Vísir - 05.12.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaug sson
Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri Blaðamenn Auglýsingar Gjaldkeri Afgreiðsla Sími: 1660 5 línúr
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 5. desember 1940.
282. tbl.
hafa tekifl Premeti.
Italir yfirgef a Sante
Quaranta og Argyro
Castro.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Hermálaráðherra Grikklands tilkynti í gærkveldi,
seint, að hersveitir Grikkja hefði hertek-
ið Premeti, mikilvæga borg á miðvígstöðvun-
um í gær. Hefir þess því ekki orðið langt að bíða, að
gríska stjórnin gæti tilkynt „frekari góð tíðindi", eins
og boðað var fyrir nokkrum dögum.
Talsmaður hermálastjórnarinnar grísku sagði, að
undanhald ítala héldi áfram á öllum vígstöðvum. Meðal
annars eru ítalir sagðir vera að yfirgefa Sante Quar-
anta og Argyro Castro, en það er þeim hinn mesti hnekk-
ir, að missa yfirráðin yfir þessum borgum.
Áreiðanlegar, en óstaðf estar f regnir herma, að grísk-
ar framvarðasveitir séu komnar inn í Sante Quaranta.
í tilkynningu hermálastjórnarinnar segir, að miklir
bardagar hafi orðið í f jöllunum fyrir vestan Pogradec
og hafi Grikkir náð þar mikilvægum árangri.
Stórskotaliðið gríska átti mikinn þátt í því að mótspyrna It-
ala fyrir norðan Premeti var brotin á bak aftur. *
I tilkynningu Grikkja er ennfremur tekið fram, að mikið
mannfall hafi orðið í liði ítala, og tóku Grikkir þarna 500 fanga,
6 fallbyssur og mikið af öðrum hergögnum.
Fyrir vestan Pogradec hafa verið harðir bardagar. Þar hafa
verið miklir kuldar að undanförnu. Grikkir hafa gert byssu-
stingjaáhlaup á þessum slóðum.
17 ítalskar flugvélar voru skotnar niður í gær og eyðilagðar
á jörðu niðri.
Bretar ætla að
taka lán í U. S. A.
Málaleitun í þá átt vel fekið.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun
Það er nú kunnugt orðið, að til athugunar og umræðu er
vestra meðal stjórhmálamanna og f jármálamanna, hvort veita
skuli Bretum lán til kaupa á hergögnum og ýmsu öðru, sem
þeir þurfa til þess að geta haldið áfram styrjöldinni, en það,
sem mest er rætt um, að Bretar verði að fá aukinn stuðning til
að kaupa, eru flugvélar og skip. Blaðið New York Herald Tri-
bune hefir nú skýrt frá því, að fyrir nokkrum dögum ræddu
bankastjórar og iðjuhöldar það á-fundi í„New York, hvort veita
skyldi Bretum stórlán, og var talið að Bretar hefði þreifað fyrir
sér um þessa lántöku en ekki borið fram beiðni um lánið form-
lega.
Er talið liklegt, að Bretum
verði veitt lán í Bandaríkjun-
um að upphæð 500—600 milj.
sterlingspunda. Eykur það lík-
urnar fyrir því, að Bretar muni
sigra, og Bandarikin muni
veita þeim alla þá aðstoð, sem
þau geta, til þess að svo megi
verða, að því einu ef til vill und-
anteknu, að þeir hef ji ekki beina
þátttöku i styrjöldinni. Seinustu,
athyglisverð ummæli, sem lýsa
trú Bandarikjamanna á sigur
Breta, voru birt hér í blaðinu í
gær (þ. e. Chaney herforingja).
.— Slík ummæli hafa mikil áhrif
meðal stjórnmála- og fjármála-
manna. Fundir hafa verið lialdn'-
ír í Washington um hversu
auka megi stuðninginn til
Breta. Sátu þá fundi Morgent-
hau fjármálaráðherra, Stimson
hermálaráðherra, Knox flota-
málaráðherra og ýmsir her-
mála- og fjiármálasérfræðingar.
Hefir verið staðfest fregn um
það, að rætt hafi verið um leigu
á sölu og skipum til Breta, en
siglinganefnd Bandaríkjanna
hefir nýl. leyft sölu á 4 skipum
til Breta, og sennilega verður
leyfð sala á 15 til bráðlega. Er
mikill ónotaður skipastóll i
Bandaríkjunum, og er búist við,
að Bandaríkjamenn láti Breta
fá mörg þessara skipa.
Morgenthau, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefir til-
kynt, að Sir Frederick Philips sé
væntanlegur til Washington
næstkomandi miðvikudag sem
fulltrúi breska fjármálaráðu-
! neytisins til þess að gefa skýrslu
I um f járhag Breta. Þá hefir það
einnig vakið mikla athygli, að
Jesse Jones formaður lánastofn-
unar Bandaríkjanna, hefir lýst
yfir því, að hann teldi áhættu-
laust að iSha Bretum.
fllí iiltiiiiili
rill Irm oo Tyrkja.
London í morgun.
Tyrkir og Bretar hafa gert
með sér nýjan viðskiftasátt-
mála. Samkvæmt samningnum
auka Bretar kaup sín á land-
búnaðarafurðum og fleiri af-
urðum, sem Tyrkir geta flutt úr
landi, en Tyrkir fá af'tur iðnað-
arvörur ýmiskonar og fleira frá
Bretum.
Sanmingsgerð þessi er talin
viðskiftalegur og stjórnmála-
legur sigur fyrir. Breta því að
með sáttmálanUm hafa Tyrkir
enn sýnt, að þeir vilja hafa sem
besta samvinnu við Breta. Auk
þess er gert ráð fyrir svo mikilli
viðskif taaukningu, að Bretar
verði nú aðalviðskiftaþjóð
Tyrkja i stað Þjóðverja
»Kirkjiigrarðiar lcifturfsfríð$ins«
Árás á Tsiriis ogr
Diisscldorf.
London i morgun.
Það var tilkynt í London í
morgun, að breskar sprengju-
flugvélar hefði gert árásir á
Dússeldorf i Þýskal. og Turin
á Italíu í nótt sem Ieið. — I fá-
orðri ¦ tilkynningu, sem breska
flugmálaráðuneytið birti um
þessar árásir segir, að frekari
fregnir verði birtar, þegar flug-
mennirnir, sem tóku þátt í leið-
angrinum, hafa lagt inn skýrsl-
ur sínar .
TIökunum úr flugvélum þeim, sem Bretar skjóta niður yfir laiídi sínu er safnað saman í hauga,
en eru síðar notuð til að framleiða breskar flugvélar. Kalla Bretar þessa hauga „kirkjugarða leiftur-
stríðsins". Hér á myndinni sjást verkamenn veraað flytja hluta úr sprengjuflugvélarskrokk í „kirk
jugarðinn".
Tvcir mean
rcknir iir
Dagsbrún.
Trúnaðarráð Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar hélt fund
s.l. mánudag og var þar með-
al annars rætt um samn-
ingsuppkast það er Dagsbrún
hefir sent vinnuveitöndum.
Urðu talsverðar umræður um
samningsuppkastið, en alment
virtust fundarmenn ánægðir
með þær breytingar, sem til
greina komu.
Á fundinum kom f ram tillaga
um að víkja tveimur mönnum
úr .félaginu, vegna æsinga, er
þeir stofnuðu til á síðasta fundi
Dagsbrúnar, en honum varð að
slíta í miðjum klíðum, þannig
að ekki fengust rædd ýms hags-
munamál verkamanna, er fyrir
fundinum lágu. Töldu menn
framferði þetta óviðunandi, og
væri ástæða til að taka hart á
því, þannig að slikt fordæmi
væri ekki gefið óátalið.
Menn þeir, sem hér Um ræðir
voru þeir Jón Bafnsson og
Sveinn Sveinsson. Jón er al-
kunnur æsingamaður, en Sveinn
hefir ekki áður gert sig sekan
um æsingar á fundum verka-
manna, en þrátt fyrir það varð
einnig að taka hart á broti hans
gagnvart fundarfriði félagsins,
og er vonandi að enginn verka-
maður, sem fylgir Sjálfstæðis-
flokknum að málum, geri sig
sekan um slíkar óspektir, sem
engu góðu geta til leiðar komið
og era óviðunandi með öllu.
75 ára i dap:
Hannes Thorarensen.
I dag er Hannes Tliorarensen,'
einn af elstu borgurum þessa
bæjar, 75 ára. Hann er að visu
ekki fæddur í Reykjavík, en
hann fluttist hingað ungur að
aldri og hefir dvalið hér upp frá
því. Þegar Hannes kom til
Reykjavíkur réðist hann sem
starfsmaður til verslunar H.
Thomsens, er í þann mund var
stærsta verslunarfyrirtæki bæj-
arins.
Vegna framúrskarandi fram-
komu sinnar, áreiðanleiks, orð-
heldni og prúðmensku í hví-
vetna naut hann vinsælda við-
skiftamanna verslunarinnar og
jafnframt trausts eigandans í
svo ríkum mæli, að hann var
smám saman hækkaður. í „tign-
inni", uns hann var„ gerður að
verslunarstjóra. •
Þegar Sláturfélag Suðurlands
hóf göngu sína, varð Hannes
Thorarensen fyrsti forstöðu-
maður þess, og við það starfaði
hann um margra ára skeið, með
þeirri trúmensku og dugnaði,
sem honum var í blóð boríð.
Og loks varð hann forstjóri út-
sölvi Áfengisverlunarinnar, þeg-
ar hún var sett á stofn hér.
Hannes Thorarensen er vin-
sæll maður, sem ávalt hefir not-
ið trausts og álits og virðingar
allra þeirra, er eitthvað þektu
til hans, og þeir munu verða
margir, vinir hans og kunningj-
ar, er senda honum hugheilar
árnaðaróskir á 75 ára afmæli
hans í dag.
Síðasta sundmót ársins.
34 keppendur í afmælis-
sundmóti Armanns.
Sig. Jónson (K,R.) og Ingi Sveinsson (Æ)
keppa í 100 m. bringusundi.
Annað kvöld kl. 8.30 hefst síðasta sundmótið, sem
haldið verður á þessu ári hér i bæ. Glímufélagið Ár-
mann heldur mótið i tilefni af 52 ára afmæli sínu, én
keppendur verða einnig fra K.R. (12) og Ægi (6). Alls
verður kept í 6 sundgreinum.
Dregur úr loftárásum
yfir Bretlandi.
London i morgun.
Aðvörun um lof tárás var
gefin i London alllöngu fyrir
miðnætti og nokkuru eftir mið-
nætti var tilkynt, að hættan væri
liðin hjá. Óvinaflugvéla varð
ekki vart yfir London eftir það.
— Talið er, að óvinaflugvélar
hafi að eins flogið yfir London í
gærkveldi, til þess að valda
truflunum, á leið sinni til ann-
ara borga. Borg i vesturhluta
Midlands varð fyrir höfuðárás
Verður þar m. a. kept í 50 m.
frálsri aðferð karla þar sem
fram koma nokkurir nýliðar,
sem ekki hafa komið fram áð-
ur og verða þeir ef að likum
lætur þeim eldri hættulegir
keppinautar; má þar sérstak-
; Iega nefna Gunnar Eggertsson,
„Á.". Þá er og 100 m. bringu-
sund karla þar sem 'þeir keppa
Ingi Sveinsson fyrv. methafi og
methafi í 400 m. og 500 m.
bringusundi og Sigurður Jóns-
son, K.R., núverandi methafi í
I 100 m. og 200 m. bringusundi.
í Þá má geta 200 m. baksunds
Lkárla og 4x100 m. boðsund þar
j sem kepni . verður sérstaklega
spennandi milli Ægi, K. R. og
| Ármanns sem öll tefla fram
j sínum bestu mönnum og jöfn-
um liðum svo vart má iá milli
sjá, hvert vinnur. Auk þess fara
fram nokkur unglingasund.
Verður gaman að sjá hvað
sundmenn okkar geta nú. Þeir
hafa æft vel undir mót þetta,
þrátt fyrir erfiða aðstöðu, mun
verri en undanfarið vegna
„ástandsins", en þeir virðast
ekki ætla að láta það á sig fá og
æfa af kappi. Ármenningar
hafa vandað mjög til mótsins
eins og þeirra er vandi, óg þarf
þvi engan að iðra þöss að f ara á
sundmótið á morgun.
þýsku sprengjuflugvélanna, en
þessi árás stóð tiltölulega stutt,
og var ekki mjög áköf. íkveikju-
sprengjum og sprengikúlum var
varpað á nokkur hverfi. Eigna-
tjón varð talsvert og manntjón
nokkurt.
Eggert Stefánsson
fimtugur.
Eggert Slefánsson söngvari
var'ð fimtugur hinn 1. desember
s. 1. Óskaði hann ef tir þvi að ekki
yrði sérstaklega um þetta af-
mæli getið í blöðunum, en í kyr-
þey hélt hann hann hljómleika
hinn 30. nóv. í hátíðasal háskól-
ans, þar sem mikill fjöldi vina
hans var saman kominn.
Daginn eftir afhentu vinir og
aðdáendur listamanninum fag-
urlega skorið kefli af Marteini
Guðmundssyni myndskera, en
innan í því var svohljóðandi
skralitritað ávarp:
„Eggert Stefánsson lista-
maður: Á fimtugsafmæli
þínu, 1. desember 1940, fær-
um vér vinir þínir og aðdá-
endur þér alþjóðar þakkir
fyrir störf þín i þágu listar og
sjálfstæðis Islands. Lif þú
heill á ókomnum árum".
Var avarp þetta undirritað af
fjölda manns, sem fylgst hefir
um langt skeið með starfi lista-
mannsins hér og erlendis, en
þar hefir hann, auk þess sem
hann hefir haldið hljómleika og
sungið i útvarp flestra fjöl-
bygðustu landa Evrópu, ritað
greinar i blöð Um Island og ís-
lensk málefni.
Listamanninum barst fjöldi
skeyta í bundnu og óbundnu
máli og mikið af blómum, og
var honum dagurinn til mikillar
ánægju, svo sem hann hefir
margfaldlega verðskuldað með
starfi sínu.