Vísir - 24.04.1942, Blaðsíða 2

Vísir - 24.04.1942, Blaðsíða 2
VISIR % VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: ”LAÐA ÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni ' Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstraeti) Símar 1 660 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprent^miðjan h.f. Sumarið 1942. H VAÐ verður á þessu nýbyrj- aða sumri? Ýmsir spá því, að næstu mánuðir verði hinir öriagarikuslu i sögu alls mann- kyns, ekki siður okkar fslend- inga en annarra. En sennilegt er að fáar þjóðir séu áhyggjuminni um það, sem framundan kann að vera, en við. Þetta stingur nokkuð í stúf við það, sein var fyrir þremur árum. Þá var ó- friðarblika á lofti, en enginn gat þó sagt með neinni vissu að til styrjaldar mundi draga. En til þess að vera við öllu búnir, þótti okkur þó rétt, að taka höndum saman. Nú höfum við orðið styrjaldarinnar varir á allt ann- an og áþreifanlegri hátt, en nokkurn óraði fyrir. Við tölum daglega um að miklar ógnij geti verið í vændum. En þrátt fyrir þetta hefir friðarviljinn rokið út í veður og vind. Þetta er mjög eftirtektarvert. Og í rauninni virðist það sönn- un þess, að áhyggjur okkar um framtíðina nái ekki út yfir um- hyggjusemina um fjárhagslega aflcomu þjöðarinnar. Fyrir þremur árum var f járhagur rík- is og einstaklinga kominn á helj- arþröm, atvinnurekendur á þrot- um og verkafólk í öngþveiti. Af þessum sökum voru öldur ó- samlyndis og sundrungar lagðar. Nú liorfir þelta allt öðru vísi við. Allir hafa nóg að gera. Bæði ríki og einstaklingar hafa meira fé handa á milli en nokkru sinni fyrr. Og stríðsgróðinn og stund- argengið hafa verkað svo bless- unarlega á okkur, að við látum okkur litlu skipta, þótt bent sé á að ískyggilegir tímar kunni að vera í nánd. Við skulum vona að þessi bjartsýni komi okkur ekki í koll. Fyrir þremur árum þótti hver sá vargur i véum, sem ekki vildi skilyrðislaust taka höndum saman við forna andstæð- inga. Þá voru framréttar hend- ur á alla vegu. Nú þykir það liinn mesti vesaldómur, að tala um innanlandsfrið og sættir. Ifinar framréttu hendur eru orðnar að krepptum hnefum. Höfum við ekki fullar hendur fjár — og er þá ekki öllu óhætt? Jú, að vísu. En hinu verð- ur ekki neitað, að það er lít- ið samræmi í framkomu okkar nú og fyrir þremur árum, ef gengið er út frá að þjóðareining geti réttlætzt af nokkru öðru en tillitinu til fjárhags og atvinnu- vega. Það er litið útlit á, að nokkur vilji sé fyrir hendi til að koma á víðtækara samstarfi en þvi, sem nú er. Hitt virðist liggja fyr- ir, að innan nokkurra vikna verði lagt til harðvítugrar bar- áttu. Þá mun hver flokkur vitan- lega tjalda sínum stefnumálum og halda þeim til streitu. Aðal baráttumálið verður væntanlega kjördæmaskipunin. I því máli stendur Framsóknarflokkurinn einn gegn öllum hinum flokk- unum. Hann mun sennilega vera farinn að átta sig á því, að hót- anir hans og ofstopi hafa ekki dregið neitt úr baráttuhug þeirra, sem krefjast þess að mál- ið gangi fram, heldur þvert á móti. Sú framkoma á að verða til þess eins, að fylgjendur máls- ins bindist föstum samtökum um að skiljast ekki við það, fyrr en komið er í örugga höfn. Margir hafa orðið fyrir von- brigðum yfir því,^að sá friðar- vilji, sem svo mjög var látið af fjTÍr þremur árum, hefir farið forgörðum, þegar mest á reyndi. Ekki tjáir að fást um það. Úr því svo er komið, verður að taka afleiðingunum. Hér er sú bót i máli, að leiðrétting getur feng- izt á því misrétti, sem hlyti að verða ófriðarefni, meðan það er við líði. Með því verður lagður grundvöllur að meiri lieilbrigði í íslenzku stjórnmálalífi, en ver- ið hefir að undanförnu. a 20 þátttakendur í dr eng jahlaupinu. Hið árlega Drengjahlaup Ár- manns fer fram næstkomandi sunnudag og hefst kl. 10‘/2 ár- degis. Keppendur eru 20, 8 frá K.R., 7 frá Ármanni og 5 frá I.R. Eru margir röskir piltar meðal þeirra og ógerningur að spá um úrslitin. Vegalengdin, sem er hlaupin, er um 2.2 km. á lengd. Hlaupið hefst frá Iðnskólanum og er hlaupið vestur Vonarstræti, suð- ur Tjarnargötu og Bjarkargötu, framhjá Háskólanum yfir túnin til gatnamóta Njarðargötu og Hringbrautar, norður Sóleyjar- götu og Lækjargötu og endað hjá Búnaðarfélagshúsinu. Keppendur og starfsmenn eiga að mæta í Miðbæjarbarna- skólanum kl. 10 árd. Kennsla í íslenzku við ríkisháskúlann í Wisconsin. Blaðið Wisconsin State Jour- nal frá 26. janúar síðastliðnum, lætur þess getið, að vex-ið sé þá í þann veginn að stofna til nám- skeiðs í íslenzku við ríkisháskól- ann. Prófessgr Einar Haugen hefir yfirumsjón með kennsl- unni, en honum til aðstoðar verða tveir íslenzkir stúdentar frá Reykjavik, þeir Ágúst Svein- björnsson og Þórður Reykdal. Þetta er byrjunartilraun Wis- consinháslcóla i íslenzkukennslu. • Hinum nýskipaða dómara, Walter Lindze var haldið veg- legt samsæti í Winnipeg. Var til þess stofnað af hinu yngra Þjóð- ræknisfélagi, en forseti þess er Árni Eggertsson hæstaréttarlög- maður. Margir þekktir menn fluttu ræðui', þar á meðal foi’seti Manitobaháskóla. Skáldin Krist- ján Pálsson og Sigurður Júl. Jó- hannesson fluttu heiðursgestin- um kvæði. (Frá Þjóðræknisfélaginu). Hávaði að næturlagi Lögreglan mun framvegis ganga strangt eftir því, að fólk geri engan hávaða þegar það kemur út af gildaskálum, dans- leikjum o. s. frv. Það hefir viljað brenna við, að fólk sé hávaðasamt, þegar það kemur út úr samkomuhús- um um miðnætti eða síðar. Einnig vill það þá oft til, að bif- reiðastjórar þeyti horn bifreiða sinna, enda þótt það sé óleyfi- legt, samkvæmt lögreglusam- þykktinni. Þetta liefir auðvitað það í för með sér, að fólk í ná- grenninu getur ekki notið svefns. Nú á að gera breytingu á þessu og verða þeir látnir sæta sektum, sem brjóta í bág við þetta. Bapnadagupinn; í ÁGÓÐI RF SKEMMTUNUM VAR 15003.24 KR.------ 9261.05 í FYRRiL 5700 manns sóttu skemmtistaðina. Eins oíí að undanförnu stóð Baraavinafélagið Sum- argjöf fyrir mörgum og f jölbreyttum skemmtunum á Baraadaginn. Skemmtanir þessar voru m.jög vel sótt- ar og munu um 5700 manns hafa sótt þær. Einnig voru merki seld um daginn, samskotabaukar voru á hótel- unum og „Sólskin“ var selt á götunum. Sendvorubréf til 100 fyrirtæk ja og óskað eftir framlögum til félags- ins. Var þegar farinn að nást töluverður árangur af þvi. Blaðið snéri sér til Isaks Jónssonar foraianns framkvæmdanefndar Bamadagsins og fékk h já hon- um eftirfarandi upplýsirigar: Skemmtanir voru 14 í 8 hús- um, og skiptist það þannig, að þrjár voru í Iðnó, þrjár í G. T.- húsinu, tvær í Gamla Bíó, tvær í Nýja Bió, tvær í Austurbæjar- barnaskólanum, ein í Iþrótta- húsi Jóns Þorsleinssónai', ein i Háskólanum og ein i Oddfellow. Auk þess var Sundhöllin opin og rann ágóðinn til Sumargjafar. Hér fer á eftir yfirlit yfir það, sem inn kom á skemmtunun- um: Iðnó, kl. 2: kr. 800.00; kl. 4V2: kr. 1141.50; kl. 8y2: kr. 2673.00. Samtals kr. 4614.50 (í fyrra kr. 2687.71). G.-T.-húsið hafði lofað inni- skemmtun kl. 2 og lagði sjálft fram skemmtikraftana, og var það barnastúkan Æskan nr. 1, sem sá um hana. Aðsóknin að henni var svo mikil, að hún var endurtekin og höfð kl. 5 og var fullt hús í bæði skiptin. Engin skemmtun var þarna í fyrra. Inn komu samanlagt fyxár báð- ar þessar skemmtanir kr. 1015.50. Gamla Bíó samanl. kr. 2361.72 (í fyrra kr. 1828.24). Nýja Bíó samanl. kr. 1143.95 (í fyrra kr. 941.60). í Austurbæjarskólanum voru tvær skemmtanir, en engin í fyrra. Komu inn fyrir þessar skemmtanir samanl. kr. 1032.00 í íþróttahúsi Jóns Þorsteins- sonar var haldin ein skemmtun (leikfimisýningar). Sáu íþrótta- menn um þessa skemmtun, og stóð Benedikt Jakobsson, for- maður íþróttakennar'afélagsins, fyrir henni með iþróttakennur- unx bæjarins. Það sem inn kom á þessar 1 skemmtanir voru kr. 415.57. Ein skemmtun var haldin í hátíðasal Háskólans. Var hún fi’ekar illa sótt og er það harla einkennilegt, því að óhætt mun að fullyrða, að einna mest hafi verið til hennar vandað með skemmtiskrárliði. Væri vonandi að slíkt þyrfti ekki að koma fyrir aftur. Fyrir þessa skemmt- un fengust kr. 654.00 og er það mun minna en í fyrra, þvi þá komu inn kr. 908.00. í Oddfellowhúsinu var haldinn dansleikur og kom inn fyrir að- göngumiðasölu að honum kr. 2430.00 en í fyri'a kr. 1560.00. Sundhöílin: kr. 1336.00 (í fyrra ki\ 765.50). Samtals fyrir allar þessar skemmtanir, að Sundhöllinni meðtaldri, kom,u þvi inn kr. 15.003.24, sem er* kr. 5742.19 hærra en í fyrra, en þá var á- góðinn af skemmtunum kr. 9261.05.1 fyrra voru skemmtan- ir í Varðarhúsinu og Fríkirkj- unni, en ekki nú. Eins og að framan getur voru það um 5700 manns, sem sóttu þessar skemmtanir, og má segja að yfirfullt hafi verið á næstum öllum skemmtununum, og urðu fleiri manns frá að hverfa. Er þetta ljós vottur þess, að enn er ekki hægt að ofbjóða fólki með skemmtunum, og er það að vísu gott, þ. e. a. s. að minnsta kosti á barnadaginn. Auk skemmtananna voru seld mei’ki á götunx úti, en ekki er ‘ vitað enn hyersu mikið hefir fengizt inn fyrir þau. Þó er að mestu búið að atliuga útkomuna* 1 Miðbæjarskólanum, og er liún kr. 5589.73, en 2914.56 í fyrx'a. I Austui’bæjarskólanum komu inn kr. 6300.00 nú en kr. 4294.77 í fyrra. Af þessu má mai’ka, að miklu meiri sala hefir verið í áx\ heldur en í fyi'ra og er það vel. | Um Barnadagsblaðið er ekki vitað enn, en líklegt er, að það sé að nxestu uppselt. Voi'u gefin út rúmlega 7000 eintök. j Ekkert er heldur vitað um : söluna á „Sólskini“, hversu mik- ið liefir safnazt í samskotabauk- ana, eða live mikið hefir komið inn fyrir blómasöluna, en það mun allt vei'ða athugað í dag eða næstu daga. 1 1 Gjafir fi'á einstökum mönn- um og fyrirtækjum hafa borizt i | og eru þær bæði stórar og góð- ar. Þær eru þessar: Frá Magn- úsi Andréssyni kr. 1500.00, frá „LHM“ ki\ 1000.00, frá „Bínu og Dúllu“ kr. 500.00, fi'á Asta kr. 100.00. \ýj:i flngiélin j re;nd. j Nýja flugvélin hefir nú farið i reynsluflug sitt. Var hún reynd á miðvikudag, síðasta vetrardag. Flugvélin er í'auðmáluð ein- þekja með ^vöföldu hliðarstýri. 1 Hún tekur 8—9 farþega og er öll klædd innan með bláu klæði. Henni hefir ekki verið gefið nafn svo að Visi sé kunnugt. Flugferðir munu bráðlega geta hafizt til Norðurlands, þar sem hin nýja vél er nú ferða- fær. Eitt þúsund kr. til Blindraheimilis. Formanni Blindravinafélags íslands voru færðar kr. 1000,00 að gjöf til Blindarheimilissjóðs félagsins 22. þ. m. og vill gefand- inn ekki láta nafns síns getið. Fyrir þessa sérstaldega höfð- inglegu gjöf vill stjóm félagsins færa gefandanum sínar innileg- ustu þakkir, því að þetta sýnir glöggan skilning á stofnun þessa aðkallandi lieimilis fyrir blinda. Tvö þvottahús reist. Bærinn mun á riæstunni reisa tvö þvottahús fyrir almenning. Bæjarráð hefir samþykkt þetta og fól það borgarstjóra að koma þvi í framkvæmd. Annað þvottahúsið verður í Höfða- hverfi, fyrir íbúana í Höfðaborg og sem áframhald af fram- kvæmdum bæjarins þar. Hitt húsið verður til endurnýjunar gamla þvottahúsinu við Þvotta- laugamar. Skálholt og Reykjavík. Það eru bráðum liðin hundrað ár frá því að Latínuskólinn vai' fluttur frá Bessastöðum til Reykjavíkur. En þar hafði hann staðið um 40 ára skeið og var i þangað fluttur xir Reykjavík 1 vegna húsaskorts. Það nxá enginn halda, að það liafi tilviljun ráðið því, að hinu lærðj skóli myndaðist á bisk- upsseti'inu að Skálholti. Biskup- arnir voiax mestu andans- og lærdóins-skörungar, sem þjóðin átti. Biskupssetrin voru andlegir höfuðstaðir landsins, svo að það var engin furða, þótt æðstu menntastofnanirnar risu upp þar. Biskupssetrið að Skálholti var flutt þaðan í sama mund og liinn lærði skóli. Og þau voru bæði flutt til Reykjavíkur. En vegna livers einnxitt þangað? Hví voru þau t. d. ekki flutt að Odda? Það var þó nógu sögu- frægur staður. Það var vegna þess, að öllum hugsandi mönn- um þess tíma var ljóst, að hinn lærði skóli var óaðskiljanlegur þeim stað, sem nxyndi verða höfuðstaður Iandsins. Og það var Reykjavík. Einn þeirra manna, sem mest og bezt barðist fyrir því, að hafa Menntaskólann hér í bæ, var Jón Sigui'ðsson. Þar fylgdi svo sterk- ur liugur máli, að danska stjórn- in byggði hið ' glæsta mennta- skólahús í hjarta bæjarins. Jón Sigui’ðsson sá, að Reykjavík átti fyrir liöndum framtíð sem höf- uðboi-g landsins. Aftur á móti risi Skálholt aldrei sem andlegt höfuðból íslenzkrar "menningar. Pálmi Hannesson er á ann- arri skoðun en Jón forseti. Rétt- ast væri að segja, að Pálmi væri á annarri skoðun en islenzka þjóðin, þvi að liún, hefir sömu skoðun sem Jón Sigurðsson. Það hefir ætíð reynzt henni bezt. Pálmi rektoi', sem vill flytja Menntaskólann hreppaflutningi að Skálholti, ætlar með þvi að sanna, að stjórn sjálfstæðis- manna á höfuðborginni hafi ver- ið þannig, að hún sé ekki verð hins glæsta skóla. En hann at- liugar ekki, að Skálholt er ekki lengur háborg íslenzkrar menn- ingar, heldur Reykjavík. Islenzkir menntamenn mega hrósa happi, að Sig. Guðmunds- son skólameistari á ekki sæti á Alþingi. Annars væri viðbúið, að hann vildi flytja Menntaskóla Norðurlands að Hriflu. Það var í hátíðasal Mennta- skólans í Reykjavík, sem Jón Sigurðsson stóð upp og mót- mælti veldi Dana. Nú, á útlegð- arárum skólans, verða það menntaskólanemendur, sénx standa allir upp og mótmæla gerræði rektors. Þeir verða að standa fremst í baráttunni í anda Jóns Sigurðssonar. Og þeir standa ekki einir frekar en for- setinn. öll íslenzka þjóðin stend-% ur með þeim. Menntaskólanemi. I Burma sækja Japanar fram og virðast hafa ofurefli liðs, en á öðrum Kyrrahafsstöðvum er lítil breyting og veitir banda- mönum sízt ver, ef ekki betur en Japönum. Amerislcar flugvélar frá Kína hafa skotið niður 15 jap- anksar flugvélar yfir Birma og laskað 5 í tveggja daga bardög- um\ I fyrradag voru skotnar niður 14 þýzkar flugvélar yfir aust- Ráðskona óskast á fámennt heimili i Borgarfirði; mætti hafa stálp- að barn. Hátt kaup. Uppl. í síma 5038 kl. 5—7 og 9—10 í kvöld. — Tvöfaldir klæða- til sölu. Hverfisgötu 65 (lxak- húsið). Gúð stðlka óskast á lieimili Helga Magn- ússonax', Bankastræti 7. — þarf að geta sofið heirna til 14. maí. SMIPAUTCERÐ „Es|a44 i hraðferð til Akureyrar um hádegi á mánudag. Viðkomu- staðir í báðum leiðum: Pat- reksfjöi'ður, Isafjörður og Siglufjörður. Vörunxóttaka á morgxm (laugardag). Farseðlar ósk- ast sóttir fyi'ir klukkan 3 á mórgun (laugardag). SunfeMn i grend Reykjavikur óskast til leigu frá 1. maí. Tilboð, merkt: „Sumardvöl“ leggist á afgr. blaðsins fyrir mánu- dagskvöld. — Vörubíll Model ’34, til sölu af sérstök- um ástæðum. Útborgun 3—4 þúsund krónur. Hagkvæmar mánaðagreiðslur. Tilboð sendist Vísi fyrir llá- degi á morgun, merkt: „Model ’34“. Lítil íbúð óskast 14. mai. — Skilvis greiðsla, góð umgengni. Til- boð, merkt: „Bárður Snæ- fellsáss“ sendist Vísi. 3 blólkip af Buickbifreið voru teknir af bifreiðinni R 506 aðfara- nótt 23. apríl. Mjög há þókn- un verður greidd þeim sem getur skilað hjólkoppunum. Uppl. hjá Sveini Ásmunds- syni hjá Sveini og Geira. — urvígstöðvunum og 8 rússnesk- ar , en daginn þar áður 37 þýzk- ar eða 5 fleiri en áður var til- kynnt. Fundur var haldinn i neðri málstofunni í gær og rætt um stríðshorfurnar. Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyrum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.