Vísir - 07.08.1940, Qupperneq 1
V
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 7. ágúst 1940.
Ritstjóri
Blaðamenn Slmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
179. tbl.
Tyrknesku ráðherrarnir
koma saman á fund til þess
að taka afstöðu til
• /
Balkanmálanna -
Stórkostlega mikil-
vægar ákvardanir
verða teknar.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
amkvæmt fregnum, sem borist hafa frá Ankara
er tyrkneska stjórnin í þann veginn að taka
hinar mikilvægustu ákvarðanir. Er talið, að
rætt verði um hina nýju skipan á Balkanskaga, sem
möndulveldn vilja koma þar á, og ætla menn, að tyrk-
neska sjórnin muni taka hinar mikilvægustu ákvarðan-
ir varðandi þessi mál.
óstaðfest fregn hermir, að Saydem forsætisráðherra
muni ávarpa þjóðþingið í dag og gera grein fyrir stefnu
stjórnarinnar.
Jafnframt er því neitað opinberlega, að Þjóðverjar
og ítalir hafi sameiginlega fraið fram á, að Tyrkir tæki
afstöðu til áforma möndulveldanna varðandi nýja skip-
an í suðausturhluta álfunnar.
Tyrkir hafa að undanförnu rerið við öllu búnir og beðið ró-
legir átekta. Eftir uppgjöf Frakka varð aðstaða þeirra erfiðari
að ýmsu leyti og tilraunir hafa verið gerðar síðan, til þess að
lokka þá frá Bretum, en Bretar telja, að Tyrkir muni hvergi
bregðast þeim. Eru sem kunnugt er enn í fullu gildi samningar
milli Breta og Tyrkja. En Tyrkir vilja fara sem varlegast, og
veldur þar ekki síst hin óvissa afstaða Rússa, sem Tyrkir telja
nauðsynlegt að hafa sem besta samvinnu við.
Japönsk herskip og her-
flutningaskip á suðurleið.
Óvíst um ákvöirðunarstað þeirra-
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Fregnir frá Hongkong herma, að farþegar sem þang-
að eru nýkomnir frá Shanghai, hafi séð f jölda mörg jap-
önsk herskip og flutningaskip í suðurleið, undan For-
mosa.
1 einum skipaflotanum voru 18 flutningaskip. Virðist
þvi vera um herflutninga að ræða í mjög stóriim stíl, en
ekkert er enn kunnugt um ákvörðunarstað herskipanna.
Samkomnlagsnmleitanir milli þýska rík-
isstjórnarinnar og Vatikanríkisios nm
nýjan sáttmála.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Samkvæmt úreiðanlegum heimildum í Vatikanborginni eru
byrjaðar samkomulagsumleitanir milli Vatikanríkisins og þýsku
herstjórnarinnar um nýjan sáttmála.
Samkomulagsumleitanir eru sagðar ganga að óskum. Hans
heilagleiki páfinn og Magliztne hafa undirritað langa skýrslu tíl
þess að gera grein fyrir ágreiningsmálum páfastólsins og þýsku
stjórnarinnar. Skýrsla þessi verður send til Berlínar og er talið
ekki ólíklegt, að Þjóðverjar leggi fram gagntillögur.
Liaiidlier Itala
I Af rílcit liefnr
§oku.
Ilanii liefir ráðl§t iim í Breska
Nomalilaucl íið Adenflöa a 3 stöðniii
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
í morgun var tilkynt í London, að engin ný tíðindi hefði bor-
ist frá innrás ítala í Breska Somaliland við Adenflóa. Eftir fyrri
fregnum að dæma höfðu ítalir byrjað sókn á þremur stöðum
við landamærin og tekist að komast um 30 enskar mílur inn í
landið á einum stað. í London er litið svo á, að ítölum sé nauð-
ugur einn kostur að hef ja sókn nú, meðan þeir enn hafa allmikl-
ar olíu- og hergagnabirgðar, en þeir hafa orðið fyrir miklu tjóni
í loftárásum Breta á birgðastöðvarnar í Afríku að undanfömu.
Sóknin byrjaði s. 1. sunnudag. Nokkuru áður höfðu borist fregnir
um, að ítalir hefði liðsafnað mikinn á landamærum Libyu, og
ætla Bretar nú, að innrásin í Breska Somaliland sé forleikur að
aðalsókn, og sé markmið ítala að ráðast á Egiptaland.
Bretar hraða æfingum
flugmannaefna sinna.
EINKASKEYTI frá U. P. —
London í morgun.
Það var tilkynt í Kanada í
gær, að ráðstafanir hefði verið
gerðar til þess að ósk bresku
stjórnarinnar, að hraða sem
allra mest æfingum flugmanna-
efna í Kanada. Er, sem kunn-
ugt er, verið að æfa mikinn
fjölda flugmannaefna, fná öll-
um löndum Bretaveldis. Ilefir
æfingatíminn nú verið styttur í
7 vikur og er húist við að mik-
ill fjöldi æfðra flugmanna geti
farið bráðlega frá Kanada til
Bretlands.
Hátiðaliöld i Hollensku
Austur-Asíu, í tilefni af
afmælisdegi Irene Hol-
landsprinsessn.
Einkaskeyti frá United Press.
London i morgun.
Fregn frá Bandoeng í hol-
lensku Austur-Asíu hermir, að
þar fari fram mikil Iiátíðaliöld
í tilefui af afmælisdegi Irene
prinsessu, dóttur Bérnhards
prins og Júlíönu Hollandsprins-
essu.
Flotaskóla liefir verið komið
á fót við Sourabaya, en þar er
flotastöð, og fá nú innfæddir
menn þar sjóhernaðarlega æf-
ingu í fyrsta skifti. — Hemaðar-
skóli verður stofnaður bráðlega
í Sourabaya.
Pastenrstofn uii-
in §tarfar áfram.
Einkaskeyti frá United Press.
London i gær.
Það var tilkynt í gær í Vichy,
aðsetursborg frönsku stjórnar-
innar, að þrátt fyrir það, að
mikill hluti Frakklands hafi
verið hernuminn starfi Pastcur-
stofnunin áfram í þágu fólksins
á liinum hernumdu svæðum,
með þvi að. framleiða yarnar-
lyf í baráttunni við skæðar
sóttir, svo sem taugaveiki o. fl.
Japanir hafa sent
Bretum fyrirspurn út
af "handtökunum.
London í morgun.
EINKASKEYTI frá U. P. —
Matsuoka utanríkismálaráð-
herra, segir í Tokio-fregn, liefir
skýrt frá því á stjórnarfundi, að
fyrirspurn liafi verið gerð til
hresku stjórnarinnar, varðandi
handtökur japanskra manna i
Rangoon, Hongkong og Singa-
pore. — Viðeigandi ráðstafanir
verða gerðar, sagði Matsuoka,
þegar fyrirspurninni hefir verið
svarað.
miklai' niatvæla-
birgðir ■ Brct-
lamli.
EINKASKEYTI frá U. P. —
London í morgun.
Ástralíumenn hafa orðið að
draga úr kjötútflutningi til
Bretlands í hili, vegna þess að
öll frysti- og kæliliús eru full í
Bretlandi. Blöðin í London hirta
myndir frá höfninni til þess að
sýna, að það hafi ekki við neitt
að styðjast, sem Þjóðverjar
halda fram, að siglingar liafi
stöðvast þangað, vegna árás-
anila á skipaflota í Ermarsundi.
Menn húast við, að komist
verði hjá frekari matvælaskömt-
un í Bretlandi.
Þáð er leidd athygli að því í
London, að ítalir eigi yfir eyði-
merkur og f jalllendi að fara, þar
sem alt verði að hafa meðferðis,
því að gróðurlaust er þarna víð-
ast og drykkjarvatnsskortur.
Erfitt er að koma við vélaher-
sveitum. Bretar hafa þarna hin-
ar svo nefndu „úlfaldahersveit-
ir“, sem mjög eru frægar; eru í
þeirn Bretar og Somalilands-
menn, og hafa þeir úlfalda fyrir
reiðskjóta. I hersveitum þessum
eru afbragðs skyttur. Einhverj-
ar þessara hersveita hafa fengið
vélknúin farartæki og hergögn.
Þótt Bretar geri sér vonir um,
að þessum hersveilum muni
auðnast að stöðva framsókn ít-
ala, treysta þeir mest á flugher
sinn.
Mikið er um það rætt, hvert
gagn ítalir myndi hafa af því, ef
þeir næði breska Somalilandi á
sitt vald, og er litið svo á, að það
séu hafnir Breta við Aden-flóa, /
sem þeir hafa augasíað á.
Fregnir liafa komist á kreik
um það í London, að Italir væri
í þann veginn að hefja sókn á
Badiasvæðinu, þar sem þeir liafa
safnað miklu liði, til innrásar í
Egiptaland. Þessar fregnir liafa
ekki verið staðfestar í London.
Hallast menn frekast að því, að
ítalir muni safna enn meira liði,
áður en þeir freisti að gera inn-
rás þar.
EINKASKEYTI frá U. P. —
London í morgun.
Samkvæmt tilkynningu, sem
birt var í Rerlín í gær, er ekkert
hæft í þeiri’i fregn að Julius
Streicher, sem heiftarlegast
herst gegn Gyðingum í Þýska-
landi, væri látinn. — Streiclier
var seinast landstjóri í Franken,
en hafði látið af því starfi og hjó
í kyrþei á búgarði sínum. Lausa-
fregnir liermdu, er hann lét af
embætti, að hann liefði fallið i
ónáð hjá Göring.
Synti frá Vatnagörð-
um til Viðeyjar.
^ SUNNUDAGINN synti 14
ára stúlka, Ásdís Erlings-
dóttir, Pálssonar yfirlögreglu-
þjóns, frá Vatnagörðum til Við-
eyjar, ósmurð og án þess að
nokkur væri til fylgdar henni.
Fór liún í sjóinn í víkinni lijá
flugskýlinu um kl. 5 og synti
nokkuð út. Datt henni þá í
hug að synda vfir til Viðeyjar
og gerði það hiklaust. Þegar yf-
ir kom ætlaði hún að synda til
baka, en stúlka, sem hún þekti
í eyjunni bauð lienni lieim til
sín upp á hressingu og flutti
hana síðan til lands aftur.
Vegalengdin, sem, Ásdís synti,
er um 1500 metra og er straum-
ur þungur í sundinu og sjávar-
hiti var aðeins um 11° C. Er
þetta frækilegt sund, en Ásdís
er góð sundkona og harðgerð,
eins og hún á kyn til og varð
ekkert meint af.
Skömmu áður en yisdís lagð-
ist til sunds, urðu stúlkur, sem
voru á háti um þessar slóðir,
varar við hnísu, sem elti hát
þeirra. Var það heppilegt, að
linisan skyldi vera horfin, þeg-
ar Ásdís synti yfir um, því að
þær gera sundmönnum ýmsar
skráveifur.
Myndasýning
Sig. S. Thoroddsens
verkfræðings.
Sigui’ður S. Tlioroddsen verk-
fræðingur opnaði í dag sýningu
á andlitsmyndum, vatnslita- og
pennateikningum í Austurstræti
14, 1. liæð (þar sem hattabúð G.
Briem var úður).
Myndirnar eru 235 talsins og
eru sannkallaðar „spegilmynd-
ir“ af ýmsum þektum og óþekt-
um samtíðarmönnum, mest
Reykvikingum, en þar er einnig
álitlegur hópur þjóðkunnra
manna Utan af landi. Myndirnar
eru misjafnar að gæðum, sem
eðlilegt er, en margar þeirra eru
mjög skemtilegar og hefir teikn-
aranum oft tekist að ná lieildar-
svip í fáa en ljósa og skýra
drætti.
Myndimar fást keyptar, en
auk þess geta menn látið lirað-
teikna sig fyrir kr. 1.50 auka-
gjald. Mun marga óefað fýsa að
sá sjálfa sig í þvi ljósi sem teikn-
arinn sér þá, og vita livort
skygnigáfa hans sé svo mikil, að
hann geti dregið fram manns
„innri mann“ í dráttum þeim er
liann dregur.
Sýningin verður opin næstu
daga kl. 10—12, 1—7 og 8—10 e.~
h. Aðgangur kostar eina krónu.
Drengjamótiö:
Gunnar Huseby setur
kringlukastsmet
1*^ rengjamótið hófst hér á 1-
þróttavellinum í gærkveldi
og var kept í 7 greinum. Eftir
fyrsta kveldið hefir í. K. 13 sh,
K. R. 12, Í.R. 8, Á. 6 og F.H.
3 stig.
Fara liér á eftir úrslit í ein-
stökum greinum.
80 m. hlaup:
1. Janus Eii’iksson l.K. 9.8 sek.
2. Axel Jónsson I.K. 9.8 sek.
3. Gunnar Huseby K.R. 9.9 sek.
1500 m. hlaup,:
1. Arni Kjartanss. Á. 4:37.6 m.
2. Hörður Hafliðas. Á. 4:39.2 —
3. Halld. Sigurðss. Á. 4:41.4 —
Kringlukast:
1. Gunnar Huseby K.R. 47.81 m..
2. Axel Jónsson I. K. 38.34 —
3. Jóel Sigurðsson I.R. 36.99 —
Kast Gunnars er glæsilegt
met og átti hann sjálfur það
gamla, 45.76.
Spjótkast:
1. Jóel Sigurðsson Í.R. 46.58 m.
2. Gunnar Husehy K.R. 43.14 —
3. Ben. S. Gröndal Iv.R. 40.92 —
Stangarstökk:
1. Ing. Steinsson I.R. 2.71 m.
2. Magn. Gunnarss, F.H. 2.61 —-
3. Magn. Guðm.ss. F.H. 2.50 —
Langstökk:
1. Gunnar Husebv K.R. 5.89 ni.
2. Axel Jónsson l.IÍ. 5.80 —
i 3. Janus Eiríksson I.K. 5.57 —
1000 m. boðhlaup:
1. Sveit I. Iv. 2:20.6 mín.
2. Sveit K.R. 2:21.0 —
3. Sveit I.R. 2:24.0 —
Mótið lieldur áfram í kveld
og verður þá kept í 400 m. og
3000 m. hlaupum, kúluvarpi,
hástökki og þrístölcki.
Neðanmálsgreínin
í dag.
Guðm. Daníelsson.
Próf. Guðbrandur Jónsson
ritar í dag ritdóm Um nýjustu
bók hins unga og efnilega rit-
höfundar Guðmundar Daníels-
sonar: Á bökkum Bolafljóts. —