Vísir - 13.02.1942, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Slmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S Ifnur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, föstudaginn 13. febrúar 1942.
14. tbl.
SJÓORUSTA f ERMARSUNDI
Þýzkn herskipin Ncharnhorst, tilneisenan
ogr Prin* Engen öll hæfð tnndnrskeytnm.
í tugatali skotnar niður í bardaganum. —
EINKASKEYTI frá United Press. London í raorgun.
Amiðnætti síðastliðnu var tilkynnt í London,
að mikil sjóorusta væri háð á Ermarsundi,
og hefðu 3 stór óvinaherskip orðið fyrir tund-
urskeytum, þ.e. herskipin Sharnhorst, Gneisenau og
Prinz Eugen, sem mánuðum saman hafa legið í Brest,
og iðulega hafa laskast í loftárásum Breta, en jafnan
verið gert við þau á ný. Herskip þessi voru nú að leit-
ast við að komast heim til Þýzkalands, vegna hinnar
miklu hættu, sem stöðugt vofði yfir þeim í Brest, en
Þjóðverjar munu og hafa hugsað sér gott til glóðar-
innar, að geta beitt herskipum þessum gegn andstæð-
ingunum frá tryggari bækistöðvum. En enn sem oft
áður í þessari styrjöld, kom bert í Ijós, hver not eru
að flugvélunum. Brezkar njósnarflugvélar sáu til ferða
herskipanna, og fáum mínútum síðar flugu brezkar
sprengjuflugvélar og orustuflugvélar í tugatali frá
bækistöðvum sínum, til árása á herskipin. Áformið um
að komast heim, án þess að Bretar yrði varir við, hafði
mistekist.
Þýzku herskipin voru varin fjölda mörgum orustuflugvélum
og tundurspillar og mótor-tundurskeytabátar voru í fylgd með
Jjeim, en Bretar sendu nú herskip sömu tegunda á vettvang og
herskip fleiri tegunda, og var nú eltingaleikurinn og loftorustan
brátt í fullum gangi. Herskipin reyndu að hylja sig í reykjar-
mekki, en ekki kom það að gagni. Þegar seinast fréttist voru
herskipin að leitast við að komast inn á Helgolandsflóa, en Helgo-
Iand er flotahöfn. öll herskipin höfðu verið hæfð tundurskeyt-
um og Prinz Eugen þremur.
Flugvélatjón hefir þegar orð-
ið mikið í þessari orustu. I sam-
eiginlegri tilkynningu flota-
málaráðuneytis Breta og flug-
málaráðuneytisins segir, að a.
m. k. 18 þýzkar orustuflugvélar
hafi verið skotnar niður, en
flugvélatjón Breta er
Þessi stærsti flugbátur lieims-
ins hefir lilotið nafnið „Mars“
Hann er 170 íeta langur með
200 feta vænghafi, vegur 70
smálestir, kostaði 2.5 milljón-
ir dollara, getur flogið 7000
mílur viðstöðulaust og flutt
150 hermenn með alvæpni.
Hann var smiðaður í Glenn L.
Martin-verksmiðjunum í Bal-
timore í Maryland-fylki. —
Skömmu eftir að búið var að
setja hann á flot í fyrsta skipti
og átti að fara að reyna hann,
losnaði innri stjórnborðs-
hreyfillinn og við það kvikn-
aði í vængnum. Tókst þó að
slökkva eldinn áður en hann
gat vmnið verulegt tjón.
20 sprengjuflugvélar skotn-
ar niður, 16 orustuflugvél-
ar og 6 flotaflugvélar.
Sprengjuflugvélar strand-
I varnaliðsins og brezka hersins
tóku þátt í árásinni og flota-
flugvélar, sem fyrr var sagt. —
Sumar sprengjuflugvélanna, er
þátt tóku í árásinni, hafa með-
ferðis svonefnd lofttundurskeyti
(aerial torpedoes), sem hafa
reynzt hættulegust í árásum 'á
herskip og stór flutningaskip.
i — Bretar segja, að þegar skúr
1 gerði og dimmdi yfir, hafi
| brezku tundurspillarnir notað
j tækifærið, til þess að komast
J nær herskipum Þjóðverja og I
skotmál við þau.
Scharnhorst og Gneisenau
eru 26.000 smálesta orustuskip,
en Prinz Eugen er beitiskip,
10.000 smálesta. öll hafa her-
skip þessi komið mikið við sögu
í styrjöldinni. Prinz Eugen lét
úr höfn um leið og orustuskipið
Bismarck , sem Bretar sökktu,
en Prinz Eugen var heppnari og
komst í höfn í Brest, og þar hef-
ir hann orðið að dúsa síðan er
þetta var (í fyrravor).
í frekari fregnum um sjóor-
ustuna segir, að lágskýjað hafi
verið og slæmt skygni, er her-
skipin þýzku reyndu að komast
lieim.
Þegar herskipin fóru um Dov-
ersund var skotið úr hinum
langdrægu falDiyssum, Breta við
Dover, en Þjóðverjar á Gris Nez
höfða byrjuðu þá ákafa skothríð
yfir sundið.
Af þeim 18 flugvélum, sem
vitað er með vissu að skotnar
voru niður fyrir Þjóðverjum,
voru 15 orustuflugvélar, en 3
sprengjuflugvélar, en Bretar
misstu 42 flugvélar, þ. e. 16 or-
ustuflugvélar og 6 flotaflugvél-
ar (Swordfish), en liinar voru
spx-engjuflugvélar.
Kl. 12 á hádegi höfðu ekki
borizt nýjar fregnir til London
frá orustunni.
Orustnnni
um Singa-
pore ekki
lokið
Helmirigur eyjarinnar á
valdi Breta, sem í gær
gerðu áhlaup á Japani með
miklum árangri.
í gærkvekli var tilkynnt i.
London, að þær gleðifregnir
liefði borizt frá Singapore, að
bandamenn liefðu gert gagná-
lilaup með miklum árangri á
vinstri fylkingararm Japana, en
þar höfðu þeir úrvalshersveitir.
Bandamenn beittu köldu stálinu
og tvistruðu hersveitum Japana.
Áður höfðu borizt fregnir um,
að Bretar hefðu enn um helm-
ing eyjarinnar á sinu valdi. Vig-
línan liggur frá flotastöðinni á
norðurströndinni til vestur-
strandarinnar, um 8 kílómetra
fyrir vestan Singaporeborg.
Japanir segja, að Bretar séu
að flytja herlið og hergagna-
birgðir frá Singapore, og minni
þær aðgerðir á undanhaldið frá
Dunkirk. Segjast Japanir hafa
gert loftárásir á flota, sem var
að leggja úr höfn. Voru i flota
þessum 25 skip og segjast Jap-
anir hafa hæft 16 skipanna með
sprengjum og var þannig komið
í veg fyrir, að flotinn léti úr
höfn. Bretar segja, að Japanir
beiti mjög steypiflugvélum. Það
er nú staðfest, að Japanir hafa
komði skriðdrekum af meðal-
stærð til Singapore.
Seinustu fregnir frá Singa- j
pore eru þær, að Percival liers-
liöfðingi bandamanna á eynni
sendi skeyli til Fords hermála-
ráðherra Ástralíu þeess efnis
snemma í morgun ( kl. hálf sex
eftir Greemvich meðalthna), að
hersveitir Breta og Ástraliu-
manna veitti öflugt viðnám
gegn ofurefli liðs. Miklar loft-
árásir eru nú gerðar á Singa-
ixire. — Japanir játa nú, að bar-
izt sé á miðri eynni.
15 ára afmæli.
Aðalfundur Heimdallar.
Háskólafyrirlestrar
um Njáls sögu.
Næstkomandi sunnudag mun
dr. Einar Ól. Sveinsson flytja
fyrirlestur í háskólanum um
Njálssögu.
Er þetta fyrsti fyrirlesturinn
úr fyrirlestraflokki, sem dr.
Einar ,Ó1. hefir samið um þetta
efni. Verða fyrirlestrarnir jafn-
an fluttir á sunnudögum, kl. 5,15
og verður sá fyrsti, eins og fyrr
segir, haldinn næstkomandi
sunnudag.
Hinir almennu fyrir-estrar há-
: kólans hafa jafnan notið verð-
skuldaðra vinsælda hjá mönn-
um, ekki sízt þeir, sem hafa
fiallað úm islenzk efni. Má búast
við að mjög marga fýsi að 1<v- -
ast Njálssögu betur m.eð aðsfoð
dr. Einars ÓI. Sveínssonar.
Þær ganga í gildi þ. 20. þ. m,
T fyrradag, miðvikudaginn 11. þessa mánaðar, gaf
viðskiptastyr jaldarnefnd Bandaríkjanna (Board
of Economic Warfare) út tilskipun um víðtækar höml-
ur á útflutningi ýmsra vörutegunda. Nokkur iönd voru
þó undanþegin þessari tilskipun og eru þau þessi: Is-
land, Kanada, Stóra Bretland, Norður-lrland, Ný-
fundnaland og Grænland.
Segir í tilkynningunni, að frá miðnætti 20. febrúar falli úr
gildi öll útflutningsleyfi fyrir tilteknum vörum, er eiga að fara
til alrla landa annara en þeirra, sem getið er hér að ofan.
Ná þcssar útflutningshömlur til landbúnaðarvéla, nema trakt-
orahreyfla og hjóla, rafmagnsvéla og tækja, svo sem kæliskápa
til heimilsnotkunar, þvottavéla, lampa, ryksuga o. s. frv., hús-
gagna úr járni og stáli, eldavéla af ýmsum gerðum úr járni og
stáli, kókóbauna og kókódufts, súkkulaðis og allra gerða af
málmilátum, þar á meðal til gas-hylkja.
Ef óskað er eftir útflutningi á þessum vörutegundum til ein
liverra annara landa en ]>eirra sex, sem getið er i upphafi þessa
máls, verður að fá til þess sérstakt leyfi viðskiptastyrjaldar-
nefndarinnar.
J^ÆSTKOMANDI mánudag, j
þann 16. febrúar, eru liðin |
15 ár frá stofnun Heimdallar, fé- i.
lags ungra Sjálfstæðismanna 1
liér í Reykjavík.
Mun stjórn félagsins hafa á
prjónunum ýmsar ráðagerðir í
sambandi við afmælið. j
Á afmælisdaginn, þann 16. j
lebrúar, verður aðalfundur fé-
lagsins í Kaupþingssalnum. —
Fundurinn hefst með því, að
formaður Sjálfstæðisflokksins,
lÓlafur Thors, flytur ræðu um
stjórnmálaviðhorfið, en auk
þess munu ýmsir forráðamenn
flokksins mæta á fundinum og
taka til máls.
Aðalfundarstöl-fin verða
framkvæmd i lok fundarins, þar
sem ákveðið er, að Sjálfstæðis-
mönnum, eldri sem yngri, sé
jafn heimill aðgangur að fund-
inum.
KyrrahafsflotiU.S.
lætur til sín taka.
5 japönskum herskipum og 11 her-
flutningaskipum sökkt í árásinni
á Gilherts og Marshalleyjar.
Flolamálaráðuneytið í Washington hefir nú birt
greinargerð um árangurinn af árás Kyrraliafsflotans,
sem gerð var fyrir nokkuru á stöðvar Japana á Gil-
berts og Marshalleyjum. Greinargerð þessi leiðir í ljós,
að sökkt var skipastól fyrir Japönum, sem var sam-
tals yfir 100.000 smálestir, en Japanir urðu fyrir miklu
tjóni öðru.
Meðal herskipanna, sem sökkt
var, var 17.000 smálesta flug-
vélamóðurskip, beitiskip og
tundurspillar, en eitt gamalt
japanskt herskip, minni herskip
og kafbátar löskuðust. Fjórar
flugstöðvar voru eyðilagðar og
skotfærabirgðir sprungu í loft
upp.
38 flugvélar voru skotnar
niður fyrir Japönum, en Banda-
rikjamenn urðu fyrir frekar
litlu tjóni.
Amerísku blöðin nota tæki-
færið til þess að minna á, að
Japanar hafi tíðum gortað af
því, að þeir liafi ýmist gersigr-
að eða lamað stórkostlega
Kyrrahafsflota Bandarikjanna,
með árás sinni á Pearl Harbor,
en það sé nú komið í ljós, að
Kyrrahafsflotinn sé þess megn-
ugur, að greiða Japönum þung
b.ögg, eins og árangurínn af á-
rásunum á Gilberts og Mars-
halleyjar sýni.
Mörg helztu blöðin í Banda-
rikjunum aðvara Japana og
segja, að tjón það, sem þeir liafi
þegai’ orðið fyrir, ættí að mínna
þá á í hvaða hættu þeir séu,
jafnvel heima fyrir, og þótt síð-
ar verði m,uni Kyrrahafsflotinn
sækja þá heim og þá verði bar-
ist við strendur Japana.
Viðbótarfregn.
Árásirnar voru gerðar á 6 að-
albækistöðvar Japana. Ekkert
herskip Bandarikjamanna lask-
aðist alvarlega. Bandaríkja-
menn misstu 11 flugvélar. Her-
skipin, seni sökkt var, voru:
17.000 smálesta skip, sem hafði
verið breytt í flugvélastöðvar, 1
tundurspillir, 1 létt beitiskip og
2 kafbátar. Meðal hjálparskip-
anna, sem sökkt var, voru 3 olíu-
flutningaskip japanska flotans.
FRETTIR
í STUTTU MÁLI.
Rússar segjast halda áfram,
sókn sinni, þrátt fyrir síharðn-
andi mótspymu Þjóðverja, sem
halda áfram að flytja varalið til
vígstöðvanna. Rússar segjast
hafa bætt aðstöðu sína við
Sebastopol, Kharkov og á Kal-
ininvígstöðvunum og á Lenin-
grad og Smolenskvígstöðvunum
segjast þeir hafa tekið allmörg
þorp.
Þjóðverjar birta fregnir frá
Finnum um að 5 þúsund Rússar
hafi fallið i seinustu bardögum
við Finna.
Beaverbrook lávarður sagði í
ræðu, sem hann flutti í gær, að
skriðdrekaframleiðslan í janú-
ar hefði verið þrisvar sinnum
meiri en í sarna mánuði í fyrra.
S.l. ár sendu Bretar 10.000 flug-
vélar ur landi til annarra víg-
stöðva og bandamanna sinna og
3000 skriðdreka.