Vísir - 04.01.1941, Qupperneq 3
VÍSIR
Bœjap
fréttír
Gjafir til Blindravinafélagsins,
til jólaglaÖnings: io kr. frá K.
K.K. 5 kr. frá Z.S. io kr. frá H.H.
25 kr. frá Ásu og Inga. 10 kr. frá
N.N. 10 kr. frá S.A. — Kæfar
þakkir. Þ. Bj.
Hjúskapur.
Á gamlársdag voru geíin saman
í hjónaband ungfrú Þórunn Sigur-
lásdóttir og Jóhann Jóhannesson
sjómaður.
Hjónaefni.
Á gamlársdag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Guðjóna Eygló
FriÖriksdóttir, kaupmanns, Mi'ðkoti
og Magnús Sigurlásson verzlunar-
maður, sama stað.
Ungbarnavernd Líknar
er opin hvern þriðjudag og ÍQStu-
dag kl. 3—4. RáÖleggingarstöÖin
fyrir barnshafandi konur verður
opin miðvikud. 8. þ. m., Templara-
sundi 3.
Faust.
Uppselt mun vera að Marionette-
leiksýningu Stúdentafélagsins i há-
tíðasal Háskólans í kvöld, en ann-
að kvöld vfrður leikurinn sýndur
þar í síðasta sinn. Ef eitthvað verð-
ur í dag óselt af miðurn á sýning-
una á morgun, getur almenningur
fengið þá á morgun á Upplýsinga-
skrifstofu stúdenta, Amtmannsstíg
1, kl. 2—6. Síminn þar er 5780.
Hjónaefni.
Á gamlaársdag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Ágústa Björns-
dóttir skrifari, Sólvallagötu 21 og
Loftur Ámundason járnsmiður,
Barónsstíg 27.
Samkvæmt tilnefningu
sóknarpresta Kjalarnessprófasts-
dæmis hefir sóknarpresturinn í
Mosfellsprestakalli, síra Halfdán
Helgason, verið skipaður prófastur.
Hjónaefni.
Á nýársdag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Guðrún Ingimundar-
dóttir, Bárugötu 32 og Sergeant
John Humphreys, í brezka setulið-
inu.
Næturlæknir.
1 nólt: Halldór Stefánsson, Rán-
argötu 12, sírni 2234. Næturvörður
í Ingólfs apóteki og Laugavegs
apóteki.
Affra nótt: Þórarinn Sveinsson,
Ásvallagötu 5, sími 2714. Nætur-
verðir í Lyfjabúðinni Iðunni og
Reykjavíkur apóteki.
Helgidagslæknir.
Karl S. Jónsson, Laufásvegi 55,
sími 3925.
Sjúklingar á Vífilsstöðum
hafa beðið Vísi að færa barna-
kórnum Sólskinsdeildinni og stjórn-
anda hennar, Guðjóni Bjarnasyni,
þakkir fyrir komuna og skemmtun-
ina á nýársdag.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, síra Ragn-
ar Benediktsson, kl. 5 sira Bjarni
Jónsson.
Barnaguðsþjónusta i frikirkjunni
kl. 2, sira Árni Sigurðsson.
Barnaguðsþjónusta í Laugarnes-
skóla kl. 10, sira Garðar Svavars-
son.
í Kristskirkju í Landakoti: Lág-
messa kl. 6.30 árd., hámessa kl. 9
árd., bænahald og prédikun kl. 6
síðd.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Háa Þór annað kvöld og
hefst sala aðgöngumiða í dag. —-
Myndin er af Val Gíslasyni (As-
her skipstjóri) og Brynjólfi Jó-
hannessyni (de Witt bátsmaður) i
aftari röð, og Lárusi Ingólfssyni
(Skinnarhorn dómari) og Alfreð
Andréssyni (Biggs fasteignasali).
Leikritið er bráðskemmtilegt, eins
og mynd þessi gefur hugmynd um.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
Dönskukennsla, I. fl. 19.00 Ensku-
kennsla, 2. fl. 19.25 Hljómplötur:
Kórsöngvar o. fl. 20.00 Fréttir.
20.30 „Loginn helgi“, leikrit eftir
W. Somerset-Maugham (Leikfélag
Reykjavíkur. Leikstjóri: Indriði
Waage).
Hjónaefni.
Á nýársdag opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Hallbjörg Elínmund-
ardóttir og Guðjón Halldórsson
bankaritari í Útvegsbankanum.
Útvarpið á morgun,
Kl. 9.45 Morguntónleikar (plöt-
ur) : Óperan „Tosca" eftir Puccini,
1. þáttur. 11.00 Messa í Dómkirkj-
unni (síra Friðrik Hallgrímsson).
12.10 Hádegisútvarp. 15.00 Erindi:
Sannfræði og vanfræði um eðli
drauma (dr. Helgi Péturss). 15.30
Miðdegistónleikar (plötur) : Óper-
an „Tosca“ eftir Puccini, 2. og 3.
þáttur. 18.30 Barnatími (Nemendur
kennaraskólans.). 19.15 Hljómplöt-
ur: Þjóðlög frá ýmsum löndum.
20.00 Fréttir. 20.20 Sænsk kórlög
(plötur). 20.30 „Svíþjóð á vorum
dögum“. Upplestur . (Guðl. Rósin-
kranz yfirkennari). 20.50 Sænsk al-
þýðulög (plötur). 21.00 Úr ritum
Alberts Engström (Ásgeir Ásgeirs-
son alþm.). 21.25 Sænskir dansar
og söngvar (plötur). 21.50 Fréttir.
22.00 Danslög til kl. 23.
I STUTTU MÁLI
Níu þqkklir rúmenskir her-
foringjar liafa sagt af sér, en
tveir iiafa fengið skipun um að
gera slíkt liið' sama.
•
Alls hafa 140.000 manns í
Ástralíu boðist til að ganga í
flugherinn, þar af hafa 40.000
verið teknir til æfingar.
•
Bandaríkjamenn munu bráð-
lega afhenda Bretum 24 fjór-
lireyfla sprengjuflugvélar. % —
Þessar flugvélar geta borið fjór-
ar smálestir sprengikúlna.
Signor Pavolini, félagsmála-
ráðherra ílala, hefir sagt í ræðu,
sem liann hélt í Florens, að
Bretar hefði nú á valdi sinu
samgönguleiðirnar milli Ítalíu
og nýlendna hennar.
•
Bretar segja, að þeim berist
sifelt nýjar fréttir af flutninga-
örðugleikum i Þýzkalandi. Einn
ferðamaður hafi t. d. nýlega
orðið að skipta um lest 27 sinn-
um á leiðinni frá Amsterdam Og
Zagreb. Annar liafði orðið að
skipta um lest 30 sinnum milli
Berlinar og Basel.
•
k Lundúnablöðin skýra frá því,
að sú tilkynning þýzku stjórn-
arinngr, sem gefin var út í okt-
óber um að menn mætti kaupa
sér vetrarfrakka sé nú því skil-
yrði bundið, að kaupandinn
geti sannað að frakkinn, sem
hann eigi, sé ónotliæfur. Til Jiess
að kaupa frakka þarf 120 stig
af 150 á klæðaskömmtunarseðl-
um. Ný föt kosta 80 stig.
•
Eins og skýrt hefir verið frá
áður, verða ítölsku fangarnir,
sem teknir voru í Egiptalandi
og Libyu, liafðir í haldi í Ind-
landi. Fyrsti hópurinn er nú
kominn lil Bombay. I honum
eru 3 liersliöfðingjar, 300 aðrir
foringjar og 627 óbreyttir her-
menn.
Djóðbing Bðfldarifcjonia
fcom samafl á fund i m
Roosevelt ílytur ræðu
á mánudag.
EINKASKEYTI FRÁ U. P.
Hið nýja þjóðþing Banda-
ríkjanna kom saman á fund í
gær, en næsti fundur verður
haldinn á mánudag, og flytur
þá Roosevelt forseti ræðu og
gerir grein fyrir stefnu sinni.
Það var tilkynt í Washington
í gær, að Bandaríkin ætluðu að
smiða 200 flutningaskip, 7500
smál. hvert, fyrir samtals 350
m. dollara. Verða sum tilbúin
innan árs.
Ivjölur að 45.000 smálesta or-
ustuskipi verður lagður á mánu-
dag.
Ennfremur tilkynnti Roose-
velt í gær, að Harry Hopkins,
fyrrverandi verzlunarráðherra,
færi til London sem einkafull-
trúi sinn, þar til búið er að
skipa nýjan sendiherra í stað
Joseplis Kennedy. Harry Hop-
kins mundi áreiðanlega liafa
orðið fyrir valinu sem sendi-
lierra, ef lieilsa hans væri ekki
ótraust. Mun hann ef til vill að
eins verða 2—3 vikur í London.
74 menn farast.
EINKASKEYTI FRÁ U. P.
London í morgun.
Stjórnin i Vicliy tilkynnti í
gær, að þ. 19. des. hefði verið
söklct frönskum kafbát og olíu-
flutningaskipi, sem voru á leið
málli liafna i nýlendum Frakka
í Veslur-Afríku. —- Sprenging
varð í báðum skipunum og fór-
ust 74 menn. — Brezka stjórn-
in hefir tilkynnt, að enginn
brezkur kafbátur liafi verið á
þeim slóðum, þar sem skipin
fórust. Næsti brezki kafbátur-
inn hafi verið í 500 mílna f jar-
lægð og komi því ekki lil mála,
að brezkur kafbátur liafi sölckt
skipunum.
Kafbáturinn nefndist Sfax, en
olíuflutningaskipið Rhone. Skip.
in voru á leiðinni til Dakar í
Vestur-Afiíku frá Casablanca,
að því er hermt er í tilkynning-
um Vichy-stjómarinnar.
Fro§thörknr iiiu
alla álfuna.
EINKASKEYTI FRÁ U. P.
London í morgun.
Fregnir berast hvaðanæfa um
miklar frostliörkur og fannfergi
á meginlandi álfunnar. Á
Norðurlöndum eru miklir kuld-
ar og snjóar. Mörgum skipum
hefir hlekkst á við strendur
Noregs og Sviþjóðar. I gær fórst
sænskt skip með allri áhöfn. 1
nágrannalöndum, Þýzkalands
öllum eru kuldar og fannkom-
ur, en frá Þýzkalandi sjálfu ber-
ast ekki miklar fregnir um veð-
urfar. Á Frakklandi eru fann-
komur og allt' suður á Spán, en
í Balkanlöndum hafa verið
hríðarveður og fannkomur í 2
—3 vikur. Miklir samgönguerf-
iðleikar eru víða og sumstaðar
skortur nauðsynja.
\> Ioftárás á
Bremen í uott
EINKASKEYTI FRÁ U. P.
London í morgun.
Brezka flugmálaráðuneytið
tilkynnti i morgun, að brezkar
sprengjuflugvélarnar hefði gert
þriðju næturárásina í röð á
hafnarborgina Breinen. Eldar
miklir geisa á stórum svæðum
í borginni, eftir hina mikiu á-
rás á hana á miðvikudagskvöld-
ið og í fyrrakvöld. í brezkum
tilkynningum segir, að heil
hverfi séu í rústum.
konung sinn á sjötugsafmæli
hans í September.
Öllum fréttum að heiman ber
saman um að konungur vor sé
liinn óhagganlegi miðdepill, sem
allir Danir þyrpast um, af því
að þeir vilji halda uppi þjóðlegu
sjálfstæði og menningu. Kon-
urigur er ímynd þjóðarinnar og
menn finna að karhnennska
lians er sterkasla vörnin, sem,
eins og á stendur, varnar þeim
öflum, sem nú ógna þjóðarsjálf-
stæði voru að koma sér við.
Aðstaða Danmerkur til þess
óveðurs, sem, nú geysar um Ev.
rópu, hefir oft minnt mig á æf-
intýri H. C. Andersens: „Bók-
hveitið“. Mér finnst Danmörk
hafa numið af þeirri djúpsettu
lífsspeki, sem þessi saga hefir
að geyma um það, þegar bólc-
hveitið af Iiroka og dramhsemi
ekki vildi beygja sig fyrir
storminum, þegar óveðrið geys.
aði um akurinn, og var fyrir
bragðið kolbrennt af leiftrinu.
En kornið og blómiri sögðu við
bókhveitið:
„Beygðu höfuð þitt eins og
við gerum, nú þýtur engill
stormsins um og hann er með
vængi, sem ná frá skýjunum
alla leið lil jarðar og hann klýf-
ur þig í herðar niður, áðuu en
þér gefst tími til að biðjast
vægðar.“
Danmörk fór að ráði pílviðar-
ins gamla, sem sagði: „Lokaðu
blómum þínum og beygðu blöð
þín.“ Og það, sem gerðist í Ev-
rópu siðastliðið sumar, hefir nú
sýnt það mjög greinilega, að
vér fórum rétt að. Sú óskynsam-
lega gagnrýni, sem fyrst lét á
sér bera, var slík, að vér get-
um látið oss hana í léttu rúmi
liggja. Með jafn ónógum, her-
tækjum og Danmörk átti yfir
að ráða, og eins og henni er í
sveit komið, hefði farið fyrir
oss eins og bókhveitinu, sem
eldingin kolbrenndi.
En nú lifum vér i voninni um
það, að fara muni fvrir oss eins
og segir i niðurlagi þessa æfin-
týris Andersens:
„Þegar illviðrið var um garð
gengið, stóðu blórn, og kornöx
liresst af regninu í kyrru og
hreinu Ioftinu.“
I þessa von Inunum vér allir
sækja styrk til þess að lifa af
þennan reynzlutíma. Þegar of-
viðrið er um garð gengið, munu
allar þær þjóðir, sem engill
stormsins nú sækir lieim, rétta
við lil nýrra friðsamlegra dáða.
Það er lífsskilyrði fyrir hinar
litlu vanmáttugu þjóðir, að rétt-
læti og orðlieldni megi aftur
ríkja í samskiptum þjóðanna,
eins og í borgaralegu lífi. Við
eigum allir, livort sem litlir er-
um eða stórir, okkar sjálfstæðu
lífskjör og geturn ekki viður-
kennt, að lífskjör annara eigi
meiri rétt á sér en lífskjör vor.
Vér heimtum ]iað, að samning-
ar og nábúaréttur sé í lieiðri
hafður. Vér, smáþjóðirnar,
verðum að setja í það heiður
vorn, að lialda orð vor og virða
rétt nágrannans til að lifa. Að
ganga á gefin loforð og að taka
sjálfur skapar eklci virðmgu í
samfélagi þjóðanna.
Það er föst von mín og full-
komin vissa min, að þegar öld
árása og rofinna loforða er um
garð gengin, þá muni danska
þjóðin og danska ríkið með rétti
hins siðferðilega máttar lifa
menningarlífi sínu áfram og
verá frjálst og sjálfstætt eins og
liingað til í þúsund ár.
I þessari von skora ég á þá
landa mína, sem orð mín lieyra,
að senda hugsanir heim til allra
þeirra, sem okkur er annt um,
og til konungs vors og föður-
lands.
Málarasveinar!
Skrifleg atkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu
Sveinasambands byggingarmanna um hvort hef ja skuli
vinnustöðvun, hafi ekki náðst samningar við Mál-
arameistarafélag Reyk javikur innan 7 daga frá þ.ví at-
kvæðagreiðslu var lokið.
Atkvæðagreiðslan fer fram sunnudaginn 5. janúar
— mánudaginn 6. janúar frá kl. 9—21 báða dagana.
STJÓRNIN.
— Leikfélag Reykjavikur —
HÁI ÞÓR
Eftir MAXWELL ANDERSON.
SÝNING ANNAÐ KVÖLD KL. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag. —
Börn fá ekki aðgang!
Dansað verður að heimili félagsins i kvöld frá kl. 10.
Meðlimum og gestum þéirra heimilaður aðgangur.
Skemmtinefndin.
Tilkynning.
Þeir kola-innflytjendur, sem óska að fá leigð
skip í Englandi til flutnings á kolum til ís-
lands, og vilja njóta til þess aðstoðar nefnd-
arinnar, verða, áður en þeir f esta kaup á kol-
unum, að tilkynna nefndinni stærð farmsins
og afgreiðslutíma.
Beiðnir um skipakost verða teknar til greina í
þeirri röð, sem þær berast nefndinni, nema
sérstaklega standi á.
V iðskiptanenfdin.
Ilii kaupa nýtízku tins
á góðum stað, með lausri íbúð strax.
ÞÓRÐUR ALBERTSSON.
Bárugötu 9. Sími: 4958.
trsntðanám
Reglusamur laghentur piltur, 16—18 ára, getur komist i læri
nú þegar á góðu verkstæði. Mynd og meðmæli óskast. Æskilegt
að viðkomandi gæti lagt fram smiðisgrip eða annað er bæri vott
um hagleik.
Umsóknir með greinilegu heimilisfangi þurfa að vera komnar
til blaðsins fyrir 1. febrúar, merktar: „Úrsmíðanám“.
* *
•íþróttasamband íslands hefir nú til sölu eftirtaldar
bækur:
Leikreglur I. S. í. í frjálsum íþróttum.
Skíðahandbók í. S. í.
Almennar reglur I. S. í. um handknattleik.
Kennslubók í fimleikum, eftir Aðalstein Hallsson.
Útiíþróttir.
Allar þessar bækur eru nauðsynlegar hver jum þeim
er stundar íþróttir, og hefir áhuga fyrir þeim.
Aðalútsala og afgreiðsla hjá gjaldkera 1. S. I.
■m