Vísir - 22.04.1942, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
>' 32. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 22. apríl 1942.
69. tbl.
Rú§§ar ætla að verða
fyrri til.
faralið srnt í stríðum straumum
til vígfstöðianna. — Vorsóknaráform
Hitl^rs störkostlcg: iimlirróónrs-
blckking:, að sögn Riissa.
EINKASKEYTI frá United Press. L^öndon í morgun.
Engar stórkostlegar viðureignir eru nú háðar á
austurvígstöðvunum, enda er nú sá tíminn,
er áðir aðilar keppast við að búa sig undir hin
miklu átök í vor og sumar. En hvorir verða fyrri til —
Rússar eða Þjóðverjar?
AU-almennt hafa menn geng-
ið ót frá því sem gefnu, að Þjóð-
verjar myndu verða fyrri til og
hefja stórkostlega sókn með
vorinu, og jafnvel fyrir hálfum
máhuði eða vel það var auð-
htyrt, að það hljóð var að koma«
í fréttaritarana í löndunum í
suðauslurhluta álfunnar, að her-
ir Hitletrs myndi fara á stúfana
þá og þegar á þeim slóðum.
En engin sókn er hafin
enn, og kann það meðfram að
stafa af því, að vorið kemur seint
í ár, en einnig er þess að geta,
að í ýmsum fregnum er það nú
farið að gægjast fram, að Þjóð-
verjar séu ekki tilbúnir að hefja
framkvæmd sinna miklu á-
forma, m. a. vegna þess, að það
hafi gengið seinna en' búist var
við að koma Laval á valdastól,
og svo sé horfurnar að ýmsu
ótryggari en Þjóðverjar bjugg-
ust við, bæði heima fyrir og í
hemumdu löndunum. Rússar
segja, að vorsóknaráform Hit-
lers séu stórkostleg undirróðurs-
blekking, — hann sé ekki til-
búinn að hefja sókn, og það sé
engan veginn víst, að hann kom-
ist nokkurntíma í sókn á aust-
urvígstöðvum Rússlands, en hið
mikla varalið, sem Rússar hafa
æft í vetur á Úralsvæðinu og víð-
ar, fari nú í stríðum straumum
til vigstöðVanna, og hafi lið þetta
brezka og ameríska skriðdreka
og flugvélar af brezkri og ame-
rískri gerð, en klæðnaður, stíg-
vél o. fl., sem hermennirnir hafa
fengið, er framleitt í brezkum
verksmiðjum.
Þótt engir stórbardagar séu
háðir á austurvigstöðvunum, er
hvarvetna barist, og virðist svo
sem Rússum veiti hvarvetna
betur, en Þjóðverjar hafa sum-
staðar gert allöflng gagnáhlaup,
og senda þá fram skriðdreka, en
þeir virðast fara gætilega með
skriðdreka sína nú. Talað er um
skriðdrekaárás, sem 100 skrið-
drekar tóku þátt i, en Þjóðverjar
senda sjaldan fram nema 10—25
skriðdreka í einu. — Á vigstöðv-
unum við Svirfljót, milli Onega
og Ladoga, er mikið barizt, og
hafa um 1000 Þjóðverjar og
Finnar fallið þar i seinustu bar-
dögum, en á Lenindgradvíg-
stöðvunum hafa Rússar með
sjóliða í broddi fylkingar, tekið
rammlega viggirtan stað, sem
ekki er nafngreindúr. Á miðvig--
stöðvunum og norðvesturvig-
stöðvunum, sem Rússar nefna
svo, hefir einnig verið talsvert
barizt, og hafa Rússar tekið
nokkur þorp.
Á mánudag skutu Rússar nið-
ur jafnmargar flugvélar fyrir
Þjóðverjum og á sunnudag, eða
31. Rússar misstu 11 flugvélar a
mánudag.
Undangengnar 6 vikur hafa
Rússar skotið niður eða
eyðilagt fyrir Þjóðverjum
250 flugvélar á viku að
meðaltali. — Flugvélar
flotans eiga mikinn þátt í
liversu vel hefir gengið að
granda þýzkum flugvélum
að undanförnu.
Þannig er sagt frá því, að
flugvélar Svartahafsflotans hafi
skotið niður 8 þýzkar flugvélar,
og flugvélar Eystrasaltsflotans
5, en í sömu árás grönduðu þær
15 flugvélum á þýzkum flug-
velli í nánd við Leningrad.
FRETTIR
í STUTTU MÁI.I.
Fimm flugvélar voru skotnar
niður yfir Malla í gær og 12
Jöskuðust, þar af 4 svo, að vafa-
samt er, að þær Iiafi komizt til
bækistöðva sinna. Á mánudag
voru skotnar niður 11, en 16
löskuðust og liafa því verið
skotnar niður eða laskaðar yfir
Malta 44 flugvélar á tveimur
sólarliringum.
Brezki flugherinn - á Malta
hefir veiúð efldur mjög að und-
an förnu.
Tveir ameriskir tundurskeyta-
bátar hafa sökt japönsku, léttu
beitiskipi undan Sebú.
Fjórði fundur Kyrrahafsráðs-
ins í Washington var haldinn í
gær og er áberandi, að meiri
bjartsýni er ríkjandi en áður
meðal ráðsfulltrúanna.
Roosevelt ræddi við van Mook
varalandstjóra i Hollenzku Aust-
ur-Indíu í gær. Van Mook er á
leið til London. Roosevelt ræddi
einnig við Litvinov í gær. Lit-
vinov kvað nú vel ganga að
koma amerískum birgðum til
Rússlands.
Sir Stafford Cripps kom til
London í gær og ræddi þegar við
ChurchiII.
Fundur fyrir luktum dyrum
verður bráðlega haldinn í neðri
málstofunni um styrjaldarliorf-
urnar.
Vísir
kemur ekki út á morgun, 1. sum-
ardag. Næsta blað kemur á föstudag.
Revýan,
Halló Ameríka, verður sýnd á
föstudagskvöld kl. 8* l/2, en ekki kl.
8, eins og venjulega. Miðar eru
seldri í dag eftir kl. 4, en ekki á
morgun, vegna barnadagsins, heldur
á föstud. eftir kl_2. *
Loftvarnarnefnd
hefir beðið blaÖið a'Ö tilkynna,
a'Ö ef gefin vérö'a loftvarnamerki,
jtegar fólk er í samkomuhúsum á
morgun, eigi ])a'Ö a'Ö fara út hægt
og skipulega og leita ofan í næsta
loftvarnabyrgi.
Þjóðverjar senda
mikið lið til
Frakklands og
Niðurlanda.
Brezku blöðin birta f regn-
ir um, að Þjóðverjar sendi
mikið lið til Hollands, Belg-
íu og Frakklands af ótta við
innrás af hálfu banda-
manna. Talið er, að samtals
10—15 herfylki séu á leið-
inni, til þess að treysta varn-
irnar víðsvegar í fyrr-
nefndum löndum. Meðal
þessara herfylkja er eitt
herfylki fallhlífarher-
manna. Var það sent til
I
hins hernumda hlutaFrakk-
lands. — I Bretlandi er bent
á, að Þjóðverjar kunni að
koma þessum fregnum af
stað sjálfir, tií þess að
blekkja bandamenn, en
hinsvegar sé víst, að þeir
leggja nú mikið kapp á að
treysta víggirðingar sínar í
fyrrnefndum löndum, og
einnig í Noregi.
London Daily Herald
spáir því, að brezki flugher-
inn muni halda áfram vor-
sókn sinni og gera tilraun til
þess að ganga svo frá
þýzka flughernum, að hann
áræði ekki að sýna sig yfir
Norður-Frakklandi. Telur
blaðið, að brátt verði hafn-
ar sameiginlegar loftárásir
Breta og Bandaríkjamanna
af svo miklum krafti, að
árásirnar nú verði barna
leikur í samanburði við þær.
Bandaríkjamenn bíða átekta uns
vilji frönsku þjóðarinnar kemur
skýrt í ljós.
Andúðin gegn Þjóðverjum og Laval brýst út
á mörgum stöðum.
Cordell Huíl utanríkisráðherra Bandaríkjanna tilkynnti í gær,
að Bandaríkjastjórn myndi gefa öllu nánar gætur, sem gerist í
Frakklandi, unz vilji frönsku þjóðarinnar er kominn skýrt í
ljós. — Bandaríkjastjórn hefir mótmælt því, að Vichystjórn
hefir leyft, að stjórnarvöldin í Franska Indókína hafa afhent
Japönum mikinn skipastól. Blaðið Chicago Sun telur, að hér sé
um skip samtals 50.000 smál. að^ræða.
McKenzie King, forsætisráð-
herra Kanada, sagði i útvarpi
til frönskumælandi Kanada-
manna i gær, að ríkisstjómir
Bandaríkjanna , Bretlands og
Kanada ræddu nú sín á milli
sameiginlega afstöðu gagnvart
Vichystjórninni.
I brezkum blöðum og amer-
ískum er leidd athygli að því, að
hin aukna samvinna Lavals og
og Þjóðverja hefst með ofsókn-
um og lífláti 50 franskra borg-
ara,' sem ekkert hafa til saka
unnið, en sömu örlög vofa yfir
80 til. 30 voru teknir af lífi i
Rouen og 20 í St. Nazaire.
Petain fær nú mikið af bréf-
um dag hvern, segir í brezkum
fregnum. Innan í umslögunum
eru myndir af honum sjálfum,
oft rifnar í tvennt, eða þá heið-
ursmerki, sem uppgjafa her-
menn, sem undir hans stjórn
börðust, vilja ekki bera lengur.
Þannig mótmæla Frakkar hinni
auknu samvinnu Lavals við
Þjóðverja.
En lienni er mótmælt á marg-
an annan liátt. Hermdarverk
færasl stöðugt í aukana og er’
einkum unnið tjón i flug- og
járnbrautarstöðvum. Spreng-
ingar liafa orðið í eimreiðum og
skipum. Fyrir skemmstu var
franskur undirforingi, sem
gengið hafði í sjálfboðaliðssveit,
sem fara átti til Rúslands, skot-
inn til bana á götu í París. Er
nú umferðarbann í gildi i þessu
hverfi.
Miklar handtökur fara nú
fram í sumum frönskum borg-
um, Montpelier o. fl.
Lögreglan í Paris hefir verið
aukin að miklum mun.
Darlan hefir gefið út dagskip-
an til landhers, flughers og flota,
og kveðst vera staðráðinn í því
sem æ fyrrum, að verja Frakk-
land gegn árásum hvaðan sem
þær koma.
MIKLAR HANDTÖKUR
í NOREGI.
Margir menn hafðir í haldi
í Osló sem gislar.
Fregnir frá Noregi herma,
að 3 Norðmenn, sem, menn
vissu ekki deili á, hefðu skotið
á þýzkan varðmann þar i
borginni. Þar sem ekki hafð-
ist upp á sökudólgunum voru
margir menn teknir og eru
hafðir í haldi sem gislar. Með-
al þessara manna eru hár
skólakennarar, lögfræðingar,
læknar o. s. frv.
Kvisling hefir gefið út til-
skipun, sem skyldar lækna til
þess að vinna allt að þvi 2 ár
í læknislausum, héruðum eða
hvar, sem þeim er skipað að
starfa. Þeir, sem ekki hlýða,
verða dæmdir til greiðslu
sekta, sem geta numið tug-
þúsundum króna, og réttinda-
missi um allt að 5 ár.
Þjóðver jar eru ekki ánægð-
ir með stjórn Kvislings og
Terboven hefir gefið í skyn,
að Þjóðverjar muni gripa inn
í hvenær sem þeir telja þess
þörf, vegna hagsmuna Þýzka-
lands.
Vatnsveitan
á Akranesi.
Vatnsveitan á Akranesi hefir
nú verið tekin til notkunar að
nokkru leyti.
Vatnsleiðsla liefir verið lögð
niður eftir bænum og niður á
bryggju. Geta skip því tekið vatn
þarna og þurfa ekki að fara
hingað til bæjarins, eins og
venjulega. Vatn liefir einnig ver-
ið leitt í hús við þær götur, sem
Aknrnes-
in^ar gefa
út blað.
Á morg-un hefur göngu sína
nýtt blað, er heitir „Akurnesing-
ur“. Er ætlazt til þess, að það
komi út 10 sinnum á ári.
Otgefendur eru nokkrir menn
á Akranesi, en ritstjórn skipa
þeir Arnljótur Guðmundsson,
Ölafur Björnsson og P.agnar Ás-
geirsson.
Markmið blaðsins er þetta:
1) Að ræða bæjarmál Akra-
ness;
2) Að safna saman öllum
gÖgnum og gömlum fróðleik
snertandi Akranes eða Akur-
nesinga að fornu og nýju;
3) Að ræða ennfremur önn-
ur þau mál almennt, sem efst
eru á baugi með þjóð vorri eftir
því sem rúm og ástæður leyfa.
Hér i bænum fæst blaðið í
Bókaverzlun Isafoldar — til há-
degis á morgun hjá Morgun-
blaðinu —- og þar geta menn
gerzt áskrifendur að því, Ár-
gangurinn kostar 8 kr. fyrir
áskrifendur, —•
Aúalfiiiuliir Aor-
ræna fclag:§iii§.
I gærkvöldi var aðalfundur
Norræna félagsins lialdinn í
Oddfellowhúsinu. Meðlimafjöldi
félagsins er nú kominn upp í
1011 manns. Félagsmönnum
hefir því fjölgað um 75 frá því
á síðasta aðalfundi. Um 650
inanns eru búsettir hér í bæn-
um, en hinir viðsvegar um land-
ið. — ?
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en liún er skipuð þessum
mönnum: Stefáni Jóli. Stefáns-
syni form., Guðl. Rósenkranz
ritari, Jóni Fyþórssyni, Páli Is-
ólfssyni og Vilhjálmi Þ. Gísla-
syni.
Einbeniii
Ílegrur at
bnrðnr.
Sá fádæma atburður gerðist
eina nótt nú rétt fyrir helgina,
að fólk, sem hýr í húsi við Suð-
urgötu, vaknaði við svo mikinn
gauragang, að liúsið lék allt á
reiðiskjálfi. Héldu íbúar, að um
loftárás væri að ræða. En sú var
ekki reyndin, heldur hafði brezk
bifreið farið í gegnum einn hús-
vegginn og stóð nú á miðju gólfi
í einni stofunni. Við árekstur-
inn kom stórt gat á vegginn og
lágu spýtnabrot og múrsteina-
mylsna í hrúgum á gólfinu.
Húsgögnin i stofunni eyði-
lögðust merkilega lítið, en
myndir, sem héngu á þessum ó-
lánssama vegg, fóru forgörðum.
Bráðabirgðaviðgerð hefir þeg-
ar farið fram á húsinu.
vatnsleiðslan niður á bryggúuna
liggur eftir.^
Akurnesingum þykja sem
vænta má milcil viðhrigði að
hafa fenaið vatn leitt í hús sín.
Varðarfundurinn
í gærkvöldi.
Varðarfundur var haldinn í
gærkveldi og voru þar skatta-
málin til umræðu. Frummæl-
andi var Gísli Jónsson forstjóri.
Húsfyllir var og vakti málið ó-
skipta athvgli allra fundar-
manna.
Gisli Jónsson rakti efni skatta-
frumvarps þess, sem fyrir ligg-
ur og sýndi fram á, áð ýmsir
gallar væru á því, sem nauðsvn
hæri til að hætt yrði úr. Einkum
fjölyrti hann um afnám frá-
dráttarupþhæðanna, þriggja ára
skattfrelsi nýrra iðnfyrirtækja
og viðhorf útvegsmanna til
frumvarpsins. Færði ræðumað-
ur fram ýms dæmi máli sinu til
stuðnings.
Til máls tóku ennfremui
Magnús Jónsson alþm., Björn
Ólafsson stórkaupmaður og Sig-
urbjörn Ármann kaupmaður
Voru umræður hinar f jörugustu
og stóðu fram undir miðnætti.
Á fundinum skýrði formaður
félagsins, Stefán A. Pálsson, að
hin nýkjörna stjórn hefði skipt
með sér verkum þannig: Gísli
Jónsson varaformaður, Andrés
Þormar ritari, Magnús Þor-
steinsson gjaldkeri.
Tuttugu og tveir menn voru
kosnir í fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna af hálfu Varðarfélags-
ins. Eru þeir þessir:
Sveinn M. Sveinsson,
Hafsteinn Bergþórsson,
Magnús Gislason,
Hallgrimur Benediktsson,
Guðjón Jónsson,
Björn Úlafsson,
Magnús Jochumsson,
Einar Ásmundsson,
Þorsteinn Árnason,
Ragnar Lárusson,
Jóh! Ármann .Tónsson,
Guðm. Guðjónsson,
Eggert Kristjánsson,
Gunnar Benediktsson,
Ludvig C. Magnússon,
Frímann Ólafsson,
Þórður Jónsson,
Davíð Kristjáns'son,
Gisli Jónsson,
Guðbjartur Ólafsson,
Kristinn Kristjánsson,
Sig. Egilsson.
Gjöf tll meiinta-
málaráð§.
Menntamálaráði Islands hefir
horizt eftirfarandi gjafabréf:
Reykjavik, 14. apríl 1942.
Hér með leyfi eg undirritað-
ur, að ánafna, eftir minn dag,
(málverkasafni) listasafni rík-
isins, málverk af Snæfellsjökli
málað af Jóhannesi Kjarval, er
mér var gefið af starfsfólki
mínu, á fimmtíu ára afmælis-
degi minum. Skal málverkið
vera í vörslum okkar hjónanna,
á meðan við lifum annað hvort
eða bæði, nema við ákveðum að
gefa það fyr. Við fráfall okkar
(hjónanna) ber okkar afkom-
endum að afhenda það tafar-
laust (málverkasafni) lista-
safni rikisins til fullrar eignar
og umráða, enda verði það
jafnan geymt i safninu.
Málverkið má ekki selja eða
veðsetja.
Virðingarfyllst
Þorleifur Gunnarsson (sign).
Ofanrituðu gjafabréfi er eg
samþykk.
Sigríður Stefánsdóttir (sign).