Vísir - 30.12.1940, Blaðsíða 3
VlSIR
verið lengur i lofti en niðri á
jörðinni.
Foringi þeirra „rauðu“ háði
einu sinni fimm bardaga á ein-
um sólarhring og i siðasta bar-
daganum hafði bann fengið
nýja vél, því að sú gamla hafði
laskast.
Hann tók ekki lil greina það,
sem eg sagði, að það hlyti að
taka dálítinn tíma áð venjast
kenjum hverrar flugvélar.
„Hurricane-flugvélarnar eru
allar eins, allar jafn góðar,“
sagði hann.
Klukkan á veggnum tifar á-
fram. Eftir 5 mínútur á önnur
deild að taka við.
Skyndilega heyrist vélaöskur
úti á flugvellinum. Ilvirfilvind-
ur þeytist inn um skáladyrnar
og feykir öllu lil og frá. Það eru
vélamennirnir, sem hafa verið
að liita hreyflana, svo að hægt
sé að leggja af stað á hverri
stundu.
Flugmaðurinn, sem hafði
teygt úr sér á rúminu opnar
augun og lítur á símann, sem
stendur á borðinu.
„Alt rólegt“, segir foringinn.
„Eg geri ráð fyrir,“ segi eg í
gamni, „að ykkur langi í einn
bardagann ennþá?“
„Kannske,“ svarar hann. „Það
er diásamlegt aðgefaþeimkúlna-
gusU og sjá þá byrja að steypast
niður. Jerry hefir sjö sinnum
reynt að verpa eggjum sínum
hérna og sjö sinnum höfum við
séð um að liann kæmist ekki of
nærri. I áttunda skifti verður
hepnin e. t. v. með lionum, en
skemdirnar munu verða minni,
ef við erum bak við vélbyssurn-
ar þarna uppi en ef við sitjum
hér í hægindastólum.“
Ting-a-ling-a-ling. Foringinn
þrífur símann.
„Rauða deildin fari af stað.
Fjandmenn nálgast í 30.000
feta hæð í 20 mílna fjarlægð.“
Úti fyrir endurtaka gjallar-
liorn skipunina: „Rauða deild-
in fari af stað. Bláa deildin . .
gula deildin .... græna deild-
in.....
Næturlæknir.
Eyþór Gunnarsson, Laugaveg 98,
sími 21II. NæturverÖir í Ingólfs
apóteki og Laugavegs apóteki.
Sondiherra Norðmanna
og frú Esmarck munu vera á ný-
ársdag frá kl. 3—5 í norska kon-
súlatinu, Hverfisgötu 45.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: 5 kr. frá dreng, 5 kr.
frá N. N. (gamalt áheit).
Til Vetrarhjálparinnar,
afhent Vísi: 2 kr. frá G. I.
■go-
SKRflNES
ra- X CL
■ í / ó 1
revkjnvi
HflFNORFJbnnUR
VESTDflLS-
-EYB
JKflLHNEJ
Tilkynning frá ríkisstjórninni
SEVOISFJÖRÐUR
Til viðbótar við áður auglýstar tálmanir á siglingaleiðum hér við land, vegna liernaðaraðgerða
breska setuliðsins, hefiiUierstjórnin tilkynt, aðbannað sé að varpa akkerum eða stunda liverskonar
fiskveiðar á eftirtöldum stöðum:
a) I Hvalfirði á belti yfir fjörðinn, sem takmarkast af eftirfarandi stöðum:
64° 21’40” n. br. 21° 45’24” V. lgd.
64° 20’40” n. br. 21° 41’18” V. lgd.
64° 23’02” n. br. 21° 42’20” V. lgd.
64° 21’36” n. br. 21° 39’10” V. Igd.
b) í Seyðisfirði á belti, sem talfmarkast af línu, sem hugsast dregin þvert yfir fjörðinn i 144°
stefnu frá stað, sem liggur 0.2 sjómilur í 258° stefnu frá flaggströnginni á verslunarhúsunum á
Vestdalseyri, og annari línu, sem liugsast dregin þvert yfir fjörðinn 1 134° stefnu frá stað, sem
liggur 0.2 sjómílur í 043° stefnu frá áðurnefndri flaggstöng.
c) í Eyjafirði á belti þvert yfir fjörðinn, sem að íorðan takmarkast af línu, sem hugast dreginmilli
Arnarnesnafa og Laufáskirkju, og að sunnan af línu, sem liugsast dregin milli Hjalteyrarvita
og bryggju framundan bænum Nolli.
d) I Hrútafirði á belti þvert yfir fjörðinn, sem takmarkast að norðan af linu, sem hugsast dreg-
in í rétt austur og vestur frá norðurenda Hrúteyjar, og að sunnan af línu, sem hugsast dregin í
rétt austur frá Kjörseyrartanga.
Ennfremur tilkynnir herstjórnin að liindrun hafi verið lögð þvert yfir Hvalfjörð, hér um bil
í 317° stefnu frá suðurenda Hvaleyrar í Hvalfirði. Hindrunin er merkt með duflum, og er hættuleg
skipum. )
Sem stendur má þó sigla yfir hindrunina milli dufla, en skip, sem sigla yfir línuna, ættu að gera
það á stefnunum ANA—VSV, eftir seguláttum.
Skip verða að hlýða sérhverri bendingu, sem þau kunna að fá frá nálægum gæsluskipum.
Reykjavík, 23. desember 1940.
LOKAÐ.
¥erilanir vorar og* skrif-
itofur verða lokaðar
fimtndaginii 2. jannar
vcgna rörntalningar.
Félag Vefnaðarvörukaupmanna.
Félag Matvörukaupmanna.
Félag Kjötverslana.
Félag Skókaupmanna.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis.
Lokm spirisjBðsdeillar UniÉiúm
Á morgun þriðjud. 31. þ. m. fer
engin sparisjóðsafgreiðsla fram í
bankanum.
ISiinaöarliaukl íslands. %
Hítv 011111*
(ný uppskera)
koin nieð Dettifossi
Heildverslun Magnúsar Kjaran
K.F.U.M. og K.F.U.K.
ÁRAMÓTAFAGNAÐUR fyrir meðlimi A. D. og U. D. beggja
félaganna verður haldinn á fimtudagskvöldið 2. janúar kí. 8%.
Ræða. — Söngur. — Hljóðfærasláttur og fleira, auk þess
veitingar.-
Aðgangseyrir 1 króna við innganginn.
kóðan
Hus^a^nabólstrara
vantar mig strax.
■ ■
r
Tvær
írammistöðustúlkur
vantar strax á veitingastað.
Þurfa að kunna eittlivað í
ensku. — A. v. á.
VÍSIS-KAFFIÐ gerir alla glaða
TILKYNNING
varðantli iiiiiflufiiiiig kifreiðn.
Að marg-gefnu tilefni vill nefndin hér með vekja at-
hygli á því, að Bifreiðaeinkasala ríliisins hefir einka-
rétt til innflutnings á bifreiðum til landsins, innan
þeirra takmarkana, sem henni eru settar, og getur
nefndin því ekki veitt öðrum leyfi fyrir bifreiðum. Ber
því öllum þeim, sem óska að fá innfluttar bifreiðar, að
snúa sér til Bifreiðaeinkasölunnar með umsóknir sínar
en ekki til Gjaldeyrisnefndar.
Þeim, sem hafa hug á að fá innl'luttar fólksbifreiðar,
skal bent á að leita fyrir sér hjá einkasöJunni um kaup
frá Bretlandi, með því að gjaldeyrir verður ekki veitt-
ur, fvrst um sinn, til kaupa á slíkum bifreiðum frá
Ameríku vegna skorts á dollurum.
Jafnframt eru menn varaðir við því að gera nolvkrar
ráðstafanir til innkaupa á bifreiðum án lieimildar frá
Bifreiðaeínkasölunni, og skai það séi.stakiega tekið
fram, að frá næstu áramótum verða þeir, sem flytja
hingað bifreiðar frá Ameríku í heimildarleysi, undan-
tekningarlaust látnir sæta sektum.
Reykjavík, 27. desember 1940.
GJALDEYRIS- OG INNFLUTNINGSNEFND.
Ilvert ilaglilaöaiiiia er ódvra§t?
Gjaldskrá
RAFMAGNSVEITU REYKJAVÍKUR, sem gekk í gildi með
desemberálestri 1940, fæst á skrifstofu Rafmagusveitunnar,
Tjarnargötu 12. — Notendur raforkunnar ættu að kynna sér
hina nýju gjaldskrá.
Atliygli notenda lieimilistaxtanna skal vakin á því, að B 2
taxtinn i eldri gjaldskránni er feldur niður i nýju gjaldskránni
og breytist því röðin á heimilistöxtunum þannig, að B 3, B 4 og
B 5, sem áður voru, eru nú B 2, B 3 og B 4. Notendur flytjast í
tilsvarandi taxta við þann, er þeir liöfðu, án Umsóknar. Um nýja
taxta verður að senda skriflega umsókn, á sérstökum eyðu-
blöðum, sem Rafmagnsveitan Iætur í té. *
Hringið í síma 1222, ef þér óskið eftir að fá g jaldskrána senda
í pósti. —
RAFMAGNSVEITA REYKJAVlKUR.
BEST AÐ AUGLÝSA í VÍSI.
Kauptaxti
meðlima Sveinafélags múrara í Reykjavík
Sveinafélag múrara hefir samþykt að frá og með 1.
jan. 1941 verði kaup meðlima félagsins sem hér segir:
Lágmarkskaup í dagvinnu skal vera kr. 2,25 um klst.
hverja að viðbættri fullri dýrtíðaruppbót frá 1. jan.
1939. Eftirvinna slcal greidd með 50% liækkun og næt-
ur og helgidagavinna með 100% hækkun frá dagvinnu-
kaupi.
Kaup þetta miðast við 9 klst. vinnudag.
Að öðru leyti liggur kauptaxti félagsins og vinnukjör
meðlima þess frammi á skrifstofu Sveinasambands
byggingamanna í Kirkjyhvoli.
STJÓRNIN.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
Sigurbjargar Þórmundsdóttur
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 31. þ. m. og hefst
með bæn á beimili okkar, Laugaveg 27, kl. 10 f. h.
Athöfninni i kirkjunni verður útvarpað.
Sigurbjami Tómasson og börn.
Bestu þakkir fyrir auðsýnda vinsemd við útför
frú Elisabetar Gunnarsson. .
Aðstandendur.