Vísir - 25.03.1941, Blaðsíða 1

Vísir - 25.03.1941, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðiaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri í Blaðamenn Slmi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S línur Afgreiðsla 31. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 25. marz 1941. 69. tbl. Dm leið og júgóslavneskir ráðherrar fara til Vioarborgar heita Rússar hlutleysi og gððnm skiloingi, ef Tyrklaod verðor fyrir árás — Agordat í höndum Breta r ***!>< ............... Fall Agordat-borgar, sem er mikilvæg járnbrautarborg, var alvarlegt áfall fyrir Itali. Myndin er frá Agordat og synir her- mannaskála fremst á myndinni, en að baki sjást kofar blökku- mannanna. > Aðstaða Breta í byrjun »vorsóknarinnar« London í morgun. Hermálasérfræðingur blaðs- ins Yorkshire Post hefir gert að umtalsefni í ldaði sínu hvers vegna Bretar standi betur að vígi en áður, nú þegar „vor- sókn“ Þjóðverja sé byrjuð: 1. Þeir hafa náð sér á strik eftir sigra þá, sem Þjóðverjar unnu í Iiollandi, Belgíu og Frakklandi 1940. 2. Árásum þýzka flugflot- ans hefir verið hrundið og Þjóðverjar gátu ekki fram- lcvæmt innrásaráform sín 1940. 3. Bretar hafa komið sér upp, æft og búið að fullkomn- um vopnum mikinn her á Bret- landseyjum, í Egiptalandi, Li- byu og löndunum við austan- vert Miðjarðarhaf, og í Austur- Afrílcu. 4. Bretar liafa sigrað Libyu- her ítala og flugher ítala í Af- ríku er að kalla gersigraður. 5. Ítalía er úr sögunni seni flotaveldi. 6. Egiptaland er úr allri innrásarhættu frá Libyu. 7. Nýlenduveldi Itala er ein- angrað og er að leysast upp. 8. Þjóðverjar dreifa herafla sínum æ meira og innrásar- fyrirætlanir þeirra að því er Bretland snertir verða æ erfið- ari í framkvæmd. 9. Samveldislönd Bre.ta geta nú framleitt allt til styrjaldar, sem þau þarfnast og látið Bret- um í té hergögn. 10. Áðstoðai’ Bandaríkjanna mun gæta æ meira. Öldungadeildin sam- þykkti 7500 milljóna dollara fjárveitinguna í gærkveldi. London í gærkveldi. Öldungadeildin samþykkti 7500 milljarða fjárveitinguna til framkvæmda samkvæmt láns- og leigufrumvarpinu í kvöld með 67 atkv. gegn 9. Deildin setti met með af- greiðslu frumvarpsins og undir umræðunum lýstu margir þing- menn, sem andstæðir voru láns- og leigufrumvarpinu, atkvæði með fjárveitingunni. Lögin voru send loftleiðis til Roosevelts til undirskriftar, en hann er nú á ferðalagi á sneklíju sinni, sér til hyíldar. — Roose- velt undirskrifaði i dag tvenn lög um fjárveitingar til flug- og flotahafna (á Guam, Samoa- eyjum í Kyrrahafi og eyjum þeim, þar sem Bandarikin hafa leigt flug og flotahafnir af Bretum). Horfnrnar í Jitgró- slavín ern að ýmsu mjög: alvarlegar. Ovíit uiu hveriu víðtækan iamn- Iug: verðnr áð ræða. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Nokkuru eftir að fregnir bárust um það til Lon- don í gæfkveldi, að forsætisráðherra og utan- ríkisráðherra Jugoslaviu væri lagðir af stað til Vínarborgar, sennilega til þess að undirrita einh-vers- konar samninga við Þjóðverja, þrátt fyrir eindregin mótmæli almennings, bárust tíðindi úr annari átt, sem engu ómerkilegri þóttu, nema síður sé, þ. e. a. s. að Rússar hefði heitið Tyrkjum hlutleysi ef til árásar kæmi á Tyrkland. Tilkynning um þetta var birt samtímis í Ankara og Moskva. Tilkynnt var, að sovétstjórnin hefði tjáð tyrknesku stjórninni, að ef ráðist yrði á Tyrkland gæti Tyrkir reitt sig á það, að Rúss- ar myndi verða hlutlausir og líta á mál Tyrkja af fullum skiln- ingi. Tyrkir hafa heitið Rússum hinu sama, ef ráðist verður á rússnesk lönd. Þessi yfirlýsing um afstöðu Rússa hefir vakið mikinn fögnuð í Tyrklandi. Forðum í Flosaporti, reVyan ódauðlega, veröur sýnd í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala hefst í dag kl. i. Lægra verðið cftir kl. 3. Ilorfurnar í Jugoslaviu eru að ýmsu hinar ískyggilegustu. Þegar loks var búið að fullskipa stjórnina á ný (sbr. annað skeyti frá í gærkveldi) var á- kveðið að þeir Cvetkovich for- sætisráðherra og Markovich ut-. anríkisráðherra skyldi fara til Vinarborgar til viðræðna. Á- kvörðunin um þetta var tekin á ráðherrafundi, sem, einnig mun hafa rætt orðsendingu frá hrezku stjórninni, sem litið er á sem „seinustu aðvörun“. Þegar ráðherrar Jugoslaviu fóru til járnbrautarstöðvarinn- ar í gær var öflugur lögreglu- vörður látinn/ fylgja þeim. Sendiherra Þjóðverja í Belgrad fór með þeim til Vínarborgar. 1 Jugosláviu liefir verið grip- ið tii margskonar varúðarráð- stafana: 1. Lögreglan hefir fengið fyrirskipun um að vera á verði dag og nótt. 2. Kröfugöngur hafa verið bannaðar og fundahöld. 3. öllum heimferðaleyfum í hemum hefir verið frestað. \ í DAG ER ÞJÓÐMINNING- ARDAGUR GRIKKJA. í dag minnast Grikkir í 120. sinn frelsisbaráttu sinnar og aldrei hafa þeir verið ákveðn- ari í að verja land sitt og frelsi en nú. Meðal þeirra, sem sent hafa Grikkjum heillaskeyti í tilefni dagsins, er Churchill forsætis- ráðherra Bretlands, sem minnt- ist þeirrar aðstoðar, sem Bret- ar veittu Grikkjum í frelsis- stríði þeiiTa, og eins og þá stæði Bretar. nú í baráttunni m,eð Gi’ikkjum. Nú væri við meiri erfiðleika að etja — baráttan yrði ef til vill löng og liörð — en enginn þyrfti að efast um lokasigur Breta og Grilckja. Inonu Tyrklandsforseti og Sarajoglu utanríkisráðherra SóksBÍn ini| í AbessinÍBi Bretar ætla að ljúka töku Abesoiniu áður en i'egntimj an liefst. Þeir liafa sótt hratt fram, þótt flutningar allir sé erfiðir og verði að fara fram á ösnum og úlföldum að miklu leyti. Á niyndinni sézt úlfaldasveit frá Súdan á leið inn í Abessiníu. Tyrklands hafa sent skeyti til Gi'ikklands og óskað stjórn og þjóð til hamingju. TYRKIR JAFN ÁKVEÐNIR OG FYRRUM. I tyrkneskum blöðum kemur stöðugt fram, sama aðdáun í garð Grikkja fyrir frækilega vörn þeirra og helztu blöðin kalla þá ávalt bandamenn Grikkja. Eitt helzta blaðið seg- ir, að ef nauðsyn krefji, muni Tyrkir fax-a i striðið þegar i stað. Tyrknesku blöðin jafnt og hin grisku leggja mikla áherzlu á, að það komi svo greinilega í ljós sem verða má, að allur al- menningur í Jugoslaviu sé mót- fallinn samningum við Þjóð- verja. ÓEIRDIR í SERBÍU OG MONTENEGRO. Óeirðir hafa orðið í sumum bæjum í Montenegro og Serbíu og mega menn ekki heyra það nefnt þar, að samið sé við Þjóðverja. í fregnum, sem birt- ar voi'u í London í gær, segir, að stjórnin reyni að leyna al- menning því, sem sé að gerast. ORÐSENDING BRETA. Sendiheri-a Breta í Belgrad afhenti hana í gær. 1 orðsend- ingu þessari er tekið fram, að Bretar geti ekki viðurkennt neitt samkomulag, sem gert sé við Þjóðverja gegn vilja jugo- slavnesku þjóðarinnar. í Kairo var hent á það, að Bretar hefði þrásinnis að undanförnu varað stjómina i JugosIaViu við af- leiðingum þess, að samið yrði við Þjóðvei’ja. SAMNINGARNIR. En um livað verður samið? Um það renna menn blint i sjó- inn enn sem komið er. Ef til vill skrifa ráðherrarnir undir þi'íveldasamninginn, en i sér- slakri yfirlýsingu verði tekið franx, að Jugoslavar sé undan- þegnir öllum liernaðai'skiild - bindiixgum. Ef til vill verðiir undirritaður vináttusamningui' i aðeins. Ef til vill yfii’lýsing unx * 1 2 3 4 5 6 7 8 9 viðskiptalega sam.vinnu og samvinnu í samgöngumáluni. j Um þetta eru uppi ólal tilgát- | ur. Grikkir virðast einkum ótt- ; ast, að gerður verði samningur, ; sem vii’ðist meinlaus á yfirborð- inu, en leynisanmingur verði gerður um lier- og hei’gagna- flutninga eða hvorttveggja yfir Jugosláviu til Albaniu — en grisku blöðin og liin tyrknesku neita að trúa að svo stöddu,, að jugoslavneski herinn léti slíkt ske, því að þetta væri sama sem að veita aðstoð til þess að í'eka rýtinginn í bak Grikkjum. Það er auðséð á öllu, að Grikkir og Tyrkir ætla að treysta því í lengstu lög, að Sei’bar og Mont- enegi'ompmx og jafnvel öll jugoslavneska þjóðin og herinn svíki ekki Gi’ikki — livað sem framkomu stjói’narinnar liður. Sú skoðun hefir líka konxið fram, að jugoslavnesku ráð- herrarnir nxuni leitast við að komast hjá að undirskrifa nokkurn saixming — þ. e. reyna að leiða Þjóðverjum fyrir sjón- ir, að það gæti haft hinar hættu- legustu afleiðingar fyrir Jxxgo- slaviu — og Þjóðverjar yrði að engu bættari, ef þeir fengi fót- festu í Jugoslaviu með reiði allrar þjóðarinnar yfir höfði sér. „ , Stjórnin í Júgóslavíu fullskipuð á ný. Londoix í gæi’kveldi. Fi’egn liefir borizt um, að tveir nýir ráðherrar bafi verið teknir í stjórnina í Jugoslaviu, en einn þeiri’a þriggja, sem báðust lausnai', tók aftur við enxbætti sinu. Þar sem, stjórniix er fullskipúð á ný eru líkur til, að xiú verði tekin ákvörðun um, lxvort gengið verður til samn- inga við Þjóðverja eða ekki. Engar fregnir hafa boi'izt lil London, sem benda til lxvaða á- kvörðun vei'ður tekin, en ólík- legt þykir, að stjórnin sjái séi' annað fært en að taka tillit til almenningsviljans í landinu, og ekki vei'ði gert neitt samkomu- lag, senx af leiðir, að sama sag- an endurtaki sig í Jugoslaviu, sem í Rúmeníu og Búlgaríu, þar sem afleiðing þessi gæti hæg- lega orðið, að Jugoslavia yrði brátt úr sögunni senx sam- steypuríki. SIÐUSTU FRÉTTIR Graziani, marskálkur, hefir sagt af sér herstjórninni í Af- riku. Sá, er við tekur, heitir Garibaldi. Bretar liafa brolizt i gegnunx Marda-gilið fyrir vestan Jig- Jiga og er þá.opin leið, til Harr- ar. IJún er önnur stærsta borg Abessiniu og er skammt frá járnbrautinni nxilli Abeba og Djibuti. Addis Handknattleiksmótið hefst á fimmtudag. Annað Handknattleiksmót íslands hefst næstkomandi fimmtudagskveld, í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við. Lindar- götu. Átta félög senda níu flokka til keppni í Meistaraflokki og í 2. flokki keppa átta flokkar frá sjö félögum. Þessi félög seuda lið í Meist- araflokki: Árniann, Fimleikafél. Hafnarfjarðar, Fram, Haukar, í. R., K. R., Valur (tvö lið) og Víkingui'. 1 öði'urn flokki keppa lið frá öllum þessum sömu fé- lögum nema Fram, og eru tvö lið frá K. R., en eitt frá Val. Fyi'sti leikur nxótsins verður milli Ií. R. og Víkings í Meist- araflokki. Skíðamót Reykjavík- ur á sunnu- daginn. Skíðaráð Reykjavíkur á- kvað í gær að halda Skíða- mót Reykjavíkur í Bláfjöll- um næstkomandi sunnudag. Verður keppt í svigi, en snjór er ekki svo mikill, að hægt sé að keppa í göngu eða stökki. Ármenningum hefir verið falið að sjá um mótið, en frestur til að tilkynna þátt- töku er útrunninn á fimmtu- dag. Þótt ástæður hafi verið óhagstæðar til æfinga f vetur rnunu skíðamenn hafa all- mikinn áhuga á að reyna með sér. Á sunnudag var bezta færi í Bláfjöllum og þótti því til- valið að hafa mótið þar. —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.