Vísir - 27.09.1941, Síða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, laugardaginn 27. september 1941.
221. tbl.
Járnbrantm milli Kharkor
o§r Moskva í hættu ?
Þjóðverjar segja. að ekkert hlé verði á
bardögum á austurvígstöðvunum í vetur
EENKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Iþýzkum fregnum í gær var sagt, að þýzkar her-
sveitir sækti fram í nánd við Bryansk, og væri
markmiðið að ná kafla af járnbrautinni
Kharkow og Moskva á sitt vald, til þess að hindra
samgöngurnar milli þessara borga. En áður höf ðu bor-
izt fregnir um óhemju liðflutninga til Kharkow, sem
sagt er að Rússar ætli að verja af sama kappi og Lenin-
grad og Odessa. — Talsmaður þýzku herstjórnarinnar
sagði í Berlín í gærkveldi, að ekkert lát mundi verða á
hemaðaraðgerðum í vetur.
1 fregnum frá Moskva í gær var sagt, að barizt væri áfram á
Kievsvæðinu og ætti Rússar þar í höggi við ofurefli liðs Ná-
kvæmar fregnir skortir enn um hið innikróaða lið. Á Leningrad-
vígstöðvunum sögðust Rússar hafa hrundið árásum úr þremur
áttum og fært út víglínu sína. Á einum stað sóttu Rússar fram
8 kílómetra og tóku aftur 4 þorp.
Liði Þjóðverja á ösel
gereytt.
Útvarpið í Leningrad skýrði
frá því í gær síðóegis, að allar
tilraunir Þjóðverja til þess að ná
Ösel við Eistlandsstrendur á sitt
vald hefði mistekizt. Var játað í
fregninni, að Þjóðverjar hefði
komið um 15.000 manna liði á
land á eyjunni, en það hefði ver-
ið upprætt. Þjóðverjar tilkynntu
fyrir skömmu, að þeim liefði
orðið vel ágengt að koma sér
fyrir á eyjunni. Sögðust þeir
hafa tekið höfuðborgina, Ai’ens-
burg, og vesturhluta eyjunnar
allan, og væri nú eftir að hreinsa
til aðeins austan til á eyjunni.
-— Eyja þessi er allstór og liafa
Rússar haft þar flug- og flota-
stöðvar og þaðan munu þeir
senda flugvélar til árása á Kön-
igsberg og aðrar borgir í Aust-
ur-Prússlandi og til Berlín.
578.000 fangar teknir við Kiev,
segja Þjóðverar.
Þjóðverjar tilkynntu i gær, að
þeir hefði tekið 578.000 fanga í
bardögunum við Kiev. í Lond-
on var gerð sú athugasemd við
þetta, að Þjóðverjar segðist nú
hafa tekið fleiri fanga í bardög-
unum þarna en þeir í upphafi
þóttust hafa lcróað inni. Er talið
víst i London, að hinar þýzku
fregnir um þetta sé stórum
ýktar.
Rússar taka mikið herfang.
Þá segja Rússar fná því, að
þeir hafi tekið mikið herfang. Á
einujn stað .eyddu eða náðu þeir
á sitt vald 1600 fótgönguliðsbíl-
um, 32 brynvörðum bifreiðum
og sjö skriðdrekum. Rússum
hefir orðið vel ágengt við Volk-
liována og hafa vestari bakk-
ann á valdi sinu.
Manntjón möndulveldanna.
við Odessa.
Bardagarnir eru mjög harðn-
andi við Odessa og hefir stór-
skotalið beggja sig mjög í
frammi. Þjóðverjar hafa nú
sent Rúmenum allmikinn liðs-
auka og er nú sókninni haldið
áfram, en þó með nokkuð öðr-
um hætti en áður var. Sækja
Þjóðverjar og Rúmenar ekki
lengur fram í fylkingum á
hreiðu svæði, heldur í smáhóp-
um og í skjóli stórskotahríðar.
Stafar þetta af því hversu gífur-
legt manntjón þeir hafa heðið,
en Rússar segja að fyrra helm-
ing septembermánaðar -muni
manntjón möndulveldanna við
Odessa vera um 50.000, þ. e.
fallnir og særðir.
Ungverjar tilkynna gagn-
áhlaup af hálfu Rússa.
I fregn frá Budapest í gær er
sagt frá gagnáhlaupum á þeim
kafla vígstöðvanna, þar sem
ungversku liersveitirnar eru.
Rússar viðurkenna
hreyfingu frjálsra Frakka.
Rússneska stjórnin liefir nú
viðurkennt samtök frjálsra
Frakka. Skiptust þeir á bréfum
um þetta efni, i gær, Maisky
sendiherra Rússa í London, og
De Gaulle leiðtogi frjáls|a
Frakka.
í bréfi sínu liét Maisky, fyrir
hönd ríkisstjórnar sinnar, að
styðja frjálsa Frakka að því
marki að endurreisa sjálfstæði
og veldi Frakklands, og í svari
sinu hét De Gaulle Rússum
stuðningi eins og þeim væri
frekast fært að veita.
Þjóðnefndin franska er nú
tekin til starfa, en hún er í
rauninni skipulögð sem ríkis-
stjórn með svipuðu fyrirkomu-
lagi og venja er til, og eins og
hinar útlægu ríkisstjórnir
þjóðanna í hernumdu löndun-
um hýr þjóðnefndin sig til þess
að taka við, er dagur frelsisins
rennur upp, þvi að frjálsir
Frakkar telja, að Petainstjórnin
hafi fyrirgert öllum rétti sínum,
þar sem hún hafi kastað fyrir
borð liagsmunum Frakka og
lúti Þjóðverjum. De Gaulle er
leiðtogi þjóðnefndarinnar eða
forsætisráðherra raunverulega,
þótt hann liafi ekki ráðlierratit-
il, frekar en hinir, lieldur þjóð-
arfulltrúa. Plevin fer með fjár-
mál og utanríkismál, Dejean
með utanríkismál, Le Gentil-
homme með hermál, Muselier
vax-aðmiráll flota- og siglinga-
mál o. s. frv.
Nýju Hurricaneflugvél-
arnar teknar í notkun.
Nýju Hurricaneflugvélarnar
eni farnar að láta til sín taka. í
gær gerðu þær ánás á skip við
Frakklandsstrendur, 4 tundur-
duflaskip og 2 loftvai’naskip.
Kviknaði í tveimur lundui’-
duflaskipum, en sprehging varð
í öði’u loftvai’íxaskipinu. —
Vélhj’ssukúlurnar dundu á
skipunum endilöngum hvað
eftir annað og urðu skipin al-
elda á svipstundu.
Taylor erindreki
Roosevelts á
heimleið.
Taylor, vatikanerindreki
Roosevelts, er kominn til Lon-
don, og er hann á leið heim til
Bandarikjanna, en mun hafa
nokkui’a daga viðdvöld í Lon-
don. Mun hann ræða þar við
brezka í’áðherra og sérfræðinga.
Talið er, að Taylor hafi rætt
við páfa nýlega um aðstoð til
handa flóttafólki, sem býr við
sífeldan hi’akning af völdum
lcúgunar og styrjalda, og þau
mál öll. Þegar vestur kemur
gefur Taylor forsetanum
skýrslu.
í STUTTU MÁLI
Þjóðverjar gei’ðu enn tilraun
til loftárásar á Moskva í nótt, en
komust ekki inn yfir borgina,1
vegna skothríðar úr loftvarna-
byssum,.
Brezkar flugvélar gei’ðu árás
á Köln í nótt og fleiri borgir í
Vestur-Þýzkalandi. Einnig voru
gerðar árásir á liafnai’hverfin I
Dunkirk og Calais i nótt.
Catroux, leiðtogi frjálsra
Frakka i Sýrlandi, mun lialda
ræðu í dag, og lýsa yfir því, að
umboðsstjórn Frakka i Sýr-
landi sé úr sögunni, með endur-
stofnun hins sýrlenzka lýð-
veldis.
Fregn frá Bern hernxir, að til-
kynnt hafi verið opinberlega,
að 4 menn hafi beðið bana af
völdum sprengingar nálægt
Cliillon við Genfai-vatn. Um-
ferð á Simplonjárnbrautinni
hefir stöðvazt vegna jarðhruns
af völdum sprengingai’innar.
Vöruflutningalest varð fyrir
jai’ðhruninu.
Þjóðverjar viiðast jxokast
skipulega í áttina til Leningrad,
símar fréttaritari United Press,
þrátt f.yrir áhlaup Rússa. Þjóð-
verjar eru enn 20 kílómetra frá
úthverfunum í Peterhof eða
Strelna.
Rússar segjast hafa skotið
niður yfir 100 flugvélar fyrir
Þjóðverjum á laugardag, en
misstu 29 sjálfir. .
Blaðið Japan Times krefst
þess, að Duff Cooper verði
kvaddur heim frá Singapore,
því að hann hafi þar með hönd-
um „íkveikjustarf“, sem geti
liaft hinar háskalegustu afleið-
ingar. Duff Cooper er sem,
stendur á ráðstefnu í Singapore
með sendiherrum Breta í Thai-
landi og Kína.
Rússar liafa gereytt stórhóp-
um þýzkra fallhlífarhermanna,
sem lentu á Krimskaga. Einnig
hafa rússnesk herskip fná Seva-
stopol hindrað öll áform Þjóð-
verja að senda lxerflutningaskip
til Krímskagans.
Vichystjórnin sendir
Japönum mótmæla-
orðsendingu.
Kastast hefir í kekki milli
Japana í Franska Indo-Kína og
Vichystjórnarinnar, sem hefir
sent mótmæli til Tokio út af þvi,
að japanskt herlið i Hanoi og
víðar í Indo-Kína, hafi tekið sér
meira vald en heimilt er. Hafi
göturn verið lokað í hverfum
boi'ganna og húsrannsókn gerð.
Þetta, segir Vichystjórnin, er
brot á samkomulaginu, þar sem
Japanir lofuðu að virða sjálf-
stæði Franska Indo-Kina. —
Japanir segja, að þeir hafi ver-
ið að leita að Kínverjum sem
smyglað var inn í landið rétt
áður en japanska setuliðið var
sent til Indo-Kína. Um 50 menn
voru handteknir, segir Domei-
fréttastofan japanska.
Horfir erfiðlega
fyrir Kínverjum
í Hunan.
Eftir japönskum fregnum að
dæma í gær horfir mjög erfið-
lega fyrir Japönum í Hunnan.
Þeir liöfðu þar sjö heri höfuð-
horginni — Cliangsha — til
varnar. Af þessum sjö herjum
Iiafa fjórir verið gersigraðir,
segja Japanir, og einn er inni-
króaður, og eru því að eins tveir
eftir boi’ginni til varnar.
herskip
bandamanna
í viðgrerð vestra.
Það var tilkynnt í London í
gær, að alls liefði 27 lierskip
bandamanna legið i höfn i
Bandai’ikjunum til viðgerðar.
Meðal þessara herskipa eru sum
af frægustu herskipum Breta,
sem fyi’i’ var getið, og i gær var
tilkynnt, að tveir kafbátar væri
þar til viðgerðar, brezki kafbát-
urinn Partheon og kafbátur
frjálsra Frakka Surcoyf, sem er
stærsti kafbátur í heimi, 2880
smál. og hefir útbúnað til að
skjóta út flugvél. Einnig er til
viðgerðar vestra tundurspillir-
inn Bernham, sem er einn hinna
50 tundurspilla, sem Banda-
ríkjamenn létu Bretum í té.
Þjóðverjar flytja hús-
næðlslaust fólk tll
Hollands.
Fréftastofa í New York liefir
birt bréf frá Hollandi, þar sem
sagt er frá þvi, að Þjóðverjar
hafi flutt 40.000 manns til Hol-
lands, aðallega til Amsterdam.
Er þetta fólk, sem orðið hefir
húsnæðislaust vegna loftárása
Bi eta á borgir i Rinarbyggðum.
Er búizt við, að Þjóðverjar flytji
fleira fólk til Hollands, sem líkt
er ástatt fyrir. í bréfinu segir, að
í Dusseldorf sé nú eins umhorfs
eins og í Rotterdam, eftir loft-
árásina miklu þegar innrásin
stóð yfir.
von Papen ennþá
í Istamhnl.
Viðskiptasamningarnir
Yon Papen sendiherra Þýzka-
lands í Ankara er enn í Istan-
bul, en hann mun vera væntan-
legur til Ankara á mánudag.
Dr. Clodius, viðskiptasendi-
herra þýzku stjórnai’innar, er
enn i Ankara. Hann hefir lýst
yfir því, að hann geri sér vonir
um, að samkomulagsumleitun-
um Þjóðverja við Tyrki um nýja
viðskiptasamninga verði lokið
ijæstu viku. Mun dr. Clodius þá
fara til Aþenuborgar og þaðan
til Bukarest.
Ameriski sendiherr-
ann kominn til
landsins,
í gærkveldi kom hingað Mr.
McVeagh, sendiherra Banda-
ríkjanna hér á landi. Er kona
hans í för með honum.
Um leið koniu hingað nokkr-
ir erlendir blaðamenn, meðal
annars^ fréttaritari frá United
Press-fréttastofunni og tímarit-
ununi Time og Life og Björn
sonur Gunnars Björnssonar rit-
stjóra, en hann er starfsmaður
I)já útvarpsstöð vestra.
Þá eru líka komnir liingað
tveir ménn lil að taka kvik-
myndir.
Norðmenn verða að^láta
af höndum öll ullarteppi
sem þeir eiga.£lÍMí
Fregn frá Oslo hermir, að
Terboven landstjóri Þjóðverja i
Noregi liafi gefið út tilskipun
þess efnis, að allar ullarábreið-
ur, sem Norðmenn eigi, skuli af-
hentar þýzku yfirvöldunum. Ef
menn hlýðnast ekki tilskipun
þessari, vofir yfir mönnum
þriggja ára fangelsi eða 100.000
króna sekt.
Ráðstöfun þessi mun gerð
vegna þess, að skortur er ullar-
teppa i Þýzkalandi handa her-
mönnunum á austurvígstöðvun-
um.
Heldur afmælis ræðu
í veizlu þeirri, sem Iialdin er í
Tokyo i dag til minningar um,
að ár er liðið síðan Japanir gerð-
ust aðilar að möndulvelda-sátt-
málanum flytur Tejiro Toyoda,
iitani’ikisráðlierra, aðalræðuna.
Toyoda er vara-aðmíráll og var
um tima flotamálafulltrúi við
sendisveit Japana í London.
Þýzka sendisveitin í
Seheran komín til
Ankara.
Fregn frá Ankara hermir, að
þýzki sendiherrann í Teheran í
Iran, sé koniinn til Ankara á
leið til Þýzkalands, starfsmenn
hans allir og fjölskyldur þeirra,
alls 470 manns, ennfremur f jór-
ir búlgarskir og ellefu ungversk-
ir sendisveitarstarfsmenn.
FnUtrtaráðsfnndsr
Sjálfstæðisfólaganna
í gærkveldi.
FULLTRUARAÐ Sjálfstæðis-
félaganna hélt kaffikveld í
Oddfellowhúsinu í gærkveldí.
Ólafur Thors hélt aðalræðuna,
en aðrir ræðumenn voru m. a.
Bjarni Benediktsson, borgar-
stjóri, Guðm. Benediktsson,
bæjargjaldkeri, sem er formað-
ur fulltrúaráðsins, Jóhann Haf-
stein, erindreki, o. fl.
Atvinnumálaráðherra hóf
mál sitt á því, að lýsa aðstæðum
hér, er samningar við Breta
voru hafnir, siglingar hefði ver-
ið stöðvaðar o. s. frv. Bretar
hefði lofað okkur góðum við-
skiptasamningum þegar í upp-
hafi og því liafi fisksölusamn-
ingurinn verið undirritaður, án
þess að jafnframt væri gengið
frá samningum um þær vörur,
sem við fengjum frá Bretum.
Nú væri þó svo komið, að þeir
hefði lofað að láta okkur fá
130.000 smál. af kolum.
Þá talaði Ólafur og um dýr-
tiðarmálin, þær tillögur, sem
frani liefði komið í þeim mál-
um og lagði áherzlu á, að stöðva
ýrði dýrtíðina hið fyrsta.
Mýtt lieimsniet
I hástökki.
J^ES STEERS heitir amerísk-
ur hástökkvari, sem setti
nýtt heimsmet í hástökki í vor
og stökk 2.10 metra.
Fyrra metið var 2.07 m., sett
af blökkumönnunum Johnson
og Albritton 1936, en kynbróðir
þeirra, Melwyn Walker hafði þó
stokkið enn hærra, eða 2.09 m.,
1937, en það var víst ekki stað-
fest sem heimsmet.
Þetta nýja met Steers er nú
orðið fimmta bezta metið i
frjálsum íþróttum og gefur
1180 stig. Aðeins stangarstökk-
ið (4.63 m.), spjótkastið (78.70
m.), kúluvarpið (17.40 m.) og
110 m. grindahlaupið (13.7 sek.)
eru hetri.
Hann er 23 ára gamall, stúd-
ent frá háskólanum i Oregon
og er — þótt ótrúlegt sé — hvít-
ur á lit.
1939 fór Steers fyrst verulega
að láta til sín taka í frjálsum
íþróttum. Þá varð hann meist-
ari Bandaríkjanna í hástökki,
bæði hjá juniorum og seniorum
—- og stökk 2.03 m. Þótti það
eins og gefur að skilja frábært
afrelc af tvítugum manni. Sama
sumar var hann einn af þeim 10
útvöldu amerísku iþróttamönn-
um, sem fengu að fara til Ev-
rópu og keppa þar á ýmsum í-
þróttamótum.
Steers er mjög alhliða í-
þróttamaður. Hefir t. d. kastað
spjóti 64 metra, kúlu um 15
metra og hlaupið 110 metra
grindahlaup á 15.2 sek. Fhida er
almennt húizt við, að hann setji
met í tugþraut, þegar þar að
kemur.