Vísir - 27.09.1941, Side 2
VISIR
Framkvæmdir vitamála§t|órnar
400 þúsund kr. til hafnar-
á
og Hafnarfírði.
3 vitar bj'^gðir.
Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefir fengið hjá vitamála-
stjóra, hr. Emil Jónssyni, hafa framkvæmdir á hafnarmann-
virkjum og vitabyggingum verið heldur minni í ár en oft að
undanförnu, og ber þar þrennt til. I fyrsta lagi gerðu f járlögin
ráð fyrir minni framkvæmdum á þessu sviði í ár en verið hefir
síðustu árin, í öðru lagi hafa margir hlutaðeigendur dregið að
sér hendina með framkvæmdir vegna dýrleika byggingarefnis,
og í þriðja lagi hefir mannekla valdið því, að ekki hefir nærri
allt fengist unnið, sem þurft hefir að gera.
mannvirkja
Raufarhöfn
VÍSIR
DAG BLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
RRstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 16 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Gæfa — ógæfa.
STRÍÐIÐ hefir stóraukið á-
hrif Alþýðuflokksins og
verkalýðsins í Bretlandi, segir
Alþýðublaðið í gær, og með frétt
þessari birtir blaðið myndir af
þremur Ieiðtogum Alþýðu-
flokksins þar i landi. Telur blað-
ið, að það beri fyrst og fremst til
fylgisaukningar þessarar, að
ýmsum svokölluðum socialist-
um i Bretlandi hafi verið falin
trúnaðarstörf, og beri flokkur-
inn ábyrgð að sínum hluta á
framkvæmdum og stjórnarat-
höfnum. „Leyndardómurinn
liggur í þeirri staðreynd, að
brezka þjóðin befir hæfileika til
þess að taka þjóðfélagslegum
endurbótum ofbeldislaust“, seg-
ir blaðið og er mjög hrifið. Seg-
ir ennfremur, að í iðnaðinum
og framleiðslunni bafi verlca-
lýðsfélögin „reynt að koma
frám með samkomulagi við at-
vinnurekendur, frekar en að
eiga í deilum við þá. Stjórn-
málalega liafa þeir reynt að
lcoma á endurbótum eftir leið-
um þingræðisins, fremur en að
neyða fram endurbætur með
þeim vopnum, sem verkalýður-
inn á yfir að ráða, verkföllum
og þvíumlíku.“
Það er ekki að undra þótt Al-
þýðublaðið sé hrifið, af því að
brezka Alþýðuflokknum eykst
fylgi, ekki sízt þar, sem vitað er
að stöðugt miðar í áttina niður
á við hjá flokki blaðsins sjálfs
hér heima á íslandi. Athyglis-
vert er það hinsvegar, að blaðið
telur að orsakirnar til liinnar
miklu fylgisaukningar megi
rekja til þess, að brezki verka-
lýðsflokkurinn varast um-
fram allt að efna til verkfalla,
en reynir að þoka málum sín-
um fram eftir samningaleiðum
og án allra ofbeldisverka.
„Þegar býður þjóðarsómi þá
á Bretland eina sál“, stendur
þar, og skal því ekki út í það
farið, að ræða um hrifningu Al-
þýðublaðsins á því, að ekki skuli
nú efnt til verkfalla og óeirða í
Bretlandi af hálfu socialistanna.
Það er þáttur út af fyrir sig,
sem virðist ekki tiltakanlega að-
dáunarverður. Hitt er svo allt
annað mál, að einmitt af þessu
mætti Alþýðuflokkurinn is-
lenzki margt læra, sem vafa-
laust gæti puntað dálitið upp á
flokkinn sem slíkan og dregið
úr ógæfu hans og stöðugt hrörn-
andi fylgi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir á-
valt haldið því fram, að fyrsta
skilyrði til j>ess að tryggja af-
komu þjóðarbúskaparins og hag
almennings sé að vinnufriður í
landinu sé tryggður. Deilumál,
sem upp kunna að koma milli
vinnuveitenda og vinnuþiggj-
enda, beri að leysa með vinsam-
legu samkomulagi eftir þvi sem
unnt sé, en með miðlun mála,
ef samkomulag náist ekki mill-
um aðilanna sjálfra. Þeir verka-
menn, sem Sjálfstæðisflokknum
fylgja að málum, hafa þetta at-
riði að sjálfsögðu mjög á oddi,
með því að þeir hafa annars-
vegar fullan skilning á þjóðar-
nauðsyninni, en hinsvegar á
hagsmunum verkamanna út af
fyrir sig. Af þessum sökum
eykst Sjálfstæðisflokknum stöð-
ugt fylgi meðal verkamanna.
Alþýðuflokkurinn íslenzki liefir
aldrei liaft á þessu nokkurn
skilning og því hefir stöðugt
sígið á ógæfuhlið fyrir honum.
Blað flokksms liefir haldið uppi
látlausum árásum á sjálfstæðis-
menn einmitt vegna þess, og
rejTit að stimpla þá verkamenn,
sem stéttarböðla, er ekki vildu i
tima og ótíma beita ofbeldi mál-
urn sínum til framdráttar. Því
er það napurt ósamræmi, þegar
Alþýðublaðið fellur nú fram og
lofsyngur brezka verkalýðs-
flokkinn fyrir nákvæmlega
sömu afstöðu til þjóðfélagsmál-
anna og verkamenn innan
Sjálfstæðisflokksins liafa ávallt
haft, en verið níddir fyrir að
staðaldri af sama blaði.
En hver veit nema að Al-
þy'ðuflokkurinn læri það mikið
á þessu, að hann breyti um
starfsaðferðir. Það er fyrsta
skilyrði þess, að blað flokksins
geti skammlaust birt myndir af
forráðamönnum flokksins, eins
og Bretunum, sem myndir birt-
ust þar af í gær. Ella getur blað-
• ið heldur aldrei getið svo ann-
arra verkalýðsflokka gæfu, að
það minnist ekki eigin ógæfu.
jónas Wwém
dæiiir íyrir rneiOyrOi.
í gær var felldur í undirrétti
dómur í meiðyrðamálinu: Al-
freð Guðmundsson ráðsmaður
Dagsbrúnar, gegn Jónasi Guð-
mundssyni eftirlitsmanni bæj-
ar- og sveitarfélaga.
Öll ummæli Jónasar voru
dæmd dauð og ómerk og auk
þess var hann dæmdur til að
greiða kr. 300.00 í sekt, og kr.
150.00 í málskostnað.
Ameriskir her-
menn læra
íslenzku.
Ameriski landherinn hóf fyr-
ir skemmstu útgáfu vikublaðs,
Nefnist blað þetta „The White
Faicon“.
t blaði því, sem kom út í
morgun var liafin kennsla í ís-
lénzku og byrjað á að kenna
nemendunum að þekkja liljóð-
stafina með dæmum. Er það
liðsforingi af íslenzkum ættum,
Lieut. Dóri Hjálmarsson, sem
kennsluna liefir á hendi.
Vísir hefir heyrt, að ameríski
hershöfðinginn sé þvi mjög
fylgjandi, að menn hans læri is-
lenzku.
Hlutavelta K.R.
er á morgun kl. 3V2 í Garðyrkju-
sýningarskálanum viS Garðastræti
og Túngötu. Fjöldi gkesilegra og
eigulegra muna verður á boðstólum,
svo sem: 1 tonn kol. 500 krónur í
peningum. Matarforði. Saumavél
(bezta tegund), saltfiskur og ótal
margt fleira, og mjög spennandi
happdrætti. Lítið í skemmuglugg-
ann hjá Haraldi í dag, en komið á
hlutaveltuna á morgun.
Helztu framkvæmdirnar í
sumar eru þær, sem hér segir:
Hafnarf jörður.
Síðastliðinn vetur var hafin
hafnargerð í Hafnarfirði. Er til-
ætlunin að byggja skjólgarða,
er loki liöfninni fyrir hafátt (þ.
e. vestanátt) og var byrjað að
byggja nyrðri garðinn í s. 1.
marzmánuði.Er nú þegar búið
að byggja um 70 metra langan
garð. Er hann byggður á svip-
aðan hátt og hafnargarðar
Reykjavikur. Áfallinn kostnað-
ur af þeim framkvæmdum, sem
þegar liafa verið unnar eru tæp-
ar 200 þús. kr., en áætlaður,
heildarkostnaður af þessum
garði er 1 millj. kr. Þess má geta
að sú kostnaðaráætlun var
samin i stríðsbyrjun, og getur
þar af leiðandi færst mikið úr
skorðum.
Raufarhöfn.
Þar var lokið við dýpkun
hafnarinnar í þessum mánuði.
Var byrjað á þvi mannvirki i
fyrrasumar, og var það gert í
sambandi við stækkun síldar-
verksmiðja rikisins.
Á Raufai-höfn eru að ýmsu
leyti ágæt skilyrði fyrir höfn,
en það var hinsvegar mjög
bagalegt hvað grynningarnar
voru miklar. Var samið við
hafnarstjórn Reylcjavikurbæj-
ar um að fiá Iánað dýpkunar-
skip til þessara framkvæmda,
og fékkst það. Hefir skipið þeg-
ar grafið upp um 60 þúsund ten-
ingsmetra alls. Dýpi hafnar-
innar, bæði við bryggjur og á
innsiglingunni er nú um 5
metrar i stórstraumsfjöru, eða
svipað því sem er hér í Reykja-
vikurliöfn, og er það nægilegt
fyrir stór flutningaskip. Alls
hafa þessar framkvæmdir á
Raufarhöfn kostað um 200 þús.
kr.
Ölafsvík.
í Ólafsvík hefir hafnargarð-
urinn verið lengdur lítilsháttar,
til þess að fá betra var fyrir inn-
siglinguna á höfnina. Verkinu
er lokið og kostaði það milli
50 og 60 þús. krónur.
Sauðárkrókur.
Á Sauðárkróki var byggður
sjóvarnargarður og um leið
framkvæmdar lítilsháttar að-
gerðir á hafnarbryggjtmni.
Iíostuðu þessar framkvæmdir
20 þús. kr.
Grindavík.
1 Þórkötlustaðahverfi í
Grindavík hefir verið unnið að
því að hreinsa lendinguna og
bæta uppsátrið. Verkinu er um
það bil að verða lokið, en kostn-
aður enn óuppgerður.
Keflavík.
Þar er verið að ljúka við
bátabryggju, sem hafin var
smíði á i vetur, og sömuleiðis
stendur til að gera við gamla
hafnargarðinn, sem þar er, og
mun sú viðgerð kosta 50—60
þús. kr. Er nýlega byrjað á þvi
verki.
Vitabyggingar.
Búið er að reisa vita á Grenja-
nesi á Langanesi, skammt fyrir
utan Þórshöfn. Viti þessi á að
lýsa yfir Þistilfjörðinn innan-
verðan og alveg sérstaklega þó
yfir Grenjanesboðana, sem eru
rétt fyrir utan vitastaðinn.
Byggingu vitans er lokið, en
ljóstækin eru ófengin, og koma
sjálfsagt ekki fyrr en næsta ár,
því mjög illa hefir gengið að fá
þau ljóstæki, sem pöntuð hafa
AJlir fundarmenn voru sam-
nuála um að Verðlagsnefnd
gengi of langt, hvað ýmsa vöru-
flokka snerti, í að takmarka ó-
makslaun kaupmanna, því að
þótt svo virtist í fljótu bragði,
að góð afkoma væri við ýmis-
konar verzlunarrekstur, ætti
það eklci við livað matvöruverzl-
un snerti. Er það vegna þess
fyrst og fremst, að tilfinnan-
leg vöruvöntun hefir verið í
verzlunum matvörukaup-
manna, sérstaklega á þeim
vörutegundum, sem aðallega
hafa haldið uppi verzlunar-
kostnaðinum, og hörgull hefir
einnig verið á innlendum iðn-
aðarvörum, ásamt ýmsum
landbún aðaraf urðum.
Þá var rætt um erfiðleikana
á heimsendingum vara og sam-
þykkt eftirfarandi áskorun til
bæjarbúa.
„Fundur haldinn í Félagi
matvörukaupmanna í Kaup-
þingssalnum 26. september
1941, beinir þeim vinsamlegu
tilmælum til háttvirtra bæj-
arbúa, vegna þess hve erfitt
er að fá starfsfólk við verzl-
anir, að stuðla eftir mætti að
því, að gera heimsendingar á
vörum hjá matvöruverzlun-
um auðveldari, með því að
gera innkaup sín í stærri stíl
en verið hefir almennt und-
verið frá Englandi, en um aðra
staði er ekki.að ræða sem stend-
ur.
í byggingu er viti á Þormóðs-
skeri, en það er syðsta skerið i
skerjagarðinum fyrir utan
Mýrar. Eru þau sker mjög
hættuleg og hafa iðulega farizt
þar skip, nú síðast franska haf-
rannsóknaskipið „Pourquoi
pas?“ fyrir fáum árum, og er
öllum slys þetta í fersku minni.
Er í rauninni undarlegt, að þar
skuli ekki liafa verið byggður
viti miklu fyrr.
Þormóðssker er lítið, aðeins
100x100 metrar að stærð, og er
mjög erfitt að vinna þar, einlc-
um i rosaveðrum og þegar vont
er i sjó. Ef allt gengur að ósk-
um, má vænta þess að vitinn
verði þó fullbyggður um miðjan
næsta mánuð.
Loks verður byggður viti á
Arnarstapa í haust, ef veður og
aðrar ástæður leyfa.
Lýsing vitanna.
Um lýsingu vitanna er það að
segja, að kveikt verður á söniu
vitum og logaði á í fyrra. Þó
hefir verið leyft að kveikja á
tveim vitum, sem ekki voru i
notkun í fyrra, en það eru
Stokknesviti, fyrir austan
Hornafjörð og Knarrarnesviti,
fyrir austan Stokkseyri. Auk
þessa er ekki alveg vonlaust um,
að einhverjir fleiri vitar fáist
undanþegnir.
anfarandi og panta ekki vör-
ur eftir kl. 5 síðdegis.“
Það ætti ekki að vera nein-
um vandkvæðum bundið fyrir
bæjarbúa að fara að þessum til-
mælum matvörukaupmanna,
og auk þess gera miklar heim-
sendingar auðvitað allan verzl-
unarrekstur dýrari, og sá óvani,
sem sumt fólk hefir, að hringja
e. t. v. mörgum sinnum á sama
klukkutímanum, nær auðvitað
eltki nokkurri átt.
Því næst urðu umræður um
miánaðarreikningaskiptin. Vildu
sumir afnema þau með öllu, en
álitið var að almenningi kæmi
betur, að þeim yrði haldið á-
fram. Þó var ákveðið að það
yrði innan þeirra takmarka, að
þau gildi aðeins um lieimilsút-
tekt, og það yrði gert að ákveðnu
skilyrði, að reikningar yrði
greiddir upp fyrir 6. livers mán-
aðar.
Ýms fleiri áliugamál matvöru-
kaupmanna komu fram og voru
rædd á fundinum.
Messur á morgun.
í fríkirkjunni kl. 2, síra Árni
Sigurðsson.
í Mýrarhúsaskóla kl. 2.30, síra
Jón Thorarensen.
Frjálslyndi söfnuðurinn: í frí-
kirkjunni kl. 5.30. Að lokinni guðs-
þjónustu verður stuttur safnaðar-
fundur um áríðandi mál. Sr. Jón
Auðuns.
1 Hafnarfjarðarkirkju kl. 5, síra
Garðar Svavarsson. -— Að Bjarna-
stöðurn kl. 2.
í dómkirkjunni kl. 11, sr. Frið-
rik Hallgrímsson; kl. 5, síra Sigur-
björn Einarsson.
Operettan Nitouche
verður sýnd annað kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 4 í dag, en
vegna mikillar aðsóknar verður ekki
hægt að taka á móti pöntunum í
síma frá kl. 4 til 5.
Næturlæknar.
1 nótt: Kristján Hannesson,
Mimisveg 6, sími 3836. Næturverð-
ir í Ingólfs apóteki og Laugavegs
apóteki.
Aðra nótt: Theodór Skúlason,
Vesturvallagötu 6, sími 2621. Næt-
urverðir í Lyfjabúðinni Iðunni og
Reykjavikur apóteki.
Helgádagslæknir.
Karl S. Jónasson, Laufásveg 55,
simi 3925.
Guðspekifélag- íslands ,
heldur aðalfund á sunnudag kl.
1% í húsi félagsins. Á mánudags-
kvöld kl. 9 flytur Grétar Fells er-
indi, er hann nefnir „Bókstafurinn
og andinn“.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.30
Hljómplötur: Comedian Harmon-
ists líkja eftir hljóðfærum. 20.00
Fréttir. 20.30 Erindi: Orðabókar-
Johnson; bókmenntafrömuður á 18.
öld, II. (dr. Jón Gíslason). 21.10
Hljómplötur: Lög, leikin á orgel.
21.25 Útvarpshljómsveitin: Gömul
danslög. 21.50 Fréttir. 22.00 Dans-
lög til kl. 24.
Útvarpið á morgun.
Kb 12.00 Hádegisútvarp. 14.00
Messa i Frikirkjunni (síra Árni
Sigurðsson). 15.30 Miðdegistónleik-
ar (plötur): Ensk tónlist. 19.30
Hljómplötur : „Don Juan“, tónverk
eftir Rich. Strauss. 20.00 Fréttir.
20,20 Hljómplötur : Píanólög. 20.30
Upplestur úr ritum Davíðs Stefáns-
sonar (Jón Sigurðsson frá Kaldað-
arnesi). 21.00 Einsöngur (Gunnar
Pálsson): a) Lindin, eftir Eyþór
Stefánsson. b) Taktu sorg mína,
eftir Árna Thorsteinsson. c) The
song .., eftir Jordan. d) Thora,
eftir Adams. e) Heilög Maria, eft-
ir Mascagni. 21.20 Hljómplötur:
„Svanavatnið", ballett eftir Tschai-
kowsky. 21.50 Fréttir. 22,00 Dans-
lög til kl. 23.
Húseignin
Laugaveg19
er til sölu ef viðunanlegt boð fæst. Upplýsingar gefur
Kristján Siggeirsson.
Fundur matvörukaupmanna:
Rætt um Verðlagsneínd,
heimsendingar og mánað-
arreikningsviðskipti.
■p élag matvörukaupmanna hélt fund í gær í Kaupþingssaln-
" um Aðalumræðurnar urðu urú þrjú mál: 1. Afskipti Verð-
lagsnefndar af verðlagi hjá matvöruverzlunum, 2. erfiðleika á
heimsendingu á vörum og vöntun á §tarfsfólki og 3. takmörk-
un á mánaðarreikningsviðskiptum.
K.R
V'
VALUR1
GS&MBtö _ -s" '
KIO€K OIT IKL. 2 Á MORGUN
URSLIT