Vísir - 28.03.1942, Qupperneq 2
VÍSIR
DAGBLAi)
Útscfandi:
BSLADAÚTGAFAN VÍSIH If.F
Kitstjóri: Kristján Guðlaug-sson
Skrifst.: Félagsprentsraiöjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið uin frá Ingólfsstræti)
Símar 16 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Lágmarks
krafan.
jii|EÐ hverjum deginum sem
líður verða kröfur sjálf-
stæðismanna um lausn kjör-
dæmamálsins háværari og ein-
dregnari. Er sýnilegt, að flokk-
urinn stendur alveg óskiflur að
þessu máli. Þetta mál hefir verið
á dagskrá hjá þjóðinni fram
undir 40 ár og er orðið svo
þrautrastt og Jiugsað, sem frek-
ast verður á kosið. Mega það
fullkomin undur heita, að nokk-
ur flokkur skuli leyfa sér að taka
uiMÍir slíkt inál sem þetta, eins
og Framsóknarflokkurinn gerir
nú. En það er auðséð, að málið
hefir nú, gagnstætt því, sem ver-
ið hefir á undanfömum árum,
fengið svo öruggt fylgi innan
Alþingis, að því verður eklci
lengur staðið i gegn.
í íyrravetur var mikið um
kosningar talað, því frestunin
var ekki ákveðin fyrr en á sið-
ustu stundu. Þá var kjördæma-
málið tekið til rækilegrar með-
ferðar hér í blaðinu. Var sér-
staklega gerð ítarleg grein fyrir
þeirri lausn, sem Alþýðuflokk-
urinn hefir gert að aðaltillögu
sinni i frumvarpi því, er nú
liggur fyrir Alþingi — hlutfalls-
lcosningum i tvímenningskjör-
dæmurn.
En þótt merkilegt sé, verður
ekki munað, að Alþýðublaðið
tæki einu orði undir þær um-
ræður, sem hér voru vaktar. Það
lítur því út fyrir, að fyrir aðeins
12 mánuðum hafi lýðræðishug-
ur Alþýðuflokksins ekki verið
meiri en það, að hann hafi verið
til með að tryggja Framsókn til
fjögra ára þau forréttindi á Al-
þingi, sem hún hefir að óbreyttu
kosningafyrirkoinulaginu. Ein-
staka maður hefir haft orð á
því, að leiðinlegt væri fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að hafa ekki
orðið fyrstur til að bera fram
frumvarp í málinu á þessu þingi.
En auðvitað er ekld hægt að.
gera neitt veður úr þessu. I-
fyrravetur var því haldið fram
alveg afidráttarlaust hér í blað-
inu, að S j álf stæðisf lokkurinn
gæti hvorki þá né siðar gengið
til kosninga án þess að krefjast
lausnar á þessu réttlætismáli.
Alþýðuflokkurinn hefir nú lagt
inn á þá braut, sem þá var bent
á, og er vel farið. Væri ómak-
legt að sakast við flokkinn nú,
þótt hann hefði séð seinna að
sér en æskilegt hefði verið.
Aldrei hefir verið rætt eins
mikið um lýðræði í heiminum
og nú um þessar mundir. Við
íslendingar höfum þegið vernd
þeirra tveggja voldugu ríkja, er
öllu fórna fyrir málstað lýðræð-
isins. Ekkert gæti frekar orðið
til þess að rýra okkur í augum
þessara þjóða, en hik og alvöru-
leysi í því, að sjá lýðræðinu
borgið í verki, eftir föngum.
Auðvitað má benda á það, að
bæði Bandaríkin og Bretland búi
við úrelt kosningafyrirkomulag.
En enginn getur ætlazt til
þess, að við förum að taka upp
það, sem úrelt er og afkáralegt
í fari þessara þjóða. Það er lika
óhætt að fullyrða, að þegar að
ófriðnum loknum muni kosn-
ingafyrirkomulaginu í báðum
þessum löndum breytt í lýðræð-
ishorf.
Eins og sagt hefir verið áður
hér í blaðinu, munu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins einliuga um
þá lágmarkskröfu, að teknar
verði upp hlutfallskosnigar i tví-
menningskjördæmunum. Verð-
ur þvi að telja að þessari kröfu
sé full-borgið á Alþingi, þar sem
ætla verður að allir flokkar
þingsins, nema Framsókn,
standi að þessari lausn.
Þótt ýmsir sjálfstæðismenn
séu fúsir til að ganga lengra en
þetta í kjördæmamálinu, er rétt
að menn geri sér þess fulla
grein, livað fæst með þessari
einföldu lausn. Samkvæmt úr-
slitum síðustu kosninga hefði
Alþýðuflokkurinn og Kommún-
istaflokkurinn fengið sömu
þingmannatölu með hlutfalls-
kosningum í tvímenningskjör-
dæmunum og verið hefði, ef állt
landið hefði verið eitt kjördæmi.
Hinsvegar liefði Sjálfstæðis-
flokkinn vantað 2 þingsæti upp
á fulla hlutfallstölu sína. Þess-
vegna er auðsætt, að ef Sjálf-
stæðisflokkurinn getur sætt sig
við lágmarkskröfuna, geta
sósíalistaflokkarnir það ekki
síður. Ef kosningar fara fram i
vor, verður því að telja fullvíst,
að Alþingi afgreiði þetta gamla
réttlætismál á þann hátt, að við
megi una. a
Fjölmennasta
glímunámskeið
hér á landi.
Glímunámskeið er nýafstaðið
á Bændaskólanum á Hvanneyri.
Nemendur voru oftast um og
yfir 40 talsins, sem telja má al-
veg- fádæma þátttöku. Kennari
var Kjartan Bergmann Guðjóns-
son, glímukóngur íslands.
Runólfur Sveinsson skóla-
stjóri á Hvanneyri, sem er mað-
ur mjög áhugasamur um alla
iþróttastarfsemi og hefir lagt á-
lierzlu á að efla íþróttir sem
allra mest i skólalífinu, fékk
Kjartan B. Guðjónsson til að
kenna íslenzka glimu um mán-
aðartíma við skólann i vetur.
Hafði Vísir tal af Kjartani,
sem er nýkominn frá Hvanneyri.
Sagðist honum svo frá, að á-
Iiuginn fyrir glímunni liefði ver-
ið alveg frábær, og. miklu meiri
en liann hefði gert sér nokkurar
vonir um. Kenndi hami tvær
klst. á hverjum degi og skifti
nemendunum eftir deildum, sem
ei’u tvær við skólann. Alls eru
rúmlega 50 nemendur í skólan-
um, og þar af tóku um 40 þeirra
að staðaldri þátt i glímunáminu.
í námsskeiðslok voru tvær kapp-
glímur liáðar meðal nemenda.
Var annað bændaglíma milli
deilda, með 18 glimumenn í
livoru liði, og vann yngri deild.
Hitt var venjuleg kappglíma, og
var þar keppt um silfurbikar,
stóran og fallegan, sem nefnist
„Glímubikar Hvanneyrar“, og
bar Stefán Sigurþórsson sigur
úr býtum. Annars eru í hópi
nemendanna margir mjög efni-
legir glímumenn, að því er
Kjartan telur.
Það er gott til þess að vita, að
þessi nýbreytni skuli liafa verið
tekin upp í skólalífi hér á landi,
og á Runólfur miklar þakkir
skilið fyrir að hafa riðið hér
á vaðið. Sýnir þessi óvenjulega
þátttaka það Ijóslega, að áhugi
er nægur meðal íslenzku æsk-
unnar fyrir þessari fallegu og
þróttmiklu þjóðaríþrótt vorri, ef
aðeins er eitthvað gert til þess
hlúa að henni, af skólum eða
af því opinbera.
Kjartan telur skólabrag allan
á Hvanneyri vera til hinnar
mestu fyrirmyndar og skóla-
stjórann mikilhæfan og rögg-
saman skólamann, sem skólan-
um sé ómetanlegur fengur að.
Félagsheimili V. R.
færir út kvíarnar.
Tekiar miðhæðina I hiisi félagsins til afnota.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hefir nú tekið miðhæð-
ina í húsi sínu, Vonarstræti 4, til afnota fyrir félagsstarf-
semina, en til þessa hafði félagið aðeins haft efstu hæð hússins
til þeirra<þarfa, auk eins skrifstofuherbergis á neðstu hæð. —
Félagsheimili V. R. var opnað
2. októher 1940. Aðsókn liefir
frá öndverðu verið mjög mikil
og orðin nauðsyn á því fyrir
löngu, að það færði út kvíarnar.
Félagið greip þvi tækifærið feg-
ins hendi, þegar ræðismanns-
skrifstofur Bandaríkjanna voru
fluttar úr húsinu, en þær voru
á miðhæðinni, og tók liana til
sinna þarfa.
Tíðindamaður Vísis hafði
tækifæri til þess að skoða hin-
ar nýju vistarverur í gær. Her-
bergjaskipun er ekki eins og á
efstu hæðinni, þar sem er stór
salur, auk setustofu, spilaher-
hergis og stjórnarherbergis.
Á miðhæðinni er allstór salur
og þrjúminni herbergi, en skrif -
stofa félagsins, hefir verið flutt
í eitt þeirra. Salurinn er í suð-
vesturhorninu, en hin herbergin
tvö meðfram Vonarstræti.
Verða hafðar veitingar i þeim,
en dansað í salnum.
Þessi nýju húsakynni verða
líka leigð liinum ýmsu sér-
greina-félögum innan verzlun-
drstéttarinnar, sem eru oft á
hrakólum með hentugt húsnæði
fyrir fundi og minni háttar sam-
kvæmi. Til slíkra nota eru þessi
húsakynni alveg tilvalin, enda
munu þau vera lofuð á
hverju kveldi, eða því sem næst,
langt fram í næsta mánuð.
Þá mun hka ætlunin að nem-
endur Verzlunarskólans, sem
liafa einhverskonar bekkjafélög
eftir að skólagöngu lýkur, geti
komið þarna saman, svo og að
Verzlunarskólaskemmtanir fari
þarna fram.
Þegar V.R. tók við þessu nýja
húsnæði, komu frarn margar
tillögur um það, hvernig ætti
helzt að nota það. Ein var á þá
leið, að gera salinn að „klúbb-
herbergi“, með ábreiðu á gólfinu
c. s. frv., þar sem fólk gæti set-
ið við lestur, skriftir og því uní
likt. Kvenþjóðin óskaði lika eftir
að fá eitthvert herbergi, þar sem
hægt væri að halda sauma-
klúbb eða þvílíkt fyrir það.
En það varð ofan á, að nota
þetta aukna liúsnæði á þann
hátt, sem hér hefir verið frá
skýrt.
Innan félagsins hafa komið
Arsþing Slysavarna-
félags íslands hafið.
1 gær hófst ársþing Slysa-
varnafélags íslands í Kaupþings-
salnum. Setti Guðbjartur Ölafs-
son, forseti félagsins, þingið og
minntist þeirra 139 sjómanna,
sem hefðu farizt með ýmsu móti
á s.I. ári, en þingmenn vottuðu
þeim virðingu sína með því að
rísá úr sætum sínum.
Tuttugu og fjórar deildir hafa
sent kjörbréf fyrir 51 fulltrúa.
Flestir þeirra eru komnir, en
hinir væntanlegir næstu daga.
Forseti þingsins er Gísli
Sveinsson, alþm., en varaforset-
ar Sigurjón Á. Ólafsson og Sig-
urjón Jónsson. Ritarar eru
Bárður Jakobsson og Sæmund-
ur |Ólafsson.
Þá voru kosnar, fjárhags-,
slysavarna-, skipulags-, laga- og
allsher j arnefndir.
Annar fundur þingsins hófst
laust eftir hádegi í dag.
fram raddir um það, að það
þyrfti að stofna mötuneyti fyrir
verzlunarfólk, en það er ekki
hægt eins og húsakosti er nú
háttað, því að eldhúsin mundu
ekki geta annað því, eins og þau
eru nú útbúin. En ekki þarf að
efast um það, að slíkt mötu-
neyti yrði vinsælt, ekki sízt að
sumarlagi, þegar heimilisfeður
eru margir einhleypir í bænum
meðan fjölskyldur þeirra eru
uppi í sveit.
I veitinganefnd V. R. eru þeir
Egill Guttormsson, Guido Bern-
höft og Ásgeir Bjarnason, en
ráðskona félagsheimilisins hefir
Ragnheiður Bjarnadóttir verið
frá upphafi. — Vegna þessa
aukna húsnæðis heimilisins hef-
ir þrem stúlkum verið bætt við
starfsliðið, svo að þær eru nú
alls átta.
flokki varð í. R. efst í fyrra en
Valur er hættulegur keppinaut-
ur. I 2. flokki keppa Ármann
og Haukar um efsta sætið. Loks
fer fram leikur í meistaraflokki
milli Hauka og K. R. Sá flokkur,
sem tapar, fer niður í 1. flokk.
I gærkveldi fóru fram, tveir
leikir í 2. flokki. K. R. sigraði
Val með 13:11 og Víkingar
sigruðu F. H. með 9:7.
Handknattleiksmótið,
!ÍSti
■ t
11
I 1. og 2. fl. á morgun.
Úrslitaleikirnir í Handknatt-
leiksmótinu fara fram í kveld
kl. 9 og á morgun kl. 3. —
I kveld keppa Valur og Vík-
ingur til úrslita i meistaraflokki.
Valur er meistari, en lið Vík-
ings er sterkt, svo að búast má
við fjörugum leik.
Auk þess keppa Ármann og
F. H. í 1. flokki og K. R. við Vík-
ing og Ármann við í. R. í 2.
flokki.
Á morgun keppa 1. R. og Val-
ur til úrslita í 1. flokki. í þeim
Aðalfnndar
Aarðar.
Landsmálafélagið Vörður hélt
aðalfund sinn í gærkveldi í
Kaupþingssalnum.
Ámi Jónsson frá Múla, for-
maður félagsins, hóf umræður
um kosningarnar og kjördæma-
málið, er hann hafði gefið
skýrslu um félagsstarfið. Urðu
fjörugar umræður og tóku þess-
ir menn til máls: Hannes Ólafs-
son, Sigurður Kristjánsson,
Gísli Jónsson, Jón Pálmason,
Sigbjörn Ármann og Ólafur
Þorvaldsson.
Hin nýja stjórn félagsins er
þannig skipuð: Formaður Stef-
án A. Pálsson og meðstjórnend-
ur Andrés G. Þormar, Magnús
Þorsteinsson, Guðmundur Guð-
jónsson, Gísli Jónsson, Kristinn
Kristjánsson og Guðbjartur jÓl-
afsson. Varamenn eru Einar Ás-
mundsson, hrm., Gunnar E.
Benediktsson og ,ÓlAfur Þor-
varðarson.
Ólafur Ólafsson og Ásmund-
ur Gestsson voru endurkosnir
endurskoðendur.
Handhæg bók.
Isafoldarprentsmiðja h/f. hefir
gefið út vaxtatöflu, er sýnir vexti
af fjárhæðum yfir lengri e'Sa
skemmri tíma. Þetta er mjög hand-
hæg bók fyrir öll verzlunarfyrir-
tæki og yfirleitt alla þá, sem ein-
hver viðskipti hafa með höndum.
Verzlunarráð Islands ver
30 þús. kr. til húsbyggingar
Frá aðalfundi Verzlunarráðsins.
í fyrradag var aðalfundur Verzlunarráðs fslands haldinn, og
hófst hann með ræðu HallgrímsBenediktssonar, stórkaupmanns,
en hann er formaður Verzlunarráðsins.
— - % a’ra’r
í ræðu sinni ræddi Hallgrímr
ur öll þau breyttu viðhorf íverzl-
unarmálunum, sem skapazt
hefðu á síðastliðnu ári, einkum
við endurskoðun brezk-íslenzka
verzlunarsamningsins og við
samninginn við Bandaríkin.
Benti ræðumaður á þá miklu
erfiðleika, sem verzlunin væri
háð, viðskiptin við Bretland
hefðu með hverjum deginum
reynzt örðugri, og þær glæstu
vonir, sem menn hefðu alið í
brjósti, um góð og greið við-
skipti við Bandaríkin, hefðu til
þessa alls elcki rætzt. Taldi hann
brýna nauðsyn vera til að
tryggja innflutning nauðsynja-
vara frá Ameríku, því hætta
væri á, ef hernaðaraðgerðir
hörðnuðu, að innflutningur
þessara vara stöðvaðist alveg.
Yrði rikisstjórnin að láta þessi
mál til sín taka hið skjótasta, til
að tryggja nægilega aðdrætti
nauðsynja til landsins.
herra flutti ærindi um viðskipti
íslendinga við Breta, en Björn
,Ólafsson stórkaupmaður um
viðskiptasamning íslands og
Banidaríkjanna. Lagði Björn á
það áherzlu, að innflytjendur
reyndu að fá vörur frá Ameriku
án aðstoðar viðskiptanefndar-
innar, en takist það ekki, skyldu
þeir leita aðstoðar hennar.
Fjárhagur Verzlunarráðsins
hefir aldrei verið jafn góður og
nú. Og í tilefni af 25 ára starfs-
afmæli Verzlunarráðsins í ár,
var samþykkt að leggja 30 þús.
kr. í húsbyggingarsjóð.
Stjórnarkosning fór þannig,
að þeir, sem fara áttu úr stjórn-
inni að þessu sinni, en það voru
þeir Haraldur Árnason, Jóhann
Ólafsson og Magnús Kjaran,
voru allir endurkosnir. Vara-
menn voru kjörnir: Eggert
Kristjánsson, Ragnar Blöndal og
Sigurliði Kristjánsson.
Fundarstjóri var Eggert
Oddur Guðjónsson skrifstofu- Kristjánsson en Helgi Bergs
Ameriku-
sigling
Sjómaður óskar eftir
plássi sem timburmaður á ís-
lenzku skipi í Ameríku-
siglingum. -- A. v. á. —
1-3 herbCTgi
með eldhúsaðgangi eða eld-
unarplássi óskast strax eða
14. maí. Góð umgengni. Skil-
vís greiðsla. — Uppl. i sima
3659.
Sigurlína Bjamadóttir,
frá Flatey.
Nýkomið
mikið úrval af sumarkjóla-
efnum, kápuefnum, gardina-
efnum, ullargarni, ullarsokk-
um, silkisokkum og karl-
mannasokkum.
V ef naðar vöruverzloniit.
Týsgötu 1.
DISTEMPER
margir litir.
*■
Drummer litír
í öllum litum
Smjörhúsið IRMA
Hafnarstræti 22.
stjóri lýsti störfum stjórnar
Verzlunarráðsins á liðnu ári.
Pétur Benediktsson sendi-
fundarritari. Á fundinum var
Iátinna félagsmanna minnst.
NÝKOMH)
rdlnlni sivonl
o.íl.
ii
Sími 1116 og 1117.
rnTV? am
Esja1
99
fer n. k. þriðjudagskvöld í
hraðferð til Akureyrar með
viðkomu á Patreksfirði, ísa-
firði og Siglufirði i báðum
leiðum. Tekið á móti vörum
á Akureyri og Siglufjörð á
mánudag og á ísafjörð og
Patreksfjörð meðan rúm
leyfir fyrir hádegi á þriðju-
dag. Pantaðir farseðlar ósk-
ast sóttir á mánudag, annars
seldir öðrum.
Efcadio
grrammófónn
til sölu.
A. v. á.