Vísir - 05.06.1941, Síða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
31. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 5. júní 1941.
Ritstjóri 1 Blaðamenn Sími:
Auglýsingar , 1660
Gjaldkeri 5 Ifnur
Afgreiðsla J
125. tbl.
Sýriand næsti styrjaldarvettvangur.
yiaðui' hverfur af
Þingfvöllum.
Brezk innrás talin yíirvoíandi, þar sem
Þjóðyerjar virðast vera að byrja að
gera Sýrland að bækistöð
til framkvæmda stórkost-
legra hernaðaráforma í
Litlu Asíu.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun
Brezkir hermálasérfræðingar líta svo á, að það sé
orðið deginum Ijósara, að Þjóðverjar séu byrj-
aðir að hernema Sýrland, en Yichystjórnin
hylmi yfir það eftir beztu getu. Er því hvatt til þess, að
brezka stjórnin grípi til skjótra aðgerða, og hernemi
Sýrland. Benda margir hermálasérfræðingar á, að ekki
sé eftir neinu að bíða, — það sé þegar Ijóst, hvað fram
fari í Sýrlandi, og þeim mun erfiðara verði hlutverkið
því lengur sem það er dregið. Komið hef ir f ram sú skoð-
un, að brezka stjórnin bíði átekta unz kunnugt er um
undirtektirnar af ferð Leahy flotaforingja Bandaríkj-
anna, á fund Petains marskálks í gær, en hann fór fram
á, að Vichystjórnin gerði grein fyrir stefnu sinni út á
við. Menn gera sér ekki neinar vonir um mikinn árang-
ur af málaleitan Leahys og Bretar eru sagðir betur und-
ir það búnir en áður, að hernema Sýrland, vegna þess
að Iraq allt má nú heita á valdi þeirra. og þeir hafa þar
mikið Iið, í Transjordaniu, og Palestinu.
(Brezkir hermálasérfræðingar kalla Sýrland lykilinn að Litlu
Asíu. Heppnist Þjóðverjum það áform, að gera Sýrland að aðal-
miðstöð hernaðaraðgerða austur þar, mega Bretar búast' við
hínu versta. Afleiðing þýzks hernáms í Sýrlandi yrði fyrst og
fremst, að Tyrkland yrði einangrað, Þjóðverjar fengi aðstöðu
til þess að sækja fram til olíulindanna í Iraq og Iran (Persíu),
og er þeir hefði náð þessum löndum, ef til vill fyrr, munu þeir
hefja sókn að Súezskurði og Egiptalandi beggja megin frá, og
þorir enginn neinu um það að spá hversu mikinn þátt fallhlífar-
hersveitir og hersveitir fluttar í stórum herflutningaflugvéluím
muni eiga í þeim bardögum, en ýmsir ætla, að Þjóðverjar hafi
meira af æfðu fallhlífaliði á að skipa en nokkurn grunaði, og
sennilega geta þeir flutt meira lið loftleiðis en nokkurn hermála-
sérfræðing erlendis óraði fjTÍr, því að þrátt fyrir að fjölda
margar stórar herflutningaflugvélar voru skotnar niður á Krít
eða eyðilögðust þar, virðast Þjóðverjar enn hafa nóg af slíkum
flugvélum. Þannig er sagt frá því, að 150 tómar, stórar her-
flutningaflugvélar þýzkar hafi komið til Rasjak í Sýrlandi á
mánudag — hverra erinda vita menn ekki, ef til vill til að flytja
til Iraq lið það, sem kemur sjóleiðis til Sýrlands frá Grikklandi,
og smyglað er inn með fölsuð vegabréf yfir Tyrkland.
anlegur til Bagdad í dag. Iiann
var á stað nokkrum uppi í
fjöllum, ásamt móður sinni og
enskri kennslukonu.
• Sikorski herforingi, forsætis-
ráðlierra pólsku stjórnarinnar,
skýrði frá því í gær, að pólsk-
ar hersveitir tæki nú þátt í
bardögunum með liersveitum
Wavells í löndunum við aust-
anvert Miðjarðarliaf.
ENGIR ÞÝZKIR KAFBÁTAR
í DAKAR.
Það hefir verð tilkynnt opin-
berlega í Vichy, að í Dakar og
öðrum nýlenduhöfnum eða
frönskum höfnum, sem ekki
eru hernumdar, séu engir
þýzkir kafbátar.
ABETZ FARINN AFTUR
TIL PARÍS.
Það er tilkynnt, að dr. Abetz
sé kominn aftur til Parísar frá
Berlín. Er búist við, að seinustu
samkomulagstillögurnar verði
brátt teknar til úrslitaafgreiðslu
og verði svo gengið frá fullnað-
arsamkomulagi.
Ný stjórn i
Viðsldptum við Sýr-
land slitið.
Ríkisstjórn Egiptalands baðst
lausnar í gærkveldi, til þess að,
greiða fyrir endurskipun á
hreiðari grundvelli en áður.
Menn ætla, að það muni ganga
greiðlega að mynda nýja stjóra,
og fól Farouk konungur forsæt-
isráðherranum það hlutverk. Er
líklegt talið, að liann hafi lokið
því hlutverki i dag.
Það eru þessir grímuklæddu
lierflutningar Þjóðverja tilSýr-
lands, sem vekja mestan ugg
meðal Breta. Þjóðverjar koma
í liópum til Sýrlands, um 50 í
lióp, á grískum fiskiskipum,
sem sigla nærri Tyrklands-
sröndum, og auk þess er mik-
ill „ferðamannastraumur“ til
landsins. Eru ferðamennirnir,
sem þykjast vera Gyðingar og
flóttamenn, með fölsuð vega-
bréf frá Balkanlöndum ýms-
um. En allir þessir Þjóðverjar
hverfa til sinna stöðva jafnóð-
um inni í landi, en í Beirut eru
þrjú gistihús, sem hafa verið
tekin í notkun handa Þjóðverj-
um eingöngu. Eru þar aðallega
yfirmenn að sögn. Þjóðverjarn-
ir 400, sem fluttir voru á spit-
alaskipi til Beyrut, eru taldir
hafa verið úr skriðdrekasveit,
og hafi þeir fengið' franská
skriðdreka til afnota.
En Vichystjórnin neitar al-
gerlega, að nokkurt hernám
fari fram í Sýrlandi. Bretar
segja, að orðum Vichystjórnar-
innar sé ekki trúandi, og benda
á margt þvi til sönnunar, og
jafnframt, að Bandaríkjastjórn
legði ekki meira upp úr orðum
hennar en það, að Cordell IIulI
hafi farið fram á, að sendi-
herra Vichystjórnarinnar i
Washington gæfi skriflegt svar
við fyrirspurn, sem Banda-
ríkjastjórn har fram.
Fregn barst um það í gær-
kveldi, að Weygand yfirhers-
höfðingi Frakka í Norður-
Afríku, mundi vera á förum til
Sýrlands, til þess að taka þar
við herstjórninni. Fregnir hafa
borizt um, að Dents landstjóri
hafi sent blökkumannáher-
sveitir — frá Senegal — til
landamæra Sýrlands, en Sene-
galliermennirnir séu Bretum
vinsámlegir og treysti Dents
blökkumönnunum ekki betur
en svo, að 10 franskir yfirfor-
ingjar séu vmeð hverjum 100
Senegal-liermönnum.
BRETAR HERNEMA
MÓSÚLSVÆÐIÐ.
Bretar liafa nú hernumið allt
Mósúlsvæðið, þar sem olíulind-
irnar frægu erú, og var herlið-
ið flutt loflleiðis og í bifreiðum
og járnbrautarvögnum. Til
nokkurra óeirða kom i Bagdad
á mánudag, og' voru sett þar
herlög, en allt er þar nú með
kyrrum kjörum. Var þetta
lokatilraun fylgismanna Ra-
schid Ali til þess að koma öllu
í bál.
Feisal konungur í Iraq, en
liann er barn að aldri, er væn't-
Þýðingarmikil ákvörðun.
Egipska stjórnin tók ákvörð-
un í gær, sem sýnir Jxvert vind-
urinn blæs þar eystra. Fjár-
málanáðherrann tilkynnti, að
-Sýrland yrði sett á lista, sem á
eru nöfn þeirra landa, sem Þjóð-
verja og Italir liafa liernumið,
og viðskiptasambandinu við
Sýrland þvi slitið.
25 nætur
án loftárása.
London í morgun.
Loftvarnamerki voru gefin
í London í nótt, en engum
sprengjum var yarpað á
borgina. Tuttugu og fimm
nætur í röð hafa Lundúnabú-
ar nú sloppið við loftárásir.
Þýzkar sprengjuflugvélar
voru yfir iðnaðarborgum
Midlands í nótt sem leið, en
ekki er kunnugt um tjón af
völdum árásanna.
Portúgalsmenn hafa sent rtýj-
an liðsauka til Azoreyja. Fór
herlið þetta af stað frá Lissa-
bon i gær.
Leiðangur helur leitað hans, og annar verður
gerður út í dag.
Aðfaranótt 2. í hvítasunnu hvarf maður á Þingvöllum og
þrátt fyrir leit um gjárnar og hraunið, hefir hann ekki fundist
og ekkert til hans spurst frá því kl. 1 um nóttina.
FRETTIR
í STUTTU MÁLI
Sprengjuárásir voru gerðar á
skipalest undan Tunisströndum
s.l. þriðjudag. Flugvélarnar
voru Maryland-flugvélar, sem
Bretar hafa fengið frá Banda-
ríkjunum. Sökkt var 8000 smá-
lesta skipi. Varð svo ógurleg
sprenging í því, að hlutar úr þvi
hentust í önnur skip og
sprengdi þau og í eina sprengju-
flugvélina með þeirri afleið-
ingu, að hún hrapaði í sjó nið-
ur. Eldur kom upp í 5000 smá-
lesta skipi og önnur urðu fyrir
skemmdum. — Tundurspillar
voru herskipalestinni til fylgd-
ar.
Nýjustu orustuskip Banda-
ríkjanna, North Carolina og
South Dakota, eru hraðskreið-
ari en Bismarck var. Skip þessi
eru nýtekin í notkun.
Franz Braun, aðalaðstoðar-
maður von Ribbentrops í utan-
rikisráðuneytinu þýzka, er fall-
inn á Krít.
Íslandsglíman
í kvöld.
Íslandsglíman fer fram í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
í kveld og hefst kl. 9.
Keppendur eru 10 frá fjórum
félögum: Ármanni Ungm.samb.
Kjalnesinga, U. M. F. Hruna-
manna og U. M. F. Mývetning-
ur“.
Meðal Ármenningamla má
leljaKjartan Bergmann (skjald-
arliafa Ármanns), Ivristmund
Sigurðsson, Jóliannes Ólafsson,
Sigurð Hallbjörnsson o. fl.
Eru keppendur óvenju jafnir
og mjög tvísýnt um úrslitin.
Mun Mývetningurinn, Geir-
mundur Þorláksson, sem er
mjög liðlegur glimumaður,
hafa fullan hug á að færa bellið
aftur til sinna „upprunalegu
heimkynna“, í Þingeyjarsýslu.
í íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar eru beztu mögulegu skil-
yrði fyrir glímuna, gólfið fyrir-
tak og áhoifendur komast þar
álíka margir og í Iðnó, en það
er eins varlegt fyrir áhorfendur
að tryggja sér miða í tíma, sem
verða fáanlegir í dag í
Bókaverzlun ísafoldarprent-
smiðju.
Maðurinn, sem hér er um að
ræða, er 19 ára piltur, Ingólfur
Jónsson að nafni. Hafði hann
farið austur á Þingvöll sér til
skemmtunar og ætlaði að dvelja
þar um hvítasunnuna.
Það er siðast vitað um Ing-
ólf, að hann fór út úr Yalhöll
ásamt þremur mönnum öðram
Þarf 4 flugvélar
til að fullnægja
þörfinni.
Flogið 31 þús, km.
í maí.
Vísir hafði tal af Erni John-
son flugmanni í morgun og
fékk hjá honum eftirfarandi
uppjýsingar um flugið í maí-
mánuði.
Maímánuður var óvenju góð-
ur flugmánuður, sagði Örn, því
veðurfar — einkum fyrri hluta
mánaðarins — var með af-
brigðum hagslætt. • Var i maí
flogið nærri eins mikið með
Haferninum einum, ~ eins og
báðum flugvélunum í aprílmán-
uði.
Alls hefir verið flogið 155 kl.
á 26 dögum í mánuðinum. Þetta
svarar til þess, að flogið hafi
verið 31 þús. km.
Á þessum tíma voru 224 far-
þegar fluttir, 240 kg. af pósti og
1350 kg. af öðrum flutningi.
25 ferðir (fram og aftur)
voru farnar til Norðurlandsins,
5 ferðir til Austfjarða og 5 ferð-
ir til Vestfjarða, 1 umhverfis
landið og 10 styttri ferðir.
Vísir spurði Örn, hvort hægt
hefði verið að afgreiða allar
pantanir , sem félaginu liefði
borizt um farþegaflutning með
flugvélinni. Hann sagði, að þótt
félagið liefði fjórar flugvélar og
alltaf gott flugveður, myndi það
ekki gera meira en fullnægja
þeim pöntunum, sem bærust. í
s.l. mánuði hefði ekki verið
unnt að afgreiða nema litið
brot af þeim pöntunum, sem
borizt hefðu.
um kl. 1 um nóttina. Ætluðu
þremenningarnir, sem með lion-
um voru, að fara inn í Bolabás
undir Ármannsfelli og liitta þar
eittlivert fólk, sem þeir þekktu.
Gengu }>eir allir fjórir af stað
inn eftir, en á móts við Þing-
vallabæinn varð Ingólfur við-
skila við þá, og hefir ekkert til
hans spurst síðan.
I fyrradag fór Jón Oddgeir
Jónsson með 5 manna syeit
austur og leitaði um hraunið og
gjárnar, en varð einskis visari.
Sýslumaðurinn í Árnessýslu
| liefir beðið lögregluna hér i bæ
| um aðstoð við að leita manns-
J ins og mun sennilega verða
' sendur skátaleiðangur austur í
I úag.
ARIADNE
eftir A. E. W. M a s o n.
Skáldsaga sú, er hefst i
blaðinu í dag, er eftir Íieims-
frægan höfund. Ein af sög-
um hans er „Fjórar fjaðrir"
sem hér var sýnd á kvik-
myndum nýlega. Allar eiga
bækur lians sameiginlegt í
þvi að vera afar „spennandi“
frá byrjun iil enda. „Ari-1
adne“ hefir verið gefin út il
: 27 útgáfum og er hún ein af
allra skemmtilegustu sögum
höfundarins. Aðal-kvenper-
sóna sögunnar er ensk liefð-
armær, sem talin er fegursta
kona Lundúnaborgar. Hún
hirðir lítt um siði og venjur
heldra fólksins og gerir flest
sem henni dettur í hug, en
drenglyndi hennar, tryggð og
mannkostir standa hvergi að
baki fegurð hennar.
Fylgist með sögunni frá
byrjun. Þetta er ástarsaga í
beztu merkingu þess orðs og
ein af þeim sjaldgæfu, sem
eru svo skemmtilegar, að les-
andinn mun bíða hvers kafla
með eftirvæntingu til að sjá
hvernig söguhetjunni tekst að
bjarga frá ógæfu og glötun
þeirri konu sem hann unni.
KANADA HEFIR NÚ 50.000 MANNA FLUGHER. — Myndin er frá flugvelli í Ontarío. —