Alþýðublaðið - 12.05.1920, Blaðsíða 3
I
(
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Mb. Grrótta lsgði af stað frá
Akureyri í gær, beina leið hingað.
ótíð „afskapleg" var sögð á
Norðurlandi í símtali við Akur-
eyri í gær. Er útlit fyrir fellir, ef
ekki batnar um mjög bráðlega.
Björnssonar Yesturg. 4 (áður skrifstofa lögreglustj.).
Dm dagirni og vegii.
Yeðrið í dag.
Reykjavík .... ASA, hiti 2,2.
ísafjörður .... logn, hiti 2,7.
Akureyri .... logn, hiti 0,0.
Seyðisfjörður . . logn, -r- 1,7.
Grtmsstaðir . . . SA, -z- 0,5.
Vestm.eyjar . . . logn, hiti o 6.
Þórsh., Færeyjar ANA, hiti 4 5.
Stóru stafirnir merkja áttina.
-5- þýðir frost.
Loftvog há, hæst fyrir austan
land og fallandi; suðaustlæg átt
með. úrkomu á Suður- og Austur-
landi.
Vulltrúaráðsfanðnr verður á
morgun.
Blaðið kemur ekki út á morgun.
Grnllfoss. Búist er við honum
á föstudag eða laugardag.
Skjöldur fer í fyrramálið til
Borgarness, að sækja vestan- og
norðanpóst.
Eliag Olrik heitir hinn nýskip-
aði amtmaður í Færeyjum. Hann
hefir embættispróf bæði í lögum
og guðfræði.
Messað verður í fríkirkjunni kl.
5 sfðd. á morgun (Ól. Ól.). í dóm-
kirkjunni messar síra Bjarni JÓns-
son kl. 11 (ferming).
Dýr hnndrit.
Fyrir skömmu voru seldar bæk-
ur og handrit í Anderson Art
Gallery í New-York. Þár var meðál
annars selt handrit Sheylleys að
»Julian and Maddalsc, var það
27 akrifuð blöð á rúml. 16 þúa,
dollara (ca. 95 þús. krónur). Ann-
að handrit eftir Shelley að »Queen
Mab« var selt á 6000 dollara.
Þeir láta sér ekki alt í augum
vaxa, Amcríkumenn. X
Fulltrúaráðsfundur
verður haldinn á morgun kl. 7 síðd. á venjul. stað.
I lending-u.
Þær stóðu í fjörunni’ og störðu’
Út á hafið, —
stormurinn ýlfraði feigðarljóð.
Landið var freyðandi fjallöldum
vaflð,
sem ferlega ruddist um skerjaslóð.
Ægir í fjörbrotum foldina hristi,
faðmlögum ísköldum vafði mey,
—langt úti sást hvar ránarhrygg risti
í rjúkandi sæúða örlídð fley. —
Það færðist nær, gegnum
brimhvíta boða,
sem blóðlitum kvöldroða teygðu
sig mót, —
aflvana horfðu á ástvini’ í voða,
örvita’ af skelfingu hrærðu'
ekki fót. —
Það færðist nær, og nú heyrðu
þær hrópin,
formanninn kalla og hughreysta
hópinn.
Stýristaumum heldur höndin
hraust;
hann horfir hvössum augum fram
á lagið:
»Nú, eða aldrei, róið refjalaust!
Þó rokið spyrni, sýnið að þið
dragið I *
Og árunúm með æðisgengnum
krafti
var öllum róið. — Hafið stundi
og gapti.
Það voru aðeins örfá áratog,
en aldan reis að baki,
og fyrir framan ferlegt sog,
— feigð var yfir strönd og vog. -—
Aldan féll með ógurlegu braki.
Konurnar hljóðandi stóðu á strönd
og störðu á ólmandi hafið.
Það eina, sem sást, var upprétt hönd
og árabrot. — Nú var það grafið.
En stormurinn herti heljartak
og hafið tryltist æ.
Hver aldan válegri aðra rak
um æðisgenginn sæ.
Gustur.
Fermingarkort,
Afmæliskort,
Nýjar teikningar.
Heillaöskabréf við öil
tækifæri.
Laugaveg 43 B.
Friðfinnur L. Guðjónsson.
Glepaugu fundin. Vitjist;
á Laugaveg 16.
Söðull, lítið notaður, til sölu.
Uppl. á atgr. Alþbl.
Verzlunin „Hlíf" á Hverfisgötu
56 A selur: Hveiti, Haframjöl,
Sagogrjón, Bygggrjón, Kartöflu-
mjöl, Hænsnabygg, Mais heilan
og Baunir. Kæfu, Tólg, Steikar-
feiti og ísl. Margarine. Rúsínur,
Sveskjur, Gráfíkjur og Kúrenur.
Sæta saft, innlenda og útlenda,
Soyju, Matarlit, Fisksósu og Edik.
Niðursoðna ávexti, Kjöt, Fiska-
bollur, Láx og Síld. Kaffi Export
og Sykur.
Suðuspíritus og steinoKu o. m. fl.'
Spyrjið um yerðið!
Reynið vorugæðin!
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Óláfur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.