Vísir - 22.04.1942, Page 2
V I S I R
DAGBLAÐ
Útgcfandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 60 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
F'élagsprentsmiðjan h.f.
Oístopi
Framsóknar.
EIGA 25 kjósendur eins
stjórnmálaflokks að hafa
nieiri íhlutun um málefni lands-
ins en 45 kjósendur annars
flokks? Enginn lýðræðissinna'ð-
ur nútímamaður getur verið í,
vafa um svarið við þessari
spurningu. Samt ber svo undar-
lega við, að hér er komið að
heitasta deilumálinu, sem uppi
er í jiessu þjóðfélagi. Við síðustu
þingkosningar Iætur nærri að
Sjáifstæðisflokkurinn fengi 45
af hverjum 100 greiddum at-
kvæðum, en Framsóknarfloklc-
urinn 25. Engu, að síður fékk
Framsóknarflokkurinn 19 þing-
menn kjörna, en Sjálfstæðis-
flokkurinn aðeins 17. Nú vill
Sjálfstajðisflokkurinn ekki leng-
ur sætta sig við þetta misrétti.
Ef hann gerði það, hlyti hann að
leggjast undir ámæli fyrir að
hafa brugðist þeirri lýðræðis-
stefnu, sem hann telur grund-
völlinn undir allri starfsemi
sinni. Alveg sama er að segja
um aðra þá flokka, sem fyrir
misréttinu verða. Það er von-
laust fyrir fulllrúa jieirra, að
reyna að vfflja fyrir kjósend-
um sínum, að sama hróplega
ranglætið eigi að gilda áfram í
þessum efnum.
Þetta ætti Framsóknarflokk-
urinn að reyna að skilja. Honum
mundi veitast létt að skilja það,
ef liann gæti nokkurn tíma sett
sig í spor annarra. Sjálfstæðis-
kjósandinn er eklci nema hálf-
drættingur á við Framsóknar-
kjósandann. Við skulum hugsa
okkur, að þetta væri öfugt,
Framsóknarkjósandinn væri
ekki nema hálfdrættingur á við
Sjálfstæðiskjósandann. Gæti
nokkur þá látið sér á óvart
koma, þótt leiðtogar Framsókn-
ar berðust af fullum hug fyrir
því, að fá bætt úr misréttinu?
Eif Framsóknarflokkurinn
væri yfirlýstur lýðræðisandstæð-
ingur, þyrfti engum að koma á
óvart sú óbilgirni, sem hann
sýnir í andstöðunni gegn um-
hótum á kjördæinamálinu. En
það er beinlínis fráleitt að kenna
sig við lýðræði og taka jafn-
framt upp slíka afstöðu til máls-
ins, sem raun er á. Öll barátta
Framsóknar í þessu máli er svo
cfbeldiskennd, að furðu gegnir.
Það er engu líkara en að sumir
helztu leiðtogar flokksins geri
sér vonir um að hægt sé með
allskonar hótunum að hræða
fylgjendur málsins til þess að
hverfa frá því. En þessi ofbeld-
isframlcoma getur ekki haft
önnur áhrif en þau, að öllum
verður Ijósara en áður, að það
má ekki dragast lengur að
Framsókn fái sinn deilda verð
til jafns við aðra flokka —
hvorki meira né minna.
Þeir flokkar, sem fyrir mis-
réttinu verða, hafa yfirgnæfandi
meirihluta á þingi til að koma
málinu fram. Þeir verða þess
vegna að taka höndum saman
um lausn þess, hvað sem öllum
ágreiningi kann að Iíða um önn-
ur mál. Hér er um að ræða slíkt
grundvallaratriði fyrir lýðræðis-
lega framtíð þjóðarinnar og
heilbrjgði i stjórnmálalífi henn-
ar, að ekki má við málið skilj-
ast fyrr en yfir lýkur. Himi
trylti ofstopi Framsóknarlcið-
loganna á að verða til þess eins,
að fylgjendur málsins standi
saman sem einn maður um
hepþilega og sanngjarna lausn
þess. F ramsóknarflokkurinn
hefir ekki að baki sér nema
af kjósenduni landsins. En hann
hefir % af þingmannatölunni.
Ilér er um það misrétti að ræða,
að ekki verður við unað. Úr því
að hægt er að ráða hót á því,
verður að gera það áður en
kosningar fara fram.
Barnadagurinn :
20-30.000 merki
til sölu á morgun.
Barnadagurinn er á morgun.
Þá munu skólaböm bæjarins
bjóða merki barnadagsins til
sölu.
20—30.000 merki hafa verið
prentuð. Það er ekki búizt við
því, að þau seljist öll, en þess er
vænzt, að bæjarbúar sjái svo
um, að hörnin þurfi ekki að
skila miklu af þeim aftur.
Merkjunum verður úthlutað
til barnanna í skólunum. Mörg
þeirra munu vafalaust ganga
hús úr liúsi til að selja þau, en
fólk ætti ekki að amast við þvi.
Þessi dagur er aðeins einu sinni
á ári og þá á hann að vera al-
gjörlega dagur harnanna.
Reykvíkingar! Styrkið Sum-
argjöf í góðu starfi með þvi að
kaupa merki félagsins á morg-
un og sækja skemmtanir dags-
ins.
Aðalf undur
Bálfarafélagsins.
Aðalfundur Bálfarafélags ís-
lands var haldinn þ. 18. apríl þ.
á. á skrifstofu félagsins, Hafn-
arstræti 5. Fundarstjóri var
Ágúst Jósefsson, heilbrigðisfull-
trúi.
Formaður gaf skýrslu um
starf félagsins 1941, og verður
hún síðar prentuð og send fé-
lagsmönnum og dagblöðum.
Gjaldkeri, Björn Ólafsson,
stórkaupm., lagði fram endur-
skoðaðan reikning f. 1941.
Byggingarsjóður jókst á árinu
um rúmar 50 þús. krónur og
nam 1 árslok kr. 83.324.86.
Gjaldkeri gat þess, að Bálfara-
félagið ætti á næstunni von á
70 þús. kr. fjárstyrk úr bæjar-
sjóði Reykjavíkur og ríkissjóði,
gegn 35 þús. króna framlagi,
sem Bálfarafélagið útvegar úr
annari átt.
Úr stjórninni átti að ganga
dr. G. Claessen, en var endur-
kosinn.
Formaður gat þess, að búið
væri að sækja til Viðskiptamála-
ráðuneytisins um leyfi til kaupa
á hyggingarefni til bálstofunn-
ar. Ef það leyfi fæst, verður
þegar í stað hafist handa um
bygginguna á Sunnuhvolstúni.
En þar hefir bæjarráð Reykja-
vikur ákveðið Bálstofunni stað,
og útvísað Bálfarafélaginu stóra
lóð til byggingarinnar.
Stúdentar.
Sumarfagnaður stúdenta verður
að Hótel Borg í kvöld (síðasta vetr-
ardag). Hefst hann með borðhaldi
kl. M.A.-kvartettinn syngur
nokkur lög meðan á borðhaldinu
stendur. Dans hefst svo kl. io stund-
víslega, og verður síðan dansað
fram á nótt. Aðgöngumiðar verða
seldir kl. 5—6 í dag í anddyri Hótel
Borgar (suðurdyr). Menn eru á-
minntir um að sækja pantaða að-
göngumiða á þeim tíma, því ann-
ars verða þeir seldir öðrum.
Fimmtugur
verður á morgun Benedikt Guð-
mundsson, húsgagnasmiðameistari,
Freyjugötu 40.
Elliheimilifl Grnmi
orflið ol litið.
Þörf á vidbyggingu eða
nýju beimiii.
er
Þegar Elliheimilið við Hring-
braut var nýreist fyrir 12 árum,
töldu æði margir, að það væri
allt of stórt og ofmikið i það
borið. Reynslan varð og sú
fyrstu árin, að vér, sem að heim-
ilinu stóðum, urðum að leigja
ýms herbergi í húsinu öðrum en
gömlu fólki til þess að þau stæðu
ekki tóm til lengdar.
Það var óheppilegt, en vér
vorum samt ákveðnir. „Húsið er
ekkert bráðabirgðaskýli, og á
að þola vaxandi kröfur og aukna
aðsókn komandi tíma,“ sögðum
vér.
Sumum mun hafa fundizt það
vera innantóm „hreystiyrði“,
þegar húseignin var að sligast
undir skuldaböggum.
En samt er nú svo komið, að
skuldabaggarnir hafa létzt að
stórum mun, og heimilið er
jafnframt orðið of lítið. „Heim-
ilið getur tekið um 150 vist-
menn í mesta lagi,“ var áætl-
unin. ()g þau árin, sem vist-
menn voru að jafnaði um 135,
var liægt að taka allmarga vist-
menn í einbýlisstofur. En eins
og eðlilegt er, kjósa flestir, er
ferlivist hafa, að vera einsaml-
ir í herbergi sinu.
í fyrra vetur jókst aðsóknin
að heimilinu að svo miklum
mun að alveg var hætt að taka
vistmenn í einbýli, og jafnframt
var horfið að því ráði, að Jeigja
svefnherbergi handa um 20 af
starfsfólkinu lijá nágrönnun-
um. En jafnóðum og þannig var
rýmt til fylltist heimilið af nýj-
um vistmönnum.
Vitsmenn hafa verið um og
yfir 170 síðan í fyrravor, og þó
hafa verið að jafnaði um 30
umsóknir á biðlista. Hefir
mörgum hlutaðeigendum þótt
sú bið næsta löng. " /
Skórinn var sérslaklega
þröngur síðustu mánuði liðna
ársins. Húsið var meira en
fullskipað 1. október, og ekki
unnt að fá fleiri herbergi handa
starfsfólki annarstaðar. Og svo
dó aðeins einn vistmaður þessa
3 mánuði. Varð þvi forstjórinn
að neita öllum umsóknuin þann
tíma, hvað erfitt sem umsækj-
endur áttu. 92 ára öldungur
varð t. d. að leita til Þingvalla,
þegar ekkert rúm var til handa
honum á Grund.
Veikindafaraldurinn liér í
bæ síðan um áramót hefir á
liinn bóginn reynzt rúmföstum
vistmönnum harla skæður.
Hafa andazt síðan um áramót
yfir 20 af þeim lióp. Er sá
, manndauði jafn óvenjulegur
og hitt, að elíki skyldi deyja
nema einn þrjá mánuðina á
undan.
Það hefir samt ekkert rýmk-
að við þetta stóra skarð, því að
jafnan hafa verið fleirí en ein
umsókn frá rúmföstu gömlu
fólki um hvert rúm sem autt
varð, og því lítið verið unnt að
sinna umsóknum allra hinna,
sem á fótum voru.
Þessi mikla aðsókn að heim-
ilinu er ofur skiljanleg. Fyrst
og fremst fjölgar gömlu fólki
að miklum mun árlega. — 1
árslok 1939 voru um 1600 bæj-
arbúar komnir yfir sjötugt; af
þeim voru um 640 sjötíu og sjö
ára eða eldri. En 77 ár er ein-
mitt meðalaldur vistmanna
vorra.
Húsnæðisvandræði og vinnu-
konuleysi valda þvi, að fjöl-
mörgum fjölskyldum er erfitt
eða jafnvel ómögulegt að sinna
hjálparþurfa gamalmennum
sínum, og sjúkrahúsin í bænum
----------------> f
eru svo fullskipuð að oftast er
árangurslaust að leita þangað
fyrir rúmföst gamalmenni, sem
ekki þurfa sérstaklega læknis-
aðgerðar. Margoft hafa slik
gamalmenni ekki komizt að
Grund fyrr en húsmóðir lieim-
ilis þess var alveg að þrotum
komin og gamalmennið svo
aðfram komið að það dó fáum
dögum eftir flutninginn.
Til úrbóta þessu vandamáli
sé eg ekki nema 2 ráð. Annað
er/ að bærinn eða einstaklingar
ráðist nú þegar í að reisa nýtt
Elliheimili hér í hænum. En
hitt er, að bæjarstjórn hjálpi
Elli- og hjúkrunarlieimilinu
Grund til að reisa nýtt liús fyrir
starfsfólk sitt og allan þvott.
Mundi þá mega bæta við um 40
vistmönnum í aðal-liúsið, og
vistin yrði um leið að ýmsu
leyti rólegri, ekki sizt er
„þvottahúsið“ færi — og síðast
en ekki sízt: ekkert af starfs-
fólkinu þyrfti þá að búa liing-
að og þangað úti í bæ.
Þótt dýrt sé að byggja nú, er
stjórn heimilisins svo bjartsýn,
að hún býst við að ráða vel við
þessa viðbót, ef bæjarsjóður vill
slrika út gamla skuld við Gam-
almennahælissjóð og Iána ó-
keypis Ióð fyrir starfsmanna-
og þvottahúsið. Annan styrk frá
bænum er ekki farið fram á.
En vegna annríkis liúsasmiða
eru engar líkur til að hægt verði
að reisa húsið á komandi
sumri nema að gott svar komi
frá bæjarráði nú alveg á nsest-
unni.
Ef einhverjum ráðamönnum
bæjarins finnst vér vera óþarf-
lega ójwlinmóðir, þá ætti liann
— og aðrir raunar lika — að
ihuga hvort það muni vera
skemmtilegt að þurfa að neita
mjög aðkallandi umsóknum
frá 5 gamalmennum sama
daginn, eins og fyrir kom í vik-
unni sem leið.
Signrbjörn Á. Gíslason.
Kjartan Gunnlaugsson kaupmaður
Kjartan Gunnlaugsson kaup-
maður verður borinn til moldar
i dag. Hann var borinn og barn-
fæddur Reykvikingur og hér ól
hann allan aldur sinn.
Foreldrar Kjartans heitins
voru Gunnlaugur Stefánsson
prentari og Ingveldur Kjartans-
dóttir. Úlst Kjartan heitinn upi>
við lieldur þröng kjör, eins og
gekk og gerðist, en fljótlega
kom það í ljós, að liann hafði til
brunns að bera góðar gáfur, ein-
beitni og viljastyrk, er ruddi
honum brautina til frekari
frama.
Hann lagði snemma fyrir sig
verzlunarstörf og til þess að
verða sem færastur í þeirri grein
aflaði hann sér góðrar tungu-
málakunnáttu, jafnframt því,
sem hann kynnti sér til hlítar
annað það, sem að verzlun laut.
Hér ber þess að gæta, að um það
bil er Kjartan var að alast upp,
var hin islenzka verzlunarstétt
i fæðingunni. Ryðja varð nýjar
leiðir, afla erlendra og beinna
sambanda og standast sam-
keppni arftaka selstöðuverzlan-
anna um land allt.
Rúmlega tvítugur að aldri réð
ist Kjartan í það ásamt þeim
Helga Magnússyni og Knúti
Zimsen, að stofna firmað Helgi
Magnússon & Co. Gerðist Kjart-
an þar verzlunarstjóri, en Hélgi
annaðist stjórn liinna verklegu
framkvæmda. Fórst verzlunar-
stjórnin Kjartani afburða vel úr
hendi, enda nýtur firma hans
trausts og vinsælda um land allt.
Reglusemin var mikil í hverju
sem var og öll loforð efnd til
hins ítrasta, sem gefin voru.
Hagsýni var gætt í hvívetna og
vel fylgst með öllum nýjungum
á viðskiptasviðinu, að því er fyr-
irtæki þeirra félaga varðaði,
enda var afkoman eftir því.
Lítt sinnti Kjartan heitinn
öðrum málum en þeim, er at-
vinnu hans snerti. Var hann ekki
opinberlega viðriðinn annan fé-
lagsskap en Verzlunarmannafé-
lagið, en gegndi í þeim hópi
trúnaðarstörfum.
Kjartan var gleðimaður í vina-
hópi, gestrisinn og góður heim
að sækja, enda hinn ágætasti
heimilisfaðir. Lagði hann rika
áherzlu á að mennta börn sín
svo sem bezt mátti verða og und-
irbúa á þann liátt lífstsarf þeirra.
Kjartan var fæddur 16. júní
1884, en lézt liinn 12 apríl s.l.
Hann var kvæntur Margréti
Berndsen frá Hólanesi og varð
þeim sex barna auðið. Eru það
þau: Friðrik kaupmaður, Hall-
dór stórkaupmaður, Ingvar
verzlunarmaður, Hannes fram-
kv.stj. í New York, Ingihjörg,
gift Hávarði Valdimarssyni
kaupmanni og Ásta, gift Erlendi
Þorsteinssyni verzlunarmanni.
Móðir Kjartans er á lifi og á
að sjá góðum og ræktarsömum
syni á bak. Það er henni mikil
huggun í ellinni, að líta yfir
giftudrjúgt líf sonar síns og
njóta umhyggju konu hans og
barna þeirra, sem öllum kippir
í kyn um mannkosti og gengi.
B. S.
Siiungapollur
tekur vit5 börnum til sumardval-
ar á þessu ári, eins og undanfari'S.
Sjá augl.
70 ára
er í dag Halldóra Guðmundsdótt-
ir, Holtsgötu 20.
Danssýning.
Ungfrú Sif Þórs hélt dans-
skemmtun í Iðnó í gærkveldi fyrir
fullu húsi. Dansmeynni var vel tek-
ið, enda dansaði hún af leikni og
lipurð. Hið sama verður þó varla
sagt um dansfélaga hennar, Teddy
Haskell. Sumir dansarnir voru end-
urteknir. Tríó undir stjórn Þóris
Jónssnar lék undir dansinum og
milli dansa. h.
Bæjarráð
hefir samþykkt að beina því til
lögreglunnar, að hafa eftirlit með
hreinlæti við pylsuvagnana í Kola-
sundi.
Skotæfingar.
Ameríska herstjórnin tilkynnir,
að loftvarnaskotæfingar fari fram
í nágrenni Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar dagana 18.—25. þ. m. kl.
9 árd. til SJ4 síðd., daglega.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ AUGLÝSA
I VÍSI!
Kvenkápnr
ogr kápuefni
í feilcna úrvali. Verðið sér-
staklega lágt. PfeysufataefBÍð
margeftirspurða er kumið
aftur, Silkisvuntuefni og
slifsi, alltaf hezt og ódýrast i
Verzlún
Guðbjargar Bergþórsdóttur,
Öldugötu 29. — Sími 4199.
Aðstandendur
barna
sem korna vilja börnum sín-
um til sumardvalar að Sil-
ungapolli og enn eigi hafa
sótt til sumardvalamefndar
eða undirritaðs sendi mér
umsóknir sínar hið alíra
fyrsta.
JÖN PÁLSSON.
Laufásvegi 59. Simi 1925,
Til sölu
lítið ibúðarkús
í úthverfi borgarinnar. H6s-
ið verður allt laust til ihúðar
14. maí n. k. Leggið nöfn
yðar inn á afgr. þessa blaðs,
merkt: „Úthverfi“ fyrir n. k.
laugardag.
Vil kaupa byggingarlóð
ef um semst. Leggið nöfn
yðar á afgr. Vísis fyrir n. k.
sunnudag, merkt: „Verzlun-
arlóð“.
Matsvein
(ungling) vantar til að mat-
reiða fyrir 3 menn á mótor-
bát.
Óskar Halldórsson.
Nokkrar myndarlegar
stúlknr
óskast í góða atvinnu. Uppl.
Ásvallagötu 33, niðri.
Matar-
og kaffistell
Tökum upp í dag nokkur
KAFFZSTELL
og margar gerðir af
MATARSTELLUM
Hafnarstrætí 5
loorsuðri
Reglusamur, vanur bif-
reiðarstjóri óskar- eftir að
aka vörubifreið um þriggja
vikna skeið.
Tilboð, merkt: „Góð
enskukunnátta“ sendist Vísi
fyrir föstudagskvöld.