Vísir - 26.03.1942, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 26. marz 1942.
Ritstjóri 1
Blaðamenn Slml:
Auglýsingar 1660
Gjaidkeri 5 Ifnur
Afgreiðsla
m rvip'n
49. tbl.
Stendur innrás í Tyrkland
, i.' **.*— ,
fyrir dyrum?
Sami leikur gegn Búlgör-
um og Júgóslövum í fyrra.
Tyrklandi talin §tafa liætta af Uiíss-
lainli. Kommn ni§ta-§am§æri í Nofia
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Samkvæmt fregnum, sem bárust til London í gær,
hafa þeir ræðst við Boris konungur Búlgaríu
og Adolf Hitler ríkisleiðtogi Þýzkalands.
Fóru viðræðurnar fram í fyrradag í aðalbækistöð Hitl-
ers og mun Boris hafa haldið áfram ferð sinni til Berlín
ar. Tekið er fram í þýzkum fregnum, að viðræðurnar
hafi verið hinar alúðlegustu milli Hitlers og Borisar,
og síðar mun Boris konungur hafa rætt við þá Göring
marskálk og von Ribbentrop. í London óttast menn, að
Boris konungur muni fallast á allar kröfur Hitlers og
hans manna og þar með komist Búlgaría inn í styrjöld-
ina þá og þegar. IIIs viti þykir, að svo virðist sem þegar
sé byrjað að leika sama leikinn í Búlgaríu og Júgoslaviu
í fyrra, en í báðum þessum Iöndum er líkt ástatt að því
leyti, að ýmsir áhrifamenn gengu nazistum á vald, en í
hernum og meðal þjóðarinnar er sterk alda gegn þátt-
töku í stríðinu, og eins og í Júgoslaviu var sterk samúð
í hernum með bandamönnum, eins er sterk samúð inn-
an búlgarska hersins og allra Éúlgara í garð Rússa. For-
vstumenn þeirra sem vinveittir eru Rússum eiga nú
ekki von á góðu. Það hefir þegar verið hafizt handa um
að ryðja þeim af vegi.
22 MENN HANDTEKNIR OG MEÐAL ÞEIRRA ERU ÞJÓÐ-
KUNNIR ÆTTJARÐARVINIR. — FJÖLDAHANDTÖKUR I
RÚMENÍU.
Fregnir frá Berlín herma, að komizt hafi upp um svokallað
kommánistiskt samsæri í Sofia og hafa 22 menn verið hand-
teknir. Meðal þeirra eru tveir kunnir herforingjar, sem nú hafa
fengið laasn í náð, enda vinveittir Rússum og bandamönnum.
Þessir herforingjar, sérstaklega annar þeirra, njóta almennrar
vinsælda. — En það er ekki aðeins í Búlgaríu, sem brjóta verð-
ur á bak aftur mótspymuna gegn Hitler. — í Rúmeníu hafa 95
menn verið handteknir fyrir pólitískan mótþróa og eru þeirra
meðal knnnir stjórnmálamenn.
Rússar komnir inn í úthverfi Star-
aya Russa, Stalino og Taganrog.
. .Það hafa vægast sagt runnið tvær grímur á stuðningsmenn
Hitlers í Rúmeníu og Búlgaríu, þótt þeir þori ekki annað en
dansa með eins og hann vill. — Gagnsóknin mikla hefir
ekki enn borið mikinn árangur og seinustu fregnir herma, að
Rússar hafi nýlega rutt sér braut inn í útverfi þriggja borga,
Staraya Russa, Stalino og Taganrog. Hefir veriz barizt í návígi
á gotunúm en ekki verður með fullri vissu sagt enn, hvort Rúss-
ar hafa náð öruggri fótfestu í þeim öllum. Stundum gera þeir
skyndiárásir inn í þessar borgir, og hverfa svo á braut, eða eru
hraktir aftur í gagnárásum, en koma svo aftur og aftur.
Það var i gær, sem fregn barst
um að Rússar væru komnir inn
í Stalino og væri barist þar í út-
hverfunum. Meginher Þjóðverja
á þessum slóðum var sagður á
undanhaldi. Þá er sagt frá því i
rússneskum. frégnum, að her-
sveitir Rússa hafi fyrir nokkuru
ruðst inn i úthverfi Taganrog
og gert árás á herrríannaskála
og birgðastöðvar Þjóðverja í
borginni, með rifflaskothríð og
handsprengjukasti, og voru
valdir að miklum spjöllum, en
hurfu því næst á braut.
Nú er frá þvi sagt, að rúss-
neskar hersveitir hafi farið yfir
ísilagt Ilmenvatn, 30 mílur veg-
ar og ruðst inn í útthverfi Stara-
ya Russa. Var barizt þar i ná-
vígi og tókst Rússum, að bjarga
mörgum rússneskum föngum,
sem þar voru í haldi.
"Saga rússnesku fanganna.
Rússnesku fangarnir segja,
að framin séu hin ólieyrilegustu
hefndarverk í Staraya Russa.
Þjóðverjar hafa hengt menn i
hundraðatali, og héngi líkin upp
við aðalgöturnar, fólki til við-
vörunar. Konurnar í Staraya
Russa, giftar sem ógiftar, eru
knúðar til þess að látg að vilja
þýzku hermannanna í öllu, að
því er hermt er í rússneskum
fregnum, samkvæmt frásögn
fanganna. Rússneska liðið, sem
naut stuðnings skriðdreka,
komst alla leið inn í miðhluta
Ijorgarinnar.
Fyrir sunnan Bryansk hafa
Rússar tekið mikilvæga járn-
braularstöð. Á Smolenskvíg-
stöðvunum hafa Rússar náð 12
byggðum stöðum á sitt vald. —
Rússneski flugherinn heldur á-
fram að valda Þjóðverjum
miklu tjóni og eyðileggur dag-
lega skriðdreka, fallbyssur og
flutningabila fvrir þeim í luga-
talii
Nýtízku 'amerískt orustuskip
Þetta einkennilega skipsstefni er á ameríska orustuskipinu
„North-CaroIina“. Það skip er í flokki hinna nýju orustuskipa
Bandaríkjanna og var með þeim fyrstu, sem voru fullsmíðuð. —
Aðalvopn „North-Carolina“ eru níu 1(5 þumlunga fallbyssur. —
MIKIL LOFTÁRÁS Á RUHR
í NÓTT.
Brezkar sprengjuflugvélar
fóru til árása á iðnaðarborg-
irnar í Ruhrhéraði í nótt sem
leið og Var það mikill fjöldi
sprengjuflugvéla, sem gerði
árásina.
Varð gífurlegt tjón af völd-
um hennar.
Ellefu sprengjuflugvélar
komu ekki aftur.
Flugmennirnir segja, að
þeir hafi komizt að raun um,
að feikna tjón varð í seinustu
loftárásum á Ruhr.
Maisky hvetur til sóknar
í vor og sumar.
Maisky afhenti fjórum brezk-
um flugmönnum Leninorðuna i
gær og flutti ræðu við það tæki-
færi. Kvað hann enga ástæðu ti!
þess að ala nokkurn beyg um
það, sem frainundai, er ef sam-
vinnan væri á öllum sviðum
jafn traust og innileg og sam-
vinna brezkra og rússneskra
flugmanna.
Maisky kvað andstæðinga
bandamanna liætta á allt til
þess að sigra í vor og sumar.
Bandamenn verða allir að leggj-
ast á sömu sveif lil þess að sigra
i iár, og bandamenn hafa öll skil-
vrði til þess að sigra, ef þeir
standa sameinaðir. Því að þeir
hafa allt sem til þess þarf að
sigra. Enginn þarf að efast um
hvenær hefjast skal handa, það
ber að gera á þessu ári. Og eng-
inn þarf að efast um hvar rétti
staðurinn er til þess að knýja
fram úrslit. Hann er á austur-
vígstöðvunum. — Ef banda-
menn gera þetta verður traust-
ustu stoðunum, sem veldi Hitl-
ers hvilir á, svipt burt. — Allt
verður að miðast við þetta eitt:
Að sigra í ár.
FRETTIR
í STUTTU MÁLI.
Wafdistar eða þjóðernissinn-
ar, flokkur Nahas paslia, sem
nú fer með völd i Egiptalandi,
hefir unnið glæsilegan sigur í
kosningunum, sem fram fóru í
fyrradag.
Japanar hafá hernumið An-
damaneyjar i Bengalflóa. Bret-
ar i Indlandi hafa haft þar
fanganýlendu. — Brezka setu-
liðið var flutt á brott nokkurum
dögum áður en Japanar settust
að á eyjunum.
Brezkar flugvélar fóru í
skyndiárásarleiðangur til Norð-
ur-Frakklands i gæi>og var
varpað sprengjum sl Pas de
Calaissvæðinu. Mikið tjón varð
i érás á skipasmíðastöðvar i
Le Trait.
MacKenzie King hefir til-
kynnt, að stofnuð verði tvö ný
herfylki til varnar Kanada.
Bandaríkjaflotinn gerði mikl-
ar arásir i lok febrúar og byrjun
marz á ýmsar eyjar sem Japan-
ar ráða yfir nú svo sem "Wake,
Peale, Wilkis og Marcuseyjar. Á
eyjum þessum voru að kalla öll
mannvirki lögð í rúst og verður
það mánaða verk fyrir Japani að
koma þar öllu i það horf, að
þeir hafi þessara útstöðva veru-
leg not — og til þess þurfa þeir
einnig að senda þangað marga
skipsfarma með efni o. s. frv.
— Flotaforinginn, sem stjórnaði
árásunum var sá sami, sem^
stjórnaði árásunum á Marshall-
eyjar.
I dag var tilkynnt í London,
að búið væri að safna 10514
millj. stpd. í herskipavikunni, í
dag er fimmti dagur vikunnar,
og styttist nú að hinu upphaf-
lega marki, 125 millj. stpd.
MacArthur yfirhershöfðingi
er kominn til Canberra og hefir
Loftárásir og loftbardagar
hafa mjög færst i aukana á ausl»
ur Miðjarðarhafssvæðinu. Þjóð-
verjar liafa nýlega fengið mikið
af flugvélum og aukið fluglið
til Grikklands og grísku eyjanna
og halda flugvélar bandamanna
uppi stöðugum árásum á flug-
stöðvar og birgðastöðvar Þjóð-
verja þar. I seinustu fregnum
frá Kairo segir, að flugvélar
bandamanna hafi gert árásir á
Splamis í Grikklandi, þar sem
Þjóðverjar m. a. hafa kafbála-
stöð, og hafnarborgina Piræus,
ennfremur á flugstöðina við
Heraklion á Krit og fleiri stöðv-
ar þar. Á undangengnum sólar-
hringum liafa að minnsta kosti
25 flugvélar verið eyðilagðar
fyrir Þjóðverjum i loftárásum
bandamanna. Auk jiess sem að
framan er getið liafa Suður-
Afríkumenn gert árásir á Mor-
tubaflugstöðina og Benghazi í
Libyu og viðar.
Þjóðverjar leitast við að
granda flugvélum á Malta og
skipum í höfnum þar. Vafalaust
reyna þeir eftir mætti að granda
skipum þeim, sem nú eru kom-
in í höfn þar, en eftir fregnum
frá Kairo að dæma hefir þeim
ekkert orðið ágengt. Hafa varn-
ir eyjarinnar reynst traustar
sem fyrrum. Herskipin, sem
fylgdu skipalestinni héldu á-
fram til Alexandria, þegar þau
höfðu skilað skipalestinni af
sér. —
Það er nú kunnugt orðið, að
sumar flugvéla þeirra sem gert
hafa árásir á stöðvar Þjóðverja
að undnförnu voru frá bæki-
stöðvum á Malta. I einni árás á
flugstöð Þjóðverja við Catania
á Sikiley voru eyðilagðar fyrir
Þjóðverjum 44 flugvélar.
Þegar skipalestin
kom í höfn.
í fregnum, sem> borizt liafa
til London frá Malta, segir að
mikill fögnuður hafi gripið
ibúana á Malta jafnt sem Breta,
þegar skipalestin sigldi í höfn
með hinar mikilvægu hirgðir,
sem italski flotinn ætlaði að
koma fyrir kattarnef, en mis-/
tókst að mestu.
í frekari tilkynningum um
viðureignina segir, að brezka
flotadeildin sem varði skipalest-
ina hafi átt við ofurefli að etja,
en sýndi mikla yfirburði i öllu.
Með því að hylja sig reykjar-
mekki tókst brezku herskipun-
um að komast í skotmál og einn
tundurspillanna komst nálægt
hinu mikla 35.000 smálesta or-
ustuskipi af Littoriogerð og
kom tundurskeyti á það mitt,
en það varð einnig fyrir fall-
byssuskotum beitiskipa og kom
upp eldur í því aftanverðu, en
tvö beitiskiþ ítala voru einnig
hæfð. Eitt beitiskip Breta og 3
tundurspillar löskuðust ofan-
þilja, og einn tundurspillir varð
fyrir flugvélasprengju, en komst
í höfn sem öll hin herskipin.
þegar rætt við Curtin, Fordeo.fl.
Roosevelt forseti hefir sæmt
MacArthur æðsta heiðursmerki
Bandaríkjanna, „Congressional
Medal of Honour“.
Gandlii er á leið til New Dehli
til viðræðna við Sir Stafford
Cripps.
Hættumerki
í Reykjavík
í morgun.
Hættumerki var gefið hér í
bænum um kl. ll* l/z árdegis. —
Mun hafa sést til ferða þýzkra
flugvéla í grend við bæinn, með
þVí að á varðstöðvunum var
fyrst gefið gult merki, en’ því
næst rautt, sem boðar nálæga
hættu.
Fólk leitaði mjög fljó.tlega til
loftvarnarbyrgjanna,. og mátti
heita að göturnar tæmdust á
skammri stundu.
Starfsmenn í hjálparsveitum
og varðsveitum mættu hver á
sínum stað, þannig að auðsætt
er, að fólk er nú farið að venj-
ast þessum „loftvarnaæfing-
um“.
Handknattleiksmótið,
Á Handknattleiksmótinu í
gærkveldi fóru leikar sem hér
segir:
I öðrum flokki unnu Hauk-
ar Í.R.-inga með 16 mörkum
gegn 15 og sömuleiðis unnu Ár-
menningar F.H. í fyrsta flokki
sigraði Ármann K.R. með 25:15
og Valur vann Fram með 25:18.
1 kvöld kl. 10 keppa í II. flokki
K.R. og Vikiiigur og Valur og.
Haukar, en í fyrsta flokki I.R.
og Fram.
Boranir:
lOlTbotni
600 m. holu.
Vatn hefir þó ekki
aukizt.
Borunum er haldið áfram við
Þvottalaugarnar og er nú komið
niður, fyrir 600 metra.
Jarðlög eru heldur mýkri í
þessu dýpi en þau voru áður.
Var all erfitt að bora niður að
550 metrum, en eftir það hefir
gengið betur.
Vatnið í botni þessarar holu er
107 gráður á Celcius, en vatns-
magnið hefir ekki aukizt. Koma
4 lítrar úr holunum á sekúndu,
og er vatnið 90 gráður, þegar
það er komið upp á yfirborðið.
Vatn það, sem notað er til að
liita húsin í Austurbænum, er
rétt innan við 90 gráður í dælu-
stöðinni, sem dælir þvi til bæj-
arins.
Handtekin!
Laura Ingalls, sem hér birtist
mynd af, er fræg flugkona í
Kaliforníu. Hún var handtekin
i desember, þvi að hún var á ,
launum hjá Þjóðverjum.
~tSí*+ * »