Vísir - 26.03.1942, Blaðsíða 2
/
VlSÍ R
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLABAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 linur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Úr sambúðinni.
tiltölu við fólksfjölda höf-
um við íslendingar látið
fleiri menn en nokkrir aðrir af
völdum, blindra náttúruafla. En
við höfum líka misst færri en
aðrir af völdum sjáandi manna.
Þótt eriendum mönnum þyki
við kannske vera agamánni en
þörf væri á, verður því ekki
haldið fram, að það agaleysi hafi
sýnt sig í grófum stórglæpum.
Manndráp eru fátíðari hér á
landi en nokkursstaðar á byggðu
bóli. Og þótt meira sé vegist hér
með orðum en víðast hvar ger-
ist, þá er auðvitað ósaknæmara
að í tálknum, hvíni en byssu-
kjöftum.
Þegar Bretar komu hingað
fyrir 22 mánuðum, voru nýaf-
staðnar orustumar miklu í
' Flandern. Þar höfðu hermenn
vanizt því, að mæta fyrirsátri,
svo að segja á hverju götuhorni,
og var allt morandi i‘„fimmtu
herdeildar“ mönnum. Þegar svo
kom hingað, var litið nokkrum
tortryggnisaugum á ýmsa hina
„innfæddu“. Og það var, þótt
skömm sé frá að segja, alið á
þessari tortryggni af ýmsum
„þjóðholIum“ Islendingum, sem,
töldu sér það þegnskaparskyldu,
að sverta sína eigin landa í aug-
um hinnar nýju yfirþjóðar. Og
þetta var ekki alveg ógerlegt
i byrjun. Allir Islendingar fundu
sárt til, er landið var hex-numið,
og margir höfðu ekki geð til að
leyna gremju sinni og vonbrigð -
um. En þessháttar ummæli
þóttu stundum nægja til þess,
að sá, er þau hafði við, var
skx-áðuf meðal svartra sauða í
spjaldskrá herstjórnarinnar. Sú
saga gengúr í kaupstað einum
úti á. landi, að góður borgari,
Jón- að nafni, hafi verið skrá-
settttfí; meðal hættulegra inn-
hýggjara. En síðan hefðu menn
úr hernum kynnst þessum
mafóiÞ pefsónulega og hefði þá
vitiíisbufrðinum verið breytt í
þessú'átt: „Old John harmless“.
Þeir höfðu komizt að raun um,
að þessi maður var ekki hættu-
legur.
★
Og þetta er ekki einsdæmi.
Miklu fremur má segja, að þetta
sé einkennandi fyrir afstöðu
brezku herstjórnarinnar til Is-
lendinga. Hefir reyndin einnig
orðið sú, að kali sá, sem var i
mörgum góðum íslendingum
upphaflega, hefir mjög mildast.
Því miður hefir ekki fraxn til
þessa tekizt að koma á eins góðri
sambúð miili Ameríkumanna og
íslendinga. Og hefir raunin orð-
ið sxi, að árekstrar hafa aukizt,
eftir því sem sambúðin hefir
staðið lengur. Er vitanlegt, að
daglega eru á ferðinni allskon-
ar klögumál, þótt aðeins hinir
meiri og alvarlegri atburðir
komist i- hámæli í blöðum.
Ekkert Ixefir vakið eins mikla
alþjóðarathygli hér á landi og sá
atburður, er Guimar Einarsson
lét lífið fyrir kúlu amerisks her-
manns. Því miður liggur þetta
mál ekki svo Ijóst fyrir sem
æskilegt væri. Það ber mikið á
milli í skýrslu herstjórnarinnar
og skýrslu íslenzkra yfirvalda.
Má á það benda, að það hefir
verið venja, að Bretar hafi ís-
lendinga í fullri samvinnu, þeg-
ar ranrisókn sambærilegra mála
hefir verið framkvæmd. Virðist
auðsætt, að Jæssa verður að
krefjast.
Bretar hafa komizt að raun
um, að margur sá íslendingur,
sem tók þeim fálega, sé „harm-
less“ — óskaðlegur. Ameriku-
menn gætu komist að því sama,
ef þeir áttuðu sig betur en þeg-
ar er orðið á þjóðareðli Islend-
inga og háttum. Eftir að Eng-
lendingar höfðu unnið bug á
uphaflegri tortryggni sinni, lief-
ir sambúðin við þá farið dag-
batnandi. Á þetta er skylt að
benda. a
Yfirlýsing
Magnúsar Einars-
sonar forstjóra.
Vegna yfirlýsingar amerí-
könsku herstjómarinnar i dag-
blöðunum þ. 25. þ. m. vil eg
taka eftirfarandi fram:
Síðastliðið ár hef eg ekið
venjulega fjórum sinnum á dag
meðfram herbúðum (Rushmoor
Camp og Redesdale Camp). Eg
hef jafnan verið stöðvaður af
hermönnum og hafa þeir að lok-
inni athugun ávallt leyft mér að
fara óáreittum leiðar minnar.
Eg liefi ca. 20 sinnum á ýmsum
tíma bæði í björtu og dimmu
ekið sömu leið og eg ók laugar-
dagskvöldið þ. 14. þ. m. Eg liefi
ávallt verið stöðvaður af her-
mönnum, en þeir hafa undan-
tekningaidaust leyft mér að
halda leiðar minnar, eftir að
hafa gert fyrirspurn um hvert
eg væri að fara.
Umrætt laugardagskvöld var
eg samkvæmt venju stöðvaður
af hermanni. Hann spurði hvert
við ætluðum og svöniðum við
báðir, eg pg Gunnar, nokkurn-
veginn samtimis, að við ætluð-
um að Laufskálum, og bentum
liermanninum hvar það hús
væri. Hermaðurinn' virtist telja
svör okkar fullnægjandi, þvi
hann sagði að allt væri í lagi
(all right), vék sér frá Lifreið-
inni og benti okkur að halda
áfram. Eg hélt nú, vegna fyrri
reynslu minnar, að óhætt væri
að halda áfram og gerði það. Er
eg hafði ekið ca. 3—4 bifreiðar-
lengdir stöðvaði annar hermað-
ur okkur og kom hann að bif-
reiðinni vinstra megin. Gunnar
lieitinn skrúfaði niður rúðuna
og töluðust þeir við fáar setn-
ingar. Eg veitti því ekki athygli
hvaða orð fóru ó milli þeirra.
Gunnar var góður enskumaður
og er Gunnar segir að allt sé í
Iagi ók eg af stað, efaðist eg
ekki um að það væri óhætt,
enda vék hermaðurinn sér frá
bifreiðinni. Er eg hafði ekið ca.
þrjár bíllengdir frá þeim stað,
sem við vorum stöðvaðir á af
síðari hermanninum, reið af
skot það er varð Gunnari að
bana.
Ennfremur skal eftirfarandi
tekið fram:
1) Eg sýndi fyrri hermann-
inum vegabréf mitt, eftir
beiðni hans.
2) Hermaður sá (hinn
fyrri), sem eg svaraði,
gaf oltkur leyfi til að
halda áfram.
3) Hafi verið kallað á eftir
okkur af varðmanni i
umrætt skipti, þá hefir
verið kallað svo lágt að
hvorugur okkar heyrði.
Að lokum, ef „allrar mögu-
legrar og skynsamlegrar varúð-
ar hefir verið gætt, að því er
tekur til skipana og fyrirskijj-
ana varðmanna og eftirlits",
sem eg vil ekki draga í efa, þá
virðist mér alveg bersýnilegt að
vikið hafi verið frá þeim fyrir-
skipunum.
§altfi§kverknn Joknt
á §íða§ta ári.
Yar þó aðeins lielmingiip á vid ápid 1939.
^ síðastliðnu ári var saltfiskverkun meiri en árið þar á und-
an, þótt megnið af aflanum hafi verið flutt út í ís. Munur-
inn nemur þó aðeins um 2.600 smálestum, en hinsvegar nemur
saltfiskaflinn á síðasta ári aðeins um helmingi þess afla, sem
verkaður var árin 1939 og 1938. — Er hér miðað við fullverk-
aðan fisk. — Segir greinilega frá þessu í Ægi, blaði Fiskifél. —
Árið 1940 nam saltfiskaflinn
15.750 smál., en á síðasta ári
18.355 smál. Á árinu 1939 var
•saltfiskaflinn 37.710.7 smál. og
árið þar ó undan aðeins minni.
Þessi aukning stafar af því, að
isfiskflutningar íslenzkra skipa
lögðust niður um skeið á síðasta
ári frá marz til ágúst. Voru
botnvörpungarnir þá sendir á
saltfiskveiðar, allir nema þrir,
enda er aukningin nær eingöngu
í Sunnlendingafjörðungi, þ. e. í
Hafnarfirði og Reykjavik, því
að þar var svo sem engin salt-
fýskverkun órið áður.
I Vestfirðingafjórðungi hefir
saltfiskverkunin staðið í stað,—
minnkað um 2.5 smál. i 2^34
en i Norðlendingafjórðungi auk-
izt um rúmlega 100 smál. í 2608.
Hinsvegar hefir saltfiskverkun-
in minnkað um rúmar 1200
smál. — í 724 —- í Austfirðinga-
fjórðungi.
Fjórir fimmtu hlutar jxess
saltfisksmagns, sem kom á land
í Sunnlendingafjórðungi, feng-
ust á skip frá eftirtöldum ver-
stöðvum: Vestmannaeyjum,
Sandgerði, Keflavik, Njarðvík-
um, Hafnarfirði og Reykjavík.
Akranes hefir jafnan óður verið
í tölu hæstu veiðistöðva á salt-
fiski, en á s. 1. ári minnkaði salt-
fiskverkun þar um rúmar 1000
smálestir og nam aðeins 152
smálestum. I Vestmannaeyjum
dró lika örlítið úr saltfiskvei'k-
uninni, en i hinum varð nokkur
aukixing.
I Reykjavík voru verkaðar
159 smál. árið 1940, en 2283 ó
síðast liðnu ári. I Hafnarfirði
nam saltfiskverkunin 590 smál.
árið 1940, en 2668 árið eftir.
Gera má róð fyrir, að saltfisk-
verkunin hefir aukizt mun
meira, ef skortur hefði ekki orð-
ið á salti.
Þær tölur, sem hér hafa verið
taldar, eiga við fullverkaðan
fisk, en langmestur hluti salt-
fiskaflans var fluttur út óverk-
aður. Fullverkaði hluti aflans
nam um 4000 smál., en óverkaði
fiskurinn var að magni 20 þús.
smál.
1 lok siðasta árs námu fisk-
birgðir — piiðað við fullverk-
aðan fisk — 4569 smál, en helm-
ingurinn af þessu var óverkaður
fiskur. Þessi fiskur var seldur,
þótt ekki væri búið að afskipa
honum.
Tæpur helmingur verkaða
fiskins — eða 2070 smól. — fór
til Portúgals, en megnið af því,
sem þá var eftir fór til Spánar,
Bretlands og Brazilíu.
5 nýjar niðursuðu
verksmiðjur tóku
til starfa á s. L ári.
Á árinu sem leið tóku fimm
nýjar niðursuðuverksmiðjur til
starfa — þótt ein væri tilbúin í
desember árið áður — að því er
segir í Ægi, blaði Fiskifélagsins.
Fiskniðursuðuiðnaðurinn átti
við ýmsa erfiðleika að stríða,
svo sem markaðstöp og lágt
verð. Sala innanlands var méð
mesta móti, þótt hún ynni ekki
upp hina töpuðu markaði. I árs-
lok voru að glæðast horfur um
sölu til Ameríku.
Niðursuðuverksmiðja S.I.F.
var eina verksmiðjan, sem var
starfandi allt árið. Var unnið
úr 702 smál. af fiski, móts. við
830 smál. árið áður, en verðmæti
afurðanna jókst úr 151 þús. kr.
í 269 þús.
Niðursuðuverksmiðjan á
Bíldudal var starfrækt i 104
daga og vánn úr rúmum 54
smál. af fiski.
Á Akranesi eru tvær niður-
suðuverksmiðjur, sem eru eign
Bjarna Ólafssonar & Co. og Har-
alds Böðvarssonar &, Co. Sú
fyrrnefnda framleiddi um 20
þús. heildósir af flökum og um
3000 dósir af hrognum, en hjn
sauð niður um 100 þús. dósir
af rpyktum síldarflökum, 40
þús. heildósir af fiskbollum og
7500 dósir af þorskhrognum.
Þá er niðursuðuverksmiðja
h.f. Keflavík, sem aðeins starf-
aði í aprílmánuði og sauð niður
18.000 heildósir af þorskflökum.
Loks er að geta niðursuðu-
verksmiðju Eggerts Jónssonar i
Innri-Njarðvik, sem starfaði í
11 vikur og framleiðddi 110
þús. dósir (heil- og hálfdósir) af
þorskflökum. Auk þess voru
framleiddar 38.900 dósir af
þorskhrognum.
Bæjar
íréWtr
Frjálslyndi sofnuðurinn.
Föstumessa í fríkirkjunni annað
kvöld kl. 8.30. Síra Jón Auðuns.
Hallbjörg Bjarnadóttir
heklur næturhljómleika í Gamla
Bíó annað kvöld kl. H.30, með a‘S-
stoð 15 manna hljómsveitar. Hljóm-
leikarnir gátu ekki farið fram fyrr,
vegna þess að hljómsveitin var ekki
í bænum. Meðal spilaranna er Art-
hur „Ozzy“ Hale, einn þekktasti
saxofónleikari Ameríku.
Sundmót K.R.
hefst kl. 8,y2 í kvöld. Skal bæjar-
búum ráðlagt að mæta timanlega,
því aðgöngumiðafjöldinn er tak-
markaður. Búast má við harðri
kepppni, og ennfremur verður
sundsýning K.R.-stúlknanna mjög
athyglisverð.
Biskup
og stjórn Prestafélags íslands
biðja prestvigða menn, sem verða
við jarðarför dr. Jóns Helgasonar
biskups, að safnast saman hempu-
klæddir í fordyri Alþingishússins á
morgun kl. 1.45.
Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir mynd,
sem nefnist „í hermannaskóla“
(Military Academi). Myndin sýnir
daglegt líf yngstu nemenda í her-
skólum Ameríku. Aðalhlutverk
leika Tommy Kelly, Bóbby Jordan
og David Holt.
Gamla Bíó
sýnir þessa dagana myndina
„Flóðbylgjan“ (Typhoon). Þetta
er amerisk mynd, sem gerist i Suð-
urhöfum og er tekin i eðlilegum lit-
um. Aðalhlutverkin leika Dorothy
Lamour og Robert Preston.
Næturlæknir.
Kjartan Guðmundsson, Sólvalla-
götu 3, sími 5051. Næturvörður í
Ingólfs apóteki.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25
Þingfréttir. 19.40 Lesin dagskrá
næstu viku. 20.00 Fréttir. 20.30
Kvöldvaka : a) Valtýr Stefánsson :
Úr gömlum blöðum. b) 20.50 Kvæði
og stökur, sendar útvarpinu (Jón
úr.Vör o. fl. lesa). c) 21.05 Þórir
Baldvinsson: Húsabyggingar á
stríðstimum. d) 21.25 Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur (stjórnandi Karl
O. Runólfsson) : a) Blankenburg:
Marz. b) Haydn: Andante úr G-
dúr symfóníunni. c) Mozart: Men-
uett í Es-dúr. d) IGirl O. Runólfs-
son : Þrjú ísl. þjóðlög. e) Zimmer-
mann: Ameriskur marz. f) Teike:
Marz. 21.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Visi: 20 kr. frá ónefndum.
4 kr. frá konu. 10 kr. frá G. J.
5 kr. frá S. Þ. 5 kr. frá B. J.
Til ekkjunnar
með börnin s'ex, afh. Vísi: 20
kr. (áheit) frá K. S.
Minningarsjóður
lectors Helga Hálfdánarsonar
Sjóður þessi var stofnaður
ineð frjálsum, samskotum við
andlát Helga lectors Hálfdanar-
sonar, og samkvæmt skipulags-
skrá sjóðsins ber að verja hluta
vaxtanna til bókaverðlauna
lianda guðfræðistúdentum. —
Minningarsjóður þessi er í vörzl-
um Guðfræðideildar Háskóla Is-
lands, og liefir um allmörg und-
anfarin ár jafnan verið veitt
verðlaun úr honum,.
Við fráfall sonar Helga lect-
ors, dr. tlieol. Jóns Helgasonar,
biskups, hefir þótt vel viðeig-
andi, að láta prenta minningar-
spjöld fyrir sjóð þenna, þannig
að þeir, sem kysi að heiðra
minningu hins látna biskups
með því að styrkja þennan sjóð,
geta fengið slík minningarspjöld
í Bókaverzlun Isafoldarprent-
smiðju og Bókaverzlun Sigfús-
ar Eymundssonar.
Mundi það áreiðanlega vera i
anda hins látna biskups, sem
áður var kennari og forstöðu-
maður Prestaskólans og síðar
prófessor við Guðfræðideild Há-
skólans, að þessi sjóður mætti
cflast og þannig ná tilgangi sin-
um enn betur en áður.
Lífið í Reykjavík.
„Einhveí mesta yfirsjón, sem
innflutningsnefnd hefir gert sig
seka um i seinni tíð“, skrifar
„borgari“ einn Visi, ,‘,var inn-
flutningsleyfi á flautum — eins-
konar púkablistrum — sem
hljóma, eða réttara sagt skera,
inn í eyrun á manni hvar sem
maður er og fer.
Eg hefi hvergi frið fyrir þess-
um djöfuldóm“, heldur „borg-
arinn“ áfram. „í þau fáu skipti,
sem eg sezt niður og ætla að fara
að hugsa, þá gellur þetta blístur
fyrir eyrunum á mér; þegar eg
ætla að fara að sofa, hrekk eg
upp við flautublístur fyrir utan
gluggann. Þegar eg ætla að
fara að hlusta á hljómlist, þá
skerast þessir hjáróma tónar inn
á milli og eyðileggja fyrir mér
nautnina af tónunum.
Hvað á eg að gera? Á eg að
elta hvern einasta strák úti á
götu og taka af honum flaut-
una? Á eg að kæra þetta fyrir
lögreglunni? Á eg að heita á alla
foreldra hér í bænum, að banna
börnum sínum að blístra í flaut-
ur? Á eg að láta þetta iskur gera
mig vitlausan, og lifa það sem
eftir er ævinnar á Kleppi? Eða
— og það held eg að væri nú
snjallasta ráðið — á ég að óska
þess, að allir meðlimir innflutn-
ingsnefndarinnar verði fyrir
samskonar ónæði og eg — svo
að þeir leyfi aldrei að eilífu
framar innflutning á flautum?“
Nýkomið
mikið úrval af sumai'kjóla-
efnum, kápum, gardínuefn-
um, ullargarni, ullarsokkum,
silkisokkum og karlmanna-
sokkum.
V ef naðarvöruverzltmín,
Týsgötu L
1I..S
ogr larðeigrn
í úthverfi bæjarins er til sölu,
Skipti ó 5 herbergja íbúð í
bænum getur komið tíl
greina. Tilboð og fyrirspurn-
ir sendist i pósthóíf 801. —
Tau er tekið
í þvott og strauningu
í þvottahúsinu
ÆGIR.
Bárugötu 15. — Sími: 5122.
2 góðar
stúlkur
óskast á kaffistofu hér í bæn-
um. — Uppl. á Njálsgötu 65.
Vil kaupa lYz tonns
vörnbíl
í groðn standi
Til viðtals frá kl. 6—9 í
kvöld. — Sími 5489.
Guðm. Magnússon,
Njálsgötu 110.
íbúð
óskast
nú strax eða 14. mai; aftems
fullorðið fólk. UppL í sima
5406.
Nýkomið
BURSTASETT
NAGLAÁHÖLD
S A MK VÆ MISTÖSKUR.
Verzl. Goðafoss
Laugaveg 5. — Sími 3436.
IBUÐ
Hver vill Ieigja barnlausu,
góðu fólki, hæga ibúð, helzt
til margra ára?
Tilboð, merkt: „FuIItrúi“
sendist afgr. Visis fyrir 1.
apriL —
fallegasta tegund til sölu.
Unnur Ólafsdóttir.
Sími 1037.
NB. Gamið er afgreitt i sölu-
búð Ullarverksm, Framtíðin.