Vísir - 27.03.1941, Blaðsíða 1

Vísir - 27.03.1941, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Blaðamenn Simi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 31. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 27. marz 1941. 71. tbl. 1 Páll ríkisstjórnandi flúinn úr landi Pétur konungur hefir tekið við völdum og nýtur algers stuðnings hers og flota. Cvetkovic og: Harcovic liefir verið varpað í fangreli. Ávarp Péturs konungs til þjóðarinnar. I EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. morgun bárust fregnir um það til London, að herinn í Júgóslavíu hefði tekið að sér forystuna í baráttunni gegn ríkisstjórninni fyrir svik hennar við þjóð- ina, að undirskrifa þríveldabandalagið í óþökk hennar. Allt frá því er kunnugt varð um undirskriftina hafa mótmælafundir verið haldnir um allt land í f orboði ýfirvaldanna og tók lögreglan víða þátt í þeim. Sagt er, að Cvet- kovic hafi sannfærst um það skömmu eftir komuna, að þjóíiin mundi aldrei sætta sig við gerðir stjórnarinnar. í nótt hóf svo herinn byltingartilraun sína og kom hann áformum sínum fram án blóðsúthellinga, enda mun stjórnin, sem setið hafði á stöðugúm fundum, hafa feng- ið nýjar og nýjar fregnir, sem sýndu almenna andúð og gremju gegn stjórninni. — Ríkisstjórnandinn, ríkisstjórnarráðið og ríkisstjórnin beygðu sig fyrir almennings- viljanum og hernum, og ríkisstjórnarráðið baðst lausnar og Pétur konungur, sem er enn barn að aldri, tók við völdunum, og fól hann Simovich, yfirherforingja flug- hersins, að mynda stjórn, og liggur næst við að ætla, að hann hafi haft forystuna. I , ■*-'»> >. iliÍttP ÞEGAR PÁLL PRINS VAR í BERLÍN í FYRRA. Textinn af ávarpi Péturs konungs til þjóðarinnar hefir þegar borizt til London. Konungur ávarpar Serba, Króata og Slóvena og segir, að hið alvarlega ástand hafi gert það að verkum, að hann varð að laka við völdunum — framtíð þjóðarinnar væri undir því kom- in. Ríkisstjómarráðið hefði viðurkennt, að svo væri komið, að taka hefði orðið þetta skref og sagt af sér af sjálfsdáðum. Her minn og floti hefir heitið mér algerum stuðningi, sagði konungur, og er sjóher og landher þegar farnir að framkvæma fyrirskipanir mínar. í lok ávarpsins hvetur Pétur n. konungur alla þegna sína til þess að gera skyldu sína gagnvart konungi og f öðurlandi. Það er tekið fram, að fyrri fregnin sé óstaðfest, en þar sem texti ávarps konungs hefir |g verið birtur, getur vart vafi á 1| þvi leikið, að fregnirnar séu = réttar. 1 Ógerlegt er að segja, hverjar '\ afleiðingar þetta hefir. Hitler 'er að þessu hinn mesti hnekk- ir, út á við og inn á við, á þeirri stundu, sem hann hyggur sig hafa komið fram kröfum sín- um í Júgóslavíu. Þjóðverjar hafa gert ráð fyr- ir, þar sem Júgóslavía gerðist gf aðili að bandalaginu, að þar yrði ekki verulegrar mót-| spyrnu að vænta. Það getur heldur ekki farið ' fram hjá mönnum, að það er óheppilegt, að vopnin skuli snúast í hendi Hitlers, þegar Matsuoka er kominn til Ber- línar, til þess að treysta sam- í vinnuna við Þjóðverja. En alvarlegast er þetta vegna þess, að þótt Þjóðverjar geti ef til vill sigrað Júgóslava, verð- ur það enginn hægðatrleikur, og Balkanskaginn -verður nú að likindum allur styrjaldar- vettvangur, en þetta hafa Þjóð verjar viljað forðast. Fregnin vekur hinn mesta fögnuð í löndum Breta, Grikkja og Tyrkja, en þessir atburðir hafa gerzt í svo skjótri svipan, að menn hafa vart átt- að sig á þeim enn. Og nú er sú spurning á allra vörum, hvort Þjóðverjar muni Donovan herforíngi aðvarar Bandaeíkiii Hitler steínir að heimsyfirráðum PÉTUR KONUNGUR. hefja innrás í Júgóslavíu. Enn verður ekki sagt, hvort um nokkra verulega mót- spyrnu verður að ræða innan- lands gegn Pétri konungi og hinni nýju stjórn, en ýmsar líkur henda til, að Þjóðverjar muni koma til með að mæta þarna samhuga og ákveðinni þjóð. Churchill forsætisráðherra Breta hefir staðfest í viðtali við blaðamenn, að fregnin um bylt- inguna sé rétt. Fór byltingin fram kl. 2}/% í nótt. Fréttaritari amerískra blaða í Berlín skýrir svo frá, að þangað hafi einnig borist fregnir um byltinguna, en talsmaður þýzku stjórnarinnar neitaði að láta í Ijósi frekari Upplýsingar né skoðun sína á málinu. Bandaríkin yerða að taka ákvörðun þegar í stað. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Donovan herforingi, erindreki Roosevelts, sem farið hefir til Bretlands, Egiptalands, Grikk- lands, Libyu og margra annara landa, til þess að kynnast öllu með eigin augum, flutti útvarpsræðu í nótt, sem vakið hefir gífurlega athygli. Ræða þessi var í rauninni aðvörun til Bandaríkjaþjóðarinnar, um leið og hún var skýrsla um ferðalög hans til hinna ýmsu landa Evrópu. Donovan herforingi var ómyrkur í máli. Hann sagði, að Bandaríkin ætti í raunjnni ekki nema um tvennt að velja, taka ákvörðun um að beita sér af öllu afli gegn Hitler, eða eiga á hættu, að röðin kæmi að Bandaríkjun- um. Þessa ákvörðun verða Bandaríkjamenn að taka hvort sem þeim líkar það betur eða ver, því að Hitler stefnir að heimsyfirráðum, sagði Donovan. Donovan herforingi viðurkenndi, að mikið hefði verið, gert — eða grundvöllur lagður að mikilli hjálp, með láns- og leigu- lögunum. En það væri ekki nóg. I þessum lögum, sagði hann, eru a. m. k. tvö atriði, sem má túlka sem stríðsaðgerð. Donovan gat því næst í stuttu en skýru máli frá hver jum aug- um hann liti á horfurnar í hinum ýmsu löndum, er hann heim- sótti, þjóðimar, sem þær byggja, landvamir þeirra o. s. frv. — í Bretlandi. Hugrekki brezku þjóðarinnar er aðdáunarvert. Menn ganga að störfum sem engin styrjöld væri háð, þrátt fyrir hörmung- ar styrjaldarinnar. Bretar verða hérnaðarlega sterkari og sterlc- ari og verða ekki búnir að ná liámarksvigbúnaði fyrr en 1942. Gibraltar. Gibraltar er öflugra virki en nokkuru sinni. Áform Þjóð- verja er að gera árás á það frá Spáni og loka Gibraltarsundi fyrir skipum Breta. Malta. Italir sögðust mundu vérða búnir að hertaka Malta eftir liálfan mánuð frá styrjaldar- byrjun. Malta hefir staðið af sér 120 loftárásir og varnir eyjar- innarteru traustar og hugrekki íbúanna aðdáanlegt. Egiptaland og Libya. Donovan var liálfan mánuð með her Wavells í sandauðn- inni. Italir höfðu ef til vill ekki nema liálfvolgan áhuga fyrir styrjöldinni, en það sem réði úrslitum var afburða herstjórn Breta og liraði í herflutningum og betri útbúnaður. I Grikklandi. (írikkir eru frábærlega dug- legir hermenn og harðfengir. Um grísku þjóðina vil eg segja það, sagði Donovan, að engin þjóð, sem eg hefi kynnst, hefir eins lifandi, brennandi áhuga fyrir að varðveita frelgi sitt, sem hún. Hér var um þjóð að xæða, sem snerist ótrauð til varnar gegn stórveldi, sem hafði milljónaher búinn ný- tízku tækjum. Grilckir höfðu lítinn her og engin hernaðar- tæki sem heitið getur, er ætla mætti að dygði til varnar öfl- ugum, innrásarher. Þá skorti fallbyssur og flugvélar og höfðu enga skriðdreka. Bretar hafa bætt úr flugvélaskortinum og lagt til fluglið, sem liefir stult Grikki vel. Og þeir lögðu þeim til skriðdrekabyssur o. fl., sem hafði ómetanlega þýðingu. Hvergi hefir mér orðið betur ljóst en i Grikklandi, að það er ekki nóg að hafa ógrynni her- gagna til að sigra — hergagna- fjöldinn liefir ekkert að segja, nema allt sé af beztu tegund (sbr. yfirburði brezkra flug- véla yfir itölskum), og einnig er mér ljósara en nokkuru sinni, pð fám,ennur, hugrakkur her er meira virði en milljóna- her, sem illa er stjómað og skortir áhuga. í Búlgaríu. Þar var tækifæri til margs- konar athugana meðal þjóðar, sem lét kúgast, er hótað var að beita vopnunum. Þar varð mér ljóst, hvernig aðferðir Hitlers eru framkvæmdar gegn rninni máttar þjóðum, sem skortir á- ræði til þess að verja frelsi sitt. 1 Jugoslaviu. Donovan sagði, að hann væri sannfærður um, að Serbar vildu hjálpa Grikkjum og myndu reyna að gera það með ein- hverju móti. Hann kvaðst hafa talað við serbneska yfirforingja, Fi'h. á 3. siðu. X

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.