fyrsla daginn verður ekið
sem Ieið liggur fyrir Hvalfjörð
norður yfir Holtavörðuheiði til
Blöndóss og gist þarl Verður
komið við á helstu stöðum á
leiðinni, svo sem við Hvítárbrú,
Laxfoss, Hreðavatn og Hnúk í
Vatnsdal (eða á suðurleið).
Næsta dag verður farið lil
Hóla i lljaltadal og þriðja dag-
inn til Akureyrar, austur yfir
Vaðlaheiði og til Mývatns, með
viðkomu í Vaglaskógi og bjá
Goðafossi.
Fjórða dagiiin verður dvalið
við Mývatn, farið út í Slútnes,
brennisteinsnámurnar skoðað-
ar o. s. frv., en ekið til Húsavík-
ur um kveldið.
Næsta dag, 10. þ. m., verður
ekið um Keldubverfi og Reykja-
beiði til Ásbyrgis og Dettifoss
og gist aftur á Húsavík næstu
nótt.
Sjötta daginn verður baldið
aftur til Akurevrar og komið
þangað svo snem.ma, að nægur
tími verði til að skoða hinn
fagra höfuðstað Norðurlands.
Verður jafnvel farið inn að
Grund.
Sjöunda daginn verður lagl af
stað heimleiðis og verður gist
í skólahúsinu að Reykjum í
Hrútafirði um nóttina, en næsta
dag ekið suður Holtavörðuheiði,
upp Reykholtsdal og koinið við
í Reykholti og Húsafelli. Verð-
ur HúsafelLsskógur skoðaður,
en síðan ekið suður Kakladal
um Þingvélli til Reykjavikur.—
Er mönnum, sem fara þessa
ferð, ráðlagt að hafa með sér
sundskýlur.
Þeir, sem liafa í hyggju að
fara, vei-ða að rita nöfn sin á
lista, sem liggur frammi hjá
Ivr. Ó. Skagfjörð, Túngötu 5, en
fyrir liádegi á föstudag verða
menn að hafa sótt miða sína.
Prestastefnan
lauk störfum á laugardaginn.
Síra Þorgrímur Sigurðsson
flutti morgunbænir i kapellunni.
Á fundinum gaf svo próf.
Ásm. Guðmundsson skýrslu um
störf barnaheimilisnefndar
þjóðkirkjunnar, og ræddi svo
sérstaklega um liag og störf
barnahælisins Sölheima í Gríms-
nesi. Er próf. Ásm. Guðmunds-
son sá kirkjunnar manna, sem
ásamt sr. Guðm. Einarssyni á
Mosfelli hefir mest lagt fram til
slíkrar líknarstarfsemi kirkj-
unnar. Voru þeir og sr. Hálfdán
Helgason allir endurkosnir i
nefndina með þakklæti fyrlr
unnin störf.
Þá var lesið svofelt skeyti til
prestastef nunnar:
„Þakka hjartanlega fyrir árn-
aðarkveðjur til Háskólans frá
PrestastefnunnL Vona, að hin
nýa kapella verði athvarf binna
árlegu prestastefnu og að þaðan
niegi Ijós kristinnar trúar skína
til blessunar þjóð vorri.
Alexander Jöhannesson,
háskólarektor.“
Næst flutti dr. Jön Helgason
fyrrv. biskup erindi um Kenni-
mensku síra Tómasar Sæmunds-
sonar. Var erindið langt og ítar-
legt, og gaf merkilegar upjilýs-
ingar um þessa hliðina á starfi
liins þjóðkunna nytsemdar-
manns. Eftir erindið var stuttur
Biblíufélagsfundur.
Síðar um daginn, eftir fundar-
hlé, hóf Sigurgeir biskup um-
ræður um söngmál kirkjunnar.
Samþ. var svohljóðandí tillaga:
„Prestastefnan felur biskupi
að vínna að því, að stofnað verði
með sérstökum lögum söng-
málstjóraembætti fyrir íslensku
kirkjuna.“
Þá flutti prófessor Ásm. Guð-
mundsson fagurt og stórfróð-
legt erindi um grafkirkjuna í
Jerúsalem.
Siðast á fundinum urðu enn
nokkrar umræður Um aðalmál
prestastefnunnar: Hlutverk nú-
tímakirkunnar.
Éuuk svo prestástefnunni með
sálmasöng og bæn biskups.
Um kvöldið voru prestar
lieima hjá biskupi.
B c&íop
J fréttír
Mæðrastyrksnefndin.
Eins oglundanfariö’ hefi.r MæÖra-
styrksnefndin i sumar heimili fyrir
mæður og börn þeirra að.Reykholti
i Biskupstungum. UmsóknareyÖu-
blaða sé vitjaÖ í skrifstofu nefnd-
arinn'ar, Þingholtsstræti 18. í dag
kl. 5—7 og 8—io.
83 ára
ver'Öur í dag frú Guðbjörg Herj-
úlfsdóttir, Grénsási viÖ SuÖurlands-
braut.
Samtíðin,
júlíheftiÖ, er nýkomiÖ út. Efni:
Fimtán ára söngkenslustarf ( ViÖtal
við Sigurð Sirkis). Þrír sendiherr-
ar á Islandi (greinar um Svein
Björnsson, de Fontenay og Charles
H. Smith, með myndum). Trúin á
ntanninn eftir Olaf Jóh. Sigurðsson.
Vísur eftir Gísla Ólafgson frá Ei-
ríksstööum. Merkir samtíÖarmenn
(æfiágrip með myndum). A manna-
veiðum (smásaga). Grein um Win-
ston Churchill. Grein um Golf-
strauminn, hina miklu bláelfi At-
lantshafsins. Ávarp Mannerheiins
til Finnlendinga o .m. fl.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Rangárvalla- og V.-
Skaftafellssýslupóstar, Þingvellir,
Laugarvatn, Akranes, Borgarnes,
Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyja-
fjarðar- og S.-Þingeyjarsýslupóst-
ar. — Til Rvíkur : Þingvellir, Laug-
arvatn, Grímsness- og Biskups-
tungnapóstar, Akranes, Borgarnes,
Húnavatns-, Skagafjarðar-, Eyja-
fjar.ar- og S.-Þingeyjarsýslupóstar.
Næturakstur.
Bæjarbílastöðin, Aðalstræti 16,
sími 1395, hefir opið i nótt.
Næturlæknir.
Halldór Stefánsson, Ránargötu
12, sími 2234. Næturvörður í Ing-
ólfs apóteki og Laugavegs ajyóteki.
Forðum £
Flosaporti
Sýning i kvöld kl. 814-
NÆSTSlÐASTA SINN-
Lækkaó verd
Aðgönguiniðar ÍPá kl’>
21 seldir eftii «1. 1. —
Sinii 3191,
Seniisvein
éskast fitrax.
Fiskbúðin, Barónsstíg 59L
Simi 2307..
Laxfoss
fer til Vestmamraeyjja á
morgun kl. 10 síðdi.
Flutningi veitt móttaka
til kl. 6.
aftur tyripl.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.30 HljómpÍötur: Lög úr
óperettum og tónfilmum. 20.00
Fréttir. 20.30 Erindi: Um herskip
(Pétur Sigurðsson sjóliðsforingi).
20.55 Hljómplötur: a) Septett,
eftir Saint-Saéns. b) Vorið, tón-
verk eftir Stravinski.
Sölndeiltl
Blimlminafélags
Islands.
Simí 4046
Lnpmi
er tekið til starfa. Tékur á mótí ávalargestum og ferða-
fólki. Gistihúsið er rekið með sama hætti or fyr.
Ferðr eru alla daga kl. 10 f. h. frá Bifreiðastöð Is-
lands, sími 1540. — Uppl. í sínra á Laugarvatni gefur
BERGSTEINN KRISTJÁNSSÖM.
Sigrurður
fyrrverandi búnaðarmálast jósi
lést 1. júlí að heimili dætra sinna, Hringbraut' 66,,
Reykjavík.
Aðstamdlendur.